Þjóðviljinn - 08.03.1966, Page 5
f
Þriðjudagur 8. marz 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 5
Frá síðari leiknum: Islendingarnir í sókn, Guðjón Jónsson með knöttinn á miðjunni, Hörður
Kristinsson er til vinstri, Gunnlaugur Hjálmarsson, fyrirliði er lengst tii hægri á myndinni. —
Rúmenski markvörðurinn reynir áraugurslausl að ná til knattarins. — (Ljósin. Þjóðv. A,. K.),
SiSari landsleikurinn viS Rúmena:
Sigurinn gat eins orðið íslendinga,
en Rúmenarnir sigruðu með 16:15
Q Það munaði ekki miklu hvoru megin sig-
urinn lá í þessum leik, aðeins eitt mark skildi á
milli að leik loknum. ísland þarf sannarlega ekki
að vera með neina minnimáttarkennd gegn
neinu því liði sem það hefur tök á að leika við.
ísland hafði 3 mörk yfir í fyrri hálfleik eða 11:8.
Leikurinn var allur heldur harðari en fyrri dag-
inn, og þurfti að vísa nokkrum úr báðum liðum
af leikvelli. Frá upphafi til enda var leikurinn
jafn og spennandi, og kunnu áhorfendur að meta
þessa spennu sem í leiknum var.
Ekkj vor.u liðnar nema 25
sekúndur þegar Hörður skor-
aði fyrsta markið í leiknum.
en á nsestu mínútu jafnar
Costache, og á 3. min. bætir
G-ruia við úr uppstökki eins
og daginn áður. Rétt á eftir
jafnar Guðjón með góðu skoti
2:2.
Rúmenar taka enn forystuna
með góðu skoti frá Moser en
fsland hefur möguleikann að
jafna, er dæmt er vítakast á
Rúmena en Hörður er óhepp-
inn og fór skotið í markmann.
Rétt á eftir skorar Costache
mark sem að allra áliti var
ólöglega skorað, en ekki tjáir
að deila við dómarann og enn
bæta Rúmenar vi.ð Og komast
í 5:2 það var Iacob sem það
gerði. Þótti nú sem fsland væri
heillum horfið, og ekki bætti
það úr skák að nú voru þeir
Gunnlaugur og Hörður. sem
mest sikoruðu fyrrj daginn, í
nokkurskonar spennitreyju og
virtist sem það hefði slæm
áhrif á liðið Liðu nú þrjár
mínútur þannjg að ekkert
mark v.ar skorað, og var ekki
ólíklegt að örlöig lei'ksins væru
undir næstu mínútum komin.
Á 12. mínútu kemst Karl
sæmi’legt færi og skaut þar
sem knötturinn hafnaði óverj-
andi í nefinu, og á næstu mín-
útu er það Hermann sem með
einu af sínum sveifluskotum
skorar mjög glæsilega. 5:4 fyr-
ir Rúmena. Rétt á eftir bætir
Otelea marki við. Um þetta
leyti eru mest inni ungu
mennirnir og þeir Gunnlaugur
og. Hörður báðir í hvíld, og
það skemmtilega gerist að
ungu mennimir með Karl sem 1
leiðarljós, ná verulega hröðum
og léttum leik sem um leið
var ógnandi þannig, að á 16.
og 18. mínútu skora Þ®ir Geir
og Hermann og jafna við gíf-
urleg fagnaðarlæti áhorfenda.
Moser skorar enn og taka
Rúmenar enn forystuna 7:6.
En hinn létti 0;g leikandi leik-
ur fslendinga hélt áfram og
skor,a þeir S'tefán Sandholt,
Gunnlaugur úr víti og Karl
sitt markið hver og höfðu tek-
ið forustuna. á 24. mín. með
9:7. Á 27. mán. skorar Cos-
tache 8 mark Rúmena.
Gruia hafði fengið „gæzlu-
mann“, þar sem Stefán Sand-
holt var. og tókst honum illa
að endurtaka það sem gerð-
ist fyrri daginn, og þar kom
að hann gerðist full harðskeytt-
ur og var vísað af leikvelli
rétt f.yrir leikhlé
Þetta setti aukinn kraft í
fslendingana o g á 28. min.
skorar Gunnlaugur og rétt fyr-
ir hlé kom svo 11. markið og
það skoraði Gunnlaugur eftir
sendingu frá Sigurði Einars-
syni er hann hljóp inn í send-
ingu milli Rúmen.a en Gunn-
laug-ur var einn frammi við
vítateig Rúmena
Síðari hálfleikur
lakari
Eins og Gruia var sá sem
vann fyrri leikinn með hopp-
skotum sínum var Iacob sá sem
vann þann síðari með eld-
snöggum hreyfingum í gegn-
um vörnina, þar sem hann ým-
ist komst alla leið og skoraði
eða þá að hann var hindrað-
ur svo gróft að viti var dærnt,
en hann skoraði á fyrstu 11
mínútunum 4 mörk. f
Rúmenar höfðu jafnað á
12:12 á 9. minútu og komust
yfir 13:12, en Gunnlaugur jafn-
ar úr víti með þvj að lyíta
knettinum rólega yfir höfuð
markmanni sem var kominn
eins nærri Gunnlaugi og hann
mátti. Vakti þetta mikla hrifn-
ingu áhorfenda, Nú var það
Gruia sem slapp laus o.g skor-
aði enn úr uppstökki.
