Þjóðviljinn - 25.03.1966, Page 5
Fastœíagar 25. marz 1966 — ÞJÓÐVIEJINN — SíöA 5
Brýn þörf, að mæðraheimili
verði stofnað í Reykjavík
Furðuleg afstaða íhaldsins í borgarstjóm Reykjavíkur til tillögu
Öddu Báru Sigfúsdóttur um þá heimilisstofnun
t framsöguræðu sdimi sagði
flutningsmaður m. a.’
Ég vænti þess að ekki þurfi
að fræða borgarfutttrúa um
þá staðreynd að svo er ástatt
um nokkurn hóp stúlkna, að
þær standa uppi veglausar,
þegar halda skal heim af fæð-
ingarstofnunum; hafa þá engu
heimili að að hverfa.
Erfiðleikar
einstæðra mæðra
Margar þessara stúlkna eru
komungar og á engan hátt
undir það búnar að geta af
eigin rammleik sigrað þá erfið-
leika, sem bíða einstæðrar
móður, jafnvel þótt hún sé svo
lánsöm að geta komið bami
sínu að á dagvöggustofu.
Það er ekki auðvelt líf að
búa ein með ungbarn i leigu-
herbergi, byrja daginn með þvi
að halda t.d. inn á Sunnutorg
áður en tekið er til við vinnu
á allt öðrum stað í bænum.
Eiga síðan sama ferðalagið fyr-
ir höndum eftir átta stunda
vinnudág og taka þá til við
matseld og óhjákvæmilega
þvotta við þær aðstæður sem
leiguiherbergi hafa/ upp á að
bjóða.
Það er því engin furða þótt
unglingurinn gefist stundum
upp — gefist upp við að vera
bami sínu móðir, og gefi það_
eða komi því einhvers staðár
fyrir. Bamið getur stundum
verið svo lánsamt að fá að al-
ast upp hjá góðum fósturfor-
eldruip, en stundum lendir það
á vergangi mitti manna og
stofnana. Kostur stúlkunnar
sjálfrar verður hins vegar
aldrei góður, því að tæpast
mun nokkur móðir skilja svo
við bam sitt fyrir fcritt og allt,
að ekki skilji sá sbilnaður sár
eftir.
Leitað til
borgaryfirvalda
Var»dí þessara stúlbna og
bama þeirra hefiur oft verið
ræddur á fcindram reyvískra
staðan varð að nefndin gerði
ekki tillögu um mæðraheimih,
héldur aðeiijs um það að reka
skyldi vöggustofu í húsinu.
Dagvöggustofa er auðvitað góð
hvar sem hún er og sjálfsögð
í húsi þar sem einstæðum
mæðrum eru ætlaðar íbúðir, en
hún er allt annað fyrirtæki en
það mæðraheimili sem konurn-
Á síðasta fundi borgarstjórnar Reykjavíkur flutti frú Adda
Bára Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins, eftirfar-
andi tillögu:
„Borgarstjómin samþykkir að koma á íót
mæðraheimili, þar sem einstæðar mæður geta
dvalið með börn sín upp að 3ja ára aldri, og fel-
ur barnaheimila- og leikvallanefnd að undirbúa
slíka heimilisstofnun”.
kvenna og hefur Bandalag
kvenna í Reykjavík oftar en
éinu sinni sent borgarstjórn-
inni óskoranir um að koma
upp mæðraheimili fyrir þessar
stúlkur og böm þeirra.
Ekki hafa þó samþykktir og
áskoranir borið tilætlaðan ár-
angur og haustið 1964 þótti
konum í Kvenréttindáfélaginu
tími til kominn að fylgja mál-
inu fastar eftir og fyirir þeirra
forgöngu var skipuð kvenna-
' nefnd til að ræða málið við
borganstjóra.
