Þjóðviljinn - 16.02.1966, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 16.02.1966, Blaðsíða 10
Heimsmeistar- arnir í hand- knattleik leika í Reykjavík 5. og 6. marz n.k. Ásbjttrn SiKUrjónsson, for- maður Handknattleikssam- bands Islands, stáðfesti það í viðtali við Þjóðviljann( ú gær, að heimSmeistaramir í hand- knattleik karla, Rúmcnar, muni keppa hér í Reykjavík I byrjun næsta mánaðar. Rúmenamir leggja um nasstu helgi upp í nokkurra vikna keppnisferðalag um norðanverða álfuna og er þetta einn liðurinn f undir- búningi þeirra fyrir heims- meistarakeppnina í Svíþjóð næsta vetur. Fyrst leika þeir við Austur-Þjóðverja í Magde- burg hinn 19. þ.m., Dönum mæta þeir í Kaupmannahöfn 24. febrúar, Norðmönnum í Sandefjord og Osló 27. febrú- ar og 1. marz og í L/augar- dalshöllinni leika þeir laugar- daginn 5. og sunnudaginn 6. marz. Hér er um mikinn íþrótta- viðburð að ræða; heimsmeist- arar í flokkakeppni hafa ekki óður lagt leið sína til ls- lands. 1 Uppselt á 5. tónleikana Sinfóníuhljómsveit Islands og Söngsveitin Fílharmonía flytja 9. sinfóníuna undir stjórn dr. Ró- berts A. Ottóssonar í fimmta sinn annað kvöld. Voru aðgöngu- miðar á tónleikana seldir í gser og seldust upp á svipstundu eins og á fjóra hina fyrri. Hefur aldrei fyrr verið svo góð aðsókn að neinum tónleikum hér á landi. Tónleikamir verða ekki end- urteknir oftar. „Glófaxi" fór í gærdag í sjúkraflug til Grænlands Miðvikudagur 16. febrúar 1966 — 31. árgangur — 38. tölublað. Ályktun Lögreglufélags Reykjavíkur: Kjaradómur tryggir ekki iaunajafnrétti ■ Á aðalfundi Lögreglufélags Reykjavíkur, sem hald* inn var fimmtudaginn 10. þ.m. í Breiðfirðingabúð var ofL irfarandi ályktun um kjaramál lögreglumanna í Reykja- vík samþykkt með samhljóða atkvæðum: Á myndinni sés*t grænlenzki drengurinn, sem fluttur var mcð „GIófaxa‘‘ frá Grænlandi, við sjúkra- börurnar stcndur m.a. Lúðvík Storr, ræðismaður Dana hér á landi. „Aðalfundur Lögreglufélags R.- víkur, haldinn í Breiðfirðingabúð fimmtudaginn 10. febrúar 1966, lýsir' yfir megnri óánægju með dóma þá í kjaramálum opinberrá starfsmanna, scm kvcðnir voru upp í nóvember og desember sl. Sérstaklega mótmælir fundur- inn dóminum í máli borgarlög- reglumanna í Reykjavík, þar sem meirihluti dómsins dæmdi í einu og öllu samkvæmt kröfum vinnuveitandans, en engar af kröfum lögreglumanna voru tekn- ar til greina, nema þær sem vinnuveitandinn hafði áður fall- izt á. Fundurinn telur augljóst, að Kjaradómur í núverandi mynd er enigin tryggjng fyrir því, að opinberir starfsmenn njót.i jafnréttis við aðra launþega í landinu og telur nauðsynlegt að finna aðra leið til að ákveða kjör opinberra starfsmanna. Fundurinn bendir á að vegna lélegra launakjara, hefur undan- farið reynzt ómögulegt að fá nægilega marga hæfa menn í lögregluna í Reykjavík og er hún nú, sökum mannfæðar, orð- in ófær um að veita bá þjónustu, sem henni er skylt, þótt reynt sé að bæta úr, með því að láta lögreglumennina vinna óhóflega mikla yfirvinnu. Verði launa- kjör lögreglunnar ekki bætt, er augljóst, að enn mun ástandið versna í þessum efnum.