Standa nú leikar i fjórar
mínútur 14:13 fyrir Rúmena,
Qg eftir eru þessar erfiðu 15
mínútur. en mörkin láta á sér
standa. Á 19. mín. jafnar Geir
í 14:14, , og á næstu minútu
skorar Otelea og enn taka
Rúmenarnir forystu með 15:14,
og gerist það á 20. mínútu.
Enn líða 4 mínútur án þess
að mark sé skorað ©n þá er
Herði vikið af leikvelli í 2
mínútur, og virðist útlitið held-
ur alvarlegt, og á 25. mín.
skorar Moser 16:14. Enn er
barizt af krafti og oft hörku
þar sem dómarinn varð oft að
láta til sín heyra. Litlu síðar
er ,,gæzlumianni“ Gunnlaugs
vi'kið af leikvelli, en rétt á !
eftir að Hörður var kominn
inn skorar hann síðasta mark
leiksins; þá voru þó eftir ein
og hálf mínúta, en Rúmenar
vörðust til lejksloka oig héldu
þessum nauma sigri 16:15.
Máttu hafa sig
alla við
Haft var eftir Rúmenum eft-
ir fyrri leikinn að sá síðari
yrði þeim mun auðveldari en
sá fyrri. En það fór eins og
Rússamir sögðu eftir leiki sína
hér. að aldrei væri að vita
hvar menn hefðu íslenzka lið-
ið, og svo fór fyrir Rúmenum
í þessum leik Þótt þeir byrj-
uðu vel og kæmust yfir, kom
það þeim greinilega á óvart að
mótstaðan varð meiri en kvöld-
ið áður. og óróleika kenndi í
liðinu og þeir reyndu aldrei
neinar leikbrellur eins og í
lok fyrri leiksins. Það var í
þeirra augum meiri alvara á
ferðum. Þeir náðu aldrei nein-
um undirtökum í leiknum, þótt
í ljós kæmi að Það sem mun-
aði var ef til vill úthaldið, því
síðari hálfleikur var meira
Rúmenanna.
Eins og fyrri daginn var
Moser hinn góði stjómandi og
sá ás sem leikurinn snerist
mest um. I-aoob var og ágæt-
ur. ejnnijj Costache sem kom
örþreyttur útaf eftir „dans-
inn“ við Gunnlaug. Gruia
tókst ekki eins upp og fyrri
daginn en áttj samt góðan
leik. Liðið féll vel saman Qg
sýndj mjög góðan handknatt-1
lejk.
ísland ógnaði
íslenzka landsliðið lék mjög
vel allan tímann og átti ekki
umtalsverðan slakan kafla
Framhald á 9. síðu.
VOR-FARGJÖLD PAN AMERICAN
15. þ.m. ganga í gildi hin hagstaeðu ,,30 daga“ vor-
fargjöld Pan-American tjl Kaupmannahafnar. Far-
gjaldið verður kr. 6330,00 fyrir báðar Ieiðir. Vor-
fargjöldin gilda einnig til margra annarra borga
í Evrópu.
Engin ferð jafuast á við ferð með hjnum glæsi-
legu þotum Pan-American — hvort sem farið «r
á FYRSTA FARRÝMI eða „Tourista“-farrými.
Flugtjminn til Kaupmannahafnar 314 klst.
PAN AM—ÞÆGINDI PAN AM —ÞJÓNUSTA PAN AM-HRAÐI
Allar nánari upplýsingar veifa:
PAN AMERICAN á íslandi og ferðaskrifsfofurnar.
E»^VI%r ^VIVtE RICAIV
ADALUMBOD G.HELGASON & MELSTED HF HAFNARSTRÆT119 S1MAR10275 11644
HAPPDRÆTTI HASKOLA ISLANDS
Á fimmtudag verður dregið í 3. flokki — 2000 vinningar að fjárhæð
kr. 5.500.000 — Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja.
Happdrætti Háskóia Islands
3 FLOKKUR
2 á 500.000 kr 1.000.000 kr.
2 á 100.000 kr
50 á 10 00o kr.
242 á 5.000 kr,
1.700 á 1.500 kr.
Aukavinningar:
4
i