Þjóðviljinn - 09.06.1966, Page 8
g SÍÐA — ÞJÖBVILJINN — Fimmfcudagur 9. jtmí 1966.
WILLIAM MULVIHILL
IFLUGVÉL
HVERFUR|
ir frá staðnum fciar sem hann
hafði fundið vatn og brúsarnir
tveir vtxmi ennþá þungir; hann
hafði fundið melónur og drepið
og étið einhverskonar nagdýr.
Það var ekkert að sjá annað
en himininn og landið. Óvinur
hans var fjarlægðin og sú til-
finning að hann væri eina lif-
andi mannvera á jörðinni.
Þorstinn mikli.
Grace beið þess að O’Brien
kæmi niður gilið.
Það var’ síðla dags, og hinir
voru komnir inn í hellinn eftir
að hafa vertð tímunum saman
úti í brennandi sólinni í matar-
•leit. Mike Bain og gamli maður-
inn sváfu. Hún hafði tekið með
sér flöskur og farið án þess að
segja neitt; hún hafði haldið
upp gilið að tjörninni. Þar
hafði hún hvílt sig stundarkom
fyllt eina flöskuna og gengið
lengra. Bráðum kæmi O'Brien.
Hann var vanur að koma niður
skriðuna hjá háa fjallinu og fara
eftir stígnum, sem þau höfðu
notað fyrir löngu þegar þau
klifi-uðu upp á tindinn.
Hún varð að vera ein með
honum. Hann hugsaði ekki um
annað en veiðarnar, leitina, mat-
inn. Hann sá hana ekki sem
konu, fallega konu. Hún gat ekki
beðið eina nótt enn, einn dag
enn. Hún varð að vera með
honum. Núna. Ein ....
Hún gekk áfram. Bráðum lægi
hún í örmum hans, hann myndi
kyssa hana ....
Hún sá hann koma, berfætt-
an, léttan á fæti; hann var ber
HárcfreiSpían
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu Off Hófló
Laugavegi 18 III. hæð (lyfta)
SÍM7 24-6-16
P E R m A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 StMI 33-968.
D ð M U R
Hárgreiðsia við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10 Vonarstrætis-
megin — Sími 14-6-62.
Hároreiðslnstofa
Rnstnrbæiar
María Guðmundsdóttir
Laugavegi 13 Sími 14-6-58.
Nuddstofan er á sama stað.
að ofan; einu fötin sem hann
bar voru óhreinar, hvítar tennis-
buxur. Hann varð gremjulegur á
svipinn þegar hann sá hana og
kom nær. Hún fann hvernig
hjartað sló.
— Fékkstu nokkuð? spurði
hún.
— Nei, sagði hann. Þau stóðu
kyrr og horfðu hvort á anpað.
— Hvar eru þeir? spurði hann.
— Heima í hellinum. Ég fór
eftir vatni og svo fór ég í smá-
30
göngu. Hún rétti honum vatns-
flöskuna. Viltu drekka?
Hann gekk til hennar, tók við
flöskunni og drakk. Hún gekk
frá honum inri í skuggann und-
ir svarta klettaveggnum og sett-
ist í heitan sandinn. O'Brien
kom á eftir, lagði byssuna á stór-
an stein og settist hjá henni.
Hún hallaði sér upp að stein-
inum og lokaði augunum. O'
Brien kyssti hana. Hún lyfti
örmunum, fann axlir hans,
þrýsti honum að sér, en svo
ýtti hún honum frá sér; hana
svimaði.
— Af hverju gerðirðu þetta?
spurði hún.
— Af því að þú vildir það,
frú Monckton.
Hún brosti. Ég held næstum
að það sé satt. Ég hef aldrei
kysst mann með skegg. Hún
reyndi að hlæja en ekkert hljóð
kom.
Hann kyssti hana aftur, fast-
ar. Hún streittist á móti stund-
arkom, svo hætti hún því. Henni
stóð á sama um allt. Hann til-
heyrði henni.
— O'Brien?
— Já.
— Viltu fá mig?
— Ég hef þig, sagði hann.
Hún kyssti harm létt. Ég á við
hvort þú sért hrifinn af mér?
Ég held ég sé ástfangin af þér.
Nú var hún búin að segja það.
Það hafði verið auðvelt.
— Þú þráir mig meira en þú
hefur nokkum tíma þráð nokk-
urn skapaðan hlut, sagði hann.
— Já, það er satt. Ertu ást-
fanginn af mér?
— Nei.
— Agnarlítið?
— Láttu ekki eins og kjáni,
frú Monckton. Hendur hans
bmnnu á baki henni, hana
sveið undan fingrum hans. Hann
lyfti henni eins og smábami og
lagði hana útaf í sandinn. Hún
fann skeggjað andlit hans við
sitt, við hálsinn. Hann fálmaði
eftir hnöppunum á pilsinu, eftir
rennilásnum. Augu hennar urðu
stór af ótta og hiki. Hún barðist
um, engdist, barði, æpti og grét.
— Ég skal drepa þig, drepa
þig, drepa þig ....
Hún gréfc af móðursýki.
Grace uppgötvaði að hún var
ein; O'Brien var farinn.
Hún burstaði sandinn úr hár-
inu og eftir stundarkom stóð
hún upp, lagfærði fötin sín, gekk
niður gilið. Sólin 'var ekki leng-
ur jafnbrennandi; kvöldið nálg-
aðist; það var svalara.
Hún kom að tjörninni. 0‘Brien
var þar. Hann jós yfir sig vatni
og þvoði sér um andlitið og
hálsinn. Hún gekk til hans, tyllti
sér á tá og kyssti hann og hann
lyfti henni upp og bar hana að
flötum steini; fingur haps tóku
hart á lærum hennar.
