Þjóðviljinn - 05.08.1966, Side 8

Þjóðviljinn - 05.08.1966, Side 8
g Sfl)A — Þ.IÖÐVIÍ.JINN — Föstudagur 5. ágúst Í96S. CLAUDE CATTAERT: ÞANGAÐ SEM GULL- FISKAR FARA hopptrfiu um eins og óðar væru. Ég skreið á fjórum fótum. þreif- aði eftir fiskunum og tróð þeim ofaní strandtöskuna mína. Pitou hafði aðeins hrópað: — Fari það nú sjóðbullandi! og síðan horf- ið. Enda verður maður að vera sanngjarn: honum kom þetta ekkert við. Og meðan á öllu þessu gekk, var Gilbert Bécaud að reyna að fá stúlkuna til að dansa við sig. Mér gekk bara sæmilega, þótt ein konan hafi reyndar stigið ofaná höndina á mér; til allr- ar hamingju hlýtur hún að hafa verið húsvarðarkona, því að hún var í inniskóm — og af því að ég vildi ekki sleppa strandtöskunni minni þá beit ég í öklann á henni. Hún rak upp öskur og einhver hringdi á brunaboð- ann. Það var kominn tími til að forða sér. Hópur af fólki hafði safnazt saman og ég heyrði talað um skemmdarverkamenn — þeir væru til alls vísir. Pitou beið fyrir utan eins og saklaus skóladrengur sem hefur hvorki séð neitt né gert neitt. Hann gekk á eftir mér í hæfi- legri fjarlægð, en þegar hann sá að enginn var að elta mig. kom hann til mín og byrjaði að skamma mig. — Þetta var nú meiri vitleys- an hjá þér! Mér leiðist allt fjas. — Vertu ekki að þessu, sagði ég. — Gull- fiskarnir koma mér einni við; ég hef ekki beðið þig að hjálpa mér. — Og hvað um fiskana? Held- urðu að þeim líði eitthvað sér- lega vel svona vatnslausum? Þarma náði hann sér niðri. Mér hafði ekki dottið það i hug. Ég varð hvumsa og það lík- aði honum vel. En hann var góð- ur strákur og vildi gjarnan stjórna, svo að hann bætti við: — Þú ert heppin að hafa mig með þér, ha? Rétt hjá aðalgötunum með 611- um manngrúanum eru götur þar sem varla sést nokkur maður. Tjöldin eru aldrei dregin frá, gluggamir eru alltaf lokaðir; það er næstum eins og engir eigi bílana sem standa við gangstétt- imar. Við vorum að ganga eftir einni af þessum götum, þegar Pitou stanzaði allt i einu og kraup hjá brunahana, þreifaði niður í bakpokann sinn og sótti klippurnar sem hann ætlaði að nota á gaddavírinn. Stundum sýndi hann að hann kunni sitt af hverju. Sumir af fiskunum i strand- töskunni minni voru spriklandi. en aðrir voru hættir að hreyfa sig. — Flýttu þér, sagði ég við hann. Hárgreíðslan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu of? Dófió Laugavegi 18 III hæð (lyftaj SÍMI 24-8-16. P E R M A Hárgreiðslu- oo snyrtistofa Garðsenda 21 SÍMI 33-968 D Ö M U R Hárgreiðsla við allra hæfl r.TARNARSTOFAN Tjamargötu 10. Vonarstrætis megin — Sími 14-6-62. — Láttu ekki eins og fífl, hreytti hann út úr sér. — Skil- urðu ekki að þetta er hættulegt; gáðu heldur hvort nokkur er að koma. Húsvarðarkona hallaði sér út um gluggann sinn á milli stofu- blóms og kattarsessu; hún leit á okkur og eins og aðrar hús- varðarkonur var hún ekki lengi að opna munninn. — Þið þarna krakkar — brunahanar eru engin leikföng handa ykkur. Pitou var önnum kafinn með tengurnar og hann var ekkert að skafa utan af því. — Haltu kjafti — það er það eina sem húsvarðarkonur geta, eða jagast og gjamma. Ég ætti að vita það. Hún var ekki ánægð með þetta að því er virtist og æpti sam- stundis: — Bíðið þið bara, ég skal kalla á lögregluna. Pitou sheri töngunum og vatnsbuna stóð upp í loftið og lenti á sætinu í litlum, hvítum bíl sem stóð við gangstéttina. — Þetta er bíllinn hans herra Ducrets. Ég skal svei mér segja honum þetta; þið skuluð svei mér fá fyrir ferðina! | Ég var að reyna að fylla strandtöskuna mína af vatni, en það var ekki auðvelt;/ einn gull- fiskurinn hoppaði út og þeyttist áfram með vatnsbununni eins og blaðra. Ósjálfrátt setti ég höndina yfir vatnið, bunan lenti framaní Pitou, gullfiskurinn datt í gangstéttina, lenti í straumn- um í göturæsinu og rann niður niðurfallið ásamt appelsínuberki og slitri úr dagblaði. — Svona, svona, hrópaði Pitou. — Það er að koma lögga. Við hlupum af stað, Pitou með bakpokann hoppandi á bakinu, ég með strandtöskuna milli handanna. Til allrar hamingju var hún með gúmmífóðri og hélt vatninu. Ég rakst á þokka- legan, gamlan mann, Pitou rakst á brúðu sem smátelpa hélt á og brúðan flaug upp í loftið. Við komum aftur út á aðalgötuna og stönzuðum másandi bakvið blaðasöluskúr. Ég fann fisk- ana sprikla í vatninu, en ég var að hugsa um aulann, sem hafði látið skola sér niður í göturæsið. — Jæja, sagði ég. — Við skul- um halda áfram. — Hvert? Pitou.var enn móð- ur og másandi. — Til að setja fiskana í vatn- ið. — í Signu? Það leizt mér ekki á. — Nei, hún er óhrein. Það eru engar aðrar ár í Par- ís. nema þú farir alla leið til Batignolles. Mamma á frænku sem á heima þar — það er næst- um uppi í sveit. Ég kannaðist ekki við þá á, því að ég hafði aldrei komið út úr Sextánda hverfinu. Við fórum aftur í neðanjarðarlest- ina. i hvert skipti fannst mér ég vera að koma til nýrrar borgar. Það var tær lækur sem rann á milli forboðnu grasflatanna í garðinum á torginu, gjálfrandi við sef og vatnsliljur. Brú úr múrsteinum og tilhöggnu grjóti minnti á þessi gervilandslög sem seld eru í blómabúðum.- Börn voru á hlaupum um stíg- ana þrátt fyrir hitann og drógu stóla eftir sandinum til að búa til járnbrautarteina. Mæður voru að prjóna hjá barnavögn- unum og allar gættu þær þess að krakkinn þeirra léki sér ekki við hinn litla strákinn, af ótta við að hann stæli fötu eða skóflu. Garðvörður —- einhentur í þetta sinn — hélt vörð um grasflatirnar og daufleg blóma- beðin. Ég' velti fyrir mér hvort hann verkjaði i handlegginn sem hann vantaði. — Þarna er áin, sagði Pitou. — Kallarðu þetta á? — Þetta má kalla gótt í Par- ís, og auk þess er þarna dá- lítill foss — sjáðu. Þetta er skemmtilegt. Hann var með látalæti, svo að ég greip fram í. — Þetta þýð- ir ekkert. » — En af hverju. . . .? Hún er of lítil, og auk þess .... — Hvað? — Ef ég væri gullfiskur, þá myndi mér ekki lika hún. — En þú ert ekki gullfiskur. — Nei, en ég set sjálfa mig í þeirra spor. — Það er ekki hægt. Ég held núna að hann hafi haft rétt fyrir sér, að ekki sé hægt að setja sjálfnn sig í spor annarra, ekki einu sinni fólks, og þarna þóttist ég vera að gera mig að gullfiski. Mér fannst einhvern veginn sem þeir hefðu fengið nóg af því að synda hring eftir hring í fiska- búri og þráðu það eitt að kom- ast heim til sín aftur. En hvaðan komu þeir? Enginn hafði getað sagt mér það, en ég trúði því að þegar þeir yrðu frjálsir, gætu þeir ratað heim til sín sjálfir. — Jæja? Ég varð þrá. — Nei, mér líkar þetta ekki. Pitou yppti öxlum. ■— Mér kemur það kannski ekki við. en ég verð að hitta þennan mann klukkan þrjú; það er kominn tími til að ég fari til baka — kemur þú með? Ég hafði ekkert sérstakt að gera. —- Já, sagði ég. Ég bætti dálitlu vatni í strand- töskuna mína og elti hann. En fyrst langaði mig til að kaupa dagblað til að athuga, hvort nokkuð stæði í því um örvæntingu mömmu. En hvaða blað? Pabbi sofnar yfir Le Monde, mamma lítur yfir Le Figaro, en Theresa og Susanna skipta France-Soir á milli sín, vegna „Frægra elskenda“ á bak- síðunni. Ég bað um Figaro, því að það er blaðið sem fólk les i Sextánda hverfi. Ég fékk hjart- slátt þegar ég opnaði það, en ég sá hvergi minnzt á peitt. Samt var smágrem um bam sem bíll hafði ekið yfir og önnur grein um bam sem drukknaði fyrir augtrm móður sinnar •— en sá aumingi að kunna ekki að synda! Kannski hefði ég átt að fleygja mér í Signu, en einhvern veginn fannst mér það ekki freistandi. Ég var skelfilega vonsvikin og Pitou tók eftir því. — Þú ert ósköp dauf. Hvað er að þér? — Ekki neitt. — Hélztu að nöfnin okkar stæðu í blaðinu? Til þess hefði þurft að slá okkur í kæfu. Það strjúka mörg hundruð krakkar að heiman á hverjum degi. Nú var það ég sem varð hræðilega vonsvikin. Við urðum að fara aftur með neðanjarðarlestinni, en í þétta skipti var sægur af fólki í göngunum og að troðast inn um dyrnar. Ég komst í klemmu upp við konu sem var ólétt og góndi illilega á fólkið sem hafði sæti. Ég var að reyna að vernda fiskana mína fyrir hnjaski, þeg- ar óvæntur hnykkur kastaði mér alveg upp að konunni. Ég hafði einmitt verið að brjóta heilann um það, hvort maginn á kon- um myndi ekki stundum springa, en nú fann ég einmitt að eitt- hvað lak niður fæturna á mér. Nú kemur það, hugsaði ág dau'ð- skelkuð. Hún hefur sprungið. Konan þreifaði um magann og hrópaði: — Hvað er þetta eiginlega? Fólkið var að ýta og troð- ast. Pitou hvíslaði að mér: — Það lekur úr töskunni þinni. Lestin rann inn á stöð og ég notaði tækifærið til að flýta mér að dyrunum, tróðst upp að búkum og tróð á fótum. Ein konan — magalaus — hróp- aði hneyksluð: — Þau troða mann undir þessi börn! Það verð- ur þokkalegt að eiga heima í þessu la^di þegar þau eru orð- in fulloiðin! Þegar við komum upp úr neðanjarðargöngunum ■— við vorum bara hjá Concorde — leit ég í strandtöskuna mína. Fisk- arnir sprikluðu dauflega í dá- litlum vatnsleka; sumir lágu á bakinu ósköp vansælir að sjá. Pitou yppii öxlum. — Þeir eru að sálast — ég var búinn að segja þér það. Þetta er eitt af því sem sumt fólk hefur svo gaman af að end- urtaka æ ofan í æ; það myndi skrifa það framan í mann ef það gæti. Á miðju Concordetorginu, handan við bílahjörðina, voru gosbrunnar að niða, sendu fín- gerðan úða yfir steinkerin. Ég þaut yfir meðan hjörðin var enn kyrr, en hún fór af stað þó nokkru áður en ég komst á öruggan stað hjá gosbrunnun- um Það var dálítið gaman að þjóta áfram innanum ýlfur í hemlum og öskur í fokreiðu fólki. Ég komst að einum brunn- inum og másaði eins og gömul kona. Nokkrir Ameríkanar voru að stíga út úr bil rétt hjá Óbel- iskanum með myndavélarnar limdar við augun. Ég er stund- um að velta fyrir mér hvort svona fólk horfi nokkurn tíma á nokkurn skapaðan hlut; það er alltaf að taka myndir, þegar alls staðar er hægt að fá keypt póstkort. Ég mokaði fiskunum upp, sem LEÐURJAKKAR RÚSKINNSJAKKAR fyrir herra fyrir drengi Verð frá kr. 1690,00 JASON VIÐGERBIR LEÐURVERKSTÆÐI ÚLFARS ATLASONAR Bröttugötu 3 B Sími 24678, S KOTTA — Ég geri ráð fyrir að það sé kalt í bílnum! TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRS LINDARGÖTU 9 REYKJAVÍK SÍMI 22122 — 21260 Leðurjakkar á stúlkur og drengi. ^eysur og peysuskyrtur. Góðar vörur — Gott verð. ' Verzlunin Ó. L. Trað arkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu). Gúmmívinnustofan h.f. Skipholti 35 — Símar 31055 og 30688

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.