Þjóðviljinn - 25.03.1966, Page 2
2 SlÐA — ÞJÖÐVILJ7NN — Föstudagur 25. marz 1966
j.
Staðan eftir 4. umferð í
Skákkeppni stofnana 1966
■ Síðastliðið mánudagskvöld voru tefldar að Hótel
Sögu 3. og 4. umferð í Sveitakeppni stofnana en tvær
síðustu umferðirnar verða svo tefldar n.k. mánudags-
kvöld á sama stað. Að loknum fjórum umferðum er Bún-
aðarbankinn, A-sveit, efstur í A-flokki með 12 vinninga
en Veðurstofan er næst með ílVz vinning. — í B-flokki
er Borgarbílastöðin efst með 11 vinninga.
í 5. umferg tefla þessar
arleiðir 7(4.
Eim-skipafélag íslands 8 —
Steinstólpar 7,
Bamaskólar Reykjaví'kur, B-
sveit. 7 — Gagnfræðaskólinn
Kópavogi, 7.
Verðgæzlan 5% — KRON 5V2.
Prentsmiðjan Edda 6 — Út-
vegsbankinn. B-sveit. 4.
Kynþroskaaldur-
inn hefur lækkað
Un-glingamir verða sífellt
hærri og sterikari verða æ
fyrr kynþroska og eru þannig
frjósamir æ lengri tíma æv-
innar, Að jafnaði eru ungling-
ar samtímans millj 15 og 20
sentímetrum hærri en ung-
lingar fyrir 100 árum. Kyn-
slóðin sem nú er fullþroska er
7—10 sentímetrum hærri.
Fyrir 100 árum urðu stúlkur
í Evrópu kynþroska 16—17
ána. Nú verða þ*r kynþroska
13—14 ára Af því leiðir að
þær eru lengur frjósamar, og
er verf að gefa því gaum þeg-
ar rætt er um ,.mannfjölg-un-
ar-sprengjnguna“ segir síð-
asta hefti ..UNESCO Courier“,
mánaðarriti Menningar- o<j vis-
Índastofnunar S.Þ,
Fólksfjölgunarvandamálið er
viðfangsefni þessa heftis. For-
stjóri Matvæla- og landbúnað-
arsftofnunarinnar (FAO) skrif-
ar þar grein og bendir á að
aulkist matvæla-framleiðslan
ekki, heldur haldi einungis í
við mannfjölgunina, muni tvö-
falt fleiri jarðarbúar búa við
hungur og vannæringu um
næstu aldamót en nú. — (SÞ).
sveitir saman;
A-FLOKKUR:
Búnaðarbankinn. A-sveit, 12 v.
— Raforkumálaskrifst. 10 v.
Veðurstofan IIV2 — Lands-
bankinn A-sveit, 10.
Útvegsbankinn, A-sveit, 9(4 —
fsl. aðalverktakar 9 V2.
Rafmagnsveita Reykjavíkur 9(4
Stjómarráðið, A-sveit 8(4-
Landsbankinn, B-sveit, 8(4 —
Hreyfill, A-sveit, 8.
Borgarverkfræðingur, A-sveit,
8 — Bamaskódar Reykjavík-
ur. A-sveit, 7(4.
Landssíminn, A-sveit, 7(4 —
Þjóðviljinn 7.
Strætisvagnar Reykjavíkur 6(4
— Laugamesskólinn 6.
Morgunblaðjð 6 — Lögreglan,
A-sveit. 6.
Flugfélag íslands, 5 — Lindar-
götuskólinn 3(4.
B-FLOKKUR:
Borgarbílastöðin 11 —Bifreiða-
leigan Falur 10(4.
Hreyfill, B-sveit, 10(4 — Lög-
reglan. B-sveit, 9(4
Borgarverkfræðingur B-sveit,
9(4 — Landsbankinn, C-
sveit, 9.
Óli Bieldvedt & Co. 9(4 —■
Landssíminn, B-sveit 8.
Búnaðarbankinn, B-sveit, 9 —
Stjómarráðið. B-sveit 8.
