Þjóðviljinn - 04.01.1966, Qupperneq 1
Benzinlftrim hækkar
ikr. 7,05-19,5%
■ r-r -
' ; *“i: -
- »t - r -
— ~
'v'
^•^sig&K;;.
r« ' '\r.. I v'í’<
w N «
■
ííS^S'iÍwSíiíSSSÍ®
Þriðjudagur 4. janúar 1966
31. árgangur — 1. tölublað.
Þessa fallegu áramótamynd tók ljósmyndari Þjóðviljans, Ari Kárason, af flugeldun.um yfir borg-
inni á miönætti á gandárskvöld. Veður var gott á gamlárskvöld og var mjög mikil umferð í
borginni í sambandi við áramótabrennurnar en engin alvarleg slys urðu þrátt fyrir mikla umferð
og talsvert mikla ölvun. Hins vegar urðu tvö banaslys á Akureyri og alvarlegt umferðarslys í Hafn-
arfirði og annað hér í Keykjavík á nýársdag. —
en olían lækkar um 4 aura lítrinn
□ Nú um áramótin, 1. janúar, kom til fram-
kvæmda stórfelld verðhækkun á benzíni. Hækk-
ar lítrinn úr kr. 5,90 í kr. 7,05 eða um 19,5%. Staf-
ar hækkunin að langmestu leytj af hækkun benz-
ínskatts er samþykkt var á alþingi nú fyrir ára-
mótin.
97 aura hækkun vegna benzínskatts
Samkvæmt þvi er verðlagsstjóri skýrði Þjóðviljamim frá í gær
nemur hækkunin á benzínskattinum sjálfum 90 aurum á hvem
benzínlítra. Qfan á þá hækkun koma svo sjö aurar í söluskatt.
Br hæktounin þá komin í 97 aura. Alls er hækkunin hins vegar
115 aurar. Sagði verðlagsstjóri að verð á benzíni hefði nú verið
óbreytt að kalla í tvö ár en á þvi tímabili hefðu orðið hækkanir
á dreifingarkostnaði o. fl. og kæmu þær nu inn í benzínverðið.
Nemiur sú hækkiun 18 aurum.
Olíuverðið lækkar um 4 aura á lítra
Jafnhliða þessari miklu benzínhækkun kom til framkvæmda
1. janúar smávægileg lækkun á olíuverði. Lækkar lítrinn um 4
aura, úr kr. 1.67 í kr. 1.63 olía til kyndingar, en úr kr. 1.62 í kr.
1.58 olía til báta. Sagði verðiagsstjóri að olíuverðið hefði verið
óbreytt lengi, þótt ýmsar breytingar hefðu orðið á innkaupsverði
og dreifingarkostnaði og hefur laakkunin á innkaupsverðinu orð-
ið meiri en sem svarar hækkun dreifingarkostnaðar þannig að
heildarútkoman er fjö'gurra aura lækkun.
Tíðindalaust
í kjaradeilu
ENN HEFUR ekkcrt gerzt í
samningamálum verzlunar-
manna, en samningar þeirra
runnu út um áramótin.
GERX ER RÁÐ fyrir samninga-
fundum á næstunni og er tal-
ið liklegt að deilunni verði
vísað til sáttasemjara.
Sjá frétt á 12. síðu
Sett í Havana í gær
Ráistefna þjóða rómönsku
Ameríku, Afríku og Asíu
500 fulltrúar ríkisstjórna, byltingarhreyfinga og
andstöðuflokka í allt að 100 löndum mættir þar
HAVANA 3/1 — Fulltrúar frá upp undir hundrað lönd-
um í rómönsku Ameríku, Afríku og Asíu komu í dag sam-
an á ráðstefnu í Havana sem ætlað er að standi í níu daga.
Á ráðstefnunni verður fjallað um á hvem hátt verði bezt
barizt gegn heimsvaldastefnunni og nýlendukúguninni
hvar sem hennar gætir í heiminum.
Til ráðstefnunnar eiu mættir
um 500 fuUtrúar ýmist ríkis-
stjóma. andstöðuflokka eða bylt-
ingarhreyfinga sem berjast með
vopni í hönd fyrir frelsi þjóða
sinna.
í Reutersskeyti segir að und-
NÝ EYJA
VIÐ
SURTSEY
;*] Síðdegis í gær flaug
Sigurjón Einarsson flug-
umferðarstjóri yfir
Surtsey og hafði þá ný
eyja skotið upp kollin-
m um það bil 100
metra löng, og gaus á
tveim stöðum. Hefur
eyjan risið úr sæ í gær
eða fyrrinótt.
90 Á sunnudaginn flugu
þeir Sigurjón og Agnar
Kofoed Hansen flug-
málastjóri yfir gos-
stöðvarnar og var þá
fremur lítið gos en þeir
sáu móta fyrir rifi er
maraði í hálfu kafi.
Hefur gosið þv£ aftur
færzt í aukana í gær
eða fyrrinótt.
irbúningsnefnd ráðstefnunnar
hafi á sunnudagskvöld samþykkt
einróma stjómmálaskýrslu sem
leggja á fyrir hana, en skýrsl-
unni hafi verið breytt vegna
þess að kínversku fulltrúamir
hafi gagnrýnt hana harcflega.
Þeir hafi álitið að allt of vægt
væri kveðið að orði í skýrsl-
unni, einkum þeim kafla henn-
ar sem fjallar um Vietnam.
