Þjóðviljinn - 09.08.1966, Blaðsíða 1
má greina fulltrúa á fundinum eins og Guðjón Hallgrimsson, bónda að Marðarnúpi í Vatns-
Hér má greina sex meðlimi Framleiðsluráðs landbúnaðarins við iiáborðið. Talið frá vinstri. Vilhjálmur Hjálmarsson, bóndi Brekku, Einar Ólafsson, bóndi Lækjar-
hvammi, Páll Diðriksson, bóndi Búrfelli, Bjarni Halldórsson, bóndi Uppsftlum, Einar bóndi á Setbergi og yzt til hægri Gunnar Guðbjartsson, bóndi á Hjarðarfelli.
Annar frá hægri er Guðmundur Ingi Kristjánsson, skáldbóndinn á Kirkjubóli og eini fulltrúinn úr framkvæmdanefnd uppreisnarbænda er jafnframt á setu sem
fulltrúi á fundinum.
Málsvari bænda í mjólkurmálinu
tala í 15 mínútur!
eins
Líkamsárás og
jakkabrenna
Um tvöleytið í fyrrinótt var
ráðizt á mann sem var á, heim-
leið um Hamrahlíð, hann sleg-
inn í höfuðið og rifinn af hon-
um jakkinn. Lagði maðurinn
fyrst á flótta en sneri síðan við
aftur til að leita jakkans. Á
meðan hafði árásarmaðurinn
kveikt í jakkanum sem stóð í
björtu báli þegar eigandinn "kom
að.vitja hans. Lögreglunni tókst
að ná árásarmanninum og var
hann settur inn.
I
dal, Helga Símonarson, Þverá í Svarfaðardal, Hermóð, bónda í Árnesi og bóndann í Hjarðarhaga
í. Önundarfirði.
--- - -- -- ■ - ------------ — - - t
Mikil og alrnem ölvun ein-
kemdi þjóðhátíðina í Eyjum
Ungur maður höfuðkúpubrotnaði
■ Ekki er hægt að segja
að þjóðhátíðin hafi farið vel
fram, sagði Vestmannaeyja-
lögreglan Þjóðviljanum í
gær, til þess var drykkju-
skapurinn of mikill og al-
mennur; en betur fór en á
horfðist, lítið var um slags-
mál og meiðsl og engin telj-
andi vandræði vegna ölvun-
ar. Eitt alvarlegt slys varð
á hátíðinni, ungur maður
varð fyrir steinkasti og höf-
uðkúpubrotnaði.
Um 3000 aðkomumenn mættu
til hátíðarinnar og var ölvunin
mest meðal þeirra. Að beiðni
lögreglunnar í Vestmannaeyjum
voru fjórir lögregluþjónar úr R-
vík sendir flugleiðis til Eyja á
•föstudagsmorgun til aðstoðar
starfsbræðrum sínum þar og
hafði þetta lið allt nóg að starfa
allan tímann við áð fjarlægja
skoraði þó fyrsta mark leiksins, I drukkið fólk af hátíðasvæðinu.
sem ekki var eins ójafn og j Voru geymslur lögreglunnar
markatalan bendir til. margfylltar og allt legupláss á
KR vsnii Þrótt
í gærkvöld, 5:1
f gærkvöld léku KR og Þrótt-
ur á Laugardalsvellinum. Leikn-
um lauk með sigri KR, 5:1, en
í hálfleik var staðan 3:1. Þróttur
gólfi lögregluvarðstofunnar not-
að fyrir þá sem þurftu að sofa
úr sér vímuna. Var mönnum
síðan hleypt út aftur jafnóðum
og þeir voru orðnir allsgáðir
aftur.
Að sögn lögreglunnar i Rvík
var þessi drukkni lýður mest
sama fólkið og vant er að þyrp-
ast á allar útisamkomur og
sveitaböll austanfjalls, flest um
og innan við tvítugt.
