Þjóðviljinn - 08.03.1966, Qupperneq 6
0 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 8. marz 1966.
í?il ÍS:
vöímmr
jisíífíSiíí
I
'■■"■: :
mm.
illlillilll
ssss:
Isiiii
i; i; „ ''
: :; : '
tímafrekar og er hún nú fypst
að komast í gagnið.
Iblaðaskrifum um stjórnar-
byltinguna í Ghana leggja
þeir sem kunnugir eru í land-
inu megináherzlu á þátt efna-
hagserfiðleikanna í því sem
gerzt hefur. Stjómarhættir
Nkrumah á síðari árum eru
ekki taldir hafa reynzt jafn af-
drifaríkir, þótt þeirra hafi gætt
meira út á við. Harkaleg með-
ferð á stjórnarandstæðingum
og hvimleið persónudýrkun er
síður en svo einskorðað við
Ghana, þótt svo mætti virðast
af ýmsum blaðaskrifum á Vest-
urlöndum. í Afríku er eins
flokks kerfi frekar regla en
undantekning og skammt á
milli stjómarandstöðu og upp-
reisnar. Harðstjórn Nkrumah er
ekki bót mælandi, en hafa
verður í huga að ekki keyrði
um þverbak í því efni fyrr en
eftir að andstæðingar hans
höfðu gert nokkrar raékilegar
tilraunir til að ráða hann af
dögum.
Ölíklegt er að valdaránið i
Ghana sé það síðasta sem
spyrst frá Afríku á þessu ári.
Ókyrrðin sem valdið hefur sex
stjórnarbyltingum á einum árs-
fjórðungi gerir meira eða
minna vart við sig í flestum
ríkjunum milli Sahara og Zam-
besífljóts. Skammt er síðan Ob-
ote forsætisráðherra í Uganda
lét setja fimm ráðherra ístjórn
sinni í stofufangelsi og tók sér
alræðisvald. Kvaðst hann gera
þetta sökum þess að fimmmenn-
ingarnir hefðu staðið að sam-
særi gegn sér og leitað til þess
aðstoðar hjá erlendum sendi-
ráðum. — M.T.Ó.
ÓLGAN í AFRÍKU
Glianahermenn á göngn.
nýrra samfélagshátta, fjármála-
spilling og undirróður framandi
stórvelda og auðhringa. Drýgst-
an þátt í að grafa undan ríkis-
stjórnum, jafnt íhaldssömum
sem róttækum, eiga þó vafa-
laust margvíslegir efnahags-
örðugleikar, sem ágerzt hafa ár
frá ári, bæði sökum stórversn-
andi viðskiptakjara hráefna-
framleiðenda gagnvart iðnaðar-
löndum og örrar fólksfjölgun-
ar. Víða hafa kjör almennings
versnað og atvinnuleysi er
geigvænlegt í boi-gunum. Verð-
sveiflur á heimsmarkaðnum
hafa bitnað hart á Ghana. Þeg-
ar Nkrumah tók við völdum,
var verð mjög hagstætt á kak-
ói, helztu útflutningsvöru lands-
ins. Gerðar voru framkvæmda-
áætlanir sem byggðust á út-
flutningstekjum góðu áranna,
en þau stóðu ekki lengi. Verð-
fall á kakói skerti útflutnings-
tekjurnar stórlega, svo gjald-
eyrir til innflutnings neyzlu-
vamings varð af skomum
skammti, þegar búið var að
greiða umsamdar fjárfestingar-
vörur. Stórframkvæmdir eins
og virkjun Voltaárinnar eru
Kwamc Nkrumah.
deildir forustumenn sinn í
hvorum hópi Afríkuríkja. Bal-
ewa, hinn myrti forsætisráð-
herra Nígeríu, var leiðtogi í-
haldsmanna, sem kappkosta
að varðveita gamalt höfðingja-
vald með náinni samvinnu við
nýlenduveldin fyrrverandi og
auðfélög þeirra. Kwame Nkr-
umah, forseti Ghana, lagði aft-
ur á móti höfuðkapp á að Afr-
íkuríki losuðu sig ekki aðeins
úr stjómarfarslegri nýlenduað-
stöðu, heldur einnig efnahags-
legrl. Hann gerðist merkisberi
róttækrar stefnu, leitaðist bein-
línis við að fylkja Afríkuríkj-
um til sameiginlegrar baráttu
til að losa álftma við leifar ný-
lendustjórnarfars og boðaði
afrískan sósíalisma.
Ghana var fyrsta nýlendan i
Afríku sunnan Sahara sem
hlaut sjálfstæði, og ekki einu
sinni verstu óvinir Nkrumah
bera á móti því að snjöll stjórn
hans á lokaþætti sjálfstæðis-
baráttunnar átti drjúgan þátt í
þeim sigri. Frá því hann tók
við stjóm Ghana áttu sjálfstæð-
ishreyfingar annarra Afríku-
landa þar vísan stuðning. Þess
nýtur Nkrumha nú, er Sekou
Touré, forseti Gíneu, fyrsta Afr-
íkuríkisins sem brauzt undan
nýlendustjóm Frakka, hefur
sett hann sér við hlið með for-
setatign. Sú ráðstöfun hefur þá
þýðingu að Nkrumha getur
haldið áfram að koma fram í
samtökum Afríkuríkja og á al-
þjóðavettvangi, nýju valdhöf-
unum í Ghana og reyndar
ýmsum öðrum til ama. Þeir
kæra s.ig ekki um að eiga yfir
höfði sér átölur og áminningar
þess manns sem orðinn er tákn
baráttunnar fyrir óháðri stefnu
sameinaðra Afríkuríkja.
