Þjóðviljinn - 15.02.1966, Side 1

Þjóðviljinn - 15.02.1966, Side 1
I Þriðjudagur 15. febrúar 1966 — 31. árgangur — 37. tölublað. Aðalfundur MÍR er í kvöld ■ Aðalfundur Reykjavíkurdeildar MÍR verður haldinn í kvöld kl. 20.30 í MÍR-salnum Þingholtsstræti 27. ■ Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, erindi Resjetofs blaðafulltrúa um leiklist í Sovétríkjunum og að lokum verður sýnd stutt gamanmynd, sem byggð er á smásögu Míkhaíls Sjolokhofs, „Kósakkar gráta“. / Enn einu sinni hefur ný eyja skotið upp kollinum á ffosstöðvunum við Surtsey. Iiarald- ur Sigurðsson jarðfræðingur flaug þarna yfir sl. laugardag og tók þá þessa mynd. Var nýja eyjan þá röskir 10 metrar á hæð, um 200 metrar á iengd og 100 mctrar á broidd. Ný goseyfa Einróma samþykkt Alþýðusamhands NorÓurlands: □ Miðstjórn Alþýðusambands Norðurlands samþykkti einróma á fundi 5. þ.m. að mót- mæla alúmínsamningamakki ríkisstjórnarinn- ar og skora á Alþingi að hafna væntanleg- um samningum þegar til þess kasta kemur að afgreiða málið. Samþykktin sem miðstjórnin gerði var þannig: Fundur haldinn í miðstjórn Alþýðusambands Norður- lands, 5. febrúar 1966, mótmælir yfirstandandi samningum ríkisstjórnarinnar við erlent auðfyrirtæki um byggingu og rekstur alúmínverksmiðju hér á landi. Miðstjórnin telur að reynslan hafi sýnt að íslehzka þjóð- in er fær um að byggja upp atvinnuvegi sína með eigin framtaki og því lánstrausti, sem hún hefur unnið sér h'já öðrum þjóðum. Á sama hátt er þjóðin einfær nú eins og áður um að byggja upp nauðsynlegar raforkustöðvar fyrir þarfir þjóðarinnar án þess að það sé háð því að ráðizt verði í stóriðju á vegum erlendra aðila. Vill miðstjórnin sérstaklega vara við þeirri nýju stefnu, sem núverandi stjórnarvöld hafa lýst sig fylgjandi, að hleypa erlendum auðfyrirtækjum inn í íslenzkt atvinnulíf í samkeppni við íslenzka atvinnuvegi og uppbyggingu þeirra, og skorar því á Alþingi að hafna væntanlegum samningum, þegar til þess kasta kemur að afgreiða það mál“. Soðning oröin lúxusvara Miklll skartur á neyzlufíski í Reykjavík Hraþallegt ástand ríkir hér í borginnj og kemur a'varlega niður á efnahag reykvískra heimila — menn fá takmarkaða soðningu hjá fisksölum borgar- innar, — fisksalarnir anna hvergi nærrj eftirspurn borgar- búa eftir fiski j matinn. Síðastliðinn vetur var Reykja- vík komin i fremstu röð út- gerðarbæja á bolfiskveiðar og stunduðu héðan um sextiu bát- ar bolfiskveiðar; f vetur liggja um fjörutíu til fimmtíu bátar hér við bryggj- urnar og geta hvergi hreyft sig vegna verðbólgu og heimatilbú- inna vandræða, — stjórnskipuð nefnd skammtar fiskverðið svo lágt. Aumari ríkisstjórn hafa ís- lendingar ekki eignazt, sem kemur í veg fyrir. að menn fái í soðið og ætlar mönnum að lifa á útlcndu kexi og dönsk- um smákökum. Þjóðviljinn hafði samband við nokkra fjsksala hér í borginni í gærdag og innti þá eftir á- standinu í þessum málum. Við önnum hvergi nærri eftirspurn- inni, sögðu þeir upp til hópa, — skortur er á öllum fisktegund- um. Þá eru lifur og hrogn al- gjör munaðarvara og ejga menn vist að nærast á súkkulaði, kexi og dönskum smákökum — nóg er til af því í búðunum, sagði Steingrímur í Fiskhöllinni. Frystihúsin hér í borginni og á Suðumesjum hafa náð að halda . einhverjum mannskap og gleypa hvern fisk enda eK er- lendis, hækkandi markaðsverð á fiski og einstaka fisksafar ná sambandi við bátaeigendur á Suðurnesjum, sem vejða fisk fyrir eigin saltfiskverkun og enginn fer eftir lögboðnu fisk- verði. Þá eru frystihúsin ákaf- lega löngunarfull í hrognin til að flytja út, — allir eru vitlaus- ir eftir fiskj — bátamir liggja hinsvegar í hrönnum hér við I bryggjurnar og geta ekki gert1 út vegna verðbólgu og hins lága fiskverðs. Þá ná fisksalar og nýlendu- vöruverzlanJr aðallega gegnum Kristján Skagfjörg og Tilrauna- verksmiðju SIS í Hafnaríirði frosnum fiskflökum og er ríf- lega helmingi hærra verð á þeim út úr búg en fiski beint upp #úr bátunum, sem er til sölu í fiskbúðum. Frystihúsin sjá þó ofsjónum eftjr hverju frosnu fiskflaki á innanlandsmarkað. Þá fæst enginn saltfiskur og liggja menn á birgðum og vilja ekki selja strax. Saltfiskverk- endur búast við hærra verði fyrjr saltfiskinn næstu vikur. Fiskur er orðinn lúxusvara hér í borginni og geta menn leitt getum að Því efnahagslega áfalli fyrir reykvísk heimili af þeim sökum. — var þó ekki á bætandi vegna sífelldra vöru- hækkana á lífsnauðsynjum hjá viðreisnarstjóra. 