Þjóðviljinn - 09.03.1966, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 09.03.1966, Blaðsíða 5
Miðvifiudagur 9. marz 1966 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5 ÁRBÓKARHEFTI ÍÞRÓTTABLADS Frá Læknafélagi Islands og Læknafélagi Reykjavíkur Skrifstofa Læknafélaganna er flutt í DOMUS MEDICA við Egilsgötu. LÆKNAFÉLAG fSLANDS. LÆKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR. Frá Læknafélagi Reykjavíkur Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur verður haldinn miðviku- daginn 9. marz kl. 20.30 í DOMUS MEDICA. LATID EKKI SLYS HAFA AHRIF A FJARHAGSAFKOMU YDAR KR sigraði ÍR 68:57 í körfuknattleiksmótinu E Um helgina voru leiknir tveir leikir í fslandsmót- inu í körfuknattleik í 1. deild. Á laugardagskvöldið sigr- aði KFR ÍKF með 72 stigum gegn 63 eftir jafnan og spennandi leik, og á sunnudagskvöld unnu KR-ingar ÍR 68—57. Einnig voru leiknir tveir leikir í II. deild. 1. KFR — ÍKF 72:63 (40:31) Fyrstu mínútumar var leik- uriim mjög jafn og spennandi og barátta mikil. Eftir 5 mín- útur er staðan 8:8 og 3 mín. síðar 16:15 fyrir KFR. Síðan ná KFR-ingar smám saman yfirhöndinnj og ná 10 stiga forskoti en j hálfleik var staðan 40:31, KFR í hag. Munurjnn helzt sá sami fyrstu mínútur siðari háifleiks, en eftir nokkrar mínútur tóku IKF-ingar að sækja sjg og um miðjan hálfleikinn var staðan 50:49 KFR í hag. Hélzt leik- urinn svo jafn þangað til 4—5 mín. eru til leiksloka að KFR nser góðum leikkafla o.s ná þ«ir yfirhöndinni, komast 12 stig yfir og það nægði þeim til sigurs. Beztjr í KFR liðinu voru Sig. Helgason með 24 stig og átti hann nú sinn bezta leik 4 mótinu Oig var mjög góður. Marinó Sveinsson var og ágæt- ur með 14 stig. Þórir Magnús- son var allsæmjlegur og setti 18 stjg I liði IKF var Frið- þjófur beztur og settj 5 stig, en tók mörg fráköst, en hann fór útaf er 5 mvn. voru eftir af lejk, þar sem hann hafði fengið sína fimmtu villu og ef til vill hefur það kostað IKF sigurinn. Fyrr um kvöldið léku í 2. dejld HSK (Skarphéðinn) og UMFS (Skallagrimur frá Borg- arnesi) Og sigruðu þeir fyrr- nefndu eftir hnífjafnan leik og spennandi lengst af með 67 stjgum gegn 47 en í hálfleik var staðan 22:20 fyrjr Skarp- héðin. Skarphéðinsliðjð komst ekki í gang fyrr en um miðjan síð- arj hálfleik, en þoir sjgruðu hó örugglega. Beztjr í liði HSK voru þeir Magnús Sigurðsson og Ólafur Haraldsson. í Skalla- grímsiðinu voru beztir Andrés og Þórður, KR — ÍR 68:57 (32:23) KR-ingar byrjuðu mjög vel og komust 10 stig yfir á fyrstu mínútunum og { raunjnni gerði það út um leikinn, því það sem eftir var leiksjns hélzt bilið um 10 til 12 stig Svæð- ispressa KR-inga gekk vel og fengu þeir margar körfur út úr henni, ÍR-ingar misstu margar sendingar út í sandinn sakir ónákvæmni og einnjg voru þeir mjÖg óheppnir í körfuskotum í byrjun og reynd- ist það hafa úrsljtaáhrifin í leiknum. í hálfleik var staðan 32:23 fyrir KR. Síðari hálfleik- ur var alveg eins og sá fyrri. munurinn hélzt sá sami allan lefkinn út í gegn. Liðin KRÚiðið átti nú góðan leik og var sigur þeirra raunveru- lega aldrei í hættu. Langbezt- ir ; liðinu voru þeir Kolbeinn og Gunnar sem áttu báðir mjög góðan lejk. Ágætir voru og Guttormur Ólafsson og Einar Bollason. Stig KR skoruðu Einar 16, Guttormur 14, Gunn- ar 13, Kolbeinn, 10 Kristinn 8 og Jón Otti Ólafsson 7. ÍR-liðið er ekki nógu veU leikandi, og einnig vantar þá meira öryggi í körfuskoitum. — Beztir