Ungur Vestmannaeyingur,
Hilmar Arinbjarnarson Kúld,
varð fýrir því slysi á laugar-
dagskvöldið að fá steinhnullung
í höfuðið og hlaut hann talsverð-
an áverka og reyndist við lækn-
isrannsókn vera höfuðkúpubrot-
inn. Hann var fluttur með flug-
vél til Reykjavíkur og liggur nú
á Landakotsspitala. Var líðan
Hilmars í gær góð eftir atvik-
Framhald á 7. > síðu.
□ Aðalfundur Stéttarsambands bænda hófst í gær-
morgun að Hótel Sögu og lýkur-væntanlega seint
í kvöld og hefur bá staðið yfir í tvo daga.
□ Mættir eru fjörutíu og sjö bændur hvaðanæva
af landinu, — tveir kosnir úr hverri sýslu og
einn bóndi mætir frá Vestmannaeyjum.
Loft var lævi blandið í bláa
salnum í upphafi fundar, —
menn þó stillilegir í orðsvörum
um sprettu og tíðarfar.
Aftarlega i salnum sat Ing-
ólfur Jónsson landbúnaðarráð-
herra og horfði vígreifur yfir
salinn og þá voru mættir þama
níu meðlimir Framleiðsluráðs
landbúnaðarins og sátu fimm af
þeim við háhorðið með óráðn-
um svip.
Frammi við dyr sátu 5 bænd-
ur úr framkvæmdanefnd hér-
aðsnefnda bænda heldur yggld-
ir á brún, en þeir eru einskonar
baráttusveit bænda og kosnir á
fundum í sumar út af mjólkur-
skattinum.
Það er meðal annars vegna
pressu frá þessum uppreisnar-
bændum, að aðalfundi hefur
verið flýtt og var ekki ætlunin
að halda fundinn fyjr en í sept-
ember á þessu ári. Þessir bænd-
ur sitja hinsvegar sem áheymar-
fulltrúar á fundinum.
Þá vom mættir þarna boðs-
gestir eins og Þorsteinn Sigurðs-
son, form. Búnaðarfélags íslands,
Kristján Thoriacius, formaður
BSRB, Hannfbal Valdimarssyni,
forseta ASÍ hafði verið boðið til
fundarins, en gat ekki sinnt
þessu boði vegna heyskapar á
búi sínu í Arnafirði.
Við förum nú bráðum að sjá
hann i okkar röðum, sagði einn
bóndinn á fundínum og hefðu
fleiri kosið að sitja að búum
sínum núna um hásláttinn.
Fundarstjóri á þessum aðal-
fundi er Bjarni Halldórsson,
bóndi að Uppsölum í Skagafirði,
og gaf hann brátt orðið Gunnari'
Guðbjartssyni, formanni sam-
bandsins, og flutti hann langa
yfirlltsræðu er lauk á tólfta tím-
anutn.
Það vakti meðal annars at-
hygli, að hann veittist að upp-
reisnarbændum í ræðu sinni, —
annars var ræða hans ýtarleg
greinargerð fyrir ráðstöfunum
Framleiðsluráðs í sambandi við
mjólkurskattinn.
Hann kvað nú sýnt, að smjör-
fjallið hefði minnkað mikið í
sumar og viðgangur sauðfjár
hefði aldrei verið eins góður og
i sumar og mætti búast við
Yniklu kjötmagni í haust.
Þá flutti í gærdag erindi Kristj-
án Karlsson, erindreki og Sveinn
Tryggvason, framkvæmdastjóri
Framleiðsluráðsins, og var þess-
um ræðum ekki lokið fyrr en
um klukkan þrjú um daginn.
Þá kom upp í pontuna Þor-
steinn á Vatnsleysu og þótti
sumum gæta nokkurs stórbænda-
hroka og fjallaði ræða hans
mestmegnis um fyrirhugaða
sölustöðvun á mjólk og lagðist
eindregið gegn þeim aðgerðum.
Þá kom hann í ræðu sinni að
Selfossfundinum og kallaði hann
bæði merkilegan og ómerkilegan,
— þó frekar ómerkilegan, en
bar þó .virðingu fyrir samstöðu
bændanna á þessum fundi.
Heldur andaði köldU að fund-
arhöldum bænda í sumar út af
mjólkurskattinum frá fyrmefnd-
Framhald á 7. síðu.
