Þjóðviljinn - 29.06.1966, Blaðsíða 4
0
4 SÍÐA — ÞJÖÐVTlaJINN — Miðvikudagur 29. Júní 1966
Otgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósialistaflokk-
urixm.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guömundsson.
Fréttaiitstj6ri:,Siguröur V. Friðþjófsson.
Auglýslngast].: Þorva’dur J<M'annesson.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söluverð kr. 5.00.
Omurieg þróun
jKegar viðreisnarstjómin tók við voru allir tog-
* arar landsins hagnýttir af kappi," nær fimmtíu
talsins. Nú eru aðeins rúmlega tuttugu gerðir út;
síðast hefur Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan h.f.
lagt fjórum togurum sínurn og boðið þá til sölu
fyrir brotajárnsverð. Viðbrögð þeirra togaraút-
gQrðarmanna sem eftir standa bera með sér að svo
getur farið á mjög skömmum tíma að togaraútgerð
leggist gersamlega niður. íslendingar sem fyrir
tveimur áratugum höfðu forustu í togaraútgerð á
Norður-Atlanzhafi eru nú að dragast aftur úr
öllum.
HPogaraútg^rðarmenn tilgreina ýmsar „eðlilegar“
ástæður fyrir þessari þróun, og skulu þeir erf-
iðleikar sízt vefengdir. Engu að síður er það stað-
reynd að hjá þeim fiskveiðiþjóðum sem næstar
okkur eru og hagnýta sömu mið og við hefur orðið
mjög ör þróun í togaraútgerð á undanförnum ár-
um, og afkoma fogaraflotans hefur verið góð; má
í því sambandi nefna Breta, Norðmenn og Fær-
eyinga. Erfiðleikar íslenzku togaraútgerðarinnar
eru fyrst og fremst af mannavöldum, annarsveg-
ar óðaverðbólguþróun innanlands sem í sífellu hef-
ur grafið undan framleiðsluatvinnuvegunum, hins-
vegar algert sinnuleysi um nauðsynlega endurnýj-
un togaraflotans. Ár eftir ár hafa Alþýðubanda-
lagsmenn flutt um það tillögur á þingi og í borgar-
stjóm Reykjavíkur að togaraflotinn væri endur-
nýjaður stig af stigi, nýjustu gerðir kannaðar og
hagnýt'tar við íslenzkar aðstæður, en þær tillög-
ur hafa engar undirtektir fengið hjá valdhöfun-
um. Þeir hafa horft á það sljóum augum að af-
kastamestu veiðiskipin yrðu að forngripum.
/"|ft er um það rætf að fjölbreytileiki sé nauðsyn-
” legur í atvinnulífi íslendinga, og á það við um
fiskveiðar og fiskiðnað ekki síður en annað. Að-
stæður breytast í sífellu, og við þurfum að hag-
nýta allar tegundir skipa og hverskyns veiðitækni.
Samt hefur þróunin orðið sú að undanförnu að
allt hefur beinzt að því að hremma sem mest
magn af síld, en aðrar greinar fiskveiða hafa verið
látnar úreltast, og á það auk togaranna við um
' báta sem eru undir 120 lestir að stærð. í þessari
einhæfu þróun birtist fráleitt fyrirhyggjuleysi
stjómarvalda sem kann að hafa mjög alvarlegar
afleiðingar.
IT'n stjórnarvöldin hafa ekki mátt vera að því
■*-J að sinna íslenzkum sjávarútvegi. Þau hafa ver-
ið önnum kafin við að semja við erlent stórveldi
um nýjar herstöðvar á íslandi og laða erlenda auð-
hringa til landsins með tilboðum um ódýrustu raf-
orku í he'imi og hverskyns fríðindi önnur. Stjórn-
arvöldin virðast gera sér þær hugmyndir um fram-
tíð íslenzku þjóðarinnar, að atvinnuvegir hennar
megi koðna niður af fyrirhyggjuleysi og óstjórn;
útlendingar geti tekið við. — m.
