Þjóðviljinn - 30.03.1966, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 30. marz 1966.
Alúminhringurinn ánægður
Framhald af 1. síðu.
hringurirm nú að hefja starf-
rækslu í mjög stórri námu í
Ástralíu. Úr báxíti er unnið al-
úmínoxíg í stórum fyrirtækjum í
Feneyjum, Marseilles, nálsegt
Köln og í Gíneu.
Tíunda bræðslan hér
Hringurinn á nú níu alúmin-
bræðslur. tvaer í Italíu, tvær í
Sviss, ejna í Austurríkj eina í
V-Þýzkalandi, eina í Noregi,
eina í Hollandi, eina í Banda-
ríkjunum. Hin fyrirhugaða
bræðsla hér yrði því sú tíunda.
Verksmiðjur til að vinna úr
hráalúmíni eru í flestum löndum
Evrópu, þrjár í Bandaríkjunum,
I ein í Brasilíu, ein í Nígeríu og
ein í Sierra Leone.
Orkan úrslitaatriði
Hráefni það sem hér verður
notað er alúmínoxið. en tvö
tonn af því þarf til að gera eitt
tonn af alúmíni. Er áformað að
það verði í fyrstu flutt hingað
frá Gíneu, en síðar verður það
trúlega flutt alla leið frá Ástral-
íu með stórum flutningaskipum.
önnur hráefni sem flytja þarf
hingað munu koma frá Hollandi,
Noregi, Þýzkalandi og Italíu. ís-
land legði hins vegar til orkuna
sem væri úrslitaatriði í fram-
leiðslunni og mannafla, sem yrði
200 manns á fyrsta stigi en um
450 manns þegar bræðslan væri
fullgerð. Yrði lögð áherzla á að
Islendingar ræktu helzt öll störf
í bræðslunni.
Spumingar og svör
Meyer aðalforstjóri var spurð-
ur að því hvort hið erlenda fyr-
irtæki hygðist gerast aðili að ís-
lenzkum atvinnurekendasamtök-
um. Hann kvaðst engu geta um
það svarað, það atriði væri í at-
hugun. Honum var bent á að
Alþýðuflokkurinn hefði sett það
að skilyrði fyrir stuðningi við
málið að auðfélagið héldi sig
utan atvinnurekendasamtakanna.
en hann kvaðst samt ekkert geta
vm það mál sagt.
Hann staðfesti að hringurinn
fengi hvergi í hcimi jafnódýra
raforku og hér; raforkan í Nor-
egi væri t.d. næstum því þriðj-
ungi dýrari. Eini staðurinn þar
Rr-'TrS—i
í skýrslu ríkisstjórnarinnar segir að vinnan í
„álbræðsltmni" sé óþrifaleg.
Bjarni: Hvað er þetta? Datztu, Jói minn?
Jóhann: Mér varð hált í álnum. Blessuðum álnum fylgja svo mikil óþrif.
Stefnt
að markinu
Þegar Alþýðuflokkurinn hélt
hátíðlegt hálfrar aldar afmæli
sitt vakti það athygli og nokkra
furðu hversu mjög leiðtogam-
ir flíkuðu minniméttarkennd
sinni. Meginuppistaðan í ræð-
um forustumanna, samþykkt
flokksstjórnarfundar, forustu-
greinum Alþýðublaðsins og
svokölluðu afmælisriti var á-
rás á vonda menn sem klofið
hefðu Alþýðuflokkinn æ ofan
í æ. Ekki var gerð nein til-
raun til að skilgreina þau
mistök í stefnu og starfsaðferð-
um sem valdið hefðu þessari
síendurteknu sundrung; þar
var aðeins að verki fúl-
mennska annarra. En síðan
var bætt við staðhæfingum
um það að nú væri þessu
klofningsskeiði Alþýðuflokks-
ins lokið, nú væri hann sam-
felld og órjúfanleg heild, ein-
ingartáknið mikla.
Ekki eru liðnir ýkjamargir
dagar síðan öll þessi orð voru
sögð, og samt hefur Alþýðu-
flokknum tekizt að klofna
einusinni enn. Um síðustu
helgi var stofnað ,félag ó-
háðra kjósenda‘‘ í Hafnarfirði
í þeim tilgangi að bjóða fram
við væntanlegar bæjarstjórn-
arkosningar. Forustumaður
þessara samtaka er Árni
Gunnlaugsson hæstaréttarlög-
maður, sem var um skeið
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði og talinn einn á-
litlegasti forustumaður hans.