Borgarstjóri tók konunum á-
kaflega vel og benti á þann
mögul. að koma mæðraheimili
fyrir í háhýsinu við Austur-
brún. Bamaheimila- og leik-
vattanefnd var síðar falið að
athuga málið nánar. Sú athug-
un tók langan tíma og niður-
-<S>
NÝ GCRÐ AFIBM
RAFMA GNSRITVÉL
Ottó A. Michelsen kynnti í
fyrradag fyrir fréttamönnum
svokallaða „kúluvél“, en það
er IBM rafritvél, sem búin er
mörgu kostum fram yfir
eldri gerðir, sem hér hafa
verið á markaðnum.
Sagði Ottó að kúluvélin
væri önnur byltingin í ritvéla-
iðnaðinum síðan hin fyrsta
ritvél var smíðuð um 1868. Hin
fyrri var svonefnd IBM Exe-
cutive, ritvélin sem skammtar
hverjum staf bil eftir breidd
sinni.
Á kúluvélinni eru ekki 44
stafaarmar eins og hingað til
hefur tíðkazt. hcldur kúla með
öllum stöfum og táknum, sem
hreyfist meðfram valsinum.
Tekur vélin því minna rúm en
venjuleg ritvél. þar sem vals
hennar hreyfist ekki til hlið-
ar.
Mikill kostur við þessa vél
er sá að hún er með svo-
nefndri ásláttargeymslu. Ef
slegið er á tvo stafi nær sam-
tímis geymist seinni stafur-
inn þar til sá ■ fyrri er skrif-
aður, en skrifast síðan og hef-
ur vélin reyndar 5 stafa
„minni“.
Kúlan er skiptanleg og má
því með einu handtaki skipta
um leturgerð, en fyrst um
sinn verður þó aðeins fáanleg
ein tegund íslenzks leturs.
Hinsvegar geta menn hér not-
Kúlan, scm kcmur j staft stafa-
arma.
að enskar kúlur af ýmsum
leturgerðum við erlendar
bréfaskriftir.
Kúluvélin er auðveld í með-
ferð og fljótvirk, ritar 15,5
stafi á sekúndu, á móti 10
stöfum á sek. miðað við eldri
gerðir og er hún eftirsótt til
viðtengingar við rafreikna og
ýmiskonar fjarrita.
Vél þcssi kom fyrst á mark-
að erlendis árið 1961, en hef-
ur ekki fengizt til íslands
fyrr, þar sem mjög dýrt er að
búa til kúlu með íslenzkum
stöfum. Undanfarið hefur ver-
ið unnið að þjálfun viðgerðar-
og sölumanna og uppbyggingu
varahlutabirgða, en því er nú
öllu lokið og eru 60 kúluvélar
á leið til landsins. Hver vél
mun kosta kr. 29.025.—.
ar áttu við. HeimiH sem stjóm-
að væri af húsmóður, sem
væri forsjá þeirra — oft kom-.
ungu — stúlkna, sem þurfa á
stuðningi að halda til þess að
geta verið bömum sínum mæð- v
ur. Stúlka, sem dveldi á slíku
heimili mundi að sjálfeögðu
oftast stunda vinnu og greiða
fyrir dvöl sína.
Fyrstu árin eru erfiðust og
því þykir rétt að takmarka
dvalartíma á mæðraheimiH við
fjrrstu þrjú aldursór bamsins,
en auðvitað yrði það eitt af
verkefnum húsmóðurinnar að
hjálpa stúlkunum við að kom-
ast í sómasamlega dvalarstaði
að þeim árum liðnum.
Leysir ekki
vandann
Vöggustofa í fjölbýlishúsi
þar sem e.t.v. koma til með að
búa um 20 einstæðar mæður
leysir ekki þennan vanda.
Ekki er gert ráð fy.rir að leigu-
réttur í húsinu verði bundinn
við fyrstu ár barnsins, og því
má búast við að tiltölulega fá-
ar mæður muni njóta þeirra
mikilsverðu hlunninda að hafa
eigið heimili og vöggustofu
undir sama þaki.
