Þjóðviljinn - 06.07.1966, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 06.07.1966, Blaðsíða 3
I Miðvikttdagur 6. Júlí 1966 — ÞJÓÐVIUINN — SlÐA 3 Sósíalisminn útlægur úr Indónesíu Ráðgjafarþing Endónesa hef- ur staðfest ægivald hersins Vegna villimannlegra arása Bandaríkjamanna á miljónaborgina Hanoi, höfuðborg Norður-Vietnam, er baíinn brottflutningur óbreyttra borgara þaðan. Verða ekki aðrir eftir en þeir sem starfa bein- línis að framleiðslunni og við lóftvarnir. — Myndin: Ungt fólk í Hanoi sem hefur. hlotið þjálfun til loftvarna. , Svör við lofthernaði Bandaríkjamanna Kínver jar lofa ótakmarkaðri aðstoð við vietnamska þjóð Sovézkir æskumenn reiðubúnir að gerast sjálfboðaliðar PEKING, SAIGON, HANOI 5/7 — Dagblað alþýðunnar í Peking lýsir því yfir í dag, að Kínverjar séu reiðubúnir að' gefa það svar við útfærzlu stríðsins í Vietnam, sem Bandaríkjamenn bera ábyrgð á, að veita vietnamskri þjóð takmarkalausan stuðning í baráttu hennar. Sovézkur æsku- lýðsfrömuður segir sovézka æskumenn reiðubúna að ger- ast sjálfboðaliða í Vietnam hvenær sem beiðni um slíka aðstoð berst, Tuttugu þúsund manns fóru í mótmæla- göngu í Kyoto í Japan í dag gegn lofthemaði Bandaríkja- manna. Aðalmálgagn Kínverska komm- únistaflokksins Dagblað alþýð- unnar, segir í dag, að Kínverjar muni gera allt sem þeim þuría þykir til að hjálpa vietnömsku þjóðinni. Ef að slík réttlát hjálp myndi hafa í för með sér banda- ríska árás á Kína, munum við Elísabetar er vandlega gætt BELFAST 5/7 — f dag lýkur opinberri heimsókn Elísabetar drottningar til Belfast, höfuð- borgar Norður-írlands. Vopnað- ir lögregluþjónar voru á verði hvar sem drottning ók og lög- regluþyrlur sveimuðu yfir til að fylgjast með hugsanlegum ó- eirðamönnum. Pípulagningamaður einn kast- aði í gær steypuhnullungi ofan á bíl drottningar og þjónustu- stúlka kastaði að honum flösku. Bæði hafa verið handtekin og leidd fyrir rétt. taka hiklaust á móti, segir blað- ið. f leiðara blaðsins segir, að eftir Ibftárásir Bandaríkjamanna | á Hanoi og Haiphong séu þeir j sem vilja aðstoða Vietnam í bar- * 1 áttunni við árásarmenn. ekki lengur bundnir af neinu. Það er ’ ekki Bandaríkjamanna einna að ákveða með hvaða hætti > styrj- öldin í Vietnam verður háð — þeir viðurkenna engar takmark- anir í árásarstyrjöld sinni, segir blaðið, — og aðstoð Kína við Vietnam mun þá einnig verða ó- takmörkuð. Þá ræðst blaðið á Sovétmenn af meira kappi en nokkru sinni fyrr og segir að loftárásimar á stórborgir Norður-Vietnam hafi því aðeins átt sér stað að um hefði verið samið milli Banda- ríkjamanna og sovézkra. Sovézkur æskulýðsleiðtogi sagði hinsvegar á ráðstefnu ítalskra ungkommúnista í Bologna í dag, að sovézkir sjálfboðaliðar væru reiðubúnir að berjast í Vietnam hvenær sem Vietnammenn ósk- uðu þess. Ron Clarke settí g/æsilegt heimsmet / 5000 m hlaupi STOKKHÖLMI 5/7 — Ástralski hlauparinn Ron Clarke setti nýtt og stórglæsilegt heimsmet í 5000 metra hlaupi á leikvanginum í Stokkhóhni í dag. Tími hans var 13 mín. 16,6 sek. og bætti hann heimsmet Keino frá Kenya um 7,6 sekúndur. Fyrra heimsmetið var 13 mín. 24,2 sek. 1 sama hlaupi setti Clarke nýtt heimsmet i þriggja mílna hlaupi1 — 12 mín. 50,4 sek. en hann átti sjálfur gamla. metið, 12 mín.' 52,4 sek. Clarke var einnig heimsmethafi í 5000 m. hlaupi en Keino tók metið af honum í nóvember í fyrra á móti í Well- ington. Ron Clarke var í sérflokki í þessu hlaupi og komst enginn nálægt honum. Pólverjinn Lech Bogusziewicz varð annar á tím- anum 13 mín. 51,8 sek. Fyrsti Svíinn sem kom í mark varð að láta sér nægja sjötta sætið. Fyrir hlaupið hafði Clarke lýst.