Þjóðviljinn - 08.03.1966, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVIUINN — Þriðjudagur 8. marz 1966.
Fyrrí landsleikurlnn viS Rumena:
Heimsmeistararnir voru undir í 40
mínútur, þá gáfn íslendingar eftir
Útgefandi; Sameiningarflokkiur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: ívar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri; Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 95.00 á mánuði.
G/apræði
■jVTorsku vísindamennimir, dr. Devik og Kanavin
yfirverkfræðingur, sem unnið hafa að því um
ára skeið á vegum Sameinuðu þjóðanna
að rannsaka ísamyndunarvandamál á vatnasvæði
Þjórsár og Hvítár, hafa nú lokið verkefni sínu
og skilað af sér. Rannsóknir þeirra hafa að sjálf-
sögðu mikið fræðilegt og hagnýtt gildi, en eink-
anlega hljóta þær að vekja athygli í sambandi
við fyrirhugaða Búrfellsvirkjun. Af annarlegum
ástæðum var vísindamönnunum raunar ekki falið
að fjalla sérstaklega um tillögur þær til Búrfells-
virkjunar sem nú liggja fyrir, en að sjálfsögðu
komust þeir ekki hjá því að kanna það mál. Og
niðurstöður þeirra eru ákaflega skýrar og ótvíræð-
ar, eins og fram kom í viðtáli þeirra við Þjóðvilj-
ann í fyrradag.
■YTorsku vísindamennimir segja í stuttu máli að
' ísamyndunarvandamál í ám hérlendis séu stór-
felldari og margbreytilegri en í flestum ef ekki
öllum' öðrum löndum. Ef ís myndast í Þjórsá of-
an Búrfells verði ekki við hann ráðið að neinu
gagni með varúðaraðgerðum, svo sem skolunar-
kerfi. Eina ráðstöfunin sem tryggt geti rekstrar-
öryggi sé að koma í veg fyrir ísamyndun eða tak-
marka hana við algert lágmark. Telja þeir alger-
lega óhjákvæmilegt að gerð verði mikil fyrir-
hleðsla við Sultartanga, en jafnframt verði að tak-
marka yfirborð vatnsins þaðan að Búrfelli, til
dæmis með því að leiða það í stokk eða lokuðum
göngum.
■jVTiðurstöður norsku vísindamannanna staðfesta í
einu og öllu sjónarmið þeirra íslendinga sem
mesta reynslu hafa af virkjunum ,og hegðun fljóta
hérlendis. Og raunar má segja að þessi niðurstaða
sé nú viðurkennd af öllum sérfróðum mönnum,
eftir langvinnar og stundum næsta einkennilegar
umræður. Jafnt raforkumálastjóri sem yfirverk-
fræðingur Landsvirkjunar hafa lýst yfir því opin-
berlega, að óhjákvæmilegt muni reynast að gera
ráðstafanir af þessu tagi — en þeir bæta því við
að þær verði gerðar síðar.
essi kenning um frestun óhjákvæmilegra ör-
yggisráðstafana á ekkert skylt við raunvísindi,
heldur er hún ómenguð pólitík. Ástæðan til þess
að ekki má viðurkenna staðreyndir nú þegar er
sú ein, að þær raska gersamlega samningsgrund-
vellinum við svissneska alúmínhringinn. Sé reikn-
að með kostnaðinum við stíflugerð og vatnsfarveg
ofan Búrfellsvirkjunar verður kostnaðarverð á
raforku 3 til 4 aurum hærra á kílóvattstund en
verð það sem Svisslendingar bjóðast til að borga.
Þess vegna á fyrst að semja við Svisslendinga um
óbreýtt raforkuverð áratugi fram í tímann, en
síðan eiga íslendingar einir að bera hinn óhjá-
kvæmilega og sfórfellda viðbótarkostnað og greiða
þannig með raforkunni til hins erlenda auðfélags.
Slík samningsgerð væri augljóst þjóðhagslegt
glapræði. — m.
□ Það tók heimsmeistarana 40 mínútur að
ná forystu í þessari fyrri viðureign íslands og
Rúmepíu í handknattleik í Laugardalshöllinni á
laugardaginn var. Á þessu tímabili voru íslend-
ingar nokkrum sinnum með þriggja marka for-
skot og sýndu á köflum leik sem ekki gaf eftir
leik gesfanna. — Síðustu tíu mínúturnar gáfu ís-
lendingarnir ótrúlega mikið eftir og breyttist þá
leikstaðan úr 14:12 í 23:17, þar sem Rúmenarnir
skoruðu 11 mörk á meðan íslendingar skoruðu
aðeins 3. Þó að hér hafi komið til skortur á út-
haldi er ekki að éfa að fleira var sem gerði það
að verkum að íslendingarnir misstu leikinn svo
gjörsamlega niður, þannig virtist manni sem
skiptingar væru heldur slakar og vömin ópnað-
ist óeðlilega hvað eftir annað.
Frá fyrri Ieiknum: Islendingar eru ágengir við rúmenska markið. Það er sá frægi leikmaður Moser sem sést til vinstri (nr. 3). Birg-
ir Björnsson fylgist með á línu, fjaer er Gunnlaugur Hjálmarsson. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.>.