Vélsmjðjan Héðinn 8 — Bæj-
Að
skíra ál
Eitt sinn var þad talin sjálf-
sögð regla í nýyrðasmíð hér-
lendis að nota helzt einvörð-
ungu forna orðstofna, og þótti
það kostur á nýyrði að það
væri sem allra ólíkast alþjóð-
lega heitinu Nú eru málfræð-
ingar flestir fyrir löngu falln-
ir frá þessari fyrnsku, hika
ekki við að taka alþjóðleg orð
og breyta þeim svo að þau
hlíti reglum tungunnar, en að
sjálfsögðu þykir það kostur og
hagræði að íslenzka orðmynd-
in og sú alþjóðlega séu sem
líkastar. Samkvæmt þessari
aðferð var hinni ótæku orð-
mynd alúminium breytt f
alúmín, þegar hinar langvinnu
umræður um það frumefni
hófust hér á landi, og fékk
sú breyting tafarlaust góðar
undirtektir jafnt í skrifum
blaða sem munni almennings.
En þá gerðust þau tíðindi að
Bjami Benediktsson forsætis-
ráðherra tók upp orðmyndina
ál í skrifum sínum. Var það
mjög athyglisvert sálrænt fyr-
irbrigði; ráðherrann þurfti
auðsjáanlega á því að halda
að sýna hvað hann væri
„þjóðlegur** og andvígur öll-
um erlendum áhrifum — á
sama tíma og hann opnaði
allar gáttir fjrrir erlendu fjár-
magni og leiddi bandarískt
dátasjónvarp inn á þúsundir
íslenzkra heimila. Og nú er
svo að sjá sem þessi sálar-
flækja marki varanleg spor;
ætlunin mnn að lögfesta orð-
mynd ráðherrans með sam-
þykkt alþingis, og verður þá
trúlega ekki undan þessari
nafngift vikizt til frambúðar.
Kann vel svo að fara að þetta
skrýtna dæmi um samvizku-
bit ráðherrans verði einasta
verk hans sem standast muni
til frambúðar f fslenzku
þjóðlífi.
En orðmyndin ál dregur
dilk á eftir sér. Til er fiskur
sem áll heitir og hefur að
undanfömu verið veiddur og
verkaður til útflutnings. I
samningi ríkisstjómarinnar
við svissneka alúmfnhringinn
koma fyrir fjölmörg sambönd
og heilar lagagreinar þar sem
ógerlegt er að vita hvort
heldur er átt við fisk eða
málm. Talað er um álbræðslu,
útflutning á áli verð á áli.
hráál og þar fram eftir göt-
unum, og fylgja ævinlega
miklar fjárhagslegar skuld-
bindingar sem álvinnsluverk-
smiðja Sambandsins í Hafn-
arfirði myndi án efa vilja hag-
nýta sér. Þannig getur sam-
hljóða mynd þessara orða í
ýmsum föllum og samsetn-
ingum valdið margvíslegum
erfiðleikum bæði f efnahags-
málum og byggingarfram-
kvæmdum, að ógleymdri mat-
argerðinni. Virðist því ein-
sætt að velja verður hinum
m.jóa, hála og gómsæta fiski
nýtt nafn, og er þá sjálfsagt
að forsætisráðherrann haldi
honum undir skfm svo að
engin erlend áhrif smeygi sér
inn f íslenzka menningar-
heigi. — Atistri.
Friðrik Einsrs-
son formaður
Dansk- íslenzka
félagsins
Aðalfundur Dansk-íslenzka
félagsins var haldinn 13. marz.
Að loknum aðalfundarstörfum
hélt Guðmundur Þorláksson,
magister, stórfróðlegt erindi um
Grænland. Guðmundur dvaldi
um sex ára skeið í Grænlandi,
á árunum 1939—1945, og ferð-
aðist mjög víða um landið til
vísindalegra rannsókna. Rakti
hann í fyrirlestrinum mynd-
um og mótun landsins, lands-
lag, veðráttu, gróður og gróð-
urleysi, framleiðsluháttu og
framieiðslumöguleika. Einnig
fræddi hann um hina geysi-
miklu þjóðflutninga, sem á
undanfömum öldum og árþús-
unum hafa átt sér stað vestan
frá Norðqr-Ameríku og austur
á bóginri um nyrzta hluta
Grænlands. Þá lýsti hann og
skýrði menningu eskimóa. Fáir
viðstaddir munu hafa vitað áð-
ur. að menning eskimóa er
4000 ára gömul eða eldri.
Þetta stórfróðlega erindi
Guðmundar var flutt af fá-
dæma þekkingu og miklum
skörungsgkap pg var honum
klappað lof f lófa að erindi
loknu.
Allmiklar breytingar urðu á
stjóm félagsins, svo sem lög
þess gera ráð fyrir. Dr. theol.