12 manns bjargast naumlega úr bruna □ Aðfaranótt sl. sunnudags brann íbúðarhús- ið Vík í Grindavík til kaldra kola og brenndist einn maður það mikið að hann *var fluttur í sjúkrahús hér í Reykjavík. Alls voru í húsinu 12 manns er eldurinn kom upp og slappt allt fólkið nauðuglega út á nærklæðunum einum saman. Varð sumt af því að kasta sér út um glugga af efri hæð hússins. Husig 1 Vik var gamalt múr- húðag tveggja hæða timburhús. Bjó eigandi þess. I>orlákur Gíslasoín, á neðri hæðinni á- samt konu sinni og yngri börn- um þeirra en á efri hæðinni bjó einn sona Þorláks ásamt konu sinni og ungri dóttur svo og fleiri synir Þorláks. Eldsins varð vart um kl. 5.30 er maður sem var gestkomandi á neðri hæðinni vaknaði við reykjarþef. Var þá kominn eldur í stigann upp á loftið en maður- inn gat hlaupig upp og vakið fólkið sem þar svaf. Stökk einn af sonum Þorláks út um glugga á efri hæðinni og náði í stiga og reisti hann upp við húsið og bjargaðist fólkið þar 'út en áður höfðu ungu hjónin varpað dóttur sinni tveggja ára út um gluggann og tókst ömmu hennar að grípa hana ómeidda. Þorlákur fór fram í þvotta- hús er var á neðri hæðinni og sstlaði að ná í vatnsslöngu en eldurinn breiddisf svo ört út að hann lokaðist þar inni og brenndist hann mikið á höndum og baki er hann brauzt aftur Framhald á 7. síðu. Gamalt íbúðarhús brann á Saurbæ á Kjalarnesi SI. laugardagskvöld kom upp eldur í gömlu timburhúsi að Saurbæ á Kjalarnesi. Var hús- ið notað fyrir geym-slu því hætt var að búa í því fyrir nokkrum árum, Húsið brann til kaldra kola en nokkru af munum var hægt að bjarga úr því. Vatns- skortur háði mjög slöikkvistarf- inu en slökkviliðinu í Reykja- vik tókst að verja nýja íbúðar- húsið og kirkjuna er stóðu skammt frá gamla húsinu. Alþingi gef- |ið hús Jóns | Sigurðssonar í gær barst Þjóðviljan- um eftirfarandi fréttatil- kynning frá Alþingi; Sendiherra fslands í Kaupmannahöfn hefur í dag borjzt svohljóðandi bréf frá Carl Sæmundisen stórkaupmanni þar í borg: ,.Á áttatíu ára afmælis- degi minum er mér Ijúft að staðfesta, að ég hef á- kveðið að gefa íslenzka ríkinu (Alþingi) húseign mína Östervoldgade 12. í þvi húsi bjó Jón Sigupðs- son forseti um Iangt ára- bil. Var þar þá samkomu- staður fslendinga og at- hvarf fyrir íslenzka menn- ingu. Ef íslenzka ríkið þiggur þessa gjöf. er mér ljúft að ræða sem fyrst nánar um form afhendingarinnar.“ Forsetar Alþingis hafa í dag sent gefandanum eft- irfarandi skeyti: , ..Alþingi árnar yður heilla á áttræðisafmælinu og þiggur með þökkum hina stórhöfðinglegu gjöf yðar, sem ætluð er til að heiðra minningu Jóns Sig- urðssonar og minna á ís- land og- íslenzka menningu í Kaupmannahöfn. Er þess vænzt. ag bráðlega gefist tækifæri til að ráðgast við yður um það, á hvern hátt þessu markmiði verði bezt náð.“ ísland vann Pólland A sunnudaginn léku Island og Pól- land síðari leik sinn í undankeppni heims- meistarakeppninn- ar í handknattleik og fóru leikar svo að Island sigraði með 23 mörkum gegn 21 í spennandi og skemmtilegum leik. Vart mun þó þessi sigur nægja til þess að Islendingar komist áfram í keppninni en til þess að svo verði þurfa þeir að vinna Dani með 9 eða 10 marka mun. Frimann Helga- son skrifar um leik- inn á íþróttasíðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.