Samkvæmt sömu heimild mun
hafa komið upp ágreiningur um
ýms önnur atriði og hafi slegið
í hart milli kinversku fulltrú-
anna og fulltrúa frá öðrum
löndum. Þannig hafi komið upp
ágreiningur um hverjir skyldu
teljast ful'ltrúar frá Ceylon og
Indónesíu. Áuk fulltrúa ríkis-
stjóma þessara landa hafi mætt
til ráðstefnunnar nefndir sem
séu hliðhollar Kínverjum. Ekki
hafi verið ljóst í upphafi ráð-
stefnunnar hvorir fulltrúamir
yrðu teknir gildir.
Til ráðstefnunnar hefur verið
boðið áheymarfulltrúum frá
sósíalistísku ríkjunum í Aust-
ur-Evrópu, öMum nema Júgó-
slavíu og hún sennilega skilin
undan fyrir kröfu Kínverja.
Sagt er að óánægja sé með þá
ráðstöfun meðal margra fulltrúa
á ráðstefnunni og kann þetta
að verða deiluefni.
Þannig er augljóst að þrátt
fyrir sameiginlega meginafstöðu
er ágreiningur um mörg atriði.
Kínversku fulltrúarnir hafa sótt
það fast að einfaldur meirihluti
nægi til gildandi samþykktar og
bendir það til að þeir telji að
meirihluti fuilltrúa sé á sínu
bandi í þeim málum sem á-
greiningur getur orðið um. Und-
irbúningsnefndin samþykkti þó
að tvo þriðju atkvæða þurfi til
bindandi samþykktar þegar um
er að ræða umdeild mál.
Meðal mála sem eru á dag-
skrá ráðstefnunnar eru Vietnam,
Domingo-lýðveldið, stuðningur
við blökkumenn í Bandaríkjun-
um í mannréttindabaráttu þeirra,
nýlendur Portúgala, Ródesía
Suður-Arabía, Palestína og
Kúba.
Það var forseti Kúbu, Osvaldo
Dorticos, sem setti ráðstefnuna
í dag.
A/gert öngþveití vofir yfír
í New York vegna verkfalls
Jopanar til
Ameríku 3000
árum f. Kr.?
NEW YORK 3/1 — Leirkera-
brot sem fundizt hafa í Ekvador
gefa til kynna ag Japanar hafa
komið til Ameríku 4.50o árum
á undan Kólumbusi. segja tveir
bandarískir vísindamenn, Clif-
ford Evans og Betty Meggers. í
grein í „Scientific American“.
Þau telja að þar hafi sennilega
verið á ferð fiskimenn sem
hafi rekið fyrir vindi og straum-
um.
NEW YORK 3/1 — Til mikilla
vandræða horfir í New York
þar sem 35.000 starfsmenn við
almenningsfarartæki borgarinn-
ar hófu verkfall á nýársnótt.
Það tókst þó að afstýra því
algera umferðaröngþveiti sem
búizt hafði verið við að yrði í
morgun þegar þær fimm milj-
ónir manna sem hafa atvinnu
í borginni en eiga heima langt
frá vinnustað hæfu aftur störf
eftir nýárshelgina. Öllu lög-
regluliði borgarinnar, 27.000
manns, hafði verið boðið út og
tókst framar vonum að greiða
úr umferðarhnútum sem stöfuðu
af þeim mikla fjölda manna sem
óku nú í eigin bílum úr út-
hverfunum til borgarinnar í
stað þess að fara með jám-
brautarlestunum.
Hundruð þúsunda munu hafa
orðið við tilmælum Lindsays
borgarstjóra að þeir skyldu sitja
heima sem ekki væru bráð-
nauðsynlegir á sínum vinnustöð-
um.
Búizt er þó við hinu versta
ef verkfallið héldur áfram, en
ekki voru horfur á því í kvöld
að það myndi leysast bráðlega.
verkfallsmenn krefjast 30 pró-
sent kauphækkunar og 32 stunda
vinnuviku sem skiptist á fjóra
daga.
Verðákvörðun á bolfíski
frestað m nokkra daga
B
a
Þór féll
hliðina í
Slippnum
Varðskipið Þór féll
hliðina, þegar átti að draga Jh
það á þurrt í Slippnum á "
fjórða tímanum í gær. Var
skipfð komið upp á vagn-
inn og brotnuðu stoðir ||
það, en ekki er
vitað hvað olli ó-
„Yfirnefnd Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins hefur að undanfömu
unnið að ákvörðun lágmarks-
verðs á bolfis'ki fyrir árið 1966.
Stefnt hefur verið að Því að
ljúka verðákvörðun fýrir ára-
mót, samkvæmt gildandi reglu-
gerðarfyrirmælum.
Verðlagsráð hefur tilkynnt
ráðuneytinu. að ný sjónarmið,
sem snerta væntanlega verðá-
kvörðun hafi komið fram. og
þarfnist frekari athugunar. Því
hefur ráðið óskað heimildar
ráðuneytisins til að verðákvörð-
un verði frestað nokkra daga,
þó ekki lengur en til 6. janúar
n.k. —, Ráðuneytið hefur í dag
samþykkt þessa frestun.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið,
31. desember 1965“
kringum
að fullu
happinu.
Skemmdir á Slipp og
skipi eru ókannaðar ennþá,
sagði Pétur Sigurðsson er
Þjóðviljinn hafði tal af
honum í gærkvöld, en
sýnilegar miklar skemmdir
á Slippnum og er þetta á-
byggilega mikið fjárhags-
legt tjón.
Engin slys urðu á mönn-
um, en áhöfn Þórs var um
borð auk starfsmanna frá
Landssmiðjunni og Slippn-
um. Einn maður féll út-
byrðis og lenti í sjónum,
en var strax bjargað á
land og varð ekki meint
af volkinu.
Ekki var hægt vegna að-
stæðna og myrkurs að rétta
Þór við í gær, en verður
hafizt handa um það í
dag. A myndinni sést Þór
á hliðínni. (Ljósm. Þjóðv.
A. K.) .