“ Um barst fjögurleytið fyrradag beiðni, Flugfélagi Islands frá dönsku stjórmnni um sjúkra- flug til Grænlands, en þar sem svo áliðið var dagsins var ekki unnt að senda flugvélina af stað fyrr en í býtið í gærmorg- un, þriðjudag og var þá veðrið hið ákjósanlegasta. Sjúklingurinn var 3ja ára grænlenzkur dreng- íþróttamát MR er / kvöld Hið árlega íþróttamót í- þróttafélags. Menntaskólans í Reykjavík verður haldið í kvöld kl, 8.15 að Hálogalandi. Valdi- mar Sveinbjömsson iþrótta- kennarj flytur ávarp og einnig fer fram verðlaunaafhending fyrir íþróttamót sem haldin hafa verið innan skólans í vet- ur. Þá verða háðir nokkrir mjög skemmtilegir kappleikir. Er þar fyrst að nefna handboltakeppni milli liðs kennara Og nemenda sem jafnan hefur verið „æsi- spesmandi“. MR og Verzlunar- skólinn keppa í innanhúss- knattspymu. MA og Mennta- skólinn á Akureyri keppa í handknattleik og stúlkur úr MR 1 og Kennaraskólanum keppa í . handbolta. Loks verður háð poka- hlaup. Strax og hjálparbeiðnin barst var hafizt handa um að útbúa Dakótavélina „Glófaxa“ til far- arinnar, t.d. þurfti að setja ,á hana skiði og er það margra klukkuátunda verk. „Glófaxi“ lagði síðan af stað frá Rvík kl. 8,53 í gærmorgun og hélt beint til Angmagsalik á austurströnd Grænlands og tók ferðin þangað um 3 klst. Þar var lent á ísnum utan við þorpið og var snjórinn á ísnum u.þ.b. fet að þykkt. 3ja ára grænlenzkur drengur var fluttur á sleða út að flug- vélinni. Drengurinn er veikur í hálsi og er óttazt að um barna- veiki sé að ræða. Hann andar og fær mat í gegnum pípu. Frá Angmagsalik var farið til Kúlusúk með 13 berklasjúklinga og þar voru hjúkrunarkonur teknar um borð. Við Kúlusuk er flugvöllur en ferðin þangað frá Angmagsalik var 'talin of „löng til þess að óhætt væri, að fara Framhald á 3. síðu. Þátttaka ísiands í heims- sýningunni 1967 undirbúin ■ f gær sátu fjölmargir fulltrúar opinberra stofnana, félagasamtaka og einkafyrirtækja fund, sem boðaður var til umræðna um áframhaldandi undirbúning að þátttöku íslands í heimssýningunni f Montreal í Kanada 1967. Til fundarins boðuðu þeir fjórir menn, sem mest hafaunn- ið til þessa að fyrirhugaðri þátt- töku Islands í sýningunni: Agnar Kl. Jónsson, ráðuneytisstjóri ut- anríkisráðuneytisins, Gunnar J. Friðriksson, formaður Félags ísl. iðnrekenda, Þórhallur Ásgeirs- son, ráðuneytisstjóri viðskipta- málaráðuneytisins og Skarphéð- inn Jóhannesson arkitekt. Nefndarstörf í undirbúningi. Agnar Kl. Jónsson gerði í upp- hafi fundar grein fyrir tilefni hans, síðan fluttu skýrslu um undii-búning að þátttöku Islands í heimssýningunni þeir Gunnar (sem haft hefur með höndum framkvæmdastjórn fyrir íslenzku sýninguna) og Skarphéðinn, en Þórhallur Ásgeirsson reifaði til- lögur um áframhaldandi starf- semi og annan undirbúning að þátttöku Islen'dinga. Nokkrar um- ræður urðu að lokum. Það var samþykkt á fundinum að þeir fulltrúar sem til um- ræðufundarins í gær voru boð- aðir mynduðu, ásamt fleiri full- trúum er kynnu að bætast við síðar, einskonar sýningarráð af Islands hálfu. Ráðið mun síðar skipta með sér verkum og voru tilnefndar á fundinum fjórar undirnefndir: menningarmála- nefnd. vjðskiptamálanefnd, ferða- má'la- otg upplýsinganefnd og fjármálanefnd. Munu undir- Framhald á 3. síðu. 1 Kennsla hefst í dag í