Þjóðviljinn - 30.03.1966, Qupperneq 10
I~
Kvikmynd um Sigurð Fáfnisbana
tekin að nokkru leyti á Islandi
I
!
I
Tveir fulltrúar eins stærsta
kvikmyndafél. Evrópu, CCC
Fi'lmkunst í V-Berlin, kvik-
myndatökustjórinn Korytow-
ski og leikstjórinn Dr.
Reinl. eru nýkomnir hingað
til lands ti'l undirbúnings
kvikmyndatöku hér í sumar.
Á myndin að fjalla um Sig-
urð Fáfnisbana og verður
stór, löng og dýr kvikmynd
í tveimur hlutum og er í ráði
að taka þriðjung fyrri hlut-
ans hér á landi, sögðu þeir
á fundi með fréttamönnum
í gær. Hafa þeir þegar ráðið
sér íslenzka aðstoðarmenn,
þá Gísla Alfreðsson aðstoðar-
leikstjóra og Þorgeir Þor-
geirsson aðstoðarkvikmynda-
mann.
Aðrir hlutar myndarinnar
verða teknar utan- og innan-
húss í Júgóslavíu og í kvik-
myndaveri féiagsins í Berlín.
Var fyrst í ráði að taka það,
sem gerist á íslandi í ír-
landi, en umboðsmaður Flug-
félags íslands í Frankfurt,
Dieter Wendler, benti leik-
stjóranum á að Island sjálft
væri miklu heppilegra til þess
arna og kvaðst Dr. Reinl ekki
sjá eftir að hafa farið að
ráðum hans eftir að hann
hefur svipazt um hér á landi.
Kaflinn sem hér verður
tekinn, verður gerður í ágúst
í sumar og áætlað að kvik-
myndatakan hér taki þrjár
vikur. Koma þá hingað alls
um 30—35 manns frá kvik-
myndafélaginu auk þess sem
væntanlegir eru með þeim
fréttamenn frá blöðum og
sjónvarpi. Alls er áætlað að
taka beggja hluta myndarinn-
ar taki fimm mánuði og er
áætlaður kostnaður átta milj-
ónir þýzkra markg.
Leikstjórinn Dr. Reinl hef-
ur sjálfur skrifað kvikmynda-
handritið og sagðist miða
myndina við smekk ungs
fólks, einnig kvaðst hann
verða að gera hana með til-
liti til samkeppninnar við
sjónvarpið og sýna i henni
það sem ekki er hægt að gera
í sjónvarpi, svo sem stórkost-
legt landslag í litum, ævin-
týralegar fjöldasenur, hesta-
hópa o. s. frv., enda verður
myndin sýnd á breiðtjaldi. Og
ætti dr. Reinl að vita um
hvað hann talar, því eftir þvi
sem við höfum komizt næst
eru myndir hans þær einu,
sem grætt hefur verið á í
þýzkri kvikmyndagerð síðari
ára, en hann hefur gert hinar
miklu ævintýramyndir, sem
sniðnar eru eftir indíánasög-
um Karls May og hlotið hafa
metaðsókn í Þýzíkalandi. Var
ejn þessara mynda sýnd hérí
vetur við góða aðsókn: Fjár-
sjóðurinn í Silfurhafi.
Kvikmyndin um Sigurð Fáfn-
isbana verður sniðin eftir
Niflungaljóðinu þýzka, ensem
kunnugt er, er norræn mynd
þeirrar sögu sem þar er sögð,
varðveitt í Eddukvæðum,
Völsungasögu og Snorra
Eddu. Sagan er upprunnin
í Rínarlöndum og voru þeir
menn sem hún fjallar um
uppi á 4. og 5. öld.
Munu flestir íslendingar
kannast við þessa sögu, sem
í Eddu hefst með því að Loki
kúgar í fjörlausn allt gull
af dvergnum Andvara og að
lokum gullhring einn sem
dvergurinn ætlar að halda eft-
ir. Leggur þá Andvari svo á,
að sá haugur skyldi verða
hverjum höfuðbani, sem ætti.
Loki og Óðinn guldu dverg-
inum Hreiðmari síðan gullið
og hringinn að sonar gjöldum
og héldust álögin við bæði
hring og gull. Drápu synir
Hreiðmars, Fáfnir og Reginn,
föður sinn, og brá Fáfnir sér
síðan í ormslíki og lagðist á
gullið á Gnitaheiði, en Reginn
réðist sem smiður til Hjálp-
reks konungs á Þjóði. Þar
kemur Sigurður inn í söguna,
en hann var fóstursonur
Hjálpreks.
Segir í Eddu, að Sigurður
var ágætastur allra herkon-
unga að ætt og afli og hug.
Reginn gerir honum sverðið
Gram. segir honum, hvar
Fáfnir liggur á gullinu og
eggjar hann að sækja það.