Þórir Kr. Þórðarson, prófessor,
lét af formennsku samkvæmt
eigin ósk. eftir að hafa gegnt
formennsku í fjögur ár, en
lengst geta formenn setið f sex
ár
Úr öðrum blöðum
Frjáls gagnrýni í hinum
frjálsa heimi
Eins og allir ættu að vita
er frjáls gagnrýni í almenn-
ingsþágu talin til gildis „hin-
um frjálsa heimi“, sem svo
heitir í blöðum er tamið hafa
sér orðskrúð Bandaríkjaáróð-
ursins. Að þetta eru hin herfi-
legustu öfugmæli hvað snertir
raunverulegt þjóðfélagsástand
í Bandaríkjunum til dæmis. er
öllum kunnugt sem nokkuð
hafa kynnt sér bandarískt
þjóðlíf.
Nú vill svo til aldrei þessu
vant að Alþýðublaðið segir
hvað gerist þegar maður hugs-
ar sér að beita „frjálsri gagn-
rýni“ í hinum „frjálsa heimi"
Bandaríkjanna, ef annars veg-
ar eru auðhringarnir sem þar
vilja flestu ráða. Lögfræðing-
ur nokkur, Ralph Nader, taldi
sannað að eitt hið voldugasta
bílaframleiðslufyrirtæki USA
framleiddi bíla án tillits til
nauðsynlegra öryggisráðstaf-
ana. Og hér er frásögn Al-
þýðublaðsins um nokkuð af
því sem fram kom við lög-
fræðing þennan, sem auðsjá-
anlega hefur haldið að áróður-^.
inn um hinn frjálsa heim ætti
ekki bara að vera útflutnings-
vara. Greinin nefnist „Osókn
vegna gagnrýni“. Þar segir m.
a.:
„HÆTTULEGUR
SPORTBÍLL“
Einkum er talið, að General
Motors verði illa úti, þar sem
forráðamenn fyrirtækisins hafa
látið að því liggja, að þeir
standi að baki tilraunanna til
að „frysta“ Ralph Nader.
Heill herskari einkalögreglu-
manna ásamt föngulegum
blómarósum hefur verið á
hælum Naders síðustu mánuði,
til þess að afla upplýsinga
um hann, t.d. hvort kynlíf
hans sé eðlilegt, hvort banka-
viðskipti hans séu flekklaus,
hvort hann hafi lent í umferð-
arslysi, eða hvort hann eigi
eitthvað saman að sælda við
viðskiptavini, sem hafa stefnt
General Motors.
Síðasttalda atriðið er í
tengslum við fullyrðingar fjöl-
margra um að sportbíll Gene-
ral Motors, „Corvair“, hafi
Bændasamtökin
Hotel
Borizt hafa yfirlýsingar frá
Búnaðarfélaginu og Stéttarsam-
bandi bænda vegna umræðna
sem urðu á búnaðarþingi um
Hótel Sögu. Yfirlýsingar þessar
eru svohljóðandi:
„Stjóm Stéttarsambands
bænda vill af gefnu tiilefni
lýsa yfir því, að tillaga sú,
sem flutt var á nýafstöðnu
Búnaðariþingi um sölu á Hó-
tel Sögu, er algjörlega til-
efnislaus. Hún nýtur einskis
stuðnings innan stjómarinnar,
hefur aldrei verið rædd á að-
alfundum sambandsins og
ekki er vitað að húri njóti
neins stuðnings meðal bænda
almennt. Þá gefur rekstur
hótelsins eigendunum heldur
ekkert tilefni til þess að selja
það.
Reykjavík, 19. marz 1966,
Gunnar Guðbjartsson
(sign)
Einar Ólafsson
(sign) ^
Bjarni Halldórsson
(sign)
Páil Dxðriksson
(sign)
"'lmur Hjáimarsson“
(sígn)
„Stjórn Búnaðarfélags ts-
Iands leyfir sér héi með, að
gefnu tilefni að Iýsa yfir þvi, 1
vilja ekki selja
Sögu
að tillaga sú, sem borin var
fram af einum búnaðarþings-
fulltrúa á síðasta Búnaðar-
þingi, er Iauk 18. þ.m., um
sölu á Hótel Sögu, var flutt
án vilja og vitundar stjóm-
arinnar. og er hún í fyllsta
máta ósamþykk tillögunni.
Vitað er, að tillaga þessi átti
engan hljómgnmn á Búnaðar-
þingi, enda fékkst hún ekki
afgreidd frá nefnd.
Það skal tekið fram, að
rekstur Bændahallarlnnar,
þar með talin Hótel Saga,
gefur síður en svo tilefni til
slikrar ráðstöfunar á þessari
verðmætu eign.
