Þjóðviljinn - 11.11.1965, Blaðsíða 2
1
2 SlÐA — ÞJÓÐVIIjJXNN — Fimmtudagur 11. nóvember 1965.
Samtök í Hafnarfirði um að varð
veita hús Bjarna riddara
Hafnfirðingar hafa nú stofn-
að félagsskap til þess að varð-
veita og endurbyggja íveru-
hús Bjarna riddara Sívertsen,
sem stendur við Vesturgötu
fyrir ofan bæjarbryggjuna.
Tólf félög í bænum standa að
bessum samtökum eins og
Kaupmannafélagið, Iðnaðar-
mannafélagið, Verkamannafé-
lagfð Hlíf, Verkakvennafélag-
ið Framtíðin, Sjómannafélagið,
og þannig mætti lengi telja.
Hugmyndinni hreyfði Bjarni
Snæbjörnsscm, læknir á fundi
í Rotaryklúbbnum snemma árs
1964 og hefur nú verið skipuð
stjóm fyrir þessi samtök og
skipa hana Bjami Snæbjöms-
-----------------------------
James Hoffa
endurkosinn
DETROIT 9/11 — James Hoffa,
hinn umdeildi forseti flutninga-
verkamannasambandsins banda-
ríska, var í gær endurkjörinn
formaður félags síns í Detroit.
Hoffa var í fyrra dæmdur í
átta ára fangelsi fyrir misnotkun
á fé sambandsins og fyrir að
bera fé í kviðdóm, er um mál
hans fjallaði. Þeim dómi var
áfrýjað og Hoffa var sleppt úr
fangelsi gegn tryggingu.
„SjQVa- TWVGGT EB VEl- TRVCCT
INMBROTGTRVCQINCMk
SlMI 11700
SJOMJTRYGOINOAFELCS ISLANDS H’P
son formaður, Kristján Ey-
fjörð ritari, Ólafur Pálsson
gjaldkeri, Gísli Sigurðsson
varaformaður og meðstjómend-
ur Ársæll Jónsson, Kristín
Magnúsdóttir og Sína Amdal.
Þetta hús er talið byggt á
árunum 1804 og 1805 og var
þá talið vandaðasta íbúðarhús
á landinu að allri gerð og
sennilega flutt inn tilbúið að
mestu frá Danmörku. Húsið
var einna hæða með tvílofta
risi og stærðin 13x18 álnir.
Segir svo í lýsingu á húsinu
á dönsku frá árinu 1833. „Huset
er með firé rummelige værelser
og tre kammers ovenpaa, —
værelsene undernede er for-
synede med kakkelovne, —
henhos et kökken og spise-
kammer, — ogsaa er under-<$>.
nede í bygningen et træskur
ved den nordlige side“.
Máttarviðir voru einstaklega
vandaðir í húsinu og segir
Gísli Sigurðsson, varðstjóri, að
þeir hafi verið 6x6 þumlungar
og 4x4 þumlungar og þykktin
á öllum borðum BA, þumlungar
á innanklæðningu og utan-
klæðningu á húsinu. Þá voru
allar máttarstoðir með bind-
ingsmúrverki og fínpússaðar.
Ánnars var Bjarni riddari
góður smiður sjálfur og margt
fjölhæfra iðnaðarmanna í
Firðinum á þeirri tíð eins og
skipasmiðir, múrarar, tógmenn,
og trésmiðir og hafa þeir ef
til vill lagt gjörva hönd á að
reisa húsið, og hvergi gisti
Henderson glæsiiegra íbúðar-
hús á Islandi á ferðalagi sínu
hér um landið.
Vert er að drepa á ævintýrið um
Bjama Síversen sem athafna-
mann. Bjami var bóndasonur
úr Selvoginum og hugðist stofna
verzlun í Vestmannaaeyjum
og Selvogi til að byrja með
en var hrakin frá þeim stöðum
af kaupmönnum á Eyrarbakka.
Danskur kaupmaður í Firð-
inum fór á hausinn kringum
1790 og keypti Bjarni þar verzl-
unarréttindi og rak þar aðal-
verzlun til 1833.
Einnig hafði hann verzlun í
Reykjavík og Keflavík og töld-
ust viðskiptavinir hans nálægt
þúsund talsins um allt land.
Hann hafði viðskiptasambönd
í Kaupmannahöfn, Hamborg,
Leed. Liverpool, Bristol, Bilbaó
á Spáni, Genúu á Italíu og
Marseille í Frakklandi.
Hann lærði skipasmíði er-
lendis og kynnti sér margar
skipasmíðastöðvar þar og setti
upp eina slíka í Firðinum og
lét smíða um 9 skip, — bæði
fiskiskútur og verzlunarskip til
millilandasiglinga, — þannig
gerði hann út þrjár fiskiskút-
ur um skeið og fjögur verzl-
unarskip. Hann rak einnig
stórt bú á þeirra tíma mæli-
kvarða og hafði fé í seli, þá
flutti hann einu sinni inn 500
trjáplöntur frá Skotlandi og
lét gróðursetja í Firðinum.
