Þjóðviljinn - 06.07.1966, Blaðsíða 8
J^-Sffi^^iÞUÖÍ>VILJINN — MiSvifctidagar 8. JSK 1906.
WILLIAM MULVIHIL -*■ ■ - •' •' . ■ r ' L
|FLUGVÉ |HVERFU Lza | R |
i
byssunni sinni. Tvaer dagleiðir
héðan gerði hann það sama við
mig. Trúirðu mér ekki?
Grace Monckton lét fallast
niður í sandinn. Þetta getur ekki
verið.satt Mike. Þetta hlýtur að
vera vitleysa. Það verður að
vera vitleysa.
— Þú verður að trúa mér,
sagði Bain.
Hún horfði lengi á hann. Ég
veit ekki. Hann er dálítið til-
litslaus. Hann gæti gert eitthvað
þessu líkt. En hún elskaði hann.
Hann átti hana.
— Vantar þig vatn? ‘ spurði
Bain. Hann benti á flöskuna og
iémt skumið.
— Já.
— Við skulum þá ná í það og
fara aftur í hellinn, sagði Bain.
Við verðum að vera þar, þegar
hann kemur aftur. Ég verð að ná
af honum byssunni. Hann drep-
ur mig, ef ég verð ekki fyrri til.
— Ætlarðu . að drcpa hann?
sagði Gráce.
• — Ef ég má tii. sagði Bain.
— Hvað aetlarðu að gera?
— Ég veit það ekki. Ég ætti
að drepa hann, býst ég við, en
ég er enginn maður til að lífláta
annan mann. ekki einu sinni
hann.
— Ég get ekki trúað þessu,
sagði Grace.
— Það eru miklar líkur fyrir
því að O'Brien verði sá eini sem
'eftir lifir,. sagði Bain. Einhver
flýgur hér yfir. O'Brien bíður.
Aleinn. Hann segir síðan frá
•flugslysinu og hvernig við höf-
---------7—-------------------1
Hársreíðslan
-----------------------------i
Hárgreiðslu-' og snyrtistofa
| Steinti ov
| Laugavegi 18 ITI hæfl Oyfta)
-SfMI 24-6-16.
P E R IVT A
Hárgreiðslu- o? snvrtistofa
Garðsenda 2l' SÍMI 33-968
DÖ M U R
Hárgreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10. Vonarstrætls-
megin — Simi 14-6-62.
Hárgreiðsiustofa
Austurbæiar
Maria Guðmundsdóttir
Laugavegi 13 — Simi 14-6-58
Nuddstofan er á sama stað.
um dáið hvert af öðru. Grimmel-
mann dó af eitri, ég af slöngubiti
og þú úr sólsting. O'Brien lifir
einn.
Það fór hrollur um Grace.
Hættu. Mike. Þetta er of ó-
hugnanlegt. Þetta var óhugs-
andi ....
Þau flýttu sér burt frá- tjörn-
inni.
Hún velti því fyrir sér, hvort
Grimmelmann hefði dáið af slysi.
Hún hafði haft sínar grunsemd-
ir, þegar hún sá að 0‘Brien kom
áleinn til baka, en hún hafði
stuggað slíkum hugsunum frá
sér, af því að hún þurfti á hon-
um að halda.
51
Þau biðu eftir O'Brien ít»b 1
hellinum.
Hann kom. Grace stóð í rtiunn-
anum með hendur á mjöðmum
og sá til hans langt í burtu.
Elskhuga síns.
— Þarna kemur hann, sagði
hún rólega, og inni í myrkrinu
fylltist Bain skelfingu; höndin
sem hélt um skrúflykilinn var
blaut af svita. Ef illa færi, væri
hann bráðum dauður, og hann
langaði ekki til að deyja núna
þegar hann hafði lifað svo margt
af: flugslysið. fyrstu skelfingar-
vikuna með hitasétt o,g vanlíð-
an, þegar hann óskaði þess eins
að fá að deyja. Hann hnipraði
sig saman í myrkrinu og bað
þess að hann mætti sigra 0‘Bri-
en í þetta sinn.
0‘Brien kom. Berfættur, hatt-
laus og skyrtulaus, stæltur, síð-
hærður, með þjálfaða vöðva og
kolbrúnn eftir afríkusólina —
maður sem hertist við hverja
raun.
