Þjóðviljinn - 05.08.1966, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.08.1966, Blaðsíða 5
FSStadagur 5- ágúst 190« — ÞJÖÐVTLJINN — SlÐA 5 rAWA Vestur-Þjóðverji í bandarískum hermannabuningi Erlendar frétlastofur hafa á undanförnum vikum og mánuðum oft birt fregnir um að vestur-þýzkir hermenn, klæddir búningum Banda- rikjamanna, tæki þátt í bar- döffum við lieri Þjóðfrelsis- hreyfingarinnar í Vietnam. Stjórnarviildin í Bonn, Sam- bandslýðveldinu Þýzkalandi, hafa jafnan borið þessar frétt- ir til baka, en ýmsar stað- reyndir benda engu að síður til að fregnirnar séu á rökum reistar: Vestur-þýzkir her- menn og liernaðarsérfræðing- ar hafi verið sendir til Viet- nam á námskeið í meðhöndl- un nýrra vepna og til þjálf- unar í nútímahernaði og her- virkjum. Iíitt dæmi: Franz Gerhard Prediger hét maður, 27 ára gamall, frá Mannheim f Vestnr- Þýzkalandi. Myndirnar þrjár, sem þessum línum fylgja, bregða upp svipmyndum úr lífi hans og hörmulegum ævilokum. Árið 1964 kvænt- ist Franz þessi ungri stúlku, Traudel að nafni, og á mynd- inni lengst til vinstri sést hann dansa við skarfklædda brúði sína. En brátt var honum boðið upp í annarskonar dans. Franz réðst sem málaliði til Bandarikjamanna, og var sendur til Vietnam. Á mynd- inni (fremst til hægri) sést hann í hópi annarra her- manna úr sömu herdeild. Þriðja myndin, Iengst til hægri, sýnir hin bitru enda- Iok sögunnar. Hún cr tekin við slæmar aðstæður í heima- borg Franz Gerhards Predig- ers, Mannheim, í síðasta mán- uði, 15. júlí 1966. Þá voru grafnar Iikamsleifar málalið- ans Franz, sem fallið hafði íklæddur bandarískum ein- kennisbúningi í smánarstríði því sem Bandarikjamenn heyja gegn þjóðinni í Viet- nam. Öflugt lögregiulið var til kvatt meðan á útförinni stóð. Fremst við gröfina sjást ekkja Predigers og tengdamóðir. Þannig lauk sögunni um Vestur-Þjóðverjann sem klæddist bandaríska her- mannabúningnum. ’A Komið til móts við Morgunblaðsmenn Brezkir vinnu- veitendur styðja Wilson LONDON 3/8 — Brezkir vinnu- veitendur ákváðu í dag að styðja ríkisstjóm Verkamannaflokksins skilyrðislaust í stefnu verðlags- og kaupbindingar, sem fraxn- kvæmd til að freista þess að bjarga pundinu. Brezka iðnaðarmannasamband- ið, en í þvi eru 14-000 félög og 300 vinnuveitendasamtök skoraði í dag á meðlimi sína að vinna með ríkisstjóminni að þessu máli- Vinnuveitendur styðja því rik- isstjóm Verkamannaflokksins heilshugar, en fréttamenn benda á að Alþýðusambandið hafi gert fyrirvara um nokkur atriði, er það ákvað að styðja Wilson fyr- ir nokkru- Bandarískar til- lögur um breyt- ingar á Nato Washington 378 — Undimefnd í fulltrúadeild Bandaríkjaþings lagði í dag til að gagngerar end- urbætur verði gerðar á Nato- Nefndin segir að NatP hafi ekki fylgzt með framþróun í Evrópu né heiminum í heild. Tilraunir Bandaríkjamanna til að fá önur Nato lönd til lifandi samvinnu hafa verið innihalds- lausnr. Auk þess hafa Bandaríkin ekki skynjað breytingar í Evrópu nógo vel og hafa haft tiihneigingu til að skipa fyrir, segir í nefndar- áhtinu- Kommúnisminn er trúarbrögð Satans f höfuðatriðum er kommún- isminn trúarbrögð. Til útskýr- ingar skulum við setja upp svofellda líkingu. Gerum ráð fyrir að þú sért Lúsífer, son- ur morgunsins, þekktari undir nafmnu Satan, íegursti engill sem skapaður var, sem reynir stöðugt að slá augu mannanna blindu svo að þeir fái ekki séð Jesúm Krist. Hvað myndir þú taka til bragðs? Ég veit hvað ég myndi gera væri ég í þessari aðstöðu. Ég myndi búa eitthvað til, sem væri eins líkt kristindómi og hægt er, svo að fólk myndi taka við fölsuninni athugasemdalaust. Trúarbrögð eru íalsmynd Sat- ans fyrir kristindóm. Kristin- dómtn: er ekki