Þag var greinilegt Þegar i
upphafi leiksins að Rúmenam-
ir höfðu hugsað sér að taka
Gunnlaug „úr umferð“ því að
sérstakur gaezlumaður var sett-
ur honum tii höfuðs og fylgdi
hann Gunnlaugi eftir hvert sem
hann fór. hvort sem hann hafði
knötfinn eða ekki. En Gunn-
laugur lét ekki að sér hæða,
og reyndist þetta hinum rúm-
enska leikmanni hin mesta
raun, og gat hann engan veg-
inn komið því í verk að Gunn-
laugs gætti ekki hvorki í því
að skora eða ná sambandi
við lið sitt. Vafalaust er þó
að hefðj Gunnlau>gur fengið að
ganga örlítið lausari hefðu
Rúmenarnir fundið betur til
skota hans.
ísland byrjar vel
Fyrstu fimm mínútumar
fóru í nokkurskonar liðskönn-
un hjá hvorum fyrir sig, að
leita að snöggum blettum í
vöminni sérstaklega, og var
ekkert mark skorað á fyrstu
5 minútunum en þá fær Her-
mann knöttinn á línu og með
manninn á bakinu tekst hon-
um að snúa sér við og skjóta
eldsnöggt út við stöng. Þar
með hafði ísland skorað fyrsta
markið i þessari viðureign.
Aðeins mínútu siðar jafnar
Moser fyrir Rúmena með
þrumuskoti yfir vömina.
Á næstu mínútu sleppur
Gunnlaugur laus úr umsátrinu
og kemst inn undir línu, og
var ekkj að sökum að spyrja,
markmaður fékk ekkj við það
ráðið; 2:1 fyriT ísland. Littu
síðar jafna Rúmenar með góðu
skoti frá Costache.
Á 10, mín var dæmt víta-
kast á Rúmena og tók Karl
það en skotið fór í markmann,
en Hermann bætir Það upp á
næstu minútu meg góðu skoti
og á 12. mínútu bætir Hörður
við einu — og öðru rétt á
etftir, og standa leifear 5:2
eftir 13 mínútur,
Leikurinn er mjög fjömgur
og skemmtilegur á báða bóga
og góður handknattleikur sýnd-
ur. Það merkilega var að
Rúmenamir virtust svolítið
tauigaóstyrkir Og áttu óeðlilega
margar slæmar sendingar, þar
sem þeir töpuðu knettinum. Á
15. mín skorar Hnat fyrir
Rúmena og þTem mínútum
síðar bætir Gunnlaugur við
6:3 fyrir ísland. Á næstu 5
mínútum Skorar ísland 2 mörk,
fyrst Birgir laglega í gegn og
hörður úr vítakasti, en þeir
Gruia og Coctaohe sitt hvort.
og standa Ieikar þá, er 22 mín.
voru af leik, 8:5.
í þessar 8 mínútur. sem eft-
ir voru af hálfleiknum, gáfu
okkar menn heldur eftjr og
tókst Rúmenum að jafna á 28.
mín, og höfðu þá skorað 3
mörk í röð. Þó var á þessum
tima „varðmanni“ Gunnlaugs
vísað af leikvelli í 2 mínútur.
En rétt fyrir leikhlé er Gunn-
laugur kominn inná Hnu og
snýr bakj í mark, og eldsnöggt
fyrir markmann skorar Gunn-
laugur úr bakhandarskoti við
mikil fagnaðarlæti áhorfenda.
og þannig var leikstaðan í
hálfleik 9:8 fyrir ísland; óneit-
anlega mjög góð frammistaða
móti þessu snjalla og fræga
liði, og það verður ekki annað
sagt en að þetta hafj verið
sanngjöm úrslit í hálfleik.
Velgengnin entist
enn 15 mínútur
Byrjun síðari hálfleiks var
mjög góð af hálfu íslands þvi
að eftir 5 mínútur stóðu leik-
ar 12:9. Hjálpuðust þeir
Gunnlaugur og Hörður að við
að skora 3 mörk Það fyrsta
skoraði Hörður eftir snjalla
langsendingu fram þar sem
Hörður var kominn óvænt inn-
íyrir og enginn til vamar nema
markmaður sem fékk ekki við
eitt ráðjð. Litlu siíðar ekorar
Hörður annað mark og síðah
kom Gunnlaugur og skoraði 12;
markið. Sóttu Rúmenar nú
fast og á næstu 3 mínútum
jafna þeir og ná 12:12. Leik-
urinn hafði frá upphafi verið
prúður og Htið af vitakösfum
(2 til þessa), en nú var greiní-
legt að Rúmenar vildu knýjá
fram úrslit og gerðust svolít-
ið harðir, sem endaði með
tveim vítaköstum í röð sem
Hörður skoraði úr. Sta'nda nú
leikar 14:12, en það dugði ekki.
Það var greinilega ag opnast
vamarveggur íslands, og Hjalti
í markinu virtist ekki ejns
fljótur i viðbrögðum sínum og
oft áður og fyrir skotum Gruia
úr uppstökkum, þar sem hann
skaut af löngu færi yfir vörn-
ina, virtjst. Hjaltj vera of ber-
skjaldaður en Gruia þessi
skoraði í þessum hálfleik 6
mörk, öll eins. Á 10 mínútu
jafna Rúmenamir á 14:14. Liðu
svo 3 mínútur, þar sem meiri
ró færðist yfir leikinn og lítið
gerðist og á 14. mínútu taka
Rúmenarnir í fyrsta sinn í
leiknum forystuna á 15:14,
Gunnlaugur jafnar þó á næstu
mínútu og limu síðar ver
Framhald á 9. síðu.
4
t
*
4