— Nú er hann alveg að koma,
sagði Grace. Hún stóð og beið
og velti fyrir sér hvort hún gæti
] þetta. Nú var O'Brien hundrað
metra í burtu. fimmtíu metra,
tuttugu og fimm. Hann hélt á
úttroðnum poka í hendinni.
Tsama-melónur. Hann lyfti þeim
upp. i
— Ég fann fyrirtaks melónur,
sagði hann.
Hann kom nær og stóð and-
spænis henni með byssuna í
annarri hendi og pokann í
hinni. Hann laut niður, kýssti
hana á munninn og hálsinn.
Hann ætlaði inn f hellinn.
— O'Brien?
Hann snerí sér við gremjuleg-
ur á svip.
— Ég þarf að segja þér dálítið.
O'Brien beið. Hann vildi
komast inn í hellinn til að fá sér
að drekka og hvíla sig.
— Ég er búin að hugsa mikið
um Grimmelmann, sagði hún.
Húr> dró djúpt andann. Ég held
þú hafir drepið hann. Hún varð
að fá að vita það áður en hún
hfeypti honum inn í hellinn til
Bains sem beið í myrkrinu.
— Ég drap hann ekki, sagði
O'Brien.
Hún trúði honum. Hún varð að
velja millí sannleikans og ósk-
hyggju og milli mannanna
tveggja.
Hann ætlaði aftur inn í hell-
inn.
— Stanzaðu, sagði hún. Mike
Bain er þama inni. Farðu ekki
inn. Hann bíður eftir þér með
skrúflykilinn.
O'Brien lyfti byssunni og
hörfaði. Grace vék til hliðar.
Hann er þama inni í myrkrinu,
sagði hún. Hann sagði að -þú
hefðir skilið sig eftir úti í eyði-
mörkinni. Hann er illa á sig
kominn og ímyndar sér allt
mögulegt. Við verðum að hjálpa
honum .... Hánn heidur að þú
ætlir að skjóta sig.
0‘Brien heyrði ekki til hennar.
Hann stanzaði og hörfaði. Það
var orðið alveg hljótt. Skordýrin
súðuðu og miskunnarlaus hitinn
skall á heitum steininum. Það
leið ein mínúta. Tvær.
Mike Bain kom útúr hellinum.
Hann stanzaði og leit af Grace
Og á O'Prien. Hann riðaði, skít-
ugur, ^tfp^ííjaður og tötrum
klæddur maðuri. sem pírði augun
í sterku sólskininu. Vinstri hönd-
inn var knýtt; í hinni hægri hélt
hann á skrúflyklinum.
— Segðu henni sannleikann,
sagði hann. Hann gekk beint til
móts við stóra manninn.
O'Brien færði sig f jær. Komdu
ekki nær. sagði hann. Varaðu
þig. Ég aðvara þig.
En Bain stanzaði ekki. Segðu
henni sannleikann! Hann kom
nær, reiddi Upp skrúflykilinn og
hélt vinstri hnefanum fram.
O'Brien hörfaði. Komdu ekki
nær mér, Bain, eða ég get gert
þér mein. Þú hefur verið of lengi
úti i sólinni; þú ert veikur.
Legðu frá þér skrúflykilinn.
Grace kjökraði og hljóp til
Bains. Hún greip í handlegginn
á honum; sem swöggvast var
hann vamaríaus. 0‘Brien hljóp
í áttina til hans.
Hann bAlvaði og fleygði Grace
til hliðar í ofsareiði. Stúlkan
datt um koll í sandinn. Bain
vék til hliðar og beið eftir 0‘Bri-
en með skrúflykilinn á lofti.
Þrekni maðurinn stanzaði. Það
voru tíu fet á milli þeirra.
— Ég skýt þig, sagði O'Brien.
Legðu frá þér skrúflykilinn eða
ég drep þig. Hann var hræddur
um að skrúflykillinn myndi eyði-
leggja byssuna. Ef Bain hlypi
fram og slægi í hlaupið. yrði hún
ónothæf.
Hann laut niður og lagði
byssuna í sandinn, svo reis hann
upp.
