Þjóðviljinn - 29.06.1966, Blaðsíða 1
OVIUINN
Miðvikudagur 29. júní |1966 — 31. árgangur — ,141. tölublað.
Leppfyrirtækið ISAL var
stofnað hér í gærmorgun
Fimm íslendingar
taka að sér þjón-
ustustörf fyrir
svissneska auð-
hringinn
□ Fyrirtækið ISAL var
stofnað formlega í gær
— en það er sem kunn-
ugt er leppfyrirtæki
svissneska auðhringsins
Swiss Aluminium. Félag
þetta mun starfrækja al-
úmínbræðsluna við
Straum, og þegar í gær
undirrituðu fulltrúar fé-
lagsins orkusölusamn. við
formann Landsvirkjunar,
lóða og hafnarsamning
við fulltrúa Hafnarfjarð-
arhæjar og viðbótar-
samning um teikningu
og byggingu alúmín-
bræðslunnar, rekstur
hennar og sölu fram-
Undirskriftir: Jóhann Hafstein, P. Miiller og E. Meyer.
VIÐTOL A BAKSIÐU
□ Myndin er af nokkrum forystnmonnum verkalýðsfé-
□ laganna á Suður- ag Norðurlandi. Frá vinstri: Bjöm
□ Jónsson formaður Verkalýðsfélagsins Einingar á Ak-
□ ureyri, Ragnar Guðleifsson formaður Verkalýðis- og
□ sjómannafélags Keflavíkur, Eðvarð Sigurðsson foir-
□ maður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar í Reykjavík,
□ Hermann Guðmundsson formaður Verkamannafélags-
□ ins Hlífar í Hafnarfirði og Jóna Guðjónsdóttir for-.
□ maður Verkakvennafélagsins Framsóknar í Reykjavík.
□ — Á baksíðu eru birt stutt viðtöl við þá Bjöm og Eð-
□ varð um hina nýju bráðabirgðasamninga.
Hreppsnefndarkosningar á sunnudaginn:
Stórsigur lista
verkalýðsfélags-
ins á Vopnafirði
□ í hreppsnefndarkosningunum á Vopnafirði sl. sunnu-
dag vann H-listinn, listi verkalýðsfélagsins þar á staðn-
um, mikinn sigur, fékk 139 atkvæði og 3 menn kjörna af
7 sem sæti eiga í hreppsnefndinni. Framsökn tapaði
nú meirilhluta sínum í hreppsnefndinni og íhaidið tapaði
um þriöjungi af atkvæðamagni sínu.
leiðsluiutar. Samkvæmt
ákvörðun alþingis mun
svissneska leppfélagið
ISAL njóta allra réttinda
íslenzkra hlutafélaga hér
á landi, en þegar að
skyldunum kemur hefur
það heimild til að vísa
deilumálum til erlendra
dómstóla.
Fimm Islendingar hafa tekið
sæti í stjóm leppfélagsíns. Eru
tveir þeirra tilnefndir af ríkis-
stjórninni, Magnús Ástmarsson
Alþýðuflokksleiðtogi og Hjörtur
Torfason lögfræðingur, félagi Eyj-
ólfs Konráðs Jónssonar Morgunr
blaðsritstjóra við rekstur lög-
fræðiskrifstofu hér í borg. Tii-
nefndir af Svisslendingum eru
þessir lslendingar: Sigurður Hall-
dórsson verkfræðingur sem Iátið
hefur allmikið a‘ð sér kveða . við
hemámsframkvæmdir, Gunnar J.
Friðriksson formaður Félags ísl.
iðnrekenda og Halldór Jónsson
Framhald á 3. síðu.
■þ/2% grunnkaupshœkkun - 0.25% orlofsfé
Búið er að samþykkja bráðabirgða
samningana víðsvegar um landið
□ Bráðabirgðasamningur milli einstákra verkalýðsfélaga og atvinnurekenda
á grundvelli rammasamningsins á dögunum hefur nú verið samþykktur í
félögum víða um land- og samþykktu til dæmis félagsfundir hjá Dagshrún,
Hiningu og Hlíf þennan samning í fyrrakvöld. (
□ Meginefni þessara samninga er 3,5% grunnkaúpshækkun, 0,25% gjald
í orlofssjóð — og nokkrar tilfærslur á töxtum hjá einsfökum verkalýðsfé-
lögum, eru það almennar taxtatilfærslnr í skipavinnu og pakkhúsum.
□ Þessir samningar renna út án uppsagnar fyrsta október næstkomandi.
boðið upp á húsnæði til samn-
• Framhald á 7. síðu
Urslit hreppsneíndarkosning-
anna í Vopnafirði urðu annars
sem hér segir:
B-listi, Framsóknar, hlaut 161
atkvæði og 3 menn kjörna. Við
hreppsnefndarkosningarnar 1962
hlutu Framsóknarmenn 164 at-
kvæði og 4 menn kjörna.
