Þjóðviljinn - 30.08.1966, Side 4

Þjóðviljinn - 30.08.1966, Side 4
4 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagar 30. ágúst 1966 Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús JKjartansson, Sigurður Guðmundsson. • Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson. Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa- söluverð kr. 5.00. Sókn undirháin Oáðstefna Alþýðubandalagsmanna úr öllum kjör- dæmum landsins sem haldin var nú um helg- ina samþykkti að kalla skyldi saman landsfund bandalagsins 28. október í haust, og yrði það aðal- verkefni hans að ganga frá stefnuyfirlýsingu Al- þýðubandalagsins, setja samtökunum starfsreglur og kjósa yfirstjórn þeirra, eins og segir í samþykkt undirbúningsráðstefnunnar. Ráðstefnan kaus tvær níu manna nefndir til að annast frekari undirbún- ing landsfundarins, stefnuskrárnefnd sem fal- ið er að semja drög að stefnuyfirlýsingu landsfundarins, og skipulagsnefnd sem falið er að annast allan annan undirbúning fundarins, semja uppkast að lögum fyrir Alþýðubandalagið, beita sér fyrir stofnun nýrra Alþýðubandalagsfé- laga, semja dagskrá landsfundarins og leysa af hendi önnur störf sem nauðsynleg eru fyrir fund- inn. Það var Alþýðubandalag Reykjavíkur sem beitti sér fyrir því að landsfundur yrði undirbúinn í haust, en fulltrúaráð þess samþykkti að hafa þann hátt á að kveðja til undirbúningsfundar fulltrúa úr öllum landshlutum ásamt stjórn Alþýðubanda- lagsins og þingflokki þess, og skyldi sú undirbún- ingsráðstefna taka fullnaðarákvörðun um lands- fund og aðalverkefni hans. Hefur sú tilhögun mælzt vel fyrir og ættu hinar góðu undirtektir'og fundarsókn Alþýðubandalagsmanna utan af landi að vera eindregin- bending um lifandi áhuga fyrir málstað bandalagsins og skipulagningu úti um landsbyggðina. 1 Iþýðubandalagið var stofnað sem kosningasam- tök að forgöngu Alþýðusambands íslands fyrir tíu árum, sumarið 1956. Það hefur oft háð starfi bandalagsins að í aðaldráttum hefur það búið að því skipulagi sem því var búið í skyndingu skömmu fyrir kosningar 1956. Nú virðist loks vera kominn skriður á þá viðleitni að búa betur að skipulagi Alþýðubandalagsins á landinu öllu og gera það einfaldara í sniðum og starfhæfara. Bandalagið vann stóran kosningasigur í fyrstu kosningunum 1956 og hefur síðan staðizt allvel sviptibylji þjóðmálabaráttunnar þó á ýmsu hafi gengið. Nú munu flestir meta stjórnmálahorfur á þá leið að Alþýðubandalagið eigi góð sóknarfæri og muni á næstu árum geta aukið áhrif alþýðu og verkalýðshreyfingarinnar á stjórnmálasviðinu svo um munar. Kosningasigur Alþýðubandalagsins "1 Reykjavík í vor, þar sem það bætti við sig um eitt þúsund atkvæðum frá síðustu kosningum fyrir þremur árum, sýndi og sannaði að nú gengur margt nýtt fólk til liðs við Alþýðubandalagið og treystir því til forystu. Og þar er nóg verk að vinna fyrir hvern þann sem vinna vill málstað alþýðu og þjóð- frelsisbaráttu á íslandi. Alþýðubandalagið mun á næstu mánuðum skera upp herör um allt land, vinna að stofnun nýrra Alþýðubandalags’félaga, efla og treysta tengslin við fólk í bæjum og sveit- um. Ráðstefnan sem haldin var um helgina ætti