Þjóðviljinn - 25.03.1966, Qupperneq 3
pr —
Föstudagur 25. marz 1966 — ÞJÖÐVILJINN — SlÐA 3
Fjölmennar kröfugöngur í USA
gegn styrjöldinni í Vietnam
NEW YORK, SAIGON, MANILA, 24/3 — AÖ’ minnsta
kosti 150 þúsund manns munu taka þátt í kröfugöngum
sem fram fara í bandarískum borgum á laugardag gegn
stefnu stjórnarinnar í Vietnam.
Haft er eftir utanríkisráðherra Kína, Chen Yi, aö Kín-
verjar telji sig hafa rétt til aS taka þátt í styrjöldinni í
Vietnam ef Bandaríkjamenn varpa sprengjum á Hanoi
og hafnarborg hennar, Haiphong.
Allsherjarverkfall er nú í borgum í norðurhéruðum
Suður-Vietnam gegn hershöfðingjastjóminni í Saigon.
Kröfugöngur
Búizt er við því, að um fimm-
tíu þúsund manns muni taka
þátt í mótmælaaðgerðum gegn
Vietnamstyrjöldinni í NewYork
einni, en auk þess verða farn-
ar kröfugöngur í ýmsum öðr-
um stærri borgum Bandaríkj-
anna.
í New York munu hermenn
úr heimsstyrjöldinni og Kóreu-
stríðinu fara fremstir í fylk-
ingu, en þeim fylgja fulltrúar
ýmissa samtaka sem berjastfyr-
ir mannréttindum svo og
kvennasamtaka. Þá berast þær
upplýsingar frá New York, að
samtímis munu farnar kröfu-
göngur gegn stefnu Bandaríkja-
stjórnar í öðrum löndum, þ.á.m.
Svíþjóð, Englandi, Kanada,
Frakklandi og Ítalíu.
Ummæli Chen Yi
Stjórnmálakona frá Filipps-
eyjum, Maria Katigbak, öld-
ungadeildarþingmaður, er ný-
komin frá heimsókn til Kína,
og hefur það eftir Chen Yi
marskálki, utanríkisráðherra
Kína, að Kína teldi sig hafa
rétt til íhlutunar í Vietnam ef
Bandaríkjamenn gera loftárás-
ir á Hanoi, höfuðborg Norður-
Vietnam og hafnarborg hennar
Haiphong. Ráðherrann sagði, að
Haiphong væri mikilvæg höfn
fyrir hið kínverska meginland.
Hann gaf einnig þær upplýs-
ingar, að Kínverjar hjálpuðu
nú Norður-Vietnam með því að
senda þeim matvæli, korn og
dálítið af vopnum. Norður-Viet-
nam hefði ekki beðið um að-
stoð kínverskra hersveita, en
Kína myndi verða viö slíkri ósk
ef hún kæmi fram. Chen Yi
sagðist búast við því, að styrj-
öldin í Vietnam gæti staðið í
20—30 ár.
Algjört verkfall
í fréttum undanfarinna daga
hefur verið greint frá marg-
víslegum mótmælaaðgerðum
gegn hershöfðingjaklíkunni í
Saigon í borgum í norðurhéruð-
um landsins, en þar eru Budda-
trúarmenn áhrifamiklir og
njóta þeir forystu Tri Quangs.
í borginni Danang hefur verið
efnt til verkfalls sem beint er
bæði gegn stjórninni og Banda-
Þing Kommúnistaflokks Sovétríkjanna:
Búizt viS endurmati á Stalín
ríkjamönnum, og herma frétt-
ir frá Saigon, að svo til allir
vinnandi menn þar í borg hafi
lagt niður vinnu. Öll fyrirtæki
í borginni voru lokuð í dag,
og í bandarísku flugstöðinni,
sem hjá henni er staðsett, var
einnig lítil hreyfing, þar eð
flestir vietnamskir starfsmenn
stöðvarinnar hafa lagt niður
Portúgal úr Nato?
LISSABON, 24/3 — Forsætisráðherra Portúgals, Salazar,
hefur lýst því yfir í viðtali við blaðið New York Times,
að aðild Portúgals að Nato sé alls ekki sjálfsagður hlut-
ur. Gagnrýndi hann bandalagið harðlega, og sagði að það
gæti ekki gegnt hlutverki sínu í dag, og lét að því liggja,
að Portúgal myndi hætta hernaðarsamvinnu við Nato.