því yfir. að nú myndi hann taka á öllu sem hann ætti til. DJAKARTA 5/7. Raðgjafaþing indónesískrar þjóðar hefur orðið við þeim kröfum ríkjandi herforingjaklíku í landinu að banna alla starfsemi kommúnista, banna kenningar Marx og.Engels og að svipta Súkarno ævi- langri forsetatign. Þá verður og sett á stofn sérstök nefnd sem á að taka til endurskoðunar pólitískar kenn- ingar Súkamos aðallega til að fjarlægja úr þeim fjand- skap við vestræna heimsveldisstefnu — að því er bezt verður séð. Loftárásir. Bandarískar flugvélar gerðu i dag loftárásir á þrjár olíubirgða- stöðvar og var ein þeirra ör- skammt frá Haiphong. Til átaka kom milli varðbáta frá Norður- Vietnam og bandarískra flugvéla og var ein flugvél skotin nið- ur. Tassfréttastofan skýrir frá því, að hafinn sé brottflutningur ó- breyttra borgara frá Hanoi. 1 borginni verða aðeins eftir þeir sem vinna við framleiðslustörf og loftvarnir. Japan. Dean Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna er nú í Japan og hélt í dag ræðu á japansk-banda- rískri ráðstefnu um verzlunar- mál í borginni KyotP. Með an Rusk talaði fóru um 20 þús- und manns um götur borgarinn- ar í mótmælagöngu gegn loft- árásum Bandaríkjamanna á N- Vietnam. Mörg þúsund lögreglu- menn umkringdu bygginguna þar sem Rusk talaði. < í Calcutta á Indlandi kom í þriðja sinn á fáum dögum ti' mótmælaaðgerða vegna loftárás anna í Vietnam. Brenndu kröfu göngumenn brúðu sem líktist Johnson forseta og rifu banda- ríska fánann í' tætlur fyrir utan aðsetur bandarísku upplýsinga- þjónustunnar í borginni. Ky borubrattur. Af þeim sem sendu Johnson forseta hejliaóskaskeyti í tilefni þjóðhátíðardags Bandaríkjanna í gær urðu aðeins tveir til að lýsa stuðningi við loftárásir hans á Norður-Víetnam: þeir Lúbke, forseti V-Þýzkalands og Ky, for- sætisráðherra herforingjaklík- unnar i Saigön. Ky ítrekaði ídag hrifningu sína af loftárásunum á Hanoi og Haipong, og taldi þær myndu grafa svo gjörsam- lega undan atvinnulífi Norður- Víetnam, að styrjöldinni yrði senn lokið. snren^ium NYJU DEHLI 5/7 — Indland hefur mótmælt kjarnorkuspreng- ingum Frakka á Kyrrahafi og hvetur stjórn landsins til þess að öll ríki virði Moskvusáttmál- ann um bann við kjamaspreng- ingum. Þá hefur þingið farið þess á leit við Súkarno, að gefa skýrslu um hina misheppnuðu byltingartilraun, sem gerð var í fyrra, og um að útskyra þró- un efnahagsmála í landinu. Herinn hefur bersýnilega af- ráðið að greiða öllum vinstri öflum í landinu banahögg með því að knýja fram bann á öll- um kommúnisma, marxisma og leninisma innan landamæra landsins. Þá hlýtur ákvðrðunin um skipun nefndar til að end- urskoða pólitískan boðskap Sú- karnos að vekja mikla athygii. Súkamo hefur öðrum fremur mótað pólitíska stefnu landsins og lýsti yfir því á sínum tíma, að Indónesía skyldi vera sósial- istískt ríki, fjandsamlegt heims- veldisstefnu og nýlendustefnu og hjálpa þjóðum sem væru að berjast fyrir sjálfstæði sínu. 1 álitsgerð þingsins er hins- vegar lögð áherzla á að Indó- nesía leiti eftir vinóttu við ná- granna sína, en flest grannríki eru undir vestraenum áhrifum. Hinsvegar samþykkti þingið að lýsa yfir andúð á erlendum herstöðvum í Asíu og á er- lendum afskiptum af Vietnam- deilunni. Þá er þess og látið getið að vandamál Asíu skuli leyst af Asíubúum sjálfum. Þá hefur vináttusamningi við Kínverska alþýðulýðveldið ver- ið sagt upp AFP fréttastofan skýrir svo frá að þingið hafi einnigsam- þykkt að Indónesía skuli aftur gerast aðili að S.