'D-Iisti, Sjálfstæðisflokksins,
lilaut 53 atkvæði og ernn mann
kjörinn. Við kosningarnar 1962
hlutu Sjálfstæðismenn 79 at-
kvæði og einn mann.
H-listi, Verkalýðsfélags Vopna-
fjarðar, hlaut 139 atkvæði og 3
menn kjörna. Við kosningarnar
fyrir fjórum árum hlaut listi
verkalýðsfélagsins 82 atkvæði og
2 menn kjörna.
í hreppsnefnd Vopnafjarðar
eiga nú sæti. Af H-lista þeir
Davíð Vigfússon, Steingrímur
Sæmundsson og Gísli Jónsson
frá Múla. Af B-Iista: Páll Met-
úsalemsson, .Sigurjón Þorbergs-
Slökkviliðið var í gærkvöld
kvatt að Nökkvavogi, þai sem
kviknaðhafði í timburhúsi. Tókst
fljótlega að slökkva eldinn og
skemmdir urðu litlar.
son og Hrekin Sveinsson. Af D-
lista: Jósef Guðjónsson.
Breytmgar
ó vinnutíma
við höfnina
Á sérstökam samningafundi
milli Dagsbrúnar og atvinnurek-
enda um sérkröfur Dagsbrúnar
síðastliðinn föstudag var gefin
út sameiginleg yfirlýsing af
beggja hálfu, svohljóðandi:
„Undirritaðir aðilar eru sam-
mála um að skipa nefnd, er nú
þegar taki til athugunar breyt-
ingu á vinnutíma og-. vinnutil-
högiun við Reykjavíkurhöfn.
Nefndin skal skipuð sex mönn-
um, — þrem tilnefndum af
Verkamannafélaginu Dagsbrún
og þrem mönnum tilnefndum af
Vinnuveitendafélagi íslands og
Vinnumálasambandi samvinnu-
féláganna. Nefndin skal skilatil-
lögum hið fyrsta og eígi síðar
en 20. júlí næstkomandi.“
Skattskráin lögð
fram á morgun
Skattskrá Reykjavíkur verður
lögð fram á morgunj fimmtu-
daginn 30. júní og síðan liggur
hún frammi næsta hálfa mán-
uðinn þar til kærufrestur er út-
runninn. — Á öðrum stað í blað-
inu er birt auglýping frá skatt-
stjóra um framlagningu skatt-
skrárinnar.
Rámmasamningurinn
| ins ljós á fimmtudag
sá (&gs-
í síðustu
viku og þegar daginn eftir voru
mættir fulltrúar Dagsbrúnar og
fulltrúar Vinnuveitendasam-
bandsins og Vinnumálasam-
bandsins og var setið að samn-
ingafundi allan daginn um sér-
mál Dagsbrúnar.
Á laugardagsmorgun voru
mættir fjörutíu fulltrúar frá tutt-
ugu félögum á svæðinu frá Vest-
mannaeyjum til Stykkishólms og
sátu þessir fulltrúar sarneiginleg-
an fund um 'eina klukkustund
fyrir hádegi til þess að setja sig
inn í ákvæði rammasamningsins.
Klukkan tvö á laugardag hófst
svo samningafundur milli þess-
ara fjönutíu fulltrúa og atvinnu-
rekenda hér í Reykjavík og utan
af landi. Stóð þessi samninga-
fundur linnulaust til klukkan
hálf sex að sunnudagsmorgni og
voru þá samningar undirritaðir
með fyrirvara um samþykki fé-
lagsfunda.
Það er álit manna, að hér hafi
verið gengið rösklega til verks
með tilliti til þeirra fjölda félaga
er hlut áttu að máli.
Og nú gátu verkalýðsfélögin
Dagsbrúnarmenn ítreka mót- j
mælin gegn verðhækkunum
Eftirfarandi ályktun var samþykkt ein-
róma á fundi þeim í Verkamannafélaginu
Dagsbrún 27. þ.m., er samþykkti hina ný-
gerðu kjarasamninga:
„Fundur í Verkamannafélaginu Dagsbrún,
haldinn 27. júní 1966, ítrekar fyrri mótmæli
félagsins gegn þeim stöðugu verðhækkun-
um á nauðsynjavörum almennings, sem átt
hafa sér stað á liðnu samningstímabili, þrátt
fyrir fyrirheit um hið gagnstæða. Fundur-
inn varar eindregið við því, að kjarabætur
verkafólks, hversu smávægilegar sem þær
eru, séu sífellt notaðar sem átylla fyrir nýj-
um hækkunum, en slík þróun hlýtur að
grafa undan öllum gerðum kjarasamning-
um.
Þá vill fundurinn, að gefnu tilefni, mót-
mæla því, að útflutningsvandamál landbún-
aðar verði leyst að einhverju leyti með því
að hækka verð á búvörum til neytenda inn-
anlands."