Þjóðviljinn - 09.06.1966, Side 4

Þjóðviljinn - 09.06.1966, Side 4
^ SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN ■— Fimmtudagur 9. júni 1966. Otgefandi: Sameiiiingarflokkur alþýdu — Sósialistaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Fiiðþjófsson. / Auglýsingastj.: Þorva',dur J<',tannesson. Sími 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. tausa- söluverð kr. 5.00. Röng stefna Jjað heíur verið stefna Ingólfs Jónssonar landbún- aðarráðherra að bændur ættu að auka fram- leiðslu sína allt hvað af tekur, ‘það væri leiðin til bættra lífskjara, og forustumenn Framsóknar hafa af kappi tekið undir þann boðskap. Bændur hafa farið eftir þessum leiðbeiningum af atorku og dugnaði og náð miklum árangri. En nú er mönnum að vitrast sú staðreynd að því aðeins . stoðar að auka framleiðsluna að unnt sé að koma henni í verð. Verðbólgustefna ríkisstjórnarinnar hefur gert það að verkum að útflutningsverð á landbúnaðarafurðum sem áður var lágt er nú orð- ið hlægilegt, og raunar hefur smjörið ekki reynzt seljanlegt fyrir nokkurt verð. Og nú er fram- ieiðslustefna Ingólfs Jónssonar og Framsóknarleið- toganna orðin að mjög alvarlegu vandamáli. Fram- sóknarmenn og Sjálfstæðisflokksmenn í Fram- leiðsluráði landbúnaðarins hafa gripið til þess úr- ræðis að leggja á mjólkurframleiðendur mjög stór- felldan skatt, rúmlega krónu á lítra en það sam- svarar 80—100 miljónum króna á ári. Þennan skatt á að nota til þess að tryggja mjólkurbúunum fullt verð fyrir offramleiðsluna; það var semsé hætta á því að stefna þeirra flokka, sem telja sig sér- staka málsvara bænda, gerði öll mjólkurbú lands- ins gjaldþrota! En bændurnir mega súpa seyðið ÆSI EAN og: SOSiALISH IIINN Ritnefnd: Arnmundur Eachmann, Rannveig Haraldsdóttir, örn Ölafsson. J • Með þessari grein Leifs heldur Æskulýðssíðan á- fram umræðum um Al- þýðubandalagið. Ekki tjó- ar að sýta, þótt stak- stcinavörður Moggans og Tímans komist úr jafn- vægi við það, íslenzkir só- síalistar hafa ævinlega get- að rætt þessi mál og þurfa nú að ræða þau fyrir opn- ,um tjöldum. Sú er ein spurning, sem mjög ber á góma innan sam- taka okkar núna: Hver er af- staða Æskulýðsfylkingarinnar til Alþýðubandalagsins í dag? Þessi spuming er alls ekki sú sama og spumingin: Hver verð- ur afstaða Æskulýðsfylkingar- innar til Alþýðubandalagsins á morgun? Það er önnur spurning. Meðan Alþýðubanda- lagið er ekki fullmótað, þá er afstaða Æskulýðsfylkingarinn- ar til þess heldur ekki fullmót- uð. . Til þess að svara fyrri spurn- ingunni þarf í fyrsta lagi að gera sér grein fyrir tveimur mikilvægum spumingum og svara þeim: Hvað er Alþýðu- bandalagið í dag? Hvað er Æskulýðsfyikingin í dag? Fyrri spurningunni er auðsvarað, vegna þess að Alþýðubandálag- ið í Reykjavík er skilgreint í lögum samtakanna sem sam- fylkingarsamtök: samtök sjálf- stæðra stjómmálaafla, samein- uð í baráttu fyrir lausn helztu vandamála islenzks þjóðfélags á líðandi stund og í náinni framtíð. Með Æskulýðsfylkinguna er þessu á allt annan veg varið. Gegnum allt starf Æskulýðs- fylkingarinnar