Þjóðviljinn - 04.01.1966, Blaðsíða 12
Virkir dagar hins nýja árs eru hafn-
ir og veruleikinn blasir við sjónum, —
áhrifin frá lúmsku hátíðarspjalli stjórn-
arleiðtoga í útvarpi og blöðum fjara út
í raunveruleika líðandi stundar.
Víða blasir við tortíming gamalgró-
inna fyrirtækja í fuðrandi verðbólgu og
skammt verður stórra högga á milli á
þessu ári í gömlum atvinnugreinum frá
ómunatíð hér á landi.
í gærdag var loft lævi blandið niður
á Granda, en þar liggur reykvíski báta-
flotinn bundinn við festar við upphaf
vetrarvertíðar, — sjómenn bíða nú eft-
ir fiskverðinu eins og fyrri daginn, —
það er þegar búið að brjóta á þeim
lög með tilkynntum fresti fram í vik-
una og tortryggni gætir nú í garð
stjórnarvalda — samkvæmt áralangri
reynslu í þessum efnum.
Guðni Sigurðsson.
Hvernig verður fiskverðið?
Sjómennirnir þykkjuþungir
Við náðum spjalli af tveim
sjómönnum í gærdag niðri á
Granda og drukkum með
þeim kaffi úr föntum mikl-
um um borð í bát annars
þeirra.
Það eru þeir Guðni Sig-
urðsson á Dreka og Jóni
Guðjónsson á Andvara. Þeir
segja:
— Við erum fullir tortryiggn;
út í þennan frest á fiskverð-
inu og erum kvíðnir út af
framtíðinni. Þetta eru um
fimmtíu tonna bátar, sem við
gerum út á svonefndar bol-
fiskveiðar og nú er mikið i
húfi með fiskverðið.
Á árunum 1962 til 1966
hefur fiskverð hækkað um
25% á sama tíma og margt
í útgerðarkostnaði hefur
hækkað um hundrað prósent
og við erum hættir að fá
sjómennina út á þessa báta
að óbreyttu fiskverði.
Það er að verða vonlaust
að gera út fiskibáta frá þrjá-
tíu tonnum upp í hundrað
tonn nema stórfelld breyting
verði á fiskverðinu og það
hækki til muna.
Hversvegna er ekki hægt
að framkvæma þessa fisk-
verðshækkun?
Mikil verðhækkun hefur
orðið erlendis á frystum fiski
á tveim síðastiiðnum árum
og hefur bessa sáralít'ð gætt
í fiskverðinu og aðrir hafa
hirt bann ávinning með beim
afleiðingum, að bessi báta-
útvegur er að leggiast í rúst.
Þessir bátar afla þó um
60°/o af þorski og ýsu, sem
berst á land hér.
Guðni sagðist nýlega hafa
þurft að fá ferskvatnsdælu
á dieselvél og hefði hún
kostað 55 þúsund krónur.
Kostaði slí'k dæla hjá verk-
smiðjunni í Vestur-Þýzka-
landi 968 mörk á framleiðslu-
verði þar. Allir geta séð hinn
mikla milliliðakostnað á
þessum samanburði. Þetta er
orðið svo hömlu'laust, að engu
tali tekur og við munum
huga vel að væntanlegu
fiskverði.
Jón vék talinu að ýmis-
konar björgunartækjum, sem
þeim væri gert að kaupa a
næstunni og væri raunar
sjálfsagt mál fyrir sjómenn-
ina. En þetta er allt selt með
miklum okurkjörum — nú er
til dæmis öllum gert að kaupa
á næstunni nýja gerð af
gúmbátum með toppljósi, —
þá er ný talstöð á ferðinni
og öllum bátum gert að hafa
talstöð, en þar er engin misk-
unn í verðlagningu. Hún
kostar víst 11 þúsund.
Ný, ísleitzk
revía frumsýnd
Á sunnudagskvöld var frum-
sýnd i Sigtúní ný íslenzk revía.
..Kleppur — hraðferð, ref jar i
tvpim umferðum‘‘ Var húsfyllir
og hlaut revian góðar undirtekt.
ir.
Um revíuna eru gefnar þær
upplýsingar í leikskrá að það er
Borgayrevían h.f. sem sér um
„fararstjórn og hagræðingu", en
,.umferðarstjóri“ er Sigurður
Karlsson. Hraðferðin byrjar Ög
endar á Millabar og eru farþeg-
ar táningar tveir, leiknir af
þeim Nínu Björk og Alla Rúts.
Brúsi barmenni leikinn af
Hjálmtý Hjálmtýssyni, Jökulí
Long. leikinn af Lárusi Ingólfs-
syni og síðast en ekki sízt Jenka
Bargeir. eiginkona Jóns Bargeir
fjármálamanns sem missti af
strætisvagninum, en hún er
leikin af Emiláu Jónasdóttur.
Slysfarir um áramótin:
Þriðjudagur 4. janúar 1966 — 31. árgangur — 1. tölublað.
Því ekki sama físk-
verð og í Noregi?
| Eldur í íbúðarblokk
j
Þessi mynd var tekin niðri á Granda í gærdag. Við upphaf vetrarvertíðar er víða unnið með ■
hangandi hendi að undirbúningi meðan óráðið er um fiskverðið á komandi vertíð.
Landssíminn vill fá sitf og
vitnar til Norðurlanda, —
við getum líka vitnað í Noreg
og heimtað sama fiskverð
og þar. Það er um 10 kr.
kílóið.
Nei — við förum ekki
fram á annað en fiskverðs-
hækkun fyrir nauðsynlegustu
útgjaldaliðum í kostnaði. En
kannski vilja þeir láta bát-
ana fara und'r hamarinn.
I
I
i:
\
\
\
lí
Á þessu ári verður Skipstjóra-
og stýrimannafélagið Vísir í
Keflavík tuttugu ára. Var hald-
inn aðalfundur i félaginu í
fyrradag og var stjórnin endur-
kjörin og skipa hana eftirtaldir
menn: Karl Sigurbergsson, for-
maður, Haukur Bergmann, rit-
ari og Ingólfur Falsson, gjald-
keri.
Á þessum fundi urðu miklar
umræður um fiskverðið og var
gerð þar eftirfarandi fundar-
samþykkt.
„Fundurinn mótmælir þeim
seinagangi, sem jafnan einkenn-
ir ákvörðun verðs á ferskfiski
og vítir harðlega það skýlausa
lagabrot, að eigi sé verðákvörð-
un lokið fyrir hver áramót áð-
ur en vertíð hefst.
Beinir fundurinn á þann ó-
rétt, sem sjómönnum er sýnd-
ur með þvílíkum vinnubrögðum,
þar sem þeir eru þess alls ó-
vitandi. hvaða launakjör þeir
beri, fyrr en ferskfiskverð hef-
ur verið auglýst.
Fundurinn telur, að fátt eitt
standi nú í vegi þess, að fisk-
verð sé ákveðið og hækkað all-
verulega frá því sem áður var.
Þar sem nýafstaðnar hækkan-
ir hins opinbera, til dæmis sím-
gjöld og fleira eru afsakaðar með
því að verið sé að samrýma
þau gjöldum annarsstaðar á
Norðurlöndum, — vill fundur-
inn eindregið beina þeirri til-
lögu til hlutaðeigenda, að þeir
taki sér slíkt til fyrirmyndar
og auglýsi nú þegar sama fisk-
verð og til dæmis er í Noregi.“
Fólk á hlaupum og
flúið með börnin
I fyrrakvöld hvarf vistmaður
frá Reykjalundi og var hans
leitað í fyrrinótt og gær. Fannst
maðurinn í gær látinn. Maður-
inn var utan af landi og er
ekki hægt að birta nafn hans
að sinni vegna fjarstaddra ætt-
ingja er ekki hafði náðst sam-
band við í gaer. Hinn látni
var á sextugsaldri.
Tveir drukkna á Akureyri -
tvö alvarleg umferðarslys
□ Um áramótin drukknuðu tveir menn á Ak-
ureyri. Þá varð alvarlegt umferðarslys í Hafnar-
firði og- slasaðist erlendur sjómaður þar lífshættu-
lega. Loks varð harður bifreiðaárekstur á Miklu-
braut á nýársdag og slasaðist ökumaður annarr-
ar bifreiðarinnar allmikið á höfði.
Fyrra banaslysið á Akureyri
varð á níunda tímanum á gaml-
ársdagsmorgun. Bar þag að með
þeim hætti að vörubifreið var
á leið niður Kaupvangsstræti er
ökumaður hennar fékk aðsvif
að því er talið er. Lenti bif-
reiðin á svonefndu Guðmanns-
húsi sem er á mótum Kaup-
vangsstrætis og Hafnarstrætis
og braut úr hominu á þvi.
síðan rann bifreiðin áfram nið-
ur götuna og lenti á húsi Eim-
skipafélagsins er stendur hin-
um megin við hana og loks
rann hún fram af bryggjunni.
Var höfnin lögð, en bifreiðin fór
niður um ísinn.
Ráðstafanir voru þegar gerðar
til þess að ná bifreiðinni upp en
það tók að sjálfsögðu nokkurn
tíma, Var ökumaður hennar lát-
inn er hann náðist. Hann hét
Heimir Baldvinsson og var
starfsmaður Olíuverzlunar ís-
lands. þrítugur að aldri.