Skildi þýfið
eftir á götunni
Aðfaranótt sunnudagsins var
brotizt inn í húsið Bergstaða-
stræti 48A og var þjófurinn bú-
inn að setja talsvert af fatnaði
niður í ferðatösku sem hann
hafði meðferðis er fólk í húsinu
tók eftir honum og gerði lög-
reglunni aðvart. Lagði þjófur-
inn á flótta og skildi töskuna
eftir á götunni fyrir utan. Hann
náðist ekki.
Enn eitt reið-
hjólasiysið
Það slys varð á Akureyri á
sunnudag, að 8 ára drengur, Jó-
hann Björgvinsson, varð fyrir
bifreið er hann var að leika sér
á reiðhjóíi. Hann slasaðist eitt-
hvað og var fluttur á sjúkra-
hús.
Drengur veiddi
mink á stöng
RAUFAR^ÖFN 8/8 — Þaft
bar til tíðinda hér á Rauf-
arhöfn á súnnudaginn að 7
ára gamall drengur veiddi
mink — á stöng!
Drengurinn hafði gengið
út fyrir þorpið með veiði-
stöngina sína og ætlaði að
renna fyrir silung í Hólsá.
Upp með ánni kom hann
auga á minkinn og reyndi
að pota í dýrið með stöng-
inni. Spúnninn festist þá í
minkinum, sem brauzt um
á hæl og hnakka og flækt-
ist í girninu. Drengurinn
sótti föður sinn, Helga Páls-
son, lögregluþjón, og var
dýrið drepið. Reyndist þetta
vera læða, en greni fannst
við leit skammt frá, — H.R.
Danskir ávaxtaútflytjendur
hefja söluherferð á íslandi
■ Samtök danskra ávaxta-
útflytjenda hafa að undanförnu
undirbúið og skipulagt aukna
markaðsöflun hér á landi, og í
haust mun söluherferð liefjast
með „epla-innrás“ frá Dan-
mörku.
Ávextir hafa lengi verið flutt-
ir inn frá Danmörku til íslands,
en innflutningurinn verið mjög
breytilegur frá ári til árs. Finnst
Dönum nú eðlilegt að rejma að
auka söluna hingað, ekki hvað
sízt á eplum sem ræktuð eru
í ríkum mæli í Danmörku og
þykja gæðavara. Tíðar og reglu-
bundnar skipaferðir milli land-
að vera mjög hagstæðar slíkum
viðskiptum.
Það er ætlun samtaka hinna
dönsku ávaxtaútflytjenda að
efna til allvíðtækrar og skipu-
lagðrar kynningar. á fslandi á
framleiðsluvöru sinni, og þessi
kjmningarherferð mun hefjast
um mánaðamótin september-
október n.k., en einmitt þá,
síðast í september, er fyrsti epla-
farmurinn væntanlegur hingað
til lands með „Gullfossi".
í samtökum þeim sem hér um
ræðir, Danske Frugtexportörers
Fællesrád, eru langflestir þeirra
aðila í Danmörku sem fást við
anna ættu líka að þeirrs áliti | útflutning ávaxta þar í landi.
MNN
Þriðjudagur 9, ágúst 1966 —“31. árgangur — 175. tölublað.
SjónvarpsmastriB í Eyjum stendur enn
★ í gær stóð til að fella
sjónvarpsmastrið fræga á
Stóra-KIifl í Vestmannaeyjum
að kröfu póst- og sítnamála-
stjórnarinnar eins og frá var
skýrt hér i blaðfnn á snnnn-
ðaginn.
★ t viðtali við Þjóðvilj-
ann í gærkvöld sagði Magnús
H. Magnússon símstöðvar-
stjóri í Eyjum að aðgerðum
í málinu hefði þó verið frest-
að í gær þar sem verið væri
að kanna nánar eitthvert lög-
fræðiiegt atriði í sambandi
við það. Sagðist hann bíða
eftir nýjum fyrirmælum frá
yfirboðurum sínum hér í
Reykjavík.
ir Aðförin að mastrinu
mun gerð undir vernd fóg-
etans í Vestmannaeyjum þeg-
ar þar að kemnr.