Þjóðviljinn - 06.07.1966, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 06.07.1966, Blaðsíða 6
g SÍÐA — ÞJÖÐVIkJINN — MirMlrodagwr 6. júS 1966. Byggingaríélag verkamanna í Reykjavík Hefur frá byrjun byggt 454 íbúðir Byggingafélag verkamanna í Reykjavík hefur byggt 454 I- búðir frá byrjun og var flutt í 32 íbúðir síðastliðið haust en þær hafði félagið reist við Ból- staðahlíð 40-44 og 32 íbúðir til viðbótar verða fokheldar innan skamms Þessar upplýsingar komu fram í skýrslu stjómar félags- ins sem formaður þess Tómas Vigfússon flutti á síðasta aðal- fundi. íbúðirnar 32 sem getið var um í brem stígahúsum og eru þar 8 , tvegg.ia herbergja 8 þriggja og 16 fjögurra her- bergja ífc áðir. Byggingarkostn- aður þessara íbúða varð í heild 22.6 milj. kr., og þar af nam lán Byggingarsjóðs verkamanna 14.4 milj. kr. Bráðlega verða fokheldar 32 íbúðir til viðbótar Dg eru þær við Bólstaðahlíð 46-50. Þetta er 13. byggingaflokkur félagsins og eru íbúðimar byggðar eftir Ktapparstfg 26. sömu teikningu og íbúðirnar í 12. byggingaflokki sem flutt var í síðastliðið haust. Úthlutun þessara íbúða stend- ur nú fyrir dyrum, um endan- legt verð þeirra er ekki vitað ennþá en samkv. lögum um verkamannabústaði eru íbúð- imar afhentar kaupendum á kostnaðarverði. Þegar þessum ibúðum er lokið, hefur félagið byggt 454 íbúðir frá byrjun. Það kom fram í skýrslu Tóm- asar, að samkv. þeim breyting- um sem geröar vóru á lögum um verkamannabústaði vorið 1965 vom hámarkslán bygg- ingasjóðs hækkuð úr 300 í 450 þúsund kr. á íbúð, en vegna mikilla verðbreytinga síðan og hækkaðs byggingarkostnaðar er enn úrbóta þörf á þessu sviði því annars hækkar útborgun þeirra sem íbúðirnar fá sem nemur hækkun byggingarkostn- aðar. Stjórn félagsins hefur nú sótt til borgarráðs um byggingar- lóðir í Fossvogi fyrir 108 íbúð- ir, segir í skýrslu stjómarinn- ar. Á aðalfundinum fór fram stjómarkosning, formaður er stjómskipaður en fjérir menn vom kosnir í aðalstjórn og 4 til vara. í aðalstjóm: Ingólf- ur Kristjánsson, Alfreð Guð- mundsson, Jóhann Eiríksson og Sigurður Kristjánsson, og vara- menn Garðar Jónsson, Svein- björn Hannesson, Eysteinn R. Jóhannsson og Ingimar Karls- son. Endurskoðendur eru Bem- hard B. Arnar og Helgi Hann- esson og varaendurskoðendur Þorvaldur Sigmundsson og Jpn Gúðmundsson. SÍLDAREFTIRUTSMENN Síldarútvegsnefnd hefir ákveöið aö ráöa til starfa á Austurlandi 1 eða 2 menn, er fylgist með framkvæmd söltunar, yfirtöku síldar til út- flutnings o. fl. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur og fyrri störf, sendist skrifstofu Síldarútvegsnefndar á Siglufirði eða Reykjavík f. 12. þ.m. SÍLDARÚTVEGSNEFND. Hluti af OSTA innrcttingu. Fallegar eldhúsinnréttingar Nýiega hcfur fyrirtækið Skorri h.f. hafið innflutning á mjög smekklegum eldhúsinn- réttíngum þýzkum, frá OSTA verksmiðjunum í V-Berlín. Eru þctta eins og aðrar tilbúnar innréttingar samstæður. einn eða fleiri skápar í hverri, og raðað saman í eldhúsið cftir eigin vali. Blaðamönnum var í gær boðið að skoða OSTA innrétt- Vér viljum fyrir hönd hús- mæðra í Skagafirði vinsamleg- ast