Þjóðviljinn - 07.10.1966, Qupperneq 4
4 SlÐA — WÖÐVIUINN — Föfitudagar 7. ofctóber 1866
CJtgefandl: Sameiningarflokkur aiþýðu — Sóeialistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Siguröur Guðmundsson.*
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Sími 17-500 (5 Ifnur). Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa-
söluