Þjóðviljinn - 05.08.1966, Síða 10
i
1
1
Sparisjóður Reykjavíkiir ætlar aó byggja á lódinni
■\ •
Verið er að rífa gamlan og merk-
Skólavörðustíg 11
□ Enai eitt gamalt
hús er að hverfa úr
miðbænum, elzti stein-
bær í Reykjavík, reist-
ur 1859. Þetta var hús
Sveins-
Þorbjargar
dóttur ljósmóður að
Skólavörðustíg 11, —
næsta hús við tugt-
húsið.
□ Það hafði staðið*
til að lima þetta hús
gætilega í sundur og
flytja upp að Árbæ,
en nú vcrður ekki af
því; á lóðinni skal rísa
enn einn bankinn og
þá er ekki tími til að
sýta smámuni.
□ En sézt hefur til
gamalla Reykvíkinga
sem hafa komið og
horft daprir á aðfarir;
því er haldið fram að
sumum hafi vöknað
um augu.
Við hringdum í Lárus Sig-
urbjörnsson skjalavörð og
spurðum hann frétta af þessu
gamla húsi.
- Lárus sagði að vissulega
vaeri sorglegt þegar slík hús
hyrfu: — Þetta var merkilegt
hús, fyrsti steinbær í Reykja-
vík, hér bjó Þorbjörg Sveins-
dóttir Ijósmóðir, systir Bene-
dikts Sveinssonar eldra, og
frændi hennar Einar skáld
Benediktsson, var hér sm
tíma í hennar skjóli-
— Gekk þetta hús undir
einhverju sérstöku nafnimeð-
al gamalla Reykvíkinga?
— Ja, það var uppnefnt
ems og hér var piagsiður, en
við skulum láta þá nafngift
kyrra liggja að sinni.
— Hver ætiar að byggja
þarna?
Föstudagur
172. tölublað.
Búið er að svipta þakinu af clzta steinbæ 5 borginni — og hann verður ekki endurreistur.
í Árbæ-
— Sparisjóður Reykjavíkur á
þessa lóð og hafði gefið Ljós-
mæðrafélaginu húsið, og það
félag hafði síðan haft sam-
band við Árbæjarsafnið um
að það yrði flutt þangað upp-
eftir. Ég hafði, sagði Lárus,
lagt á ráðin um hvernig
flytja mætti þakið í heilu lagi,
en það hefur þegar verið tætt
í sundur, og það þýðir Jítið
seinna að koma með grjótið
hingað uppeftir síðar, því það
hefur ekki verið merkt-
Við höfðum fengið fresthjá
bankanum, en hann virðist
sem sagt útrunninn. Nýi tím-
inn ryður þessu gamla í burt
án þess að maður fái við
ráðið- Þessi nútímahraði í
byggingum er slíkur, aðmenn
virðast ekki vilja gefa sér
tíma til annars en að setja
allt undir hamarinn.
Það skal að visu viðurkennt
að það er seinlegt verk að
bjarga húsi sem þessu: sein-
legt að merkja hvem stein
til að geta fengið fram sömu
vegghleðslu og áður — Þótt
svo við hefðum getað flutt
þakið í heilu lagi.
En þó er slíkt starf unnið:
núna síðast voru frar að
bjarga Abbey-leikhusinu
gamla, þeir opnuðu það í
nýrri byggingu átjánda júli,
að því að mig minnir, en
höfðu áður tekið gömlu bygg-
inguna niður, stein fyrir stein,
til að endurreisa aftur á
byggðasafninu í Dýflinni —
sem reyndar er ekki til enn.
— Hefur verið góð aðsókn
að Árbæjarsafninu í sumar?
— Já, mjög mikil og ekki
sízt af útlendingum. Á virkum
degi fyrir skömmu skráðu 84
nöfn sín í gestabók — þaraf
voru 78 utanbæjarmenn og
útlendingar en sex Reykvík-
ingar- Það má gizka á að a.
m.k. helmingi fleiri hafi kom-
ið en skráðu sig inn- Hér er
venjulega fullt af útlending-
um virka daga sem helga, en
Reykvíkingar láta helzt sjá
sig um helgar.