Grace Monckton settist upp.
Fjallið ruggaði fyrir ofan hana;
sólirnar voru tvær, jörðin var á
hreyfingu undir henni. Hana
verkjaði í olnbogann. Hún neri
hann og sá að húðin hafði fletzt
af og það blæddi úr.
Hún reis upp og gekk til Mike
og 0‘Briens, hún hrópaði til
þeirra. Hana svimaði og hún
missti jafnvægið og datt aftur
útaf í sandinn.
Hún sá Bain og O'Brien ganga
í hringi hvor um annan eins og
hnefaleikamenn á palli. Skrúf-
lykill Bains glóði í sólinni.
Þrekni maðurinn var vopnlaus.
En um Ifeið og hann næði taki
á Bain, gæti þetta aðeins farið
á einn veg. Hann var svo stór og
sterkur að hann gæti auðveld-
lega lyft Bain hátt í loft upp og
slengt honum frá sér með helj-
arafli.
Þá gerði hann árás og þreif
eftir skrúflyklinum. Bain hikaði
andartak, svo opnaði hann
vinstri lófann og fleygði fínum
sandinum innanúr hellinum
beint í andlitið á 0‘Brien. Hann
sneri sér í heilan hring með
bakið að O'Brien sem í svipinn
var blindaður af sandinum.
Skrúflykilinn hitti svarthærðan
kollinn. O'Brien steig eitt skref
og valt um koll.
Grace deplaði augunum. Bain
hafði sigrað. O'Brien hafði van-
metið hann. Ef til vill hafði hún
einnig gert það. Ef til hafði hann
veríð að segja satt .... O'Brien
hafði verið hræddur við hann,
undarlega hræddur.
Hún stóð á fætur og gekk til
Bains.
@ntinenlal
Útvegum eftir beiðni
flestar stærðir h|ólbarða
á jarðvinnslutæki
Önnumst ísuður og
viðgerðir á flestum stærðum
GúmmívÉnnustofan h.f.
Skipholti 35 - Sími 30688
og 31055
SKOTTA
— Er Donni í símanum? Segðu honum að horfa á sjónvarpið
og læra eitthvað!
FERÐIST MEÐ LANDSÝN.
Landsýn býður upp á alla hugsanlega ferða-
þjónustu innan lands og utan, með flugvélum,
skipum, iárnbrautum og bifreiðum smáum sem
stórum, — sér um útvegun hófela og leigubif-
reiða hvort heldur er með eða án bílstjóra, —
útvegar leiðsögumenn fil lengri eða skemmri
ferða-, útvegar vegabréfsáritun og sækir urh
gjaldeyri svo nokkuð sé nefnt.
Landsýn býður upp á lægra verðlag méð hverju
ári og hagkvæm kjör, svo sem lánakjör Loftleiða
— „Flogið strax — fargjald greitf síðar“.
Takið ekki ákvörðun um ferðina án þess að leifa
upplýsinga fyrst hjá Landsýn.
REISEBURO
Intourist
LAN DSid N 1-
FERÐASKRIFSTOFA
LAUGAVEG 54 - SfMAR 22890 & 22875 -BOX 465
þórður
sióari
4792 — Kátur hópur hefur saí'nazt saman í klúbbnum." Þórður.
Maud og Ethel sítja þar líka og hlusta á frásögn keppendanna
tveggja. Frú Hardy er í heldur verra skapi. Bobby hefur ekki
komið aftur síðan hann fór út ,í morgun. Hún hringir til ýmissa
kunningja, en enginn hefur séd hann. Nei, engan getur grunað
hvar liann er: hann situr enn í rykugu herbergi í gamla pakk-
húsinu, flæktur í spurninganet glæpamannanna. Hversvegna vildi
hann láta vinna þessi skemmdarverk? Pilturinn skilur loks að
hann má sjálfum ;ér um kenna að vera fallinn í hendur þessara
þorpara. Hann þegir.
í
LEÐURJAKKAR
RÚSKINNSJAKKAR
fyrir dömur
fyrir telpur
Verð frá kr. 1690,00
VIÐGERÐIR
LEÐURVERKSTÆÐI
ÚLFARS ATLAS0NAR
Bröttugötu 3 B
Sími 24678.