Sigurði tekst að drepa Fáfni
og síðan Regin smið, sem
hugði á svik. Síðar kvænist
Sigurður Guðrúnu Gjúkadótt-
ur og gengur í fóstbræðra-
lag við bræður hennar, Gunn-
ar og Högna. Sigurður fer
með Gunnari að biðja Bryn-
hildar Buðladóttur, systur
Atla konungs, en hún hafði
heitið að eiga aðeins þann er
þyrði að ríða vafurlogann er
var um sal hennar. Skipta
þeir þá litum Sigurður og
Gunnar og leysir Sigurður
þrautina fyrir Gunnar, geng-
ur að brúðkaupi með Bryn-
hildi og gefur henni næsta
Uwe Beyer, OL-silfurmethafi
og Evrópumeistari j kringlu
Ieikur Sigurð Fáfnisbana.
Dauöi Sigurðar í mynd Fritz
Lang. Poul Ricther fór með
hlutverkíð.
morgun gullbauginn Andvara-
naut. Síðan skipta þeir fóst-
bræður aftur ham og búa
hvor með sinni konu.
En Brynhildur kemst 6íðar
að svikunum, fær þá Gjúka-
syni til að vega Sigurð og
leggur sjálfa sig sverði. en
Gunnar og Högni hljóta gull-
ið og Andvaranaut. En álög-
in haldast við hringinn og
lét Atli konungur Buðlason
drepa þá bræður, kvænist
sjálfur Guðninu systur þeirra,
en hún réði honum aftur
bana.
Þýzka sögnin er nokkuð
frábrugðin þeirri íslenzku, en
aðalpersónur og atburðarás þó
hin sama. f stað vafurlogans
á Gunnar að berjast við
Brynhildi og bregður Sigurð-
ur þá yfir sig huliðshjúp og
hjálpar honum þannig. Meiri
áherzla er lögð á víg drek-
ans í Eddu, en á bardagann
við dvergana sem áttu gullið
í Niflungaljóði. f Eddu heitir
kona Sigurðar Guðrún, en
Kriemhilde eða Grímhildur í
Niflungaljóði. í Eddu drepur
Atli þá Gjúkasyni og Guðrún
er tiltölulega saklaus en í
Niflungaljóði er Atla lýst
sem mildum og réttsýnum
kunungi, en Kriemhilde veld-
ur ein öllu illu til að koma
fram hefndum.
Kvikmyndin sem Dr. Reinl
stjómar nú er ekki fyrsta
myndin sem gerð er um Sig-
urð Fáfnisbana í Þýzkalandi.
Leikstjórinn frægi. Fritz
Lang, gerði þögla kviKmynd
um sama efni árið 1924 með
Poul Richter í aðalhlutverki.
Var sú kvikmynd mikill lof-
söngur til hinna fomu hetja
og Germana, enda í uppá-
haldi hjá Hitler, þó að Lang
væri Gyðingur og yfirgæfi
að lokum Þýzkaland vegna
gyðingaofsókna nazista.
Dr. Reinl tók fram, að hans
mynd yrði í allt öðram stíl en
gamla myndin, léttari í vöf-
um og ekki jafn viðhafnar-
mikil og full íburðar. Fræg-
ur íþróttamaður. Evrópu-
meistari og OL-silfurmethafi
í kringlukasti, Uwe Beyer, fer
með hlutverk Sigurðar Fáfn-
isbana, Brynhildi leikur Kar-
in Dor og Maria Marlow
Grímhildi. Af öðram þekkt-
um leikurum má nefna
Bandaríkjamanninn Jack Pal-
ance sem leifcur Atla Húna-
konung.
Ekki er enn fullákveðið,
hvar kaflarnir verða teknir
hér á landi, en til mála
koma Ví'k i Mýrdal, Dyrtióla-
ey, Þingvellir og Mývatn.
r æ.
I
Miðvikudagur 30. marz 1966 — 31. árgangur — 74. tölublað.
Heimsékn forsetnns
í ísrnel lauk í gœr
B Opinberri heimsókn for-
seta íslands í ísrael lauk í
gærkvöld og ætlaði hann að
halda frá ísrael í morgun
ásamt fylgdarliði sínu.
1 gærmorgun skoðaði Ásgeir
Ásgeirsson Jerúsalemborg, Zíon-
fjall, Abuhliðið, heimsótti Há-
skólann, lagði niður blómsveig
og gróðursetti tré á Herzl fjalli
við hátíðlega athöfn.
Um hádegi skirði hann götu
i nýju hverfi í Jerúsalem og ber
hún nú nafnið Islandsgata. Var
fjölmenni viðstatt þennan at-
burð. Sat síðan íslenzki hópurinn
hádegisverðarboð borgarstjóra
Jerúsalem.