gengur baráttan fyrir sósíalisma sem rauður þráður. Æskulýðsfylkingin er stofnuð til þessarar baráttu, og það hlutverk hennar er skýrt afmarkað í stefnuskránni, sem félagarnir sameinast um. Æsku- lýðsfylkingin heyr þrotlausa baráttu gegn auðvaldsþjóðfé- laginu á íslandi, og þótt við félagar í Æskulýðsfylkingunni berjumst gegn erlendu her- mannasjónvarpi, þátttöku í morðsamtökum nýlendukúgara og áþján erlendra auðhringa, vegna þess að við erum íslend- ingar, sem höfum varðveitt þjóðerniskennd og þjóðlegan metnað, þá er sósíalisminn jafnan lokatakmark okkar. Með sósíalisma eigum við ekki einungis við ópersónulegt hagkerfi samvirkra framleiðslu- hátta. Við vonumst til þess að á grundvelli slíkra framleiðslu- hátta verði hægt að útrýma allri sérhyggjunni og hundingja- hættinum, sem einkennir sam- skipti manna í auðvaldsþjóð- félagi, og ópersónulegum tengslum einstaklingsins við samfélagsheildina. Þannig eygj- um við leið til þess að skapa stórfellt uppgangsskeið í al-< hliða þróun samfélagsins. Við álítum ennfremur, að til þess að sósíalisk uppbygging sé framkvæmanleg þurfi að brjóta sundur grunninn undir auð- valdsþjóðfélaginu með því að afnema eignarrétt fámennrar borgarastéttar á framleiðslu- tækjunum og gera eignarréttinn félagslegan. Þetta ályktum við í trausti þeirra lærdóma,. sem við drögum af áratuga gömlu basli sósíaldemókrata við end- •urbótastarfsemi innan ramma auðvaldssamfélagsins, sem hef- ur leitt til þess, að þeir eru orðnir svo þétt riðnir í net borgaralegs samfélags,., að þeir mega sig þaðan hvergi hræra og leika það hlutverk stærst að vera dragbítur á uppgangi byltingarsinnaðra flokka. En þótt Æskulýðsfylkingin eigi sér þannig hugmyndalegan starfsgrundvöll og starfi skipu- lagslega óháð öllum stjóm- málaflokkum, þá er Æsku- lýðsfylkingin ekki stjómmála- flokkur. Æskulýðsfylkingin er æskulýðssamtök. Framhald á 7. síðu Félags- fundur í kvöld j ÁRlÐANDI félagsfundur ÆFR verður haldinn í kvöld kl. 8,30 í Tjarnar- götu 20. A dagskrá fundarins er: f 1. Inntaka nýrra félaga. í 2. Skipulagsmál Alþýðu- I bandalagsins. Framsögu- j menn: Svavar Gestsson f og Leifur Jóelsson. 3. önnur mál. FÉLAGAR mætið stund- j víslega og munið að greiða | félagsgjöld. — STJÖRNIN. \ af rangri stefnu. Ekki lítur út fyrir að Ingólfur Jónsson ha’fi neitt lært af þessum makalausa ófamaði. Að minnsta kosti birti Morgunblaðið í gær forustugrein um landbúrtaðarmál þar sem bændur éru enn hyattir til að „auka framleiðsluna“ af sem mestu kappi. Skyldi vera að því stefnt að allt andvirði fram- leiðslunnar verði tekið upp í skatt til mjólkur- búanna? Einsflokkskerfi jþað er til marks um lélegan þjóðfélagsskilning Framsóknarleiðtoga, þegar þeir telja hugsan- legt að hér komi upp borgaralegt tvíflokkakerfi, líkt og í Bandaríkjunum; þeir virðast ekki gera sér neina grein fyrir því að evrópsk stjórnmálaþróun er gerólík þeirri bandarísku vegna styrks verk- lýðssamtakanna. En raunar er hugsjón Framsókn- arleiðtoganna greinilega einsflokkskerfi. Það kem- ur til að mynda í ljós af afskiptum