Þjóðviljinn - 25.03.1966, Síða 10
Afli Ólafsvíkur-
báta 1.—15. marz
Ólafsvík, 22/3. — Afli 16 Ólafs-
víkurbáta á tímabilinu 1.—15.
marz var samtals 1794,9 tonn í
184 róðrum en auk þess lögðu
8 aðkomubátar hér upp sam-
tals 114,6 tonn á sama tíma.
Þrír aflahæstu bátamir á
þessu tímabili eru Halldór Jóns-
son með 221,5 tonn í 14 róðr-
um, Stapafell með 215,2 tonn
í 13 róðrum og Sveinbjörn Jak-
obsson með 182,5 tonn í 15 róðr-
um.
Heildarafli Ólafsvíkurbáta
frá áramótum til 15. marz er
2961,2 tonn og er I^alldór Jóns-
son aflahæstur með 371,9 tonn
í 21 róðri. Á sama tímabili í
fyrra var heildarafli Ólafsvík-
urbáta 3481,5 tonn og þá var
Stapafellið hæst með 448,6 tonn
í 26 róðrum. Á tímabilinu 1.—
15. marz í fyrra var afli 14
Ólafsvíkurbáta hins vegar 2038,5
tonn í 147 róðrum. — E. V.
Musica Nova kynnir Svíum
íslenzka kammertónlist
— vel heppnaðir tónleikar í Stokkhólmi
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■'
r
Isian
sækir frarn
Flugvél Landhelgisgæzl-
unnar fór í ísflug í gær.
Kom i ljós að ísinn fyrir
norðurströndinni hefur
færzt verulega nær landi
síðan í fyrri viku, er ís-
inn var kannaður síðast.
Þannig hefur hann færzt
30 mílur nær Homi og er
nú 34 mílur út af þeim stað
og 55 mílum nær Grímsey
— er í 50 sjómílna fjar-
lægð frá eynni. Þó skal
tekið fram, að á 20—30
mílna breiðu belti frá Homi
og austur er ísinn enn mjög
gisinn, en þó eru þar mynd-
arlegar spangir.
Næst landi er ísinn 28
sjómílur norð-norð-vestur
af Rauðunúpum og var þar
á hraðri ferð suðaustur.
Mátti búast við því, að ef
j sama átt héldist, gæti hann
• verið kominn upp undir
■ landsteina í dag, en á norð-
3 urslóðum var norðvestan
: stinningskaldi í gær.
Fjórir íslenzkir tónlistar-®"
menn héldu nýlega tvenna
tónleika í Stokkhólmi á veg-
um Musica Nova og kynntu
þverskurö af íslenzkri
kammertónlist frá Svein-
birni Sveinbjömssyni fram
til dagsins í dag. Voru tón-
leikamir haldnir í sam-
bandi við sýningu fimm
listmálara íslenzkra sem nú
stendur yfir í húsi sænska
alþýðusambandsins í Stokk-
hólmi.
Tónlistarmennirnir voru þeir
Ingvar Jónasson fiðluleikari,
Gunnar Egilsson klarinettleik-
ari, Pétur Þorvaldsson celloleik-
ari og Þorkell Sigurbjömsson
sem spilaði á píanó. Eru þeir
nýkomnir heim og láta mjög
vel yfir förinni og öllum mót-
tökum.
Fyrri tónleikarnir voru haldn-
ir 13. marz í Hásselby Slot, sem
er menntasetur Norðurlanda í
Stokkhólmi. Þar var flutt tón-
' list eftir Sveinbjörn Egilsson,
Jón Þórarinsson, Magnús Bl. Jó-
hannsson, Þorkel Sigurbjörns-
son og Leif Þórarinsson. Á síð-
ari tónleikunum voru flutt verk
eftir Jón Nordal, Jórunni Við-
ar, Þorkel Sigurbjörnsson og
Leif Þórarinsson og fóm þeir
fram 16. marz í ABF-huset, sem
er menningarbygging alþýðu-
sambandsins sænska og í þeirri
byggingu er málverkasýningin
einnig til húsa.