Síðdegis skoðaði forsetinn
ísraelssafnið og hafði síðan
gestamóttöku í Hóteli Davíðs
konungs, þar sem hann og fylgd-
arlið hans hafa búið meðan á
dvölinni i Jerúsalem stóð.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Hægri umferðin
til efri deildar
Frumvarpið um hægri
hantlar akstur var sam-
þykkt í neðri deild í gær
að viðhöfðu nafnakalli með
26 atkvæðum gegn 9, en 5
greiddu ekki atkvæði. Þá
var samþykkt að vísa mál-
inu til 3. umræðu með 25
atkvæðum gegn 5.
,■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■
Vonnfirzkt smjör éti hjá
sakamálaembættum?
Barnaverndarfrum varpið
til meðferðar á þingi á ný
FrumvarpiS um vernd barna
og ungmenna kom til 1. umræðu
í neðrj deild í gær. en það var
lagt fram á alþingi i fyrradag.
Sem kunnugt er kom þetta mál
fyrir alþingi í fyrra en varð þá
eigi útrætt og strandaði þar á
ágreiningi um ákvæði 41. gr. um
vinnuvernd barna og ungmenna
þar sem menntamálanefnd efri
deildar taldi þau óframkvæman-
leg.
Eftir að þingi lauk i fyrra-
vor fól menntamálaráðherra
fimm alþingismönnum Auði Auð-
uns, Benedikt Gröndal, Einari
Olgeirssyni, Ölafi Björnssyni og
Sigurvin Eianrssyni að freista
þess að samræma skoðanir al-
þingismanna á ágreiningsatriðum.
Nefnd þessi sendi menntamála-
ráðuneytinu niðurstöður sínar
þann 7. desember sl.
Frumvarp það, sem nú hefur
verið lagt fyrir alþingi, er með
breytingum nefndarinnar sem
starfaði í sumar, en 41. gr. er
þó óbreytt frá því sem var í
fyrra í upphaflega stjórnarfrum-
varpinu. Er því ágreiningur enn
fyrir hendi um þessa grein, en
menntamálaráðherra lagði á það
áherzlu í ræðu sinni í gær, að
frumvarpið yrði að ná fram að
ganga, þrátt fyrir þennan á-
greining þar sem ýmis önnur á-
kvæði framvarpsins þyrftu nauð-
synlega að öðlast lagagildi.
Alþýðubandalagið í Hafn-
arfirði heldur almennan
fclagsfund í Góðtcmplara-
húsinu mánudaginn 4. apríl
klukkan 20.36.
Fundarefni:
1. Kristján Andrésson,
bæjarfulltrúi ræðir
bæjarmál,
2. Undirbúningur
bæjarstjórnar-
kosninganna.
Félagsmenn fjölmennið!
Stjómin.
íslenzka landsliðið
hefur verið valið
N.k. Iaugardag fer fram lands-
Ieikur í handknattlejk milli ís-
lendinga og Dana og hefst lejk-
urinn kl. 5 í íþróttahúsinu í
Laugte.rdal, Dönsku lardsljð-
mennirnir. fararstiórn þeirra og
4 danskir fréttamenn koma
hingað á föstudagskvöldið og
halda heim á sunnudagsmorg-
un.
Landsliðsnefnd H.S.f. hefur nú
valig menn í íslenzka lands-
liðið að sögn Ásbjörns Sigur-
jónssonar, og fara nöfn þeirra
hér á eftir: Gunn,lau,gur Hjálm-
arsson, Fram (fyrirliði) Hjalti
Einarsson, FH. Þorsteinn Björns-
son Fram, Auðunn Óskarsson.
FH, Geir Hallsteinsson, FH. Her
mann Gunnarsson Val, Hörður
Kristinsson Áxmanni, Ingólfur
Óskarsson. Fram, Karl Jóhanns-
son, KR Sigurður Einarsson.
Fram og Stefán Sandholt. Val.
Eins og fyrr segir hafa dönsku
landsliðsmennimir aðeins stutta
dvöl hér, en ástæðan er sú, að
þeir eru á förum í 12 daga ferð
til Sovétríkjanna. Danimir mimu
dveljast á Hótel Sögu og býður
Menntamálaráðuneytið þeim í
kvöldverð.
Leikurinn á laugardaginn hefst
kl, 5 en lúðrasveitin spilar frá
kl. 4. Forsala aðgöngumiða byrj-
ar í dag { bókabúð Lárusar
Blöndal í Vesturveri og á Skóla-
vörðustíg og er verð hvers
miða kr. 125,— og kr. 50,—
fyrir börn.
Rætt um minkinn
Loðdýrafrumvarpið kom til 1.
umræðu í efri deild í gær og
urðu talsverðar umræðrr um
það, en frumvarpið hefur sætt
meðferð neðri deildar og verið
samþykkt þar. Mælti Alfreð
Gíslason eindregið gegn efni
framvarpsins og benti á veiga-
mikla galla á formi þess Þor-
valdur G. Kristjánsson andmælti.
Einkennilegt mál er nú rekið
fyrir Sakadómi Reykjavíkur og
á rætur sínar að rckja til ís-
lenzka smjörfjallsins. Þannig
barst á dögunum kvörtun frá
borgarlæknj Rvíkur um dreif-
ingu og sölu á gölluðu smjöri
í búðum borgarinnar. Ilafði
Kristján Skagfjörð, heildverzlun,
selt á tveim klukkustundum
nokkur tonn af smjöri frá Mjólk-
urbúi Vopnfirðinga hér í búð-
irnar á verði sem svarar til ánn-
ars flokks smjörs og segja við-
skiptavinirnir, að þctta svari að
gæðum til fyrsta flokks smjörs
og hefur það runnið út.
Er málið rekið formlega fyrir
Sakadómi svo sem hér sé um
gallaða vöra að ræða og sé bæði
lyfct og bragð varhugaverð og
stafi sennilega af því að vopn-
firzkum kúm hafi verið gefið of
mikið súrhey.
Um helgina var Jón Guðbjarts-
son, framkvæmdastjóri, kallaður
til yfirheyrslu hjá embættinu og
hafði hann meg sér smjörstykki
úr ísskápnum heima hjá sér og
bragðaðist öllum vel á smjörinu.
Jón heldur því fram, að Osta-
og smjörsalan standi á bak við
þessa kæra og hafi þetta fyrir-
tæki misst spón úr aski sínum.
Vopnfirðingar hafi hinsvegar
gengið á lagið og sniðgengið ein-
okunaraðilann og þar með hafi
Reykvíkingar fengið ódýrara
smjör og enginn finni athuga-
vert við neyzlu þess. Málið fer
sennilega áfram til Saksóknara
ríkisins og þar verður kannski
önnur smjömeyzla á næstu dög-
um.
Kannski verður smjattað á
vopnfirzku smjöri á öllum dóm-
stigum.
--•»-.•--*■«•»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*_
Rökstudda
dogskrám
felld með
20:19
■ Tillaga stjómarand-
stöðuflokkanna í neðri deild
um að vísa verðtryggingu
fjárskuldbindinga frá með
rökstuddri dagskrá, enda
skyldi milliþinganefnd
fjalla um málið I sumar,
var felld með naumum at-
kvæðamun í gær. Hlaut til-
lagan 19 atkvæði, en 20
greiddu atkvæði á móti
henni. Þurfti þannig at-
kvæði forseta til að koma
rökstuddu dagskránni fyrir
kattarnef, sem þó var sam-
hljóða því áliti, sem banka-
stjórar þriggja viðskipta-
banka af fjórum, sem leit-
að var álits hjá, Iétu frá
sér fara.
Lán Hásnæðismálastjómar
Framhald af 1. síðu.
18.398 kr. ef allt væri eðlilegt
og engin vísitölubinding á
Iáninu, að greiða svo sem hér
segir:
Á 10. ári 47.656 kr.
Á 15. ári 76.912 kr.
Á 20. ári 123.832 kr.
Á 25. ári 199.272 kr.
Með öðrmn orðum: Síðasta
af boj'gunin af 280 þús. kr.
láni yrði þá tæpar 200 þús.
kr. eftir stöðugar greiðslur i
24 ár, og alls yrði þá íbúð-
areigandinn á árinu 1991 bú-
inn að greiða á þriðju miljón
króna fyrir þær 280 þús. kr.,
sem hann fékk að Iáni hjá
ríkinu til að hjálpa honum
1966.
Þegar Einar hafði rakið þetta
dæmi sagði hann að þegar verka-
lýðsfélögin gerðu sína samninga
1964, hefðu þau fallizt á þessa
vísitölubindingu vegna þess að
ríkisstjórnin hefði gefið fögur
fyrirheit um stöðvun verðbólg-
unnar. En þau hefðu verið þver-
brotin og forsendurnar fyrir
þessu samkomulagsatriði um leið.
Þess vegna kvaðst Einar telja
það víst að verkalýðshreyfingin
myndi taka upp baráttu fyrir af-
námi þessa atriðis og væri al-
þingi sæmst að afnema það af
sjálfsdáðun svo verkalýðshreyf-
ingin yrði ekki knúin til að gera
það að einu stærsta baráttumáli
sínu í samningunum á sumri
komanda.
Einar lagði að lokum áherzlu
á að samkomulag þyrfti að nást
um þetta atriði með öllum flokk-
um þingsins og skoraði hann á
þá nefnd. sem málið fékk til af-
greiðslu að afgreiða það fljótt
og vel.