biðja Þjóðviljann að birta eftirfarandi: Orlofsnefnd húsmæðra í Skagafirði bauð konum hér- aðsins í þriggja daga ferðalag um Suðvesturiand. Lagt var af stað frá Sauðárkróki sunnu- daginn 26. júní og farin Lax- árdalsheiði um Búðardal, Fells- strönd, Saurbæ og Skarðs- strönd. Gist í Stykkishólmi. A öðrum degi var farið kringum Snæfellsjökul, um Mýrar og Borgarnes og gist þar. Þriðja daginn var svo haldið heim- leiðis, staldrað við í Borgar- firðinum og skoðaðir nokkrir merkir sögustaðir. Frú Emma Hansen, kona inguna sem er í mjög fjöl- breyttu úrvali hvað snertir gerðir og gæði og hægt að fá bæði efri og neðri skápa mis- jafnlega hólfaða niður eftir vild. Sérstakar skápaeiningar eru fyrir kústa og hreinlætis- tæki, matvæli, pottg, diska- þurrkur, skurðarbretti, hræri- vél o.s.frv. og kostur við neðri skápa að í þeim eru hillur sem draga má út, svo ekki þarf að prófastsins að Hólum í Hjalta- dal var fararstjóri og viljum við allar þakka henni framúr- skarandi leiðsögn og umhyggju alla. Einnig þökkum vér frú Finneyju Reginbaldsdóttur, fyrir hennar góða þátt í að konurnar gætu notið hvíldar og góðrar aðbúðar á gististöð- um. Ekki skaðar hcldur að minn- ast þess, að gestgjafarnir í Stykkishólmi og Borgarnesi eru báðir góðir Skagfirðingar og tóku á móti hópnum af stakri alúð, þeim ber einnig að þakka. Fyrir hönd orlofskvenna. Húlmfríður Jónasðóttir. beygja sig og teygja þegar ná þarf til einhvers sem er innar- lega í skápnum. Þá er það og kostur við þessa innréttingu að er eldhúsið hefur verið teiknað og skápum raðað er borðplat- an smíðuð heil ofan á skápa- röðina, svo engin samskeyti myndast að ofan þar sem skápaeiningarnar mætast. Að sjálfsögðu fást svo innrétting- arnar smíðaðar utanum öll eldhúsraftæki, svo sem eldavél- ar, bakarofna. ísskápa, og fleira. Næstu tvo mánuði verður OSTA eldhúsinnréttingin til sýnis og sölu að Hraunbraut 10 í Kópavogi þar sem hefur verið raðað saman innréttingu ásamt rafmagnsáhöldum í tvö eidhús. Sölustjóri Skorra h.f. er Ölafur Gunnarsson og veitir hann upplýsingar um verð og gerðir og sér um mælingar og teikningar áhugamönnum að kostnaðarlausu. Afgreiðslufrest- ur á innréttingunni er tveir mánuðir og mun verð reynast sambærilegt við vandaða ís- lenzka mnréttingu. Fyrirtækið sér um uppsetningu skápanna. —----------------------------e> Skagfírzkar húsmæður á ferð Frá Æsku/ýðsráði KÓPA V0GS Innritun í ferðakiúbb Æskulýðsráðs, fer fram í Æsku- lýðsheimilinu að Álfhólsvegi 32 á mánudögum, miðviku- dögum og föstudögum kl. 5,30 — 6,30. — Sími: 41866. Æskulýðsfulltrúi. ÁBYRGÐ Á HÚSGÖGNUM AthugiS, að merki þetta sé á húsgögnum, sem óbyrgðarskírteini fylgir. Kaupið vönduð húsgögn. 02542 f RAMLEIÐANDI í : NO. H; IÚSGAGNAMEISTARA ÉLAGI REYKjAVÍKUR | il HÚSGAGNAMEISTARAFÉLAG REYKJAVÍKUR Tiikynning frá Skipaútgcrð rík- isins. Framvegis fyrst um sinn munum vér daglega taka ámóti venjulegri stykkjavöru á allar áætlunorhafnir skipa vorra frá Reykjavík austur um land til Siglufjarðar og einnig á allar Vestfj arðahaf nir. Varðandi stórar sendingar og vörur sem erfitt er að taka í hús, er þó nauðsynlegt að hafa samband við verkstjóra í vöru- afgreiðslu vorri áður en vörurn- ar eru fluttar til vor. Reykjavík 4. júlí 1966, Skipaútgerð ríkisins. K.R.R. í KVÖLD KL. 8.30 REYKJAVÍK - F.B.U. (Reykjavíkurúrval) (Fyns Boldspil-Union) á Laugardalsvellinum Dómari: Carl Bergmann K.S.