Þjóðviljinn - 04.06.1966, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 4. júní 1966.
Otgeíar.di: iameiningarfloktour alþýöu — Sósialistaflokto-
urinn.
Ritetjórar: Ivar H. -Tónsson ■ (áb). Magnús Kjartansson,
Siguröur Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. EYiðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorva'dur J^’-annesson.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söliiiverð kr. 5.00.
Þungur áfeHisdómur
k ðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanná
■^“■'fitendur nú yfir, og í upphafi fundarins flutti
formaðurinn, Gunnar Guðjónsson, skýrslu um
stöðu samtakanna. Þar kom fram mjög hörð og
afdráttarlaus gagnrýni á stjórnarvöldin fyrir nei-
kvæða afstöðu til þess fiskiðnaðar sem mikilvæg-
astur er. Gunnar lagði áherzlu á hvernig óðaverð-
bólgustefna ríkisstjórnarinnar grefur sí og æ und-
an rekstrargrundvelli hraðfrystihúsanna, sem
framleiða fyrir erlendan markað og geta því ekki
að eigin geðþótta velt auknum tilkostnaði ýfir
á viðskiptavini sína eins og þeir atvinnurekendur
sem framleiða fyrir íslenzkan markað. Jafnframt
lagði Gunnar áherzlu á að stjómarvöldin hefðu
sýnt hráefnisöflun til hraðfrystihúsanna algert
tómlæti með þeim afleiðingum að hún heifur dreg-
izt háskalega saman á undanförnum árum. Gunn-
ar komst m.a. svo að orði:
T^ogaraútgerðinni hnignar og fiskhráefni frá tog-
" urunum fer minnkandi, og má jafnvel búast
við að það hverfi alveg á næstu árum verði ekki
gripið til róttækra aðgerða til að rétta íslenzku
togaraútgerðina við. Stöðugt er erfiðara að gera út
minnLmáta, 120 smálestir og minni... Þróunin
í þorskveiðunum samanborið við síldveiðarnar
hefur verið ömurleg síðustu 5 árin, svo ekki sé far-
ið enn lengra aftur í tímann . . . Þessi þróun er
orðin svo alvarleg fyrir alla fiskframleiðend.ur,
að ekki, verður lengur framhjá henni gengið án
þess nauðsynleg lausn sé fundin á hráefnisskorti
hraðfrystihúsanna. Það er ekkert einkamál örfárra
manna, hvernig fer fyrir hráefnisöflun fiskiðnað-
arins gegnum togara, línubáta eða minni fiski-
skip. Leggist þessi útgerðarform niður, vegna tóm-
lætis eða sinnuleysis þeirra aðila, sem bér skylda
til að meta þjóðhagslega þýðingu þessara atvinnu-
tækja og hafa vald til að gera viðeigandi ráðstaf-
anir til tryggingar áframhaldandi rekstri þeirra,
umfram það sem fiskvinnslan getur og hefur þeg-
ar gert, þá lýsum vér fullri ábyrgð á hendur við-
komandi vegna þeirra afleiðinga, sem slíkt að-
gerðarleysi hefur í för. með sér, að þorskveiðar
og fiskveiðar dragist stórlega saman.“
Ijetta er þungur dómur ekki sízt þar sem hann
* kemur frá manni eins og Gunnari Guðjóns-
syni sem um langt skeið hefur verið í forustuliði
Sjálfstæðisflokksins. Ástæðurnar fyrir ófamaðin-
um eru að hans mati „tómlæti og sinnuleysi“ ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins,
enda hafa þeir nú um langt skeið verið önnum
kafnir við að greiðá erlendum auðfélögum leið
inn í landið á kostnað innlendra atvinnuvega.