að geta orðið skref í átt til nýrrar sóknar Alþýðu- bandalagsins, því mikilvægt er að vel takist með lokaundirbúning landsfundarins og fundinn sjálf- an. — s. RSl CiMÁL «J. & Jóhann Kúld í strandríki er hver höfn lifæð þess þorps, bæjar eða þeirrar borgar sem við höfnina stendur, og landsins alls. Það má líkja höfninni við hjartað í líkama manns og dýrs, þar er sífelldur straumur inn og út, fram og til baka. Líkt og lækn- irinn verður að athuga starf- semi hjartans til að vita hvort líkaminn sé heilbrigður, þann- ig ættu róðamenn bæjarfélags og þjóðar að hafa sífellda gát á starfsemi þeirrar hafnar þar sem þeir búa í námunda við. Höfnin speglar hjá strandriki betur en nokkur annar stað- ur atvinnulegt heilbrigði þjóð- félagsins eða sjúkdómseinkenni þess. Það var eitthvað á þessa leið, sem ég hugsaði, þegar ég ný- lega átti gönguferð meðfram Reykjavíkurhöfn laugardags- eftirmiðdag. f austanverðri höfninni var ys og þys, þar ískraði og skrölti í vélknúnum tækjum þegar margvíslegri erlendri vöru, fluttri um mikið úthaf, var skipað á land. Þar mátti sjá margvíslega korn- og mjölvöru flutta í sekkjum,- keyptum gegnum milliliði af „lagerum" einhverrar erlendrar hafnar- borgar, þar sem geymsluþol vörunnar var máske að þrot- um komið. Ég stanzaði og horfði um stund á uppskipun- ina. Langþreyttir verkamenn, margir það rosknir, að þeir höfðu upplifað hvort tveggja, atvinnuleysi kreppuáranna og of langan vinnudag velgengn- istímabilsins, þeir stóðu þarna og framkvæmdu sín handtök öruggir og vissir, því að öll vinna með vélum krefst þess að hugur og hönd vinni saman, þar má engu skeika. Mér varð starsýnt á geysi- lega mikið magn af kassavöru, sem kom án afláts upp úr einni skipslestinni. Þessir kassar virt- ust ekki vera mjög þungir, ég merkti það af því hvernig verkamennirhir handléku þá á bílpöllunum. Hér hlaut að vera um einhverja mikla nauðsynja- vöru að ræða, því að magnið var svo mikið. Þetta vakti for- vitni mína, svo að ég fór að athuga áletrunina á kössunum. Og hvað haldið þið að hafi komið í ljós? Hér var verið að skipa á land mörgum tugum tegunda af erlendu kexi, og ekki nóg með það, heldur slæddust einnig með í þessum innflutningi hollenzkar „kruð- ur“ og danskir „]tertubotnar“. Var þetta veruleiki eða bara draumur? Höfðum við í raun og veru sem þjóð staðið í stað á þessu sviði matvælaiðnaðar allt frá þeim tíma danskrar höndlunar á nítjándu öld, þeg- ar krambúðir selstöðukaup- mannanna fluttu hingað í smá- um stíl sem nauðsynjavöru ýmislegt sætabrauð til að punta upp á tilveru hinnar frum- stæðu nýlenduþjóðar, íslend- inga? — Já, þú þarft ekki að efast um, að þetta er útlent kex lags- maður, heyrðist rödd aldraðs manns segja við hliðina á mér. — Já, þetta er „Viðreisnin" góði minn, eða hluti hennar. og svo þessir 70 lúxusbílar sem verið er að skipa upp úr næsta skipi og verða svo seldir á 350 tii 450 þús. kr. til að afla tekna Frá Reykjavíkurliöfn. fyrir „Viðreisnina“. Það mun- ar nú um tollana af þeim þessum í kassann sem alltaf er sagður tómur. Karlinn, sem þetta mælti, var farinn og hélt áfram í öfuga átt við mig. Fleiri vitni Ég yfirgaf uppskipunarsvæð- ið, þar