Við höfum sýnt þjóðdansa
og glímur é laugardögum og
hefur það mælzt vel fyrir —
vonandi verður dansað næst
á laugardag klukkan fjögur.
Danspallurinn hefur verið
fluttur niður í brekkuna og
þar ætlum við að koma upp
smáleikhúsi- Skátar hafa lítið
látið á sér kræla hér, svo að
viþ höfum tekið skátaskálann
og breytt honum í búnings-
herbergi fyrir dansfólk og
glímumenn.
Og þið mættuð gjarna
minna fólk á það, að torf-
hleðslurnar í Árbæ eru ekki
leikföng fyrir börn, við eigum
£ stórum vandræðum með að
verja þær ágengni. Ég heyrði
til einnar frúar um síðustu
helgi, þegar börnunum henn-
ar var bannað að príla átorf-
þaki; hún sagði: „Heyrið þið
brandarann strákar, það má
ekki renna sér á þökunum“-
Brandari sagði hún, þvílíkt
uppeldi! En okkur er svo
sannarlega bláköld aivara,
því það er bæði dýrt og mik-
il fyrirhöfn að halda öllu við
sem skyldi ...
I
Vegaftjónusta FÍB
aistoiaii um 600
bíla um helgina
■ Vegaþjónusta Félags íslenzkra bifreiðaeigenda, hefur
aldrei verið jafn víðtæk og um nýafstaðna verzlunarmanna-
helgi. F.Í.B. hafði úti á þjóðvegum 17 vegaþjónustubíla óg
aðstoðuðu þeir ca. 605 bíla, auk þess sem fjölmargir bílar v
voru dregnir til nærliggjandi verkstæða eða kauptúna.
Hefur vegaþjónustan aldrei aðstoðað jafnmarga ökumenn
yfir eina helgi. Þá hafði F.Í.B. sjúkrabíl úti á þjóðvegum
og flutti hún 4 slasaðar manneskjur í sjúkrahús.
í fyrsta skipti gerði F.Í.B. út
vegaþjónustubíl frá ísafirði, og
kom hann að góðum notum, að-
stoðaði m.a. 35 ökumenn. Voru
því vegaþjónustubílar frá F.Í.B.
í öllum landsfjórðungum. Fyrir
tilstuðlan F.Í.B. voru allmörg
viðgerðarverkstæði opin yfir
verzlunarmannahelgina og leitaði
til þeirra fjöldi ökumanna.
Að venju rak F.Í.B. sérstakan
sjúkrabíl, sem útbúinn er tveim-
ur sjúkrakörfum, og var hann
einkum staðsettur á Stóru-Mörk
undir Eyjafjöllum. Flutti hann
þrjár slasaðar manneskjur, er
komu úr Þórsmörk, til Reykja-
víkur, og ennfremur var ein fót*
brotin kona sótt langleiðina inn
í Landmannalaugar og flutt til
Rvíkur. Þá aðstoðaði sjúkra-
bíllinn fjölmarga vegfarendur t.
d. með sjúkragögn
f fyrsta skiptið í sögu félags-.
ins hafði það úti á vegum yfir
verzlunarmannahelgi tvo full-
komna kranabíla, sem nýlokið
er við að byggja upp. Lyftu þeir
alls 18 bílum og fluttu flesta
þeirra til Reykjavíkur. Var ann-
ar kranabíllinn á vegum í Ár-
nessýslu en hinn í Hvalfirði og
Borgarfirði.
Það er einróma álit starfs.
manna F.Í.B., að aldrei hafi
ökutæki landsmanna verið í jafn
góðu ástandi og nú í sumar og
er það t.d. áberandi hvað dreg-
ið hefur úr öllum meiriháttar
viðgerðum úti á þjóðvegunum.
Hinsvegar virðist það aldrei
nógu oft brýnt fyrir ökumönn-
um að leggja ekki upp í lang-
ferð, án þess að hafa algeng-
ustu varahluti meðferðis. Þessir
varahlutir kosta ekki mikið fé
en geta aftur á móti sparað mik-
inn tima og fyrirhöfn. Á þetta
jafnt við um þá sem eru á nýj-
um bílum og þá sem leggja upp
í langferð á eldri bílum.