Hitt er lítil huggun þótt lýst sé „fullri ábyrgð á
hendur“ brotlegum valdhöfum eftir að allt er
komið í óefni; verkefnið er öllu heldur hitt að
tryggja breytta stjórnarstefnu án tafar. Þurfa at-
vinnurekendur í fiskveiðum og fiskiðnaði að vera
ólíkt aðsópsmeiri en þeir hafa verið hingað til,
vilji þeir ekki láta sér nægja það jarm eitt sem
kindum er eftirskilið á leið til slátrunar. — m.
jr
Ahugamenn um fiskrækt
stofna félag á mánudaginn
Nokkrir áhugramenn um físk-
rækt hafa að undanfömu unnið
að °g undirbúið stofnu „félags
áhugamanna um fiskrækt“ og
verður stofnfundur þess mánu-
daginn 6. júní n.k. kl. 8.30 e. m.
að Hótel Sógu í svokölluðum
Bláasal, inn af Súlnasalnum.
Á undirbúningsfundi að
stofnun þessa félags, 7. marz
------------------------------
s.l. voru eftirtaldir menn kosn-
ir í nefnd til þess að gera
uppkast a’ð lögum fyrir félagið
og að öðru leyti að undirbúa
átofnfund þess: Jónas G. Rafn-
ar, alþingismaður, Ingvar Gísla-
son, aiþingismaður, Björn Jóns-
son, alþingismaður, Steingrím-
ur Hermannsson, forstj. Rann-
sóknarráðs ríkisins, dr. Bjöm
Jóhannesson, jarðvegsefnafræð-
ingur, Bragi Eiríksson, fram-
kvasmdastjóri Samlags skreið-
arframleiðenda og Gísli Ind-
riðason, famkvæmdastjóri hjá
íiskraektarstöðinni Búðaós h.f.
Tilgangurinn með þessari fé-
lagsstofnun er að vjnna að
aukum áhuga fyrir fiskrækt á
sem breiðustum grundvelli,
auka fræðslu í fiskræktarmál-
um, meðal annars með því, að
gefa út árbók er innihaldi^
fróðleik og nýjungar á þessu
sviði og í þvi sambandi kom-
ast í kynni og hafa samstarf
við erlendar sérfræðistofnanir,
sem fjalla um þessi mál. Enn-
fremur að hafa áhrif á löggjöf
varðandi fiskrækt, og vinna að
auknu öryggi og bættu skipu-
lagi fyrir félagssamtök og ein-
staklinga, sem lagt hafa eða
vilja leggja fram fé og vinnu
til eflingar fiskræklinnj og þar
með varðveizdu og aukningu
á verðmætari fiskategundum
landsins, svo og beita sér fyrir
tilraunum með eldi á erlend-
um fi'Sktegundum, sem líkleg-
ar eru til þess að getj aðlagað
sig íslenzkum staðháttum. Um
það verður ekki deilt lengur
að fiskrækt er stórmál fram-
tíðarinnar viðsvegar í heimin-
um, og það virðist jafnframt
augljóst máil að aðstæður séu
sérstaklega góðar til slíkra
hluta hér á landi. Það er því
óbifanleg sannfærin,g forgöngu-
manna um þessa félagsstofnun,
að hún geti orðið mikilsverður
aðili til frámfara í fiskræktar-
málum hér, fjöldasamtök, sem
af fórnfýsi og þjóðhollustu
setji sér það mark að verða
ekki eftirþátur annarra þjóða
á þessu sviði.
Kjarian Gísla-
son formaður
Málaram.fél.
Á aðalfundi Málarameistara-
félags Reykjavíkur, sem hald-
inn var fyrir nokkru, flutti for-
maður félagsins, Ólafur Jóns-
son, skýrslu um félagsstarfið á
liðnu ári, sem var 38. starfsár
félagsins. Á árinu flutti félagið
starfsemi sína í nýtt húsnæði
að Skipholti 70, er félagið
byggði ásamt öðrum meistara-
félögum innan Meistarasam-
bands byggingamanna. Með til-
komu þessa nýja húsnæðis hef-
ur aðstaða félagsins verulega
batnað til aukinnar þjónustu
við félagsmenn og almenning.