Valdaránið i Ghana skall á
einmitt í þann mund að
fundur Samtaka Afrikuríkja
átti að hefjast í Addis Abeba.
Fundarefnið skyldi vera afstað-
an til kúgunarstjórnar Ian
Smith í Rhodesíu og aðgerðir
sem miðuðu að því að velta
ÞAÐ VORAR FYRR í ÁR
Allir þekkja vorfargjöld Flugfélagsins, sem f>y5a 25%
fargjaldalækkun til 16 borga í Evrðpu.
Vorfargjöldin taka m gildi 15. narz - hálfum mánuði
fyrr en áður.
FerBizt me5 Flugfélagtnu y3ur tU ánægju og ábatxt.
FLUCFELAG JSLANDS
/CELANDAIR
Afríkuþjóða, og þegar hann er
úr sögunni erum við höfuðlaus
her.
Víst er, að fregnin um að
Ghanaher hefði notað tæki-
færið þegar Nkrumah var fjar-
verandi á ferðalagi í Austur-
Asíu til að taka völdin í land-
inu, vakti óskiptan fögnuð í
Salisbury, höfuðborg Rhodesiu.
Ian Smith og stuðningsmenn
hans, utan lands og innan telja
sig hafa unnið mikinn sigur.
Stuðningur frá portúgölskum
nýlenduyfirvöldum og stjóm S-
Afríku, einkum olíuflutningar,
er tekinn aðdraga úr áhrifum
brezka viðskiptabannsins á
Rhodesíu. Stjórn Smiths hefur
ævinlega verið þessfullviss að
hún geti staðizt efnahagslegar
refsiaðgerðir, og fall Nkrumah
var henni sönnun þess að ekki
þyrfti að óttast sameiginlega
valdbeitingu af hálfu ríkja
Afríkumanna. Hið misheppnaða
fundarhald í Addis Abeba stað-
festir þá skoðun. Stjómir Rhod-
esíu og Suður-Afríku fagna
hverjum þeim atburði sem ber
vott um upplausn og ósam-
komulag nýfrjálsra Afríkuríkja.
Okyrrðin í Afríkuríkjum er
af ýmsum rótum runnin,
þar blandast saman erjurmilli
ættbálka, árekstrar gamalla og
GLASGOW- LONDON - K08ENHAVN - OSLO - BERGEN
AMSTERDAM - BRUXELLES * PARIS - I.UXEMBURG
HAMBURG - FRANKFURT f BERLIN - HELSINKI
STAVANGER - G0TEBORG - STÖCKHOLM
jcjjj, s * jjjjj ,, , j, J J
henni úr sessi. Haile Selassie
Eþíópíukeisari vítti í setningar-
ræðu á ráðstefnunni sundur-
lyndi og hik Afríkuríkja í af-
stöðunni til Rhodesíu. Orð hans
megnruðu ekki að vega á móti
áhrifunum af falli Nkrumah.
Tíðindin frá Accra urðu helzta
umræðuefnið í Addis Abeba, og
loks leystist ráðstefnan upp án
þess að komast að nokkurri
niðurstöðu sem máli skipti um
það efni sem hún átti að ræða,
baráttu gegn yfirdrottnun hins
hvíta minnihluta í Rhodesíu.
Nkrumah hefur frá öndverðu
verið einn helzti áhrifamaður-
inn í Samtökum Afríkuríkja, og
þegar meirihluti fulltrúa í Add-
is Abeba ákvað að taka gilda
sendinefnd herforingjastjórnar-
innar sem steypti honum úr
völdum í Ghana, gengu full-
trúar átta ríkja af fundi. I
fundarlok lýsti Kenneth Kaunda,
forsætisráðherra Zambíu, þess
rikis sem berst við Ian Smith
og félaga hans í návígi, því yfir
að stjórnarbyltingin í Accra
ætti sök á því að ráðstefnan
hefði farið út um þúfur og
Afríkuríki stæðu stefnulaus og
sundruð gagnvart erfiðasta
vandamáli sem þeim hefur að
höndum borið. Mergurinn máls-
ins er, sagði Kaunda, að Nkr-
umah hefur ætíð verið forustu-
maður í baráttunni fyrir frelsi
Stjórnir Afríkuríkja fallahver
af annarri fyrir sínum
eigin herjum. Á þrem mánuð-
um hafa herforingjar hrifsað
völdin af stjómmálamönnum í
sex löndum í Vestur-Afríku.
Tvö síðustu valdaránin, í Níg-
eríu og Ghana, hafa vakið
mesta athygli. Þar eiga í hlut
þau ríki Vestur-Afríku, sem
lengst eru komin áleiðis í at-
vinnuþróun og alþýðufræðslu, og
báðum er spáð glæsilegri fram-
tíð, þegar þjóðimar fá bolmagn
til að nýta fjölbreytta land-
kosti. Forustumennirnir sem
steypt var af stóli voru báðir
ERLEND
TÍÐINDI