Reykjavík, 19. marz 1966,
Þorsteinn Sigurðsson
(sign)
Gunnar Þórðarson
(sign)
Einar Ólafsson
(sign)
varam. Péturs Ottesen“.
ÍR-ÍKF og ft-KR
Körfuknattleiiksmóti íslands
verður haldið áfram í kvöld,
föstudag, klukkan 8.15 að Há-
logalandi. Þá fara fram tvedr
lejkir í 1 dejldarkeppninni,
IR leikur við IKF og Armann
leikur við KR,
lífshættulega byggingu.
Ralph Nader á ásamt fleir-
um m.a. Robert Kennedy, að
mæta til yfirheyrslu hjá um-
ferðaröryggisnefnd forsetans
eftir nokkrar vikur, og á með-
an viðgengst hneykslið.
VILJANN SKORTIR
Hinn hugrakki Ralph Nader
hefur nokkurn veginn mót-
mælalaust getað sannað, að
Detroitverksmiðjurnar hafa,
þegar á heildina er litið, lagt
til hliðar öll öryggissjónarmið
við framleiðslu bíla sinna.
Að Detroit hefur ráðin og
tæknina — en viljann skortir.
Að Detroit hefur alla stjórn
á nefnd þeirri, sem fjallar um
meiriháttar öryggismál og
einnig hinum voldugu sam-
tökum bifreiðaeigenda, sem á
íslandi svarar til FÍB.“
Og svo fær maður þær upp-
lýsingar í þessari Alþýðublaðs-
grein, að jafnvel þó Johnson
forseti og Robert Kennedy
væru allir af vilja gerðir að
hjálpa unga lögfræðingnum í
baráttu sinni við auðhringana
þá sé allt óvíst um árangur,
því auðhringarnir í Bandaríkj-
unum „hafa ótrúlega mikil í-
tök vestan hafs“ eins og við-
urkennt er svo sakleysislega
í greinarlok!
„AUÐVELDARA OG ÓDÝR-
ARA.
í hinni athyglisverðu bók
sinni skýrir Nader frá því,
hvers vegna og hvernig bílar
valda fjörtjóni. Hann hefur
leitazt við að gagnrýna hina
hefðbundnu baráttu fyrir um-
ferðaröryggi, sem — með
blessun framleiðenda — legg-
ur höfuðáherzlu á breytta
háttu ökumanna, þó að miklu
auðveldara og ódýrara væri
að breyta bílunum.
Það vekur nokkra von um
árangur, að hinn ungi lög-
fræðingur hefur samúð John-
sons forseta. Sé það á valdi
Johnsons, þá mun Detroit inn-
an skamms verða neytt til
þess að framkvæma þær ör-
yggisreglur, sem nauðsynleg-
ar eru taldar. En andstæðing-
ar Johnsons, Kennedys og Na-
ders hafa ótrúlega mikil ítök
vestan hafs.“
VAKTMAÐUR
Vaktmaður óskast. Þarf að hafa bílpróf.
Upplýsingar í síma 38690.
AÐALFUNDUR
Sparisjóðs vélstjóra verður haldinn að Bárugötu
11 sunnudaginn 27. marz 1966 kl. 14.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir ábyrgð-
armönnum, eða umboðsmönnum þeirra föstudag-
inn 25. marz kl, 13:00—16:00 og laugardaginn 26.
marz kl. 10—12.
Stjómin.
AÐALFUNDUR
Verzlunarbanka íslands h.f. verður haldinn
í veitingahúsinu Sigtún, Laugardaginn 2.
apríl 1966 og hefst kl. 14.30.
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans s.l.
starfsár.
2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar bank-
ans fyrir s.l. reikningsár.
Lögð fram tillaga um kvittun til bankastjóra
og bankaráðs fyrir reikningsskili.
Kosning bankaráðs.
Kosning endurskoðenda.
Tekin ákvörðun um þóknun ti] bankaráðs og
endurskoðenda fyrir næsta kjörtímabil.
Tekin ákvörðun um greiðslu arðs.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir í afgreiðslu bankans, Bankastræti
5, Reykjavík, miðvikudaginn 30. marz, fimmtudag-
inn 31. marz og föstudaginn 1. apríl kl. 10—12 30
og 14.—16.
Reyk’jrivík, 23.marz 1966.
í Bahkaráði Verzlunarbanka íslands h.f.
Egill Guttormsson.
Þ. Guðmundsson.
Magnús J. Brynjólfsson.
3.
4.
5.
6.
7.