Þessi bóndasonur úr Selvog-
inum gerðist vinnumaður hjá
lögréttumannsekkju tæplega
tvítugur og kenndi hún hon-
um að lesa og skrifa og gift-
ist honum sfðan og lét hann
ávaxta sitt pund á fengsælan
hátt.
Hafnfirðingum er þes&i at-
hafnamaður frá árdögum borg-
arastéttarinnar hugstæður og
vilja þeir vernda húsminjar
hans með sóma.
Cr-
skurðar beðið
Svo bregðast krosstré sem
önnur tré. Ein merkasta stofn-
un þjóðkirkjunnar. Almenn-
ur kirkjufundur, sé 15di í
röðinni, hefur ákveðið að víta
einn kunnasta klerk lands-
ins, séra Jón Auðuns dóm-
prófast. Er Jóni gefið að sök
að hann hafi farið óvirðing-
arorðum um kirkjuna í ræðu
og riti og einkanlega þá þætti
í atböfnum hennar sem eru í
ótvíræðu samræmi við guðs
orð. Eru afbrot Jóns þeim
mun alvarlegri sem óvirðing-
arsb-t^f hans birtust í Morg-
unblaðinu. sjálfu aðalmál-
gagni kirkjumálaráðherrans,
og hiýtur ábyrgðin þvf einnig
að hvíla á Matthfasi Johann-
essen, þeim trúarritstjóra sem
orti Skálhoítssálminn sællar
minningar og fann brfeinan
guð f flugvéladrunum her-
námsliðsins. og á Jóhanni
Hafstein kirkjumálaráðherra.
SegJr upphafsmaður tillögu
þeirrar sem kirkjufundurinn
samþykkti. að f skrifum þeim
sem þremenningarnir bera á-
byrgð á komi fram rangtúlk-
un fi hjálpræðisverki guðs,
afneitun á fagnaðarerindinu
og heiðin heimspeki. og þvi
beri að líta á ummæl’n sem
algert guðlast. en sá verkn-
aður var tii skamms tfma tal-
inn til hinria alvarlegustu af-
brota hérlendis ekki síður en
í Gvð;ngalandi fvrir tæmim
tuttugu öldum, þegar menn
voru krossfestir fyrir þvílíkar
sakir.
Hér er komin upp deila
sem óhjákvæmilegt er að út-
kljá skýrt og undanbragða-
laust. Hljóta þá augu manna
að beinast að sjálfum hinum
andlega 'núsbónda þjóðkirkj-
unnar, herra Sigurbirni Ein-
arssyni biskupi yfir íslandi,
en hann hefur áður varað
þjóðina við því af postuileg-
um óskeikulleik að taka mark
á trúfræðihugmyndum þeim
sem Vottar Jehóva boða. Á
sama hátt ber honum nú að
úrskurða hvort séra Jón Auð-
uns dómprófastur er alger
guðiastari. auk hinna smá-
vægilegri afbrota. og hvort
sjálft aðalmálgagn kirkju-
málaráðuneytisins hafi verið
notað til þess að óvirða guðs
orð. og verði sú niðurstaða
hans ber honum að gera ó-
hjákvæmilegar ráðstafanir.
Telji biskupinn Jón Auðuns
hins vegar fullgildan mál-
svara þjóðkirkjunnar á boð-
skap sínum. hlýtur hann að
beita fulltrúana á Hinum
almenna kirkjufundi mjög
alvarlegum viðurlögum i orði
og verki. Undan þessari
skyldu verður ekki komlzt. ef
biskupinn vill vera andlegur
húsbóndi á heimili sfnu. Það
er til lftils að fjölga kirkjum
og klerkum. stofna bókasafn
kristjlegan ’ýðháskóla og slát-
trrhús í Skájholti. ■*f áhri'fr
vald hnns úr neðra fer n*
sama skapi vaxandi jnna-
beirrnr stofnunar sem f önd.
verðu var cptt honum til höf-
uðs. — Austri.
UMDEILD EMB-
ÆTTISVEITING
Hinn illi ávöxtur pólitísks
siðgæðis hér á landi kemur
víða fram. Greinilega birtist
hann oft. þegar stöður á veg-
um hins opinbera eru veittar
af ráðamönnum eftir pólitísku
mæliljósi.
Nýjasta dæmið um þetta og
sem á sér ekkert sambærilegt
fordæmi, þótt margt hafi verið
brallað í embættisveitingum lið-
inna ára, er veiting fógetaemb-
ættisins í Hafnarfirði nú á dög-
unum. Með þeirri veitingu er
þeim manni, sem eftir setn-
ingu frá ráðherra hafði þjón-
að embættinu í tæp 10 ár, sem
næst fyrirvaralaust varpað á
dyr, Sama sem rekinn úr starfi.