Salazar sagði, að Portúgalir myndu þá í staðinn taka
upp beina hernaðarsamvinnu við þau ríki vestræn. sem
hefðu sýnt þeim vinsemd, og væru þeir ekki skyldugir
til að vinna með aðilum sem sýndu þeim fjandskap. Þessi
ummæli Salazars eru talin túlka óánægju portúgalskra
stjórnarvalda með það, að þeim hafa þótt samherjar
þeirra í Nato veita þeim lítinn stuðning í baráttu Portú-
gala fyrir að halda nýlenduveldi sínu.
Sósíaldemókrötum falil a&
mynda stjórn í finnlandi
HELSINKI 24/3 — Forseti Finnlands, Kekkonen, hefur
falið Rafael Paasio, leiötoga hinna sigursælu Sósíaldemó-
krata, aö hefja óformlegar viðræður um myndun sam-
steypustjómar allra flokka. Formlegar viðræður hefjast
þó ekki fyrr en hið nýkjöma ríkisþing kemur saman um
miðjan apríl.
MOSKVA, PEKING, 24/3 — Talið er að sú ákvörðun
Kínverska kommúnistaflokksins aö senda ekki fulltrúa
á þing Sovézka kommúnistaflokksins muni enn spilla
sambúð þeirra, og geri jafnvel líklegri stofnun nýrra al-
þjóðasamtaka kommúnista undir kínverskri forystu.
Búizt er við nokkrum breytingirm á forsæti miðstjórn-
ar sovézka flokksins á þinginu, svo og á endurmati á
hlutverki Stalíns í sögu Sovétríkjanna.
Margvíslegur orðrómur er upþf
um afleiðingar þess, að Kínverj-
ar höfnuðu heimboðinu. Sumir
spá endanlegum vinslifcum og al-
Forsetimi
Framhald af 10. síðu.
þar Rómverjum í tvö ár, sem
frægt varð. Þá var vörnin orðin
vonlaus, og þeir styttu sér allir
aldur, um 900 talsins. Þeir höfð-
ust við í höll Heródesar allan
tímann. Masada týndist í mörg
hundruð ár, allt varð þar orpið
eyðimerkursandi. En 1838 fann
amerískur pílagrímur þennan
fræga stað, og á árunum 1963
til 1965 unnu tugþúsundir manna
að uppgreftri þessara stórkost-
legu mannvirkja á fjallstindin-
um og er verkinu ekki að fullu
lokið. Þessi fornleifagröftur er
einn hinn allra merkasti í Gyð-
ingalandi og hefur þaft ómetan-
legt vísindalegt gildi, og forn-
sögulegt. Forsetanum þykir þetta
hið merkilegasta sem hann hef-
ur séð á ferðalaginu til þessa.
Hann heimsótti einnig hina nýju
borg Arad sem ísraelsmenn hafa
byggt í Júdeueyðimörkinni, þar
búa 2000 manns. í kvöld hefur
Naschitz aðalræðismaður og ís-
landsvinafélardð í Telav’v kvöld
samkvæmi til heiðurs forsetan
um í Hilton hóteli.
ðáSa'íhtökum nökkurra komm-
únistaflokka undir kínverskri
forystu, og svo mikið er víst,
að blöðin í Peking hafa byrjað
nýja árás á leiðtoga Sovétríkj-
anna. Setja Kínverjar ákveðin
skilyrði fyrir samvinnu í svari
sínu við boði um að koma á
þingið: sovézka þjóðin megi vera
þess fullviss, að um leið og Sov-
étríkin ákveði að veita heims-
valdasinnum öfluga mótspyrnu
muni Kínverjar veita þeim lið
í baráttu við sameiginlegan óvin.
Búizt er við því, að þegar í
setningarræðu sinni á þinginu
muni aðalritari sovézka flokks-
ins, Bréznéf, koma fram með
nokkurt endurmat á Stalín. I
sovézkum blöðum hefur undan-
farið verið minnzt á það, að
fordæming Krústjofs á Stalín
hafi verið of einhliða, og það
ekki komið nægilega fram, að
ýmislegt hafi áunnist í stjórn-
artíð hans, þótt honum hefðu
orðið á skyssur og hann brotið
lög. Er og bent á það, að síðari
misseri hefur lítið farið fyrir
greinum og bókmenntaverkum
um fangabúðir Stalíns og þá
menn sem létu lífið í „hreins-
unum“ Stalíns.