En það er ekki einu sinni
svo vel að þessi tittaga nefnd-
arinnar hafi verið tekin til af-
greiðslu í borgarráði og borgar-
stjórn. Hún liggur enn ein-
hversstaðar í skúffu. Eg er þó
að vona að hún verði afgreidd
iiman tíðar. En hvemig sem fer
um þá tillögu eru máialokin
vonbrigði fyrir þær konur sem
f fyrra haust voru afar bjart-
sýnar um framgang mæðra-
heimilis-málsins eftir vinsam-
legt viðtal við borgarstjóra og
lét formaður Kvenréttindafé-
lags Islands í Ijós mikil von-
brigði vegna þessara málailoka
á aðalfundi Kvenréttindafélags-
ins nú fyrir skömmu. Taldi
hún. að sýnt væri að það
mæðraheimili sem konurnar
hefðu verið að berjast fyrir
yrði ekki stofnað að sinni.
Ég vil þó enn vænta þess.
að borgaryfirvöldin hafi þrátt
fyrir allt vilja á því að af
stofnun mæðraheimilis verði
og vil láta á það reyna meö
flutningi þessarar tillögu.
^urðuleg málalok
Að lokinni ræðu Öddu Báru
Sigfúsdóttur stóð talsmaður í-
haldsins upp, frú Auður Auð-
ims, og flutti tillögu um að
einstæðar mæður fengju íbúð-
ir í fyrrnefndu háhýsi og at-
hugaður yrði jafnframt kosfn-
aður og fyrirkomulag víð dag-
vöggustofu. Þessa tillögu vildi
Auður kalla breytingartillögu
við tUlögu öddu Báru!
Adda Bára Sigfúsdóttir mót-
mælti þcssari málsmeðferð.
Kvaðst hún í sjálfu sér og að
sjálfsögðu vcra samþykk því
sem um væri fjallað í tillögu
Auðar Auðuns. en hún væri
bara um allt annað efni cn sín
tillaga og gæti því ekki talizt
brcytingartillaga við hana.
Undir þctta tóku aðrir ræðu-
mcnn minnihlutaflokkanna, —
Guðmundur Vigfússon, Einar
Ágústsson og Óskar Hallgríms-
son. Var þess þá krafizt, að
forseti felldi útskurð i málinu
sem hann og gerði. Og forset-
inn, Auður Auðuns, úrskurðaði
að tillaga Auðar Auðuns skyldi
teljast breytingartillaga við til-
Iögu öddu Báru Sigfúsdóttur!!
Þannig skaut íhaldið sér hjá
því að taka beina afstöðu til
þeirrar tillögu sem til umræðu
var en sýndi þó um leið „á-
hugann“ sem það hefur fyrir
málinu.
Réttarhöld yfir
flbram Fischer
PRETORIA 23/3 — í dag hóf-
ust í Pretoria, höfuðborg Suð-
ur-Afríku, réttárhöld í máli lög-
mannsins Abrams Fischers, sem
var m.a. verjandi leiðtoga
blökkumanna, Nelsons Mandela,
í hinu svonefnda Rivonia-máli.
Ákæran gegn Fischer er í fimmt-
án liðum og er hann m.a. sak-
aður um samsæri um skemmd-
arverk, þátttöku í félagsskap
kommúnista, svik og skjalaföls-
Vinarkveðja
FluiÆ við útför Oddgeirs Kristjánssonar.
Við leiðarendann vinur hve lágvær ég er
og langsótt í orðanna sjóð —
— mér finnst eins og allt hafi þagnað með þér
og þrotið hvert stef og hljóð.
xxx
Þá lyftist úr dökkvanum daganna glit
sem draumar og rúmhelgin ófu
í veröld sem átti sinn rjósálfalit
og ljóðin og söngvana hófu
til himins um víðernin vængjunum á
sem vorhugans strengja spil —
— og gott var að leika sér geislunum hjá
og gaman að vera til.
xxx
Um lífssjóinn berumst við stað úr stað
en stundum það hverfur úr sefa
að manngildið einungis mælist við það
hve mikið þú átt til að gefa.