— Ég er svo leið yfir þessu,
hvíslaði hún. Því sem ég sagði ..
Hann kyssti andlitið á henni,
og augun.
— Ég átti þetta skilið, sagði
hún. Ég fór gagngert til að leita
að þér. Mér finnst ekkert at-
hugavert við það. Ég þrái þig
svo óskaplega ....
— Ég þrái þig líka, frú
Monckton, en ég vil ekkert
„haltu mér slepptu mér.“
— Af hvei'ju viltu fá mig?
— Af því að þú ert kona, frú
Monckton.
— Hættu að kalla mig þetta.
Ég er fráskilin, ég er frjáls. Ég
hefði bara heldur viljað, að þú
elskaðir mig.
— Ég elska allar konur, sagði
0‘Brien.
Hún hvíldi í örmum hans.
Tómleikinn inni í henni/ var
horfinn. Einn góðan veðurdag
myndi O'Brien elska hana; það
var eitthvað í fari hans sem
hún óttaðist og skildi ekki, en
einn góðan veðurdag, þegar búið
væri að bjarga þeim og þau
komin burt frá fjallinu, yrði
hann eins og aðrir' menn og
hann myndi elska hana og ann-
ast hana.
Bain kom útúr hellinum og
deplaði augunum móti ljósinu.
Hann var máttlaus, í fótunum, en
hann var ekki veikur lengur.
Hann gekk upp gilið f áttina
að tjöminni. Loftið var hress-
andi og svalt eftir nóttina; brátt
færi sólin að brenna, en nú naut
hann morgunsvalans.
Hann kom að tjöminni og
fældi burt fáeina kvakandi smá-
fugla. Hann drakk vatn og
klæddi si-g úr. Hann notaði kaffi-
boxið og þvoði sér vandlega og
neri kroppinn með fíngerðum
sandinum. Hann fór ekki út í
tjörnina og lét ekki óhreina
vatnið renna þangað aftur; það
var ein af reglum þeirra. Hann
jós vatni yfir kroppinn og neri
sig með sandi. Hann var skítug-
ur, eins og dýr. Honum fannst
líkami sinn nýr og framandi;
magur og beinaber; maginn og
hvapið var horfið, beinabygging-
in sýnileg.
Hann öfundaði O'Brien sem
var svo stór og sterklegur og
hraustur. O'Brien rann saman
við bergið, gilin og sólina. Það
hæfði honurri'að vera berfættur,
skyrtulaus og berhöfðaður og
láta þykkt, svart hárið hlífa
höfðinu og með hörundið brons-
litað af sólinni.
Hann gróf holu í harðan, vot-
an sandinn, lagði fötin sín í
hana og fyllti hana af vatni.
Næst ætláði hann að hafa með
sér dunk (Smith átti einn) og
sjóða fötin. Holan var full; ó-
hreinu buxurnar og skyrtan og
sokkamir og næi-buxurnar flutu
stundarkorn þar . til vatnið seig
niður .um sandinn' og hann end-
urtók þetta.
Hann var svangur og allan
tímann sem hann hafði verið
þarna, hafði hann ekki tekið
þátt í að útvega mat. Grimmel-
mann og O'Brien héldu lifi í
þeim öllum; en þau voru á
mörkum þess að svelta í hel,
þau voru seilingu frá dauðan-
um. Melónurnar og þurrikaða
kjötið entust ekki að eilífu.
Holan var aftur orðin tóm.
Hann settist skammt frá og lét
sólina verma bakið og hand-
leggina.
Kaffiboxið skein í sólinni;
sums staðar var það farið að
ryðga. Bandarískt kaffi. Max-
wells House. Boxið var blautt,
vatnsdropar voru á hliðunum.
Býfluga suðaði hjá þvi, settist
á brúnina, drakk úr einum
dropanum og flaug leiðar sinnar.
Hann tók skyrtuna og sneri
henni við. Næstum þurr. Sólin
var orðin heitari.
FRA RASNOEXPORT MOSKVA
Fyrirliggjandi:
\
A og B gæðaflokkar
í flestum stærðum og
þykktum.
TRADING
LAUGAVEG 103 SIMI 17373
þórður
sfóari
4771 _ Frú Hardy hvítnar af reiði er hún heyrir um hina hann krappan, svo að þessu linni einhverntíma .......... Þú ert frá
fyrirhuguðu keppni. — Maðurinn er bandvitlaus! Það á vel við
Bobby að hún lætur svona. — Já, segir hann, og eftir því mont-
inn! Bara af því að hann hefur siglt yfir hafið frá Evrópu!
Hugsaðu þér ef hanr. ynni nú þessa keppni .... — Það er rétt
hjá þér segir móðirir.. bað verður að reyna að koma honum í
bær, Bobby, .... þú skilur aUt svo vel .... — Hvernig væri
það, segir strákurinn nú sigri hrósandi, að við sæjum um að hann
tapaði þessari keppnj og verði sér þar á ofan til ærlegrar
skammar ....
SKOTTA
— Skotta er í framför! Áður heimtaði hún peninga, nú lætur
hún senda mér reikninga!
LEDURJAKKAR
RÚSKINNSJAKKAR
fyrir herra
fyrir drengi
Verð frá kr. 1690,00
VIDCERDIR
LEÐURVERKSTÆÐI
ÚLFARS ATLAS0NAR
Bröttugötu 3 B
Sími 24678,
Leðurjakkar — Sjóliðajakkar
á stúlkur og drengi — Terylenebuxur, stretch-
buxur, gallabuxur og peysur.
GÓÐAR VÖRUR — GOTT VERÐ
Verzlunin O. L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).