Þá er búizt við því, að tveir
eiztu meðlimir forsætis mið-
stjórnar Kommúnistaflokksins
muni víkja úr því. Þeir eru Ana-
stas Mikojan,1 71 árs að aldri
og heilsutæpur og Nikolaj
Sjvernik, 78 ára að aldri. Báðir
hafa gengt embætti forseta Sov-
étríkjanna.
Framhald af 10. síðu.
telja verður að Einar, sem
mœlti fyrir peirri rökstuddu
dagskrá, sem birt er hér á
undan, túlki skoðun bank-
ans á málinu. — Þannig
leggjast þrír af fjórum við-
skiptabönkum gegn pví að
frumvarpið verða samþykkt
pegar í stað en pað athug-
að nánar eins og tillaga
minnihluta fiárhaosnefnd-
ar leggur til.
Þorlákshöfn
Framhald af 1. síðu.
að fara, væru nú notaðir og
verkið virtist því komið í sjálf-
heldu, enda mætti með núver-
andi áframhaldi gera ráð fyrir
að allt verkið kostaði 80—100
miljónir króna og er þar um
töluvert aðra upphæð að ræða,
en gat í upphaflegu tilboði.
Birgir sagði, að hinir þýzku
verktakar hefðu heldur illa un-
að málalokum vorið 1962 og
töldu þá að titboð Efrafalls
væri svo þokukennt og fullt af
fyrirvörum, að ómögulegt væri
að gera sér fulla grein fyrir því
hver yrði endanleg útkoma
verksins, og yrði reyndar sú
raunin á.
Sumir verktakar hafi snið-
gengið að verulegu leyti út-
boðsskilmála verkkaupa. sem
flestir verktakar telja sér skylt
að hlíta, og sé þá í reyndinni
hreinlega samið um verkið að
lokum, en tilboðsopnunin forms-
atriði.
Svo virðist sem verkkaupar
telji, að þeir hafi þar ætíð gert
góðan samning, en staðreyndir
sýni venjulega annað. Slíkt
framferði sé að sjálfsögðu ekki
hrein samkeppni og gæti svo
farið að erlendum verktökum
þætti hreinlega ekki taka að
eyða fé og tíma í stærri tilboð
á íslandi.
Hagur íhalds-
manna vænkasf
LONDON 24/3 — Síðustu skoð-
anakannanir þykja benda til, ad
sigur Verkamannaflokksins ■ í
væntanlegum þingkosningum
verði ekki eins mikill og vænta
mátti. Eru leiðtogar flokksins
varkárir í spádómum og tala um
20—30 fulltrúa meirihluta á
þingi, en samkvæmt nýlegum
könnunum gátu þeir búizt við
150—200 þingsæta meirihluta.
Öttast verkamannaflokkurinn
dauflega kjörsókn og undirbýr
Wilson forsætisráðherra umfangs-
mikla herferð til að hrista
drungann af fylgismönnum flokks
Fráfarandi forsætisráð-
herra, Virolainen frá Miðflokkn-
um, sagði fyrir kosningar, að
fyrir sakir alvarlegra efnahags-
örðugleika, sem Finnland stæði
frammi fyrir, ætti að stefna að
myndun slíkrar stjórnar allra
flokka. Hinsvegar hafa bæði
Virolainen og aðrir leiðtogar
Miðflokksins látið í það skína
eftir kosningar, að flokkur
þeirra myndi fara í stjórnar-
andstöðu og láta sósíalistísku
flokkana þrjá, sem fengu meiri-
hluta í kosningunum, taka á sig
ábyrgð af stjórn landsins.
í Helsinki er álitið, að hug-
myndih um stjórn allra flokka
sé aðeins formlegt upphaf á
viðleitni Paasios. Hún sé ó-
framkvæmanleg vegna þess að
íhaldsflokkurinn sem beið mik-
ið afhroð í kosningunum, hef-
ur lýst því yfir að hann muni
ekki vinna með kommúnistum,
og Lýðræðisbandalagið, sem
kommúnistar eiga aðild að, og
Miðflokkur Kekkonens forseta
vilja heldur ekki starfa með í-
haldsflokknum.