Ánnar oddviti þessara sam-
taka er Jón * Finnsson, kunn-
ur Alþýðuflokksmaður og
þannig mætti lengi telja. Er
einsætt að frumkvæði þessara
manna muni enn sundra A.l-
þýðuflokknum í Hafnarfirði og
var hlutur hans þó ekki til
mikilla skipta, kominn niður
í þrjá fulltrúa í þeim bæ,
sem forðum var stolt og prýði
flokksins. Þegar formaður
flokksins kemur heim úr
lystireisu sinni til Israels
mun þannig blasa við honum
ný forógn eyðileggingarinnar
á sjálfu höfuðbólinu. En með
sama áframhaldi líður raunar
senn að því að hann geti per-
sónulðga með fullum rétti lýst
yfir því að Alþýðuflokkurinn
hafi néð því marki að klofna
oVki framar. Sterkur ersásem
stendur einn.
Ó-
rofa samhen^-'
Forseti tslands og utanrík-
isráðherra ferðast um þessar
mundir um Irael og eru
heiðursgestir til skiptis. Er þar
mikið um dýrðir, svo sem
vonlegt er, og fá Islendingar
nokkuð um það að heyra í
daglegum fréttaskeytum frá
séra Emil Björnssyni, dag-
skrárstjóra hins væntanlega
sjónvarps. Kryddar hann jafn-
an skeyti sín með útdrætti úr
biblíunni, svo sem vel samir
klerklærðum manni. Samt
hefur sumt í þeim fræðum
komið mönnum næsta spánskt
fyrir sjónir, svo sem þegar
séra Emil greindi frá því á
dögunum að forsetinn hefði
siglt á Genesaretvatni þar
sem Jesús „var sjálfur skírð-
ur."
Enginn skyldi þó hneykslast
á því að séra Emil sé ekki
biblíufastur, þótt hann taki
ekki mark á þeirri frásögn
guðspjallanna að Jesús hafi
verið skírður í ánni Jórdan,
heldur ættu menn að gleðjast
yfir því, hvað hann er þjóð-
legur. Þetta atriði hefursem-
sé lengi verið deilumál á Is-
landi, eins og marka má af
alkunnri frásögn f þjóðsögum
Jóns Ámasonar: „Einu sinni
áttu karlar þrír tal með sér
um ýmsa hluti; þar kom og,
að þeir fóru að tala um hvaða
matur þeim félli vel. Segir
þá einn þeirra: „Góðermjólk-
in, guð var í henni skírður"
„Ósatt er það,‘‘ segir annar
„í flotinu var hann skírður.
blessaður“. „Ekki er þaðheld-
ur sannara," segir hinn þriðji.
„hann var skírður í ánni
Fjórtán"." Er það til marks
um órofa samhenigi íslenzkrar
menningar að þessi fomlega
frásögn skuli endurtaka sig á
sjónvarpsöld. — Austri.
sem um væri að ræða jafn ó-1
dýra raforku og hér væri á j
vesturströnd Bandaríkjanna, en !
þar hefði hringurinn engin fyr-
irtæki.
Hann var spurður hvemig
hringurinn liti á það ef alþingi
breytti afstöðu sinni tii samn-
inganna eftir að þeir hefðu ver-
ið samþykktir í upphafi og kvað
hann slíkt verða talið samnings-
rof af Islands hálfu og kært með
skaðabótakröfum.
Meyer aðalforstjóra var bent
á að allar líkur vænu á að meiri-
hluti Islendinga væri andvígur
þessari samningsgerð og spurð-
ur hvort auðhringurinn hefði
nokkuð við það að athuga að
málið yrði útkljáð með þjóðar-
atkvæðj: Hann kvað það vera mál
Islendinga einna. Er hann var
spurður hvort auðhringurinn
teldi það ekki öryggi fyrir sig að
fá slíka atkvæðagreiðslu í stað
þess að knýja samningana upp
á þjóðina nauðuga, kvaðst hann
ekki hafa velt því máli fyrir
sér.
Aðalforstjórinn staðfesti að í
Noregi yrði hringurinn að sæta
norskum lögum í einu og öllu og
hefði engin fríðindi að því er
varðar tolla og skatta og dóms-
vald. Kvað hann Island eina
landið sem hringurinn hefði sam
skipti við, bar sem innlent dóms
vald væri ekki látið úrskurða á-
greiningsatriði heldur alþjóðlegut
gerðardómur. Er hann var spurð-
ur hvers vegna auðhringurinn
treysti ekki íslenzkum dómstól-
um kvað hann þá enga rcynslu
hafa af því að útkljá slík mál
þar sem hér hefði ekki verið
stóriðja áður.