Þá var það fremur áberandi
hvað öll umferð gekk vel, og
hvað ökumenn virtu vel allar
umférðarreglur og má mest
þakka það aukinni umferðar-
fræðslu í .útvarpi og blöðum.
Að lokum vill F.Í.B. þakka
löggæzlu og skátum áp.ægjulegt
og árangursríkt samstarf og síð-
ast en ekki sízt-öllum þeim öku-
mönnum sem stuðluðu að góðri
umferðarmenningu um verzlun-
armannahelgiha með því að sýna
lipurð og kurteisi i umferðinni.
(Frá F.Í.B.).
Verðhækkun á stáfí veldur
hækkun á verði hlutubréfu
Valur náði naumum sigri 3:2
yfir K.R. í allgóðum Eeik
□ Leikur Vals og KR á íslandsmóti 1. deild-
ar fór fram í gærkvöld á Laugardalsvellinum og
lauk með sigri Vals, 3:2.
bæta við á 13. mínútu leiksins.
Að vísu voru Valsmenn óheppn-
Það verður ekki sagt að KR
hafi haft heppnina með sér í
þessum leik, það má raunar um
það deila hvað valdi þegar
menn komust hvað eftir annað
í opin tækifæri en fá ekki skor-
að, það getur ýmist verið
óheppni eða getuleysi eða aðr-
ar ástæður sem valda, en KR-
ingar áttu mörg tsékifæri sem
þeir misnotuðu. Hitt var svo
að í fyrri hálfleik átti Valur
mun betri leik, hvað snerti góð-
an samleik sem varð til þess að
Valur komst 3 mörk yfir í fyrri
hálfleik. En það hefur sýnt sig
að Valur kemst oft yfir í fyrri
hálfleik en síðari hálfleikur
verður mun ‘ lakari og má þá
oft þakka fyrir að fá bæði stig-
in. Þessi saga átti eftir að end-
urtaka sig í þessum leik, því
þegar- á annarri mínútu leiks-
ins skora KR-ingar, og þeir
ir að Þorsteinn Friðþjófsson
meiddist svo að hann haltraði
það sem eftir var leiksins, og
var þó í fyrri hálfleik bezti
maður varnarinnar, og það sama
henti Reyni Jónsson, sem þó
kom aftur og haltraði annað
slagið. Þetta hafði sín slæmu
áhrif á Valsmenn, en örfaði KR-
inga til sóknar og héldu þeir
uppi langtímum sókn á hendur
Val, sem þó varðist af kappi.
í fyrri hálfleik varð Bjarni
Felixson að hætta vegna meiðsla
en í hans stað köm Óskr.r Sig-
urðsson sem bakvörður, en Ell-
ert Schram fór í vörnina; hann
byrjaði sem miðherji.
Eyleifur skallaði i stöng af
stuttu færi, eftir þröng við
Valsmarkið.
Á 25. mín. á Markan gott
skot af löngu færi en Sigurður
Dagsson ver mjög vel í horn.
Um þetta leyti fara Valsmenn
að ná betur saman og leika þá
stundum laglega í gegnum KR-
vörnina og á 30. mín einleik-
ur Hermann út til vinstri og
leikur þar á bakvörðinn og send-
ir fyrir markið til Bergsveins
sem skorar viðstöðulaust. Að-
eins 5 mín. síðar einleikur Reyn
eftir sendingu frá Hermanni, cg
þannig lauk fyrri hálíleiknum:
3:0 fyrir Val.
Síðari hálfleikur byrjaði held-
ur illa fyrir Valemönnum og
fylgdu KR-ingar fast eftir og
sóttu ákaft og höfðu gert tvö
mörk er 13 mínútur vt>ru liðnar.\
Við þessi forföll í liði Vals
riðlast nokkuð vörnin og HR-
ingar eiga tækifæri hvað eftir
annað en þeim tekst ekki að
notfæra sér þau.
Þegar nokkuð leið á leikinn
tókst Valsmönnum að samein-
ast meira um leik sinn og tóku
nú við og við að hrinda áhlaup-
um KR-inga af sér, og þannig
á Reynir ágætt skot, sem .Guð-
mundur í marki KR ver mjög
vel.