Og þar var nú einmitt þitt sérstaka svið —
— að sjá hvað þú hreinn og glaður
öllu því fegursta lagðir lið —
— lífinu sannur maður.
Og þannig þú varðveittir æskunnar eld
og upprunalegasta róminn;
sú karlmennska verður ei keypt eða seld
sem kveður sín lög fyrir blómin.
XXX
Mín þökk er djúp eins og tregans tár.
En tnaustur skal standa sá hlynur
er hlúðir þú að í öll þau ár
sem áttum við saman vinur.
/ísi í Bœ.
i
...»
Fréttaritari Þjóðviljans, Kjeld Österling, skrifar frá Róm
Verkafýðsleiðtogi í
Venezúela myrtur
Alberto Lovera, ejnn af leið-
togum hjnnar lýðræðislegu
byltingarhreyfingar í Venezu-
ela, frumkvöðull í verkalýðs-
málum og ritari kommúnista-
flokks landsins. hefur verið
myrtur. Þann 27. október í
fyrra fannst „óþekkt“ lík í
Karíbahafi. Líikijj var með
þungakeðjuum hálsinn og lík-
skoðun leiddi það í ijós, að
hryggurinn var margbrotinn
Nú hefur þafl komið á daginn,
að l>etta er lík Alberto Lovera,
sem .,hvarf“ i októberbyrjun í
fyrra. Þær upplýsingar eru
komnar frá Rodolfo Plaza Mar-
ques lögreglufo.ringj a í Policia
tecnica judicial" afl því er
frettarftari Unita í Caracas.
höfuðborg Venezuelú skrifar
Tvenns konar
lögregla
Áður hafði frétzt, að Lovera
hefði verið handtekinn af
pólitis’ku lögreglunni DiGePol
í október í námunda vig há-
skólahverfið í Caraeas. Það
eina sem menn vissu um afdrif
hans var það, að fangar nokkr-
ir þóttust þekkja aftur bíljnn.
sem flutti Louera á brott, í
bílskúr pólitísku lögreglunnar.
Þessir fangar verða nú kallað-
ir til vitnis í málinu. Yfirmað-
ur pólitísku iögi-egunar Patino
Gonzales, hefur lýst því yfir
við blaðamcnn, að Lovera hafi
ekki verið handtekinn af sinni
stofnun en hinsvegar hafi iög-
regla sín leitað að Lovera.
sem „þjóðfélagslega mjög
hættulegum manni“ — Unita
bætir því við í grein sínni um
máiið, að lík Lovera hafi fund-
izt á ströndinní í námunda við
þá deild lögreglunnar, sem
fæst við baráttu við skæru-
liða. Blaðið gefur ennfremur
þser upplýsingar, að hin venju-
lega Iögregla og pólitíska lög-
regla í landinu heyri undir tvö
mismunandi ráðuneyti og und-
ir ráðherra. sem eru pólitísk-
ir andstæðingar og að afhjúp-
un þessa glæps gerist eistmftt
á því augnabliki þegar and-
stæðumar innan samsteypu-
stjórnarinnar í Venezuela hafa
skerpzt alvarlega.
Baráttumaður
Aiberto Lo;vera var upphaf-
lega verkamaður við oliu-
vinnslu og hefur verið með-
limur kommúnistaflokks lands-
ins síðan 1947. Árið 1950 teik-
ur hann við forystu i flokks-
deildinni í Lara, og er þar í
dag mjörj öflug róttæk frelsjs-
hreyfing, einmitt þar var harus
kosinn á þing tveim árum síð-
ar. Árið 1957 fluttist hann til
Caracas, og átti þar mikla að-
ild að sköpun samfylkingar
lýðræðissirma. sem varð til
þess að steypa einræðisherran-
um Jimenez en einn af þátt-
takendum uppreisnarinnar. Bet-
aneourt. svejk síðan fylkingu
þessa og Mauf hana Betan-
court stóð öðrum fremur fyrir
Framhald á 7. síðu.
i
í
t