voru Hólmsteinn eink- um framan vaf, og Tómas. Stig- in skoruðu ' Agnar Friðriksson 24 stig, Hólmsteinn 13. Tómas 9, Sig. Gíslason 7 Viðar Ól- afsson og Jón Jónasson 2 stig hvor. Dómarar voru Guðjón Magn- lisson orr Einar Oddsson og dæmdu þeir mjög vel. Fyrr um kvöldig léku í II. deild ÍS gegn UMFS og var þar um einstefnu akstur að ræða að körfu Skallagríims. ÍS sigraði mefi yfirburðum 71:30. f hálfleik var staðan 39:10. Er greini’legt ag bar- áttan í II. deild mun standa milli fs og Skarphéðins. At- hygli í leiknum vakti Grétar, leikmaður ÍS. Hann átti mjög góðan lei'k og skoraði 23 stig. Einnig var Jóhann Anderssen góður. Starfsstúlkur óskast Tvær starfsstúlkur vantar nú þegar í eldhús Kleppsspítalans. — Upplýsingar gefur matráðs- kcmah í síma 38160. ■ Árbók íþróttablaðsins er nýkomin út, þó ekki í bókarformi, því að það leyf- ir fjárhagurinn ekki, heldur sem fyrsta tölublað blaðs- ins þetta ár. — Blaðið er með stærsta móti og hefur að geyma yfirlitsgreinar um 11 íþróttagreinar árið 1965. Svo stórt íþróttablað hefur ekki verið gefið hér út síðustu árin, það var að- eins í sambandi við Olymp- íuleikana t.d. 1948, að blað- ið var stærra. ÍÞRÓTTABLAÐIÐ hefst á yfirliti um starfsemi Iþrótta- sambands Islands starfsárið 1965. Síðan eru í blaðinu yfir- litsgreinar fyrir árið 1965 um 11 íþróttagreinar af þeim 16, sem hér eru iðkaðar. Þær 5 íþróttagreinar, sem ekki eru gerð skil í blaðinu, eru blak, skautahlaup, fimleik- ar, leikfimi og róður, en nokkr- ar greinar um þessi efni urðu síðbúnar. öllum helztu íþróttagreinun- um eru gerð ýtarleg skil. örn Eiðsson ritar um frjálsar í- þróttir, Hallur Símonarson uín knattspymu, Kristján Bene- diktsson um badminton, Sig- urður Jóhannsson um judo, Kjartan Bergmann Guðjónsson um glímu, Stefán Kristjánsson um skíðaíþróttir, Leo Schmidt um skotfimi, Sv. Snorrason um golf, Alfreð Þorsteinsson um handknattleik, Sólon Sigurðs- son um sund og Bogi Þorsteins- son um körfuknattleik. Getið er um 12. landsmót UMFl, sem haldið var á Laug- arvatni s.l. sumar og annað efni er í blaðinu, sem prýtt er f jölda mynda. ÍÞRÓTTABLAÐ- IÐ er gefið út af Iþróttasam- bandi Islands, ritstjórar eru þeir Hallur Símonarson og örn Eiðsson, í blaðstjóm eru Þor- steinn Einarsson, Benedikt Jakobsson og Sigurgeir Guð- mannsson. heimsmeist- I ■ araliðinu ■ ■ | ■ — Myndin var tekin í ■ íþróttahölinni j Laugar- : dal um helgina. Fremst á j myndinni sjást nokkrir ■ rúmensku handknattleiks- ■ mannanna sitja á hvíld- ■ arbekk, en úr sætum sín- j um hafa risið tveir farar- j stjórar þeirra, hinn frægi ■ þjálfarj heimsmeistaranna ; Ioan Kunst (til hægri) og : helzti aðstoðarmadur hans. j Það vakti mikla athygli í j Laugardalnum á laugardag j og sunnudag hve „málglað- ■ ir“ þessir tvejr félagar j voru; má segja að l>cir liafi j ekki þagnað þær tvær j klukkustundir sem lands- • )eikirnir tóku — þeir voru i að stjórna mejstaraliðinu : og ekkert sparir á orðin. j — Ljósm. Þjóðv. A.K. j Fyrstudeildarkeppnin er nú hálfnuð og er staðan þessi: KR 4 0 0 325:219 8 st. Á 3 0 1 248:275 6 Rt. ÍR 2 0 2 268:248 4 st. KFR 1 0 3 289:312 2 st. IKF 0 0 4 197:283 0 st. TRYGGINGAFÉLAGIÐ HEIMIRS LINDARGÖTU 9 • REYKJAVIK SÍMI 22122 — 21260 Skrifstofa ríkisspítalanna. Dómarar voru Guðmundur Þorsteinsson og Hilmar Bjama- son og dæmdu þeir allsæmi- leg*. LÆKNAFÉLAG REYKJAVfKUR. Á

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.