Ólafur Jónsson baðst undan
endurkjöri en í hans stað var
Kjartan Gíslason kosinn for-
maður. Aðrir í stjórn eru Ósk-
ar Jóhannsson varaformaður,
Ástvaldur Stefánsson ritari,
Einar Gunnarsson gjaldkeri óg
Sigurður A. Björnsson með-
stjórnandi.
Verkbann á
flugmenn
BRUSSEL 1/6 — Flugmenn og
áhafnir á vélum belgíska flug-
félagsins Sabena voru settir í
verkbann er þeir mættu til
vinn-u í dag eftir þriggja daga
verkfall.
Flugfélagið hafði fyrirfram að-
varað flugmannafélagið við að
gera verkfall, og verða þeirekki
teknir í vinnu aftur fyrr en
félag þeirra hefur dregið til baka
verkfallsboðun sem gefin var út
28. febrúar í ár.
Flugmennimir, sem krefjast
18 prósenta launahækkunar hafa
síðan þá farið í mörg smáverk-
föll.
WV\VA\\\AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA\AAAAAAA\\\\\\\AA\AAAAAAAVA\V A\\A/W\AAAAAAAAA\AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA\AAAAAAAAAA\AAAAAAAAAA\AAAAAAAAAAaAAAAAA
Styrkir tii vísinduiðkunu
Samkvæmt skipulagsskrá fyr-
ir Snorrasjóð, sem birt er í B-
deild Stjómartíðinda 1931, nr.
99, verður allt að 3/4 ársvaxta
sjóðsins, kr. 8.000, varið til
styrktar náms- og fræðimönn-
um til lærdóms- og vísindaiðk-
ana í Noregi. Stúdentar, og
kandidatar, sem leggja stund á
norræn fræði, og fræðimenn, er
hafa með höndum ákveðin
verkefni úr norrænni sögu og
bókmenntum, skulu að öðru
jöfnu ganga fyrir um styrk-
veitingar.
Umsóknir um / styrki úr
sjóðnum, ásamt námsvottorðum
og meðmælum, sendist forsæt-
isráðuneytinu fyrir 1. júlí 1966.
(Frá forsætisráðuneytinu).
Allgóður árangur
í ýmsum
á E.Ó.P.
gremum
mótinnu
Hið árlega EOP-mót KR í
frjálsum íþróttum var háð á
Melavellinum fyrrakvöld.
AHgóður árangur náðist í ýms-
um greinum, enda þótt hraut-
ir væru þungar eftir rigningar
undanfama daga.
Valbjörn Þorláksson var sem
oft áður aðalstjarna mótsins,
sigraði nú í 4 keppnisgrein-
um, auk þess sem hann hljóp
einn sprettinn fyrir sigursveit
KR í 4x100 metra boðhlaup-
iu. Valbjörn náði ágætum ár-,
angri í spjótkasti, bætti sinn
persónulega árangur nokkuð
og náði fjórða bezta afreki ís-
lendings í spjótkasti til þessa.
Keppnin var annars jöfn og
skemmtileg í ýmsum greinum
en úrslit urðu sem hér segir:
100 metra hlaup;
Valbjörn Þorláksson KR
Þórarinn Ragnarsson . KI
Einar Hjaltason Á
400 metra hlaup:
Þórarinn Ragnarsson KR
Kristján Mikaelsson Á
Halldór Guðbjömss. KR
1500 metra hi'aup:
Þórarinn Amórss. ÍR 4
4x100 metra boðhlaup:
Sveit KR 45,0
Sveit Ármanns 46.0
110 m. grindahl.:
Valbjörn Þorlákss. KR
Sigurður Lárusson Á
Hástökk
Jón Þ. Ólafsson ÍR
Sigutður Lárusson, Á
Langstökk
Donald Rader, UBK
Valbjörn Þorláksson
sek. 11,4 12,0 Úlfar Teitsson, KR 6,41
Skafti Þorgrímsson ÍR 6,39
Páll Eiríksson KR 6,26
12.1 12,1 Stangarstökk m.