Ætla mætti, að eitthvað væri
það í starfsferli þessa manns.
sem gerði hann að dómi veit-
ingarvaldsins óhæfan til að
gegna embættinu áfram, þótt
það hafi lagt blessun sína yfir
þessa löngu setningu hans í
embætti og borið ábyrgð á
henni. Væri því sannarlega
ástæða til fyrir viðkomandi ráð-
herra að verja málstað sinn
varðandi þessa vægast sagt um-
deildu embættisveitingu.
Sá, sem þetta ritar, hefur í
starfi sem lögmaður f Hafnar-
firði, þurft að hafa náin skipti
við hinn brottvikna bæjarfó-
geta og sýslumann, Bjöm
Sveinbjömsson. ’ Ekki hefi ég
orðið annars var en að hann
hafi gegnt sínu umfangsmikia
embætti af réttsýni, reglusemi.
lipurð og samvizkusemi, sem
hvað bezt kom fram í því að
rnæta vel til vinnu, og er það
me'ra en sagt verður um suma
embættismenn.
Björn Sveinbjömsson vann
sér traust þeirra, sem við hann
áttu skipti. Þannig mæltu allir
aðalsýslunefndarmenn Gull-
bringu- og Kjósarsýslu með þvi
og sendu áskorun þar um til
dómsmálaráðherra, að Birni
yrði veitt embættið. Má og
ljóst vera. að löng og góð bekk-
ing á fólki og stöðum í við-
komandi umdæmi er veigamik-
ið atriði í slíku starfi og hér
um ræðir Þá bekkingu hafði
Björa öðlazt f rfkum mæli á
sínum lan»a. embættisferli. Svo
rótgróinn var hann orðinn sem
raunverulegur bæjarfógeti I
Hafnarfirði og sýslumaður, að
hann var tekinn sem fullgildur
félagi í samtökum sýslumanna
og dómara.
Það má því sannarlega telj-
ast stórfurðulegt, að Björn
skuli sniðgenginn, en embættið
veitt, að bví er virðist, eftir
formúlum og siðferði íslenzkra
stjórnmála.
Moð framangreindu ætla ég
mér ekki að kasta rýrð á
þann mann, sem embættið var
veitt, og því síður þriðja um-
sækjandann, bæjarfógetann á
Isafirði, með sinn 22 ára starfs-
aldur að baki.
Hvað geta nú óbreyttir borg-
arar gert gagnvart slíkri rangs-
leitnj við samborgara sinn og
hér er gerð að umtalsefni? Um-
fram allt mega menn ekki láta
þá, sem að henni standa, græða
á mætti gleymskunnar. Það
hefur allt of lengi tíðkazt, að
rökstudd gagnrýni fólks á
tröðkun grundvallatriða lýð-
réttinda og einstaklingsréttar
missi marks með tímanum,
þannig að þeir, sem ranglæti
fremja, fá aldrei þá refsingu,
sem til var unnið. Meðan svo
heldur áfram, er lítil von um
breytta siði.
Fólk þarf að láta ráðaöfl
finna, að takmörk eru fyrir
því, hversu langt er hægt að
ganga á siðferðislegan rétt ein-
staklings til starfs eða stöðu.
Spá mín er sú, að hið aug-
Ijósa ranglæti gagnvart Bimi
Svembjömssyni eigi eftir að
verða þeim aðilum sem það
frömdu og studdu, það dýrt,
að þeir geti eitthvað af því
lært.
Hafnarfirði, 7. nóv. 1965.
Arni Gunnlaugsson.
• Bifreiðaviðg'erðir
• Réttingar
® Ryðbætingar
Bergur
Hallgrímsson
A-götu 5 Breiðholtshverfl,
Símj 32699.
Auglýsing
frá Bæjarsímanum í Reykjavík.
Númeraskrá fyrir símnotendur í Reykjavík, Hafr
arfirði, Kópavogi og Selási hefur verið prentuð í
takmörkuðu upplagi.
Númeraskráin er til sölu í Innheimtu landssímans
í Reykjavík og afgreiðslu símstöðvanna í Hafnar-
firði og Kópavogi.
Verð skrárinnar er kr. 30,00 eintakið.
Nylon-úlpur
Molskinnsbuxur, vinnubuxur í úrvali. -
Verðið mjög hagstætt.
Verzlun Ó. L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
r
Asprestakall
Aðalsafnaðarfundur verður haldinn í Laugames-
kirkju sunnudaginn 14. nóvember n.k., að lokinni
messu, sem hefst kl. 5 síðdegis.
Safnaðarnefndin.
JT
Asprestakall
Framhaldsaðalfundur Bræðrafélags Ásprestakalls
verður haldinn í safnaðarheimili Langholtssafnað-
ar kl. 8.30 í kvöld, fimmtudag.
U ndirbúningsnefnd.
Ný sending
Ungbarnaföt úr ísgarni.
R. Ó. búðin
Skaftahlíð 28. — Sími 34925.
Skrifstofumaður
og skrifstofustú/ka
óskast. — Umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri síörf sendist sem
fyrst.
Skipaútgerð ríkisins.
mifiiiiSiJiy'j
ié.ii/w !/i
MPlll btt'li'J
vinsœlasti' skarforlpir
íóhannes skólavörðustíg 7
*