Hitt banaslysið á Akureyri
varð á nýársnótt. Var það 29
ára gamall maður. Jón Hjalta-
lín að nafni er drukknaði í
höfninni Jón fór að heiman frá
sér um kl. 10 á gamlárskvöld
og sást til ferða hans í miðbæn-
um síðar um kvöldið. Er hann
kom ekkj heim til sín um nótt-
ina var farið að leita hans og
fannst lík hans um morguninn
í fjörunni við niðursuðuverk-
smiðjuna á Tanganum.
Slysið i Hafnarfirði varð um
kl 7 á gamlárskvöld. Varð
Spánverji, skipverji af norska
lýsisflutningaskipinu M. T. Elm,
fyrir bifreið á Strandgötunni á
móts við skipasmíðastöðina Dröfn
Og slasaðist hann mjög mikið.
Hlaut hann höfuðkúpubrot.
kjálka- os kinnbeinsbrot og
fleiri meióoli á höfði og fót-
brotnaði einnig á báðum fót-
um
Spánverjnn var þarna á gangi
ásamt fleiri skipsfélögum sínum
og segist ökumaður bifreiðarinn-
ar ek'ki hafa ség hann fyrr en
of seint Kastaðist maðurinn við
áreksturkm upp á bifreiðina og
braut framrúð hennar >g
Framhald á 2. síðu.
Mikið var að gera hjá Slökkvi-
liðinu í gærkvöld og var það
kvatt út þrisvar á stuttum tíma.
Mest var um að vera í stórri
íbúðabloki er reykur barst um
húsið og gætti fólk lítt stilling-
ar, hljóp fram og aftur um
ganga og sumt flúði með börn
sín.
Ibúðablok’kin er við Ljós-
heima 16—18 og er enn í bygg-
ingu. Þetta er átta hæöa hús
með einum 40—50 íbúðum og
eru svalahandrið enn ókomin og
stórhætta þegar slíkt fjölda-
felmtur grfpur fólk, að ein-
hverjir gangi fram af svölunum.
Þama hafði kviknað í haugi
af einangrunarhólkum í kjallara
í enda blokkarinnar. Náði e’ld-
urinn upp í loft í kjallaranum
og barst reykurinn eftir leiðslu
sem liggur um mitt húsið að
baðherbergi í hverri íbúð og
barst mikill reykur í sex eða
átta íbúðir. Ekki komst eldur
í neina íbúð.
Slökkviliðinu tókst fljótlega
að ráða niðurlögum eldslns, en
talsvert tjón hlauzt af reyk og
skemmdir urðu á einangrun.
Tveir varðmenn frá s'Iökkvilið-
inu urðu eftir í húsinu til að
róa fólkið.
Ekki höfðu slökkviliðsmenn
lokið við að gera bílana klára,
er þeir voru kallaðir út aftur,
að þessu sinni í Kópavoginn, að
mótum Háþrautar og Reykjanes-
þrautar. Hafði kviknað þar í
skúr og tókst fljótlega a‘ð
slökkva.
I þriðja sinn var Slökkvilið-
ið kallað að háhýsinu við Aust-
urbrún 2. en þar höfðu nágrann-
amir hringt og kvartað yfir
reykflyksum sem bárust yfir
næstu húsahverfi úr reykháfi
hússins.
Ekki reyndist þetta alvarfegt,
hafði kviknað í sóti og varð
fljótlega slökkt og hlauzt ekkert
tjón af.
■ r■ mm r
Verkalýðsfélagi
Borgarness
Stjóm og aðrir trúnaðarmenn
Verkalýðsfélags Borgarness urðu
sjálfkjörnir að þessu sinni. Var
framboðsfrestur mnninn út 17.
des. sl. og kom einungis fram
einn listi, Iisti stjórnar og trún-
aðarmannaráðs.
Stjórn félagsins skipa: For-
maður Guðmundur V. Sigurðs-
son, ritari Gústaf Óskarsson,
gjaldkeri Halldór Valdimarsson,
varaformaður Olgeir Friðfinns-
son, vararitari Jón A. Eggerts-
son og varagjaldkeri Einar Sig-
mundsson.
Kosnir voru í trúnaðarmanna-
Framhald á 2. síðu.
Happdrætti Þjóðyiljans:
Síðustu forvöð
1 Þar sem enn hafa ekki borizt endanleg skil frá fáein-
um stöðum utan Reykjavíkur getum við ekki birt
vinningsnúmerin í hanndrættinu. En nú er aðeins um
örfárra daga frest að ræða.
^ Allir þeir sem eiga ólokið verkefni fyrir Hanndrætti
• Þjóðviljans verða að gera hreint borð nú begar.
O Afgreiðsla happdrættisins er á Skólavörðustíg 19, I.
hæð, sími 17505 — Opið frá kl 9 f.h til 7 e.lv
^ Munið að úrslitin velta á síðustu handtökunum.