Móttökur voru ágætar og birt-
ust mjög lofsamlegir dómar fyr-
ir verk og flutning í Svenska
Dagbladet og í Dagens Nyheter
eftir Göran Fant, ritstjóra Nu-
tida Musik og Hehnel, einn
þekktasta gagnrýnanda Svía.
Þjóðviljinn hafði í gær tal af
Gunnari Egilssyni og sagðihann
1 Framhald á 3. síðu.
Föstudagur 25. marz 1966 — 31. árgangur — 70. tölublað.
Vöruflutnéngamii’
stöðin hyggst nú
færa út kvíarnar
□ Nú er stund milli stríða hjá vöruflutningabílstjórum
og eru þessir dugnaðarmenn óvanir að sitja auðum
höndum með snjóþyngsli í öllum áttum.
□ Þeir tóku sig þessvegna til og boðuðu blaðamenn á
sinn fund í gærdag og skýrðu nokkuð frá framtíðará-
ætlunum Vöruflutningamiðstöðvarinnar, en það fyrir-
tæki eiga sextán hluthafar, — allir búsettir úti á lands-
byggðinni og eru höfuðstöðvar fyrirtækisins í Borgar-
túni hér í borg.
Myndir Ósvaldar endursýndar
★ Þrjár kvikmyndir Ósvalds Knudsens, sem sýndar voru hér á
síðastliðnum vetri, verða vegna beiðni margra endursýndar í
Gamla bíó kl. 7 á morgun, laugardag, og sunnudag. Myndirnar
eru Surtur fer sunnan, Sveitin milli sanda og Svipmyndir.
★ Eins og getið hefur verið í fréttum, hefur Surtseyjarmynd
Ósvalds fengið verðlaun og viðurkenningu erlendis á undan-
förnum mánuðum, m.a. gullverðlaun á kvikmyndahátíðinni í
Trento á Ítalíu í október sl. Mynd sú, sem nú verður sýnd í
Gamla bíó, er af sömu gerð og verðlaunamyndin, nokkru
styttri en Surtseyjarmyndin, sem sýnd var hér í fyrra.
Þrír vihskiptabankanna Eeggja til
ai athuga veritrygginguna nánar
Þeir hafa verið að senda okk-
ur tóninn hjá Skipaútgerðinni
undanfarin ár í blöðum og út-
varpi og sökum annríkis höfum
við ekki mátt vera að því að
sinna þessum ádeilum, sagði
einn þeirra, en rétt er að sjón-
armið okkar komi fram í blöð-
um líka.
Fyrirtæki okkar er fimm ára
gamalt og flutti 30 þúsund tonn
af vörum vítt og breitt um land-
ið á síðastliðnu ári og hafa
bílaflutningar aukizt mikið síð-
ustu árin og annast stöðin af-
greiðslu fyrir 40 bíla og flytja
þeir vörur til 45 kaupstaða og
kauptúna, — allt frá Akranesi
vestur, norður og austur til
Hornafiarðar.
Bækistöðvar okkar eru þegar
orðnar allt of litlar eða vöru-
skemmur okkar að Borgartúni
21 og erum við nú að færa út
kvíarnar.
Við höfum fengið úthlutað
lóð upp á einn hektara í Borg-
artúni og hafa verið teiknaðar
nýjar stöðvarbyggingar ogvöru-
geymslur á þessu svæði og þá
hafðar til hliðsjónar vöruflutn-
ingastöðvar í Gautaborg og
Malmö í Svíþjóð, — fóru þang-
að síðastliðið haust Ormar Þór
Guðmundsson, arkitekt; Þor-
steinn Kristjánsson, stjórnarfor-
maður og ísleifur Runólfsson,
framkvæmdastjóri til þess að
kynna sér tilhögun, — þessar
vöruflutningamiðstöðvar þykja
mjög til fyrirmyndar og sækja
þangað menn frá öllum heims-
álfum til þess að kynna sér
stöðvarnar.