□ Þrjú íslandsmet voru sett á sundmeisfara-
móti íslands sem háð var í Neskaupstað um síð-
ustu helgi: Guðmundur Gíslason ÍR synti 100
m skriðsund á 56,7 sek., sveit Ármanns náði
tímanum 4.56,8 mín í 4x100 m boðsundi (skrið-
sundi) kvenna og 5.46,9 mín. í 4x100 m fjórsundi
kvenn^.
SuncfmeisfaramófiS i NeskaupsfaS:
Þrjú Islandsmet sett, Hrafnhildur,
Guðmundur og Davíð sigursæíust
□ Davíð Valgarðsson frá
Keflavík vann bezta afrek
mótsins, synti 100 m flugsund
á 1.03,1 mín. sem gcfur 991
stig samkvæmt stigatöflu.
□ Flest meistarastig cinstakl-
inga hlaut Hrafnhiidur Guð-
mundsdóttir ÍR eða fimm tals-
ins og hún hlaut einnig Kol-
brúnarbikarinn fyrir bezta
sundafrek unnið á sundmóti
frá siðasta meistaramóti — að
þessu sinni fyrir að synda 100
m bringusund á 1.21,3 mín.
sem er ágætt afrek.
Þá er þess að geta að Hrafn-
hildur Kristjánsdóttir setti nýtt
stúlknamet í 400 m skriðsundi,
synti vegalengdina á 5.33,1 mín.
Þetta var í fyrsta skipti sem
Islandsmeistaramót er háð á
Austurlandi. Alls var keppt í
14 meistaragreinum í Neskaup-
stað og sigruðu þau Hrafnhild-
-<*>
Meistaramót Reykjavíkur
fer fram í dag og á morgun
Meistaramót Reykjavíkur
1966 í frjálsíþróttum (aðalhluti)
fer fram á Laugardalsvellinum
í kvöld miðvikudaginn 29. og
á morgun fimmtud. 30. júní,
og hefst klukkan 8 bæði kvöld-
in.
Mótið er stigakeppni milli
Reykjavíkurfélaganna, jafn-
framt sem það er keppni um
meistaratitla í hinum ýmsu
greinum. Lokið er keppni í
fyrstu tveimur hlutum móts-
ins, þ.e. í fimmtarþraut, tug-
þraut, 3000 m hindrunarhlaupi
og '10000 m hlaupi, og standa
stigin þannig, að IR hefur hlot-
ið 9 stig, en KR 43.
1 aðalhluta mótsins taka þátt
54 keppendur frá Reykjavíkur-
félögunum, 22 frá hvoru félagi,
IR og KR, en 10 frá Árman ii,
en auk þessa fólks keppa sem
gestir í mótinu 2 Hafnfirðing-
Happdrætti KKÍ
Þann 15. júní sl. var dregið
í happdrætti KKl á skrifstofu
borgarfógeta í Reykjavík.
Eftirtalin númer komu upp:
219 Volkswagenbifreið (VW-
1300), 242 Vinningur að verð-
mæti kr. 5.0000.00, 324 Vinn-
ingur að verðmæti kr. 5.000.00.
Handhafar ofangreindra miða
vinsamlegast hafi samband við
Gunnar Petersen í síma 17414
eftir kl. 19.00 á kvöldin.
ar og 12 Kópavogsibúar, en í
aðalhluta mótsins keppa bæði
karlar og konur.
Fyrri daginn er keppt í þess-
um greinum og með þessum
keppendum:
200 m hlaup:
Einar Hjaltason, A, Jón
öm Arnarson, Á, Ragnar
^Guðmundsson, Á Helgi.Hólm,
iR, Skafti Þorgrímsson, ÍR,
Ólafur Guðmundsson, KR,
Valbjörn Þorláksson, KR, Páll
Eiríksson, KR og Þórarinn^
Ragnarsson, KR.