Búizt er við að stjórnarmynd-
un verði ekki auðveld, en flest-
ir hallast helzt á þá skoðun,
að stóru flokkarnir þrír, Mið-
flokkurinn, Lýðræðisbandalagið
og Sósíaldemókratar séu líkleg-
astir til að standa saman að
nýrri samsteypustjórn. Margir
búast við því, að forsætisráð-
herra verði úr flokki sósíal-
demokrata, og þá ekki ólíklegt
að Karl August Fagerholm verði
fyrir valinu, en hann er frá-
farandi forseti Ríkisþingsins.
Tónlist
Framhald af 10. síðu.
að fyrirgreiðsla og móttökur
af hálfu Svíanna hefðu verið
framúrskarandi. Voru íslenzku
tónlistarmönnunum haldin mörg
boð, m.a. boðnir til formanns
sænska tónskáldafélagsins,
Gunnars Bucht, en kona hans,
Bergljot, samdi prógrammskýr-
ingar og vissi furðu mikið um
tónlistarlíf á íslandi. Þá sátu
þeir hádegisboð hjá sænska út-
varpinu og sýndu síðan starfs-
menn tónlistardeildar þeim
studio í nýrri útvarpsbyggingu
og einnig bauð Fílharmoníu-
sveit Stokkhólms til hádegis-
boðs.
í Svíþjóð hittu þeir félagar
tvo þekkta íslenzka tónlistar-
menn, sem starfa þar nú, þá
Snorra Þorvaldsson sem leikur
með Radiohljómsveitinni í
Stokkhólmi og Einar Svein-
björnsson sem nú er konsert-
meistari í Malmö.
Svemafélag pípulagingaimanna
ADALFUNDUR
verður haldinn í Sveinafélagi'pípulagningarmanna
laugardaginn 26. marz n.k. kl. 2 e:h. að Frey-j«^- *
götu 27.
Stjórnin.
ForstöBukonustaBa
við nýtt dagheimili við Dalbraut, er laus til um-
sóknar.
Umsóknir sendist skrifstofu Sumargjafar. Forn-
haga 8, fyrir 15. apríl n.k.
Stjórn Sumargjafar.
IðnaÖur
Framhald af 10. síðu.
standi traustum fótum verður að
koma til gagnger endurskipulagn-
ing á þessum málum. Það verð-
ur að leggja niður mörgu og
smáu fjölskyldufyrirtækin en
koma á fót, stórum eða stóru
fyrirtæki, sem geta framleitt alla
bá vöru. sem eftirspurn er eftir
markaðnum úr hverri iðngrein.
Ef íslenzkur iðnaður skipulegg-
ur sig ekki af meira viti en
verið hefur er honum voði vís.
sagði Einar Olgeirsson að lok-
um.
Banaslys
Framhald af 1. síðu.
að hann hafi látizt þegar slys-
ið varð. Hjón, sem búa við
Tjarnarstíg fundu hann og báru
hann inn til sín, þar eð þau
héldu hann með lífi.
Eins og fram hefur komið er
ekki vitað hvernig slysið varð,
en samkvæmt upplýsingum
rannsóknarlögreglunnar benda
allar líkur til að það hafi ver-
ið bíll frænda drengsins, sem
ók á hann. Er sennilegasta skýr-
ingin talin sú. að hann hafi
hangið aftan í bilnum og orð-
ið undir honum. þegar bíllinn
sneri við n horninu, en frændi
hans varð ekki var við það.
Þetta er þó aðeins getgáta og er
málið í rannsókn.
NýkomiB til íermingargjafa
Sænsk gull og silfur viðhengi með steinum.
Glsesilegt úrval skartgripa.
Gefið gjafir frá Silfurbúðinni.
SILFURBÚÐIN
Laugavegi 13 — Sími 11066.
Tereiyne-buxur —
Gallabuxur
.eðuriakkav Nyionúlpur — Pevsur —
T'°rminearskvrtur.
'Iqrgt H°im Oóðar og ódýrar vörur .
Verzlunin Ó.L.
rraðarkotssundj :t (mótj Þióð’eikhúsinn).