Hvarvetna vaxa vöruflutning-
ar á bílum og hljóp sérstaklega
Frumvarpið um verö-
tryggingu fjárskuldinga
kom til 2. umræðu í neðri
deild í gær að aflokinni af-
greiðslu fjárhagsnefndar,
sem haft hefur málið til
meðferðar frá því á haust-
dögum. Náði nefndin ekki
samkomulagi um málið og
skiluöu fulltrúar stjómar-
andstöðuflokkanna sér-
stöku áliti, þar sem lagt er
Hnaiurínn verðurað
skipuleggjast betur
Frumvarpið um breytingar á
Iögunum um Iðnlánasjóð kom
til umræðu í neðri deild í gær,
en það felur m.a. í sér hækkun
á framlagi til sjóðsins í 10 milj.
kr. Mælti iðnaðarnefnd svo til
einróma með samþykkt frum-
varpsins.
Einar Olgeirsson gerði að um-
ræðuefni þær greinar frum-
varpsins, sem sérstaklega fjalla
um svokallað hagræðingarfé til
iðnaðarins. Hann minnti á, að
á undanfömum árum hefur ríkt
megn óreiða. Mörg og smá fyrir-
tæki með fáum vinnandi aðil-
um hefði verið sett upp og vegna
smæðar fyrirtækjanna hefðu þau
ekki getað staðizt samkeppni við
erlendan innflutning, sem væri
framleiddur í stórum stíl í stór-
iðnfyrirtækjum. Og barkar er-
lendis hefðu beinlínis tíregið úr
lánum til iðnfyrirtækja, sem okki
gætu smæðar sinnar vegna fram-
leitt vöru við hagstæðu verði.
Til þess að íslenzkur iðnaður
Framhald á 3. síðu.
til að frumvarpið verði af-
greitt með svofelldri dag-
skrá: „Þar sem deildin tel-
ur nauðsynlegt að petta
mikilsverða mál fái rceki-
legri athugun en þegQ-r hef-
ur farið fram og að lög-
gjöf um verðtryggingu, ef
s&tt ferður feli í sér skýr-
ari ákvœði um reglur pær,
sem farið skuli eftir við
framkvœmd laganna, og í
trausti pess, að ríkisstjórn-
in skipi fimmmannanefnd,
fjóra eftir tilnefningu ping-
flokkanna og einn án til-
nefningar, til að athuga
málið og gera iillögur um
pað fyrir ræsta ping, tekur
deildin fyrir nœsta mál á
dagskrá.“
Frumvarp þetta hafði
verið sent til umsagnar ým-
issa banka og sparisjóða.
Vora umsa,gnir barikanna
alls ekki jákvæðar í heild.
vöxtur í þessa flutningastarf-
semi eftir seinni heimsstyrjöld-
ina.
■ÓEtlunin er að hinar nýju
vöruskemmur og kj allari verði
komið í gagnið næsta haust og
getum við þá bætt við okkur
flutningum hér sunnanlands
með þessu nýja athafnasvæði.
Annars er ætlunin að byggja
stöðina í áföngum. Eitt stendur
okkur mjög fyrir þrifum og það
er útvegun á lánsfé og göngum
við hvarvetna bónleiðir til búð-
ar. Við höfum aldrei farið fram
á ríkisstyrk og ætlum ekki að
gera það, — ríkið vill kannski
heldur taka á sig rekstur á
svona stöðvum og kasta í hana
20 miljónum eins og Umferðar-
miðstöðina og byggja hana á
tíu árum. Okkur finnst ein-
staklingsframtakið heft með
Lánsfjárstefnu ríkisstjórnarinn-
ar.