800 m hlaup:
Þórarinn Arnórsson, lR, Agn-
ar Levý, KR, Halldór Guð-
björnsson, KR, Þórarinn
Ragnarsson, KR, Þorsteinn
Þorstcinsson, KR, Trausti
Sveinsson, FH og Þórður
Guðmundsson, UBK.
5000 m hlaup:
Agnar Levý og Kristleifur
Guðbjömsson, báðir úr KR.
400 m grindahlaup:
Hjörleifur Bergsteinsson, Á,
Gísli Guðjónsson, IR, Helgi
Hólm, IR, Þórarinn Amórs-
son, IR, Halldór Guðbjöms-
son, KR, Valbjörn Þorláksson,
KR og Trausti Sveinsson,
FH. y
Hástökk:
Ágúst Þórhallsson, Á, Hróð-
mar Helgason, Á, Sigurður
Lárusson, Á, Agnar Friðriks-
son, IR, Einar Þorgrímsson,
ÍR, Erlendur Valdimarsson,
IR, Helgi Hólm, IR, Jón Þ.
Ólafsson, IR, Kjartan Guð-
jónsson, IR, Dónaldur Jó-
hannesson, UBK.
Langstökk:
Hróðmar Helgason, Á, Ragn-
ar Guðmundsson, Á, ,Einar
Þorgrímsson, IR Jón Þ. Ölafs-
Framhald á 7. síðu.
Davíð Valgarðsson
ur Guðmundsdóttir, Guðmundur
Gíslason og Davíð Valgarðsson
í ellefu þeirra.
Að mótinu loknu efndi bæ]-
arstjóm Neskaupstaðar til sam-
sætis fyrir keppendur og starfs-
menn. Voru þar margar ræður
fluttar og verðlaun afhent. '
Meðan á meistaramótinu- stóð
var sundþing háð í Neskaup-
stað.
Óvissan eykst
í fyrstu deild
Um síðustu helgi voru tveii kappleikir háðir í 1. deild
íslandsmótsins í knattspymu:
Á Akureyri sigruðu heimamenn Akumesinga með 2 mörk-
um gegn einu.
Á Njarðvíkurvelli sigruðu Keflvíkingar KR-inga með 2
mörkum gegn einu.
an í deildinni er nú þessi að 10 leikjum loknum:
Félög L. U. J. T. Mörk STIG
VALUR 4 2 1 1 8:3 5
aKRANES 4 1 2 1 5:5 4
KEFLAVÍK 3 1 1 1 4:4' 3
K.R. 3 1 1 1 3:3 3
AKUREYRI 3 1 1 1 3:5 3
ÞRÓTTUR 3 0 2 1 3:6 2
LS. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10.
NOREGUR.
14—16 dagar að jafnaði.
Verð frá kr. 11.500,00
til 14.300,00.
FLOGIÐ STRAX
FARGJALD
GREITT SÍÐAR
Ferðaskrifstofa vor og norska ferða&krifstofan FOLKE
FERIE, bjóðá upp á ferð um Noreg f Sogn, Geirang-
ursfjörð, Austurlandið, Harðangursfjörð, Norðurfjörð.
Sunnmærisalpa, Bergen, Suðurlandið, Stavanger, Jöt-
unheima, Þelamörk, Mæri, Romsdal, Þrándheim, svo
nokkuð sé nefnt. Flogið laugardaga eða þriðjudaga
KEF—OSL en OSL—KEF mánudaga og miðvikudaga.
Möguleikar á frávikum ýfirleitt tvær skoðunarferðir
i hverri ferð (LS)- Dvalizt á hótelum á milli í Oslo
‘allt upp í 3 daga. Allt innifalið í verði. Kynnið ykkur
ferðaáætlunina. Noregur heillar. Takmarkaður sæta-
fjöldi.
LAN □ S9Nt
FERÐASK RIJST O FA
LAUGAVEG 54 - SlMAR 22890 & 22875 -BOX 465
1