ný- stoínuBum reiðskóla ó Bala Það er ekki á hverjum degi að blaðamönnum er boðið á hestbak. en þetta gerðist þó í gær, í tilefni af opnun nýs reiðskóla á Bala i Garðahreppi Það er frú Hedi Guðmundson leir- kerasmiður sem fyrir skólan- um stendur og er hann fyrst og fremst ætlaður börnum, en einnig verður rekin í sam- bandi við hann margháttuð hestamennskustarfsemi önn- ur svo sem hestaleiga um helgar, útreiðartúrar undir leiðsögn kennara og kaffi- sala fyrir hestamenn á sunnu- dögum. Aðalkennari Reiðskólans á Bala verður Peter Behrens, þýzkur að ætt, en talar rejp- rennandi íslenzku Hann er þaulvanur reiðkennarj. en auk þess þekkir hann ís- 'lenzka hestjnn sérstaklega vel og hefur unnið sem tamn- ingameistarj hér á landi i brjú ár Mun hann ejnkum sjá um kennslu eldri barn- anna, en Hedi sjálf ætlar að kenna þejm yngri og ejns framhaldsflokkum stúlkna. Aðaláherzla við kennslu bamanna verður lögð á um- gengni við hestinn. að venja börnin af að vera hrædd við hann og kenna þeim að skynja hann. Þá verður Þeim að sjálfsögðu kennt að sitja, beizla og stjóma reiðskjót- anum Kennt verður i flokfc- um 6 bömum í hverjum og er hvert námskeið tíu tímr- ar, tveir í viku. o:g kostar kr. 700. Innifalið í verðinu er fullkomin slysatrygging og keyrsla frá og að strætis- vagnastöð í Garðahreppi; Þau Hedj og Peter sögðu að hestamennska á fslandi væri talsvert ólík þyí sem tíðkaðist í öðrum löndum og væri aðalmunurinn sá, að er- lendis værj litið á reið- mennsku sem íþrótt með til- heyrandi keppni og verð- launakapphlaupi en hér færi fólk á hestbak sér til ánægju og skemmtunar. Þau luku miklu lofsorði á íslenzka hestinn og kváðu aðalmun- inn á honum og öðrum. að hann hefði meiri persónu- leika og væri sjálfstæðari í sér en annarsstaðar. Reiðskólinn á Bala á sjö hesta og eru allir fullkom- lega tryggðir bæði hvað snertir hesta og knapa. Auk kennslu fyrir börn mun skólinn leigja út hesta, m.a. er í ráði að gefa far- þegum flugfélaganna, sem hér dveljast millj ferða til að sjá eitthvað af landinu. kost á að komast þama á hestbak. Þá verður háegt að . fara í útreiðartúra um helg- ar undir leiðsögn kennara skólans. Einnig ætlar Hedi Guð- mundsson að hafa frá og með vorinu kaffisölu á Bala á sunnudögum fyrir hestamenn frá Reykjavik og annarsstað- Lagt af staði. — Á myndinni sjást frá vinstri Björn Thors frá Morgunblaðinu, Guðrún Egil- son frá Tímanum, Hedi Guðmundsson og litla dóttir hcnnar Birgit, nýorðin 4 ára, harð- dugleg hestakona. ar að sem eru í útreiðartúr- ur og þurfa að hressa sig og hvíla hestana. Verður þá hestunum veittur tilheyrandj aðbúnaður líka. Auk reiðnámskeiðanna er i ráði að hafa 1—2ja vikna námsdvöl fyrir börn í sum- ar og læra þau þá hálfian daginn að sitja hest. en hinn helminginn fá þau að læra leirkerasmíðj. Sem áður segir gafst blaða- mönnum kostur á að skreppa á hestbak og tófcst að mörgu leyti vel, ekki nema einn datt af baki og tveir fóru sjálf- viljugir af þegar þeir höfðu ekfcf lengur stjóm á hestun- um. Langbezt stóð sig Ólafiur Tynes af Alþýðublaðinu og lét hvorki hestinn setja sig af né gafst upp og reið glœsi- lega í hlað að lokjnni ferð.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.