Þá erum við ákaflega kvíðnir
út af vegunum í framtiðinni og
vegamálastjóri skellir skolla-
eyrum við tillögum okkar og
við neitum ekki að borga
þungaskattinn, en ríkisvaldið
má bara ekki ráðstafa honum í
annað en vegakerfið og fáum
við þá peninga aftur í bættum
vegum, — hins vegar til dæm-
is viljum við ekki styrkja tog-
araútgerð í landinu eins og
hluti af skattinum hefur verið
vikið til á síðustu tímum.
Stjórn Vöruflutningamið-
stöðvarinnar skipa nú: Þorsteinn
Kristjánsson á Egilsstöðum, for-
maður; Birgir Runólfsson, Siglu-
firði; Kristján Hansen á Sauð-
árkróki og framkvæmdastjóri
er ísleifur Runólfsson.
Seðlabankinn mælti að vísu
með frumvarpinu, Iðnaðar-
bankinn leggur til að frum-
varpið verði samþykkt en
að niður verði felld heimild
til að að verðtryggja inni-
stæður til styttri tíma, en
frumvarpið almennt gerir
ráð fyrir eða þriggja ára,
Verzlunarbankinn lagði til
að frumv. yrði samþykkt.
Landsbankinn beinir pví til
alpingis að málið í heild
verði athugað milli pinga
og nefnd manna með sér-
pekkingu á sviði bankamála
fái frumvarpið til umsagn-
zr og athugunar og Útvegs-
bankinn er á sömu skoðun.
Hins vegar vildi Samvinnu-
bankinn ékki látc í Ijós sér-
stakt álit á frumvarpinu
par sem bankastjóri hans,
Einar Ágústsson, á sæti í
fjárhagsnefnd alpingis, en
Framhald á 3. síðu.
Forsetinn vitjar
merkra sögustaða
Tel Aviv 24/3 — Klukkan hálf-
sex í morgun eftir íslenzkum
tima lagði forsetinn af stað í
ferðalag af flugvellinum í Tela-
viv með íslenzkum og hérlend-
um fylgdarmönnum í tveimur
þyrlum 50 mínútna flúg til fjalls-
ins Masada í Júdeueyðimörkinni
skammt frá Dauðahafinu.
Eftir 15 mínútna flug skeði
það rétt hjá hafnarborginni
Ashdod um 40 kílómetra suður
af Telaviv að við í hinni þyrl-
unni sáum forsetaþyrluna snögg-
lega lækka fl-ugið og lenda á
kornakri og þóttumst vita að
eitthvað væri að. Slokknað hafði
ljós í raælaborði sem gat gefið
til kynna að um vélarbilun væri
að ræða, en í ljós kom síðar,
að ljósaperan hafði aðeins brunn-
ið. í forsetaþyrlunni voru meðal
annars Emil Jónsson, Andersen
ambassador og forsetaritari. Eng-
an sakaði, enda var aðeins lent
af. öryggisástæðum. Engu að síð-
ur þótti óráðlegt að halda áfram
ferðinni í forsetaþyrlunni og
kom hann með fylgdarliði sínu
yfir í hina þyrluna, og gekk
ferðin snurðulaust eftir það. Lent
var uppi á klettavíginu eða
hamrinum Masada, sem er 350
metra hátt standberg. Á þessum
hamri í eyðimörkinni reisti Hero-
des konungur sem ríkti yfir Gyð-
ingalandi við fæðingu ICrists ó-
trúlega mikla og íburðarmikla
hamrahöll og hlóð veggina úr
grjóti, hann var hræddur um líf
sitt, og þetta var háns athvarf
ef hætta var á ferðum. Þegar
Rómverjar lögðu Jerúsalem í
rústir 70 eftir Krist, fylgdi stór-
hópur Zellota frá Jerúsalem og
tókst að lfkindum með brögð-
um að ná Masada og vörðust
Framhald á 3. síðu.