þeirra af sam- vinnuhreyfingunni; þeir hafa alla tíð lagt á það ofurkapp að þar fari Framsóknarmenn einir með alla forustú, hafa troðið formanni sínum í aðal- stjórn SÍS, og sett framkvæmdastjóra SÍS í mið- stjóm Framsóknarflokksins. Þessi pólitíska einok- un hefur margsinnis gert samvinnuhreyfingunni mikið ógagn og torveldað henni eðlilega þróun. ^stæða væri fyrir fulltrúana á næsta aðalfundi Sambands íslenzkra samvinnufélaga að taka þessa starfshætti til endurskoðunar' og láta eðli- lega hagsmuni samvinnuhreyfingarinnar verða yf irsterkari pólitískum . einstrengingshætti Eysteins Jónssonar og félaga hans. — m. V\VV\AAAV\AOAAAAAAAAAA\A/VVVAAAAAA\AA^W\AAAAAAWVVWVAAAAAA/VAAA/V\\AA^\AAV\A\A/VAA\\^V\\\\\íVVVVVVVV\AVVVVVVVaVVa\VVA\A\\\VV\AA<VV\A\^VV\\a\A\\aaA\AAAaAAAy/\AAAAA'VAa'\ V/ Bandaríska þjóðlagasöngkonan Rekur skóla fyrir friáarsinna Margir lesendur Æskulýðssíðunnar kannast vafalaust við bandarísku þjóðlagasöngkonuna Joan Baez, sem aðeins 24 ára gömul er orðin heimsþekkt fyrir söng sinn og þá um leið fyrir afskipti af stjómmálum. Að vísu heyrist a](lt of sjaldan í Baez í Ríkis- útvarpinu, en plötur með söng hennar fást í öll- um hljóðfæraverzlunum sem eitthvað kveður að. Það er engin tilviljun aðJo- an Baez er nú meðal vinsæl- ustu þjóðlagasöngvara semuppi eru. Söngur hennar er fágaður, iópranröddin mikil og falleg, undirleikurinn enginn kúreka- sláttur, heldur leikur hún sjálf listilega á gítar og textarnir við lögin sem hún syngur eru óvanalegir, margir hverjir samdir af söngvaranum Bob Dylan, enhann semur þástund- um upp úr fyrirsögnum dag- blaðanna. ★ Þá hafa afdráttarlausar skoð- mir Baez á mönnum og mál- efnum vakið athygli, einkan- iega í Bandaríkjunum, en þar neitar hún að borga skatta vegna þess að hún telur að þeir peningar yrðu notaðir sem framlag til vígbúnaðarins. Baez hefur, ólíkt flestum venjulegum .,sjógörlum“, hætt persónulegum frama sínum með því að syngja við 1. maí hátíðahöld, fara í mótmæla- göngur í Alabama og sömu- leiðis í London til að láta í ljós andúð sína á manndrápum Bandaríkjamanna í Vietnam, en að blóðsúthellingar þar verði stöðvaðar er hennar hjartans mál. Einnig hefur Baez ritað greinar í blöð og í Kaliforníu jekur hún skóla þar sem hún kennir ungu fólki m.a. leiðir til að koma á fri-ðsamlegri sam- búð á milli þjóða. 1 byrjún söngferils síns neit- aði Joan Baez álgjörlega að hafa viðtöl við útvarps-, blaða- Joan Baez og Donovan í mót- mælagöngu S London. og sjónvarpsmenn og voru um- boðsmenn hennar lítt hrifnir af því. Um síðir tókst að fá Baez ofan af þessari ákvörðun sinni, en þá krafðist hún þess að fá að segja meiningu sína um- búðalaust og urðu bísnismenn- irnir að láta sér það lynda. Það hefur komið á daginn að vinsældir söngkonunnar hafa stórlega aukizt síðan hún fór að lýsa skoðunum sínum yfir opinberlega — og sannast á því að rödd hennar, röddin sem kallar á frið handa hrjáðu fólki, á stöðugt meiri hljóm- grunn meðal manna í f jölmörg- um löndum. (Þýtt og endursagt).

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.