einn af þeim stóru trúarbrögðum heimsins. Kristindómur er lifandi sam- band við persónu Jesú Krists. Kommúnisminn er trúarbrögð, sem Satan sjálfur hefur gotið í helvíti í miskunnarlausri styrjöld við kristindóm. Heilagur andi Kommúnisminn á sér guð í persónu Karls Marx. Kommún- --------------------------®> Einn á stolnum bátyfir Atlanzhaf Eftir að hafa verið sendur heim á kostnað ræðismanns- skrífstofunnar mætir rúmlega tvitugur sænskur bifvélavirki fyrir rétt í Gautaborg sakaður um grófan þjófnað. Áður hef- ur pilturinn þó unnið það af- rek að sigla einn yfir Atlanz- hafið á tæplega tíu metra löng- um seglbát- Bifvélavirkinn hafði ráðið sig sem messagutt á sænskt skip, en strauk í New York og stal þá 9,5 metra löngum segl- bát til þess að komast heim aftur. Eigandi bátsins leitar nú réttar síns- ' DEíns og kutmmgf er hefur Morgunblaðið gert 'mikið af því síðustu víkur að prenta greinar — eftir Valerí Tar- sis, Freystefn Þorbergsson og fleiri mannvitsbrekkur — um svívirfSngar heimskommúnismans. Mynd sú af fyr- irbæ'rinu, sem birtist í þessum greinum er mjög ein- föld: Kommúnisminn er hið algjöra böl, hann byggir á lygum og er stjómað með glæpum. Um leið er hann hið mikla samsæri (Vietnam) — þótt ekki sé það sam- saeri nú slóttugra en svo, að íslenzkir námsmenn í Moskvu sýá í gegmtm það eins og að drekka vatn, en sleppum því. □ í þessum greinum er og boðað til krossferðar gegn kommúnisma — Tarsis hefur sakað Vesturveldin um að hafa skorazt undan því að frelsa Ungverjaland og Pól- land undan oki kommúnismans og Freysteirm lofar „hreinsanir“ (þ.e. fjöldamorð) í Indónesíu. □ Morgunblaðið hefur síðan hamrað á því í mörgum leiðurum og staksteinum, að hér væri sannleíkurinn um kommúnismann fundinn og hefur þar með lýst því yfir, að það vilji gefa sögulega hugsun upp á bátinn gjörsamlega og setja guðfræðilegar vangaveltur í stað- inn. Við viljum sýna af okkur nokkurn félagsþroska í þessu samhandi og koma til móts við kollega okkar á því stóra blaði með því að birta eftirfarandi grein, sem er í raun réttri ekki annað en rökrétt niðurstaða af þerm forsendum sem Morgunblaðið hefur gefið sér. Því það sem er fullkomlega ílTt, það er fró djöflinum og engum öðrum. Auk þess viljum við setja þessa grein- argerð fram sem spádóm um líklega þróun utanríkis- pólitískrar hugsunar þar niðri í Aðalstræti — a.m.k. ef vandkvæði Bandaríkjamanna í Vietnam munu halda áfram að sarga taugaikerfi manna þar í húsum. □ Greinin er stytt þýðing á bæklingi eftir W. P. Strube sem starfar fyrir Andkommúnistíska Krossferð Krist- inna Manna. Menn skuhi og minntir á það, að þessi samtök hafa aðsetur í borginni Houston í Texas — ætt- landí Johnsons forseta. isminn á sér anda helgan sem gengur undir nafninu Vladímír Lenín. Ferðamenn sem koma frá Rússlandi ber saman um, að hann sé alstaðar nálægur þar, myndir af honum eru á ólíklegustu stöðum. Það er sagt að líklega séu fleiri myndir af Lenín í Rússlandi en af Kristi í Ameríku. Kommúnisminn á sér frels- ara. nefnilega Jósef Stalín. Ár- ið 1917 voru 75% Rússa ólæs- ir. f dag geta meira en 95% skrifað og lesið. Þegar Stalín hóf iðnvæðingaráætlun þeirra árið 1929 framleiddu Rússar mest í höndunum. >á fram- leiddu Bandaríkin fimmtíu sinnum meira af kolum en Rússland, í dag framleiða Rússar jafnmikið og Banda- ríkjamenn. í stálframleiðslu voru hlutföllin á afköstum landanna 11:1, í óag eru þau minna en 2:1. Þá framleiddu Bandaríkin tífalt meira af olíu, í dag fjórfalt meira. Það var Jósef Stalín sem gerði margar þær áætlanir sem breyttu Rússlandi úr ólæsu ríki 19T7 í annað tveggja mestu stórvelda heims í dag. Kommúnisminn á sér post- ula. Þeir geta heitið Krústjoff, Maó