• Aðalforstjórinn staðfesti einn-
ig að ef ágreiningur yrði um
framtal félagsins í sambandi við
skattamál yrði slíkum ágreiningi
vísað til alþjóðlegra endurskoð-
unarfyrirtækja en ekki íslenzkra
aðila! Einnig kvað hann ætlun-
ina að enginn hreinsunarútbún-
aður yrði hér, þótt slíkur útbún-
aður væri talinn nauðsynlegur í
öðrum Evrópulöndum.
Er hann var spurður um
möguleika á íslenzkri fram-
leiðslu úr alúmlni, benti hann á
að hægt væri að klæða hús með
bárualúmíni i stað bárujárns,
og setti þá hroll að viðstöddum
Islendingum. Einnig kvað hann
möguleika á að gera fiskumbúðir,
frystipönnur og niðursuðudósir.
Mapús H. Step-
hensen formaður
Aðalfundur Málarafélags R-
víkur var haldinn sunnudag-
inn 20. marz s.l. Fráfarandi
formaður Sigursveinn H. Jó-
hannesson og varaformaðurinn
Jón D. Jónsson báðust undan
endurkosningu. I stjóm voru
kosnir:
Magnús H. Stephensen, form.,
Finnbogi Haukur Sigurjónsson,
varaformaður, Albert Rúnar
Ágústsson, ritari, Kristján
Magnússon vararitari, og Sím-
on Konráðsson gjaldkeri. I
varastjóm: Kristján Guðlaugs-
son og Sigurður H. Þorsteins-
son.
Bárður Dan.
Framhald af 1. síðu.
aðarmanna, var hinsvegar sam-
þykkt með 107 atkvæðum gegn
82 að færa Björgvin upp um ejtt
sæti, þ.e. skipa honum í sæti
Bárðar. Múnu fylgismenn Björg-
vins Guðmundssonar, hann sjálf-
ur og ýmis forystumenn ungkrata
hafa staðið fyrir mikilli smölun
á fundinn með þeim árangri sem
að framan getur.
Þjóðviljanum er kunnugt um
að Bárður Daníelsson tók boði
krata um þriðja sætið á fram-
boðslista þeirra vegna þess m.a.
að forystumenn flokksins full-
vissuðu hann um að framboð
hans nyti fyllsta stuðnings meðal
flokksmanna — og í fulltrúaráð-
inu mun það hafa verið sam-
þykkt með miklum atkvæðamun.
Angfíu
Skemmtjfundu r verður
haldinn í Srgtúni föstu-
daginn 1. apríl kl. 8.45,
Fjölmennið og takjð með
ykfcur gesti.
STJÓRNIN.
■ ■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■ar'•■■■■■■■■■■■■■■■«■■«■>;■■■■■■■■■■■■■■■
S'KIPAUTGtRO RIKISINS
M.S. HEKLA
fer austur um land tii Akur-
eyrar 2. apríl.
Vörumóttaka á fimmtudag til
Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar, Norðfjarðar, Seyð
isfjaðar Raufarhafnar og Húsa-
vífcur.
Farseðlar seldir á föstudag.
Brjóstuhuldurur
Vinsælu brjóstahaldararnir með teygju-
hlírunum fást nú aftur.
Stærðir: 32, 34, 36 og 38 í A og B.
Litur: HVÍTT.
Verð kr. 98
. inshftpfr
Miklatorgi — Lækjargötu 4.
■ ■ ■ ' • ......................... ^
Höfum hafið standard framleiðslu á
fata og forstofuskápum
Fast verð miðað við uppsett og frágengið.
Gefið upp lengd, hæð og annað, sem þér
óskið, og við gefum upp verð og afgreiðslu-
tíma. — Spónn eftir vali.
Smíðastofan VALVIÐUR s.f.
Sími 30260. — Dugguvogi 15.
Hufnarfjörður
Okkur vantar verkamenn í Fiskiðjuverið. — Hafið
samband við verkstjórann í símum 50107 og eftir
vinnu í 50678.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar.
Útför bróður míns
ÁRNA JÓNSSONAR
fer fr-am frá Hafnarfjarðarkinkju fimmtudaginn 31.
marz kl. 3 eftir hádegi.
Þeir sem vilja minnast hins látna, láti líknarstofnanir
njóta þess.
Egill Jónsson.