Þ. Afall fyr- ir Wilson Kaupbindingarstefna Wil- sons hefur vakið upp mikla ólgu meðal vinstrimanna í Verkamannaflokknum brezka. Vakti það mikla at- hygli i gær að eihn af þekktustu foringjum flokks- ins, Frank Cousins, tækni- málaráðherra, sagði sig úr stjórn Wilsons þrátt fyrir miklar fortölur forsætis- ráðherrans. Cousins er nú talinn liklegastur forystu- maður vinstri arms flokks- ins, sem mun að líkindum færast mjög í aukana bæði í baráttu gegn kaupbindirg- arstefnu og gegn stuðningi Wilsons við Bandaríkja- menn í Vietnam. Bersýnilegt er að Súkarno er nú ekki annað en bandingi ráð- andi herforingjaklíku, sem leyf- ir honum að halda titli sínum um sinn vegna þess að hann var orðinn sameiningartákn í vit- und þjóðarinnar. Er Súkarno sagður hafa fallizt á allar á- kvaróanir þingsins, þó með nokkurri tregðu. Þá er sagt að hann og Nasution hershöfð- ingi, formaður þingsins, hafi SCKARNO — bandingi hersins samið um að „kosningar“ fari fram í landinu árið 1968 - - tal- ið of dýrt að reyna það fyrr. Bítlarívandræðum á Filippseyjum MANILLA 5/7 — Bítlarnir brezku hafa verið á Filippseyj- um í hljómleikaferð og vegnað þar verr en nokkru sinni fyrr. Er ástæðan talin sú fyrst og fremst, að þeir dirfðust að móðga forsetafrú landsins með því að koma ekki í boð til henn- ar og barna hennar. Fyrst átti ekki að hleypa þeim úr landinu fyrr en þeir hefðu greitt tekjuskatt. Er því varð um síðir bjargað og þeir héldu til flugvélar, voru þar fyrir 200 manns sem jusu þá svívirðing- um og kváðust aldrei vilja sjá þá framar. Ringo Starr er einn bítla sagður hafa sloppið við' ámæli. Síðar lét forseti landsins, Mar- cos, þess getið, að hann harm- aði atburðinn á flugvellinum, væri hann brot á filippískri gest- risni og stæði ekki í neinu skyn- samlegu sambandi við smáatriði málsins. Hefðu bítlar alls ekki ætlað sér að móðga stjórn lands- ins eða forsetann af ásettu ráði. Er talið að forsetinn hafi sjálfur gengizt fyrir því að bítlar sluppu úr landi áður en tekjuskattur væri greiddur. Þjoðhetja jorð- uð í Alsír ALSÍR 5/6 — Abdelkadjr emír, alsírsk þjóðhetja, sem lézt í út- legð í Sýrlandi, var í dag lagður til hinztu hvíldar í föðurland* sínu í sambandi við hátíðahöld í tilefni þess að fjögur ár eru liðin frá því að landið hlau'' sjálfstæði. Um hálf miljón manna voru viðstaddir jarðar- förina. Fundur Varsjárbandalagsríkja: Yfirlýsing um frið og öryggi í Evrópu BÚKAREST 5/ — Fundur for- ystumanna aðildarríkja Varsjár- bandalagsins hófst í höfuðborg Rúmeníu í gær. Ræddust þeir þá við í þrjár klukkustundir einslega Bréznéf, aðalritari Kommúnistaflokks Sovétríkjanna og Ceaucescu, formaður rúm- enska flokksins. En Rúmenar hafa sérskoðanir á því hver skuli verða framtíð bandalagsins og eru þeir táldir vilja að stefnt verði sem beinast að því að leysa upp hernaðarbandalög 1 Evrópu. í dag undirrituðu fulltrúar á fundinum sameiginlega yfirlýs- ingu um öryggi og frið í Evrópu. Ekki var í dag vitað nánar um einstök atriði yfirlýsingarinnar eða hvort þar kæmu fram ákveðn- ar tillögur um verndun friðar i álfunni. Því er haldið fram í Búkarest, að Ceaucescu hafi á fundinum í dag, sem stóð þrjár klukku- stundir, lagt á það mikla á- herzlu að í lokayfirlýsingu fund- arins yrði þeirri ósk beint t.il Vesturveldanna að þau eigi sam- vinnu við Austur-Evrópuiöndin um að hefja smám saman virk- ar samræður um stjómmál, efnahagsmál og menningarmál. Fundurinn er haldinn i kon- ungshöllinni sem var og biðu þar fyrir utan hundruð manna sem fögnuðu fulltrúum vel er þeir Dirtust. Frá Sovét- ríkjunum eru bæði Bréznéf og Kosygin forsætisráðherra mættir til leiks. Mðlawi — nýtt Afríkulýðveldi BLANTHYRE 5/7 - Malawi, sem hefur verið konungsríki síðan landið hlaut sjálfstæði og Elísabet drottning þjóðhöfðingi þess, verður lýðveldi á miðnætti í nótt. Dr. Hastings Banda for- sætisráðherra verður fyrsti for- seti landsins. Malawi verður ó- fram í brezka samveldinu. Land- ið hét Nyasaland meðan bað var nýlenda.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.