Á 25 mínútu virtist sem ekk-
ert gæti bjargað því að KR-ing7
ar jöfnuðu er Einar ísfeld var
ir fram miðjan völlinn og leik- i einn iyrir °Pnu marki, en skot-
ur á 2—3 varnarmenn og send-
ir knöttinn út til Ingvars sem
er .aðeins á undan markmanni
að ná knettinum og senda hann
í mannlaust markið.
Þegar hér var komið sögu fór
Bjarni Felixson út, og veikti
það nokkuð vörn KR.
Litlu síðar á Eyleifur mjög
Til að byrja með var leikur- gott skot af 25 metra færi sem
inn nokkuð jafn og sóttu liðin lendir í þverslánni.
á víxl, og það var KR sem átti i Nokkru fyrir leikslok skorar
fyrsta hættulega áhlaupið er | Reynir Jónsson þriðja mark Vals
ið fór himinhátt yfir slána.
Á 30. mínútu á Hermann gott
skot á marjc KR en þá var
heppnin ekki með því knött-
urirm kom í Valsmann en hefði
annars lent í netinu.
Litlu síðar á Eyleifur hörku-
skot en rétt framhjá. Á 42. mín-
útu er Ingvar í opnu færi en
skotið mistókst-
Þannig endaði leikurinn með
sigri Vals sem segja má að hafi
á köfliúm hangið á bláþræði. í
heild var leikurinn heldur
skemmtilegur og allvel leikinn
á okkar vísu. Fyrri hálfleikur
Vals var oft skerðmtilegur þótt
aldrei væri um neina pressu á
KR-markið að ræða.
Beztu menn Valsliðsins voru
Hermann, Reynir meðan hans
naut verulega við, Þorsteinn og
Ámi Njálsson, að ógleymdum
Sigurði í markinu sem bjargaði
hvað eftir annað meistaralega.
Bergsveinn vann oft mikið bæði
í sókn og vörn- Bergsteinn slapp
einnig heldur vel- Samleikur
Hermanns, Ingvars og Reynis var
-oft laglegur-
1 liði KR voru beztir þeir Ein-
ar ísfeld, Ellert, Ársæll Kjartans-
son og Guðmundur í markinu,
Eyleifur var einnig ágætur en
hans var vel gætt af Sigurjóni,
en skotin hefur hann ekki enn
fundið. Hörður Markan gerði
margt laglega, en var full harð-
ur.
Þetta KR-lið féll nokkuð vel
saman og ef til vill betur en oft
áður í sumar.
Og eins og fyrr sagði bauð
leikurinn upp á mikla „spennu“
og óvissu til síðustu stundar,
fimm mörk og mörg opin tæki-
færi.
Dómari var Steinn Guðmunds-
son og dæmdi ágætlega-
Áhorfendur vt>ru margir-
Frímann-
^ WASHINGTON 4/8 — U.S.
Steel Corporation, stærsta stál-
iðjufélag heims, tilkynnti í dag
að það myndi fara að dæmi ann-
arra bandarískra stálframleið-
enda og hækka verð á fram-
leiðslu sinni, þrátt fyrir eindreg-
in tilmæli Johnsons forseta um
að gera það ekki.
Verð á stáli í Bandaríkjun-
um mun hækka um 2—3 dollara
á lest frá 10. ágúst. Bandaríkja-
stjórn hafði mælzt eindregið til
þess við stálframleiðendur að
hætta við fyrirhugaðar verð-
hækkanir, vegna þess að þær
hljóta að leiða af sér aðrar verð-
hækkanir og magna þannig verð-
bólguna sem mönnum er þegar
orðin áhyggjuefni.
Ekki þó öllum: í kauphöll-
inni í New York hækkuðu hluta-
bréf i verði strax og fréttin
barst úm verðhækkunina hjá
U.S. Steel og vó hækkunin i dag
nær alveg upp á mqti verðfall-
inu alla síðustu viku.
Slys á
Það slys varð á Ármannsvelli
við Sigtún í gær, að 14 ára
drengur, örn Jónsson, brotnaði
um ökla við knattspyrnuæfingar.
Hann var fluttur á sjúkrahús.
i