Í. Verð aðgöngumiða: Stúka: kr. 100,00 Stæði: kr. 75,00 Börn: kr. 25,00 KAUPIÐ MIÐA TIMANLEGA Forsala aðgöngumiða við UtvegsBankann KNATTSPYRNURAÐ REÝKJAVIKUR Aðalfundur Fél. pípulagningarm. Félag pípulagningameistara hélt aðalfund sinn fyrir nokkru. Formaður félagsins, Grímur Bjarnason, flutti skýrslu stjórn- arinnar um starf félagsins á síðasta starfsári. 1 skýrslunni kom m.a. fram, að félagið flutti starfsemi sína í Skipholt 70 á síðasta ári. Epnfremur rekur félagið mælingastofu i sam- vinnu við Sveinafélag pípulagn- ingarmanna. I stjóm félagsins voru kjörn- ir: Grímur Bjarnason, formað- ur, Tryggvi Gíslason, varfor- maður, Jónas Valdemarsson, ritari, Haraldur Salómonsson, gjaldkeri og Helgi Jasonarson, meðstjórnandi. Grænlaidsferðir frá Akureyri Á sunnudaginn ílugu milli 80 og 90 ferðamenn með flugvél Loftleiða frá Akureyrir til eyj- unnar Kulusuk undan Austur- Grænlandi. Ferðamennirnir dvöldust þarna á eynni, sem er austanvert við mynni Angmag- salikfjarðar, í nokkrar klukku- stundir en síðar um kvöldið var haldið aftur til Akureyrar. Það er Ferðaskrifstofa Akur- eyrar, sem stendur fyrir þessum Grænlandsferðum í samvinnu við Loftleiðir, en næsta ferð er ráð- gerð frá Akureyri 17. júlí n.k. • Passið stelp- una mína • Dóttir Bandaríkjaforseta, Lynda Bird Johnson. er farin til Spánar í sumarleyfi: í bandaríska sendiráðið í Madrid komu skilaboö frá pabbanum — „Passið stelpuna mína“. Og jj(Égar dóttirin steig út úr flugvélinni í Madrid var þar komin svofelld móttökunefnd: sendiherrann, kona hans og tvö börn, aðstoðarmaður sendi- herra, fyfsti sendiráðsritari, blaðafulltrúi sendiráðsins, sex bandarískir leynilögreglumenn, tveir embættismenn úr utanrík- isráðuneytinu spænska og 25 blaðaljósmyndarar. 13.00 Við vinnuna. 15.00 Miðdegisútvarp. Liljukór- inn syngur. Solomon leikur Píanósónötu op 106 Hamm- erklavier, eftir Beethoven. G. Souzay syngur Söngva til unnustunnar í fjarska, eftir Beethoven. Pomponio og Zar- ate leika verk eftir Garulli, Sehubert og Gallés. 16.30 Síðdegisútvarp. P. Weston og hljómsveit leika lög eftir Romberg, þýzkir listamenn syngja og leika lög ársins 1953, Mantovani og hljóm- sveit leika suðræn lög, N. Luboff-kórinn syngur blues- lagasyrpu, The Command AU Stars leika lagasyrpuna Á- reitin ásláttarhljóðfæri. 18.00 Lög á nikkuna. T. Rom- ano leikur létt lög. W. Eriks- son og harmonikuhljómsveit leika polka og valsa. 20.00 Daglegt mál. 20.05 Efst á baugi. 20.35 Birgit Nilsson syngur lög eftir Sibelius. 20.45 Á ritstjórnarskrifstofunni, smásaga eftir Helgu Þ. Smára. Hildur Kalman les. 21.05 Lög unga fólksins. Bergur Guðnason kynnir lögin 22.15 Kvöldsagan: Dularfullur maður, Dimitrios. 22.35 Á sumarkvöldi. Guðni Guðmundsson kynnir ýmis Iög og smærri tónverk. i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.