Þjóðviljinn - 09.06.1966, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILiJINN — Fimmtudagur 9. júrtí 1966.
Síldarverksmiðja til sölu
Síldarverksmiðja í Bakkafirði ef til sölu. — Kaup-
tilboð óskast send ekki síðar en 18. júní n.k. —
Nánari upplýsingar gefa lögfræðingar bankans.
Stofnlánadeild sjávarútvegsins
Seðlabanka íslands.
TRYGGINGAFÉLAGIÐ HEIMIRf
LINDARGOTU 9 » REYKJAVÍK » S ÍMI 22122 — 21260
Gólfflísar
Vinylgólfflísar ávallt fyrirliggjandi í mjög fjöl-
breyttu úrvali. Einnig mikið úrval af vinylgólfdúk-
með áföstu korki eða fílti.
FAGMENN OG EFNI Á SAMA STAÐ.
KLÆÐNING h. f.
Laugavegi 164. — Sími 21444.
SELJVM AOKINS B£2TA
Tung-
ur tvær
í fyrrahaust mætti Bjami
Benedilctsson forssetisráðherra
á blaðamannafundi í útvarps-
sal. Hann var þá m.a. spurð-
úr býsa mikið um verðbólg-
una og ófarnað stjórnarstefn-
unnar á því sviði, en athygli
vakti að hann vildi sem
mirinst úr því vandamáli gera
’og gaf jafnvel í skyn að verð-
bólgan vaeri á ýmsan hátt
æskileg. Svipaður tónn hef-
ur síðan sézt í ýmsum rit-
smíðum þessa stjórnmála-
manns.
En nú aff undanföru hefur
brugðið svo við að málgögn
forsætisráðherrans, Morgun-
blaðig og Vísir, hafa verið
barmafnll af áhyggjum út af
verðbólgunni; til að mynda
kemst Morgublaðið svo að
orði í gær:
. „Það er þess vegna ekki
einungis sjávarútvegurinn, sem
á í erfiðleikum vegna verð-
bólgunnar innahlands. Stórfyr-
irtæki eins og Loftleiðir, sem
starfa mikið á erlendum
mörkuðum, eiga í vaxandi
örðugleikum af þessum sök-
um. Hinum margvíslegu að-
gerðum til þess ag laga er-
Ienda ferðamenn til íslands
hefur greinilega verig stefnt
í hættu vegna verðlagsþróun-
arinnar. Lapdbúnaðurinn hef-
ur einnig fundig fyrir þessu
vegna útflutnings á landbún-
aðarvörum og iðnaðurinn, sem
á nú í harðri samkeppni við
innfluttar iðnaðarvörur, getur
af þeim söfcum ekki lengur
velt kostnaðarhækkununum
yfir í verðlag framleiðsluvara
sinna nema að takmörkuðu
leyti. Þessar staðreyndir sýna
ljóslega, að á miklu ríður
fyrir atvinnuvegi landsmanná,
að Það takist ag takmarka
verðbólguþróunin a“.
Þama eru taldar upp flest-
ar athafnir þjóðfélagsins —
nema heimilishald launafólks,
á það er ekki minnzt. En
hvað kemur til ag hinni létt-
úðarfullu og kærulausu af-
stöðu forsætisráðherrans er
•allt í einu hafnað °S í stað-
inn koma áhyggjur, þungar
sem blý? Ástæðan er greini-
lega sú að samningar al-
mennu verklýðsfélaganna eru
nú lausir og til stendur að
gera nýja samninga. Þegar
svq er ástatt má sem kunn-
ugt er ekkert hækka. En um
leið og nýir samningar hafa
verið undirritaðir og hvort
sem árangur þeirra verður
mikill eða lítill kemur for-
sætisráðherrann eflaust fram
á sjónarsviðið á nýjan leik
meg yfirlýsingar sínar um að
verðbólgan geri nú ekki mik-
ig til. Þegar hendur laun-
þega eru bundnar má allt
hækka, og raunar skipulegg-
ur ríkisStjómin sjálf verð-
hækkanir ef henni finnst hin
sjálfvirka þróun ekki nógu
ör. — Austri.
Hrafnhildur Kristjánsdóttir
sigráði nöfnu sina á 800m
Fyrri hluti Sundmeistara-
móts Islands fór fram í Sund-
höll Reykjavíkur á mánudag-
inn. Keppt var í þremur grein-
um; 1500 m skriðsundi karla,
800 m skriðsundi kvenna og
400 m bringusundi karla. Tvö
íslandsmet voru sett; Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir ÍR synti
500 m skriðsund á 6,56,2 mín.
og Hrafnhildur Kristjánsdóttir
Á synti 800 metrana á 11,19,2
mín.
Keppnin milli þeirra Hrafn-
hildanna í 800 m skriðsundinu
var mjö2 jöfn og skemmtileg.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
hafði forystu lengst af fram-
an af sundinu og setti íslands-
met í 500 metra skriðsundi sem
fyrr var sagt en á síðustu 100
metrunum vann nafna hennar
Kri-stjánsdóttir upp forskotið
og komst fram úr á síðustu,
metrunum og tryggði sér þar
Framhaid á 6. sfðu.
HUDSON SOKKARNIR
eru fáaiílegir í flestum verzlunum.
MARGFÖLD ENDING.
Orðsending
frá skipaskoðunarstjóra
Af gefnu tilefni skal kaupendum notaðra
skipa bent á að leita upplýsinga í samráði
við seljendur um ástand skipanna hjá
Skipaskoðun ríkisins, áður en kaup eru
gerð.
Skipaskoðunarstjóri.
Starf sveitarstjóra
í Stykkishólmi
er laust til umsóknar strax.
Allar nánari upplýsingar veitir oddviti hrepps-
nefndar, Jenni R. Ólason.
Hreppsnefnd Stykkishólmshrepps.
/
Þessa árs merki á bif-reiðir félagsmanna, verða af-
hent á stöðinni frá 10.—30. júní.
Athugið að þeir sem ekki ‘hafa merkt bifreiðir
sínar með hinu nýja merki fyrir 1. júlí, njóta ekki
lengur réttinda sem fullgildir félagsmenn, og er
samningsaðilum Þróttar eftir það óheimilt að taka
þá til vinnu.
Stjómin.
ÁBYRGD Á HÚSGÖGNUM
Athugið, QÖ merki [ 0254Z FRAMLEIÐANDl í .- NO.
husgögnum, sem óbyrgðarskírteini fylgir. Kaupiö vönduö' húsgögn. EjWfS] HlJSGAGNAMEiSTARA FÉLAGI REVKJAVÍKUR
HÚSGAGNAMEISTARAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Viðgerðaverkstæði vort er opið
alla daga frá kl. 7,30 til 22. —
Kappkostum að veita góða
þjónustu.
Hver býður yður betri
hjólbarða en
Þessar heimsþekktu gæðavörur fáið þér
hjá okkur.
SENDUM GEGN POSTKRÖFU UM
LAND ALLT,
Gámmívinnustofan hf.
Skipholti 35 — Reykjavík — Sími 31055.
Bifreiðamerki