sem hinn margvislegi varningur streymdi í land, bæði þarfur og óþarfur í ein- um hrærigraut og sem ég hafði enga aðstöðu til að rannsaka til neinnar hlýtar. Þetta er verzlunarfrelsi, segja menn, og það má aldrei skerða, er gjarn- an bætt við, um leið og frels- isskykkjunni er sveipað þétt - að sætabrauðskössunum og öðr- um slíkum nauðsynjavarningi, sem íslendingar mega ekki án vera ó viðreisnartímum. hægt að finna slíku skipi sem þessu verkefni? Þessu svara ég hiklaust játandi og það jafn- vel þó í viðreisnarþjóðfélagi sé, þar sem búið er að eyði- leggja að stórum hluta grund- völl togaraútgerðar, að hálfu leyti með skipulagðri verðbólgu og að hinu leytinu fyrir mann- dómsskort, þar sem svikizt hef- ur verið um að láta togurunum í té hluta af okkar nýju land- helgi - vegna -hræðslu ■ við út- lendinga. Til hvers á þá að nota slíkt skip sem Gylfa? í fyrsta lagi og það sem liggur beinast við að gera er, að halda skipinu út til togveiða, en setja óður í það hraðfrystitæki og frysta fiskinn um borð. Hér er braut- in rudd, að fenginni reynslu Guðmundar Jörundssonar út- gerðarmanns sem lét setja slík tæki í togarann Narfa. í öðru lagi þá eru á því möguleikar að breyta slíku skipi í síldveiðiskip með kraft- blökk. í þessu sambandi vil ég benda á þá staðreynd að Norðmenn hafa breytt togur- um í kraftblakkarskip til síld- veiða bæði fyrir sjálfa sig og aðra. Þó þau skip séu heldur minni en togarinn Gylfi er, þá hefur það lítið að segja í þessu sambandi, eftir að búið er að setja hliðarskrúfur á skipin til að auðvelda þeim snúninginn, þegar nótinni er kastað. Það er orðið ærið langt síð- an Japanir og Bandaríkja- Framhald á 7. síðu. Það bar ekkert sérstakt til tíðinda á göngu minni vestur með höfninni, en þegar ég kom á móts við Ægisgarð, þá vakti atbygli mína mikil mergð skipa, sem lágu við festar að vestan- verðu garðsins. Ég gekk því niður að skipaþvögunni og lit- aðist um. Þ’arna trónaði nokkur hluti af togaraflota íslendinga, átta skip í tveimur fylkingum, fjór- ir togarar i hvorri, bundnir hlið við hlið. Það er haft fyrir satt, að sjö þessara togara séu til sölu ef einhver fæst kaup- andi utanlands eða innan. f vesturhöfninni gegnt Ægisgarði blöstu svo við þrít togarar til viðbðtar. Tveir þeirra, Jón Þor- láksson og Hallveig Fróðadótt- ir, eign Bæjarútgerðar Reykja- víkur eru þarna í standsetningu og ekki komnir á sölulista enn- þá, en þriðja skipið, Akurey, hefur lengi verið til sölu og miklar líkur til, þegar þetta er skrifað, að þáð verði keypt til Norður-Noregs og gert þar út á togveiðar. Næst bryggjunni í fremri skipafylkingunni liggur mótor- togarinn Gylfi, eitt sinn stað- settur á Patreksfirði og þá mik- ið aflaskip. Þetta er ca. átta hundruð smálesta skip, smíð- aður í Þýzkalandi og einn af yngstu togurum flotans, þegar frá eru taldir stóru þýzk-byggðu togararnir er síðast komu. Nú hefur þetta glæsilega skip leg- ið á þriðja ór aðgerðarlaust og hefur orðið allskonar eyðilegg- ingu að bráð. Það er eðlilegt að spurt sé þegar hér er komið sögu: Er í FÆST I KAUPFELOGUM OG VERZLUNUM UM LAND ALLT

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.