Tse-tung, Kadar, Grom- yko, Títo, Sjú En-læ og Ho Chi Minh. Eftir ferðalag til Austur-Evrópu sagði einn vin- ur minn mér, að í Grikklandi hefðu kommúnistar tekið nöfn eins og Mattheus, Markús, Lúk- as, Páll úr Nýjatestamentinu og prentað í staðins nöfn Krústjofs, Kalíníns, Mikojans og fleiri. Kommúnisminn á sér „helgar bækur“! Þær eru Das Kapital, Kommúnistaávarpið og önnur rit Marx, Engels, Leníns og Stalíns. Samkvæmt skýrslu frá UNESCO eru rit Leníns nú gefm út í fleiri eintökum en Biblían. Fögur rit Kommúnisminn á sér trú- boðsáætlun: „Farið til yztu endimarka jarðar og sigrið þau lönd í nafni kommúnismans“. Margar tilvitnanir gsetu stutt þessa formúlu. Bokin „Ragna- rök heimskapítalismans“ eftir William Z. Foster, fyrrum for- mann Kommúnistaflokks Bandaríkjanna, ber svofellda tileinkun: „Til sonarsonarsonar míns, Josephs Manley Kolko, sem mun lifa í kommúnistísk- um Bándaríkjum". Kommúnisminn á sér trú- boðsbókmenntir. Kommúnistar gefa út fallegustu áróðursrit sem heimurinn hefur séð, prenluð í fögrum litum og á fjölda tungumála. „Sovétríkin" er timarit á* stærð við „Life“ og „Look“ og er prentað í hverjum mánuði á rússnesku. ensku, kínversku, finnsku, kór- esku, rúmensku, hindú, úrdú, ungversku, serbensku, arabísku, króatísku, víetnömsku, írönsku, þýzku, spænsku og japönsku. Pappírinn er góður, ljósmyndir sömuleiðis. Ekkert sem á boð- stóhim er í blaðasölum okkar getur tekið því fram. Við höf- um lítið til að bera það sam- an við að því er varðar sið- ferðileg viðhorf. f þessum rit- um eru engir lestir, glæpir, kynferðisæsingar eða brenni- vín. Hver mynd í þessu riti sýnir hamingjusamt fólk, það er brosandi hvað sem það er annars að fást við. Kommúnistar eyða 5 milj- örðum dollara í trúboðsrit sín. Hér koma nöfn nokkurra ann- arra rita: „Þýzka alþýðulýð- veldið“, Kina“, „Sovézka kon- an“, „Rúmenía", Búlgaría“ og „Kína í myndum". Svona eru Bandaríkin Þegar ég heimsótti Mexíkó- borg nýlega sá ég þessar fögru kommúnistabókmenntir til sölu á hverju veigamiklu götuhomi. Hvað höfðu Bandaríkin í Mexíkóborg til að keppa við þessar kommúnistabókmenntir? „Tom og Jarry", „Batman“, „Superman", „Sannar sögur", „Trúnaðarmál", mikinn em- takafjölda af „Life“ með venju- legum frásögnum af ofbeldi, glæpum og uppþotum, kannski mátti rekast á „Time“. Hvaða Framhald á 7. síðu. ÖryggisráðiS vítir ekki fsrael NEW YORK 378 — Öryggferáð Sameinuðu þjóðanna felldi í dag ályktwnartillögu, sem Arabaríkin og Sovétríkin studdu og var það fordæming á Israel vegna kift- árásar 14. júli síðastliðinn á land- evæði í Sýríu. Um tillöguna greiddu ekki at- kvæði nema sex fulltrúar al fimmtán í öryggisráðinu, en níu atkvæði þarf til að ályktun sl samþykkt- Bítlarnir beita sér gegn apart- heidstefnunni Hópur hvítra manna í Suður- Afríku skýrði nýlega frá því, að Bítlamir hefðu neitað að halda höömleika í Suður-Afr- íku, enda leyfði enska hljóm- listarmannasambandið þeim ekki að halda hljómleika þar sem áheyrendum sé mismunað eftir litarhætti. Suður-afriskir kenna þetta eingöngu hljóm- listarmannasambandinu. Það Iítur víst betur út í þeim her- búðum heldur en að segja sannleikann, sem er einfaldlega sá, að Bítlamir eru persónu- lega andvígir apartheid-stefnu Suður-Afríkustjómar og lýstu því yfir skýrt og greinilega strax árið 1964- Þjéfurinn vildi halda sér vié faglega! Nýlega var maður gripinn við þjófnað í Bindal í Noregi. Mað- urinn hafði áður komizt undir manna hendur en var nú napp- aður í bókasafni þegar hann hugðist hafa á brott með sér nýjustu útgáfuna af Lagasafn- inu- Skýring þjófsins var þessi: „Maður verður að halda sér við faglega".

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.