Valbjörn Þorláksson KR 4,15
sek. Páll Eiríksson KR 3,75
51,5 52,0 Magnús Jakobsson UBK 3,15
54,2 Kúluvarp m.
mín. Guðm. Hermannsson KR 15,74
Erlendur Valdimarss. ÍR 14,23
,:12.9 t: 15,7 Valbjörn Þorlákss. KR 13,01
,:20.2 Kringlukast m.
Þorst. Alfreðsson UBK 45,58
sck. Þorsteinn Löve ÍR 43,24
sek. Erl. Valdimarsson ÍR 42,94
Jón Þ. Ólafsson ÍR 41,79
sek.
16.3 Spjótkast m.
16,5 Valbjöm Þorlákss. KR 63,91
Páll F.iríksson KR 57,35
m. Björgvin Hólm ÍR 56,38
2,00
1,70 Sleggjukast m.
Þórður B. Sigurðsson KR 49,00
m. Jón Magnússon IR 48,87
6,48 Óskar Sigurpálsson 38,03
Viður Þorsteinsson vurð
hvítusunnumeisturi GR.
Laugardaginn 21. maí s.l.,
hófst á velli Golfklúbbs Reykja-
víkur við Grafarholt hin ár-
lega Hvítasunnukeppni, Undir-
búningskeppnina, sem er 18
holu höggleikur með forgjöf,
vann Vilhjálmur Árnason á
91—28=63 höggum (nettó).
Árangur Vilhjálms er mjög
góður, enda mun, ‘hann hafa
æft vel síðastliðinn vetur. ^
Þátttaka í keppninni var ó-
venju mikil svo snemma -sum-
ars. Alls mættu 43 til keppni.
Því miður voru leikskilyrði
fremur slæm, enda bar árang-
urjnn þess Ijósan vott.
Beztum - árangri með forgjöf,
auk sigurvegarans, náðu þessir
menn:
2. Jón Þór Ólafsson , 93—29
= 64 högg.
3. Svan Friðgeirsson 101—36
= • 65 högg.
4. Jóhann Stefánsson 102—36
= 66 högg.
5. Geir Þórðarson 99—32
= 67 högg.
Án forgjafar náðu eftirfar-
andi kylfingar beztum árangri:
1. Pétur Bjömsson 83 h.
2. Einar Guðnason 86 h.
3. Jóhann Eyjólfsson 88 h.
4. Viðar Þorsteinsson 90 h.
5. -6. Sveinn Snorrason 91 h.
Vilhj. Árnason 91 h.
f framhaldskeppnina, sem er
holukeppni, komust 16 kylfing-
ar. Leiknar voru 3 umferðir
(útsláttarkeppni), sem varð
all-tvísýn og skemmti'leg. Tveir
kylfingar, þeir Einar Guðna-
son og Viðar Þorsteinsson léku
að lökum til úrslita laugard.
þ. 28. maí. Þeirri viðureign
lauk með glæsilegum sigri Við-
ars 5—4. Var hann vel að sigr-
inum kominn og lék örugglega,
unz yfir lauk. Ánægjulegt var,
hve margir nýliðar tóku þátt í
keppninni nú. Næstkomandi
laugardag heldur þessi þróun
vonandi áfram. vHvítasunnu-
meistarinn, Viðar Þorsteinsson,
er tiltölulegur nýliði í golf-
íþróttinni, og hefur náð sér-
stöku öryggi í leik sinn á þess-
um þrem árum.
(Frá G.R.)1.
Byggringarfélag verkamanna, Reykjavík
AÐALFUNÐUR
félagsins verður haldinn í Tjarnarbúð (Oddfellow.
húsinu) þriðjuöaginn 7. júní n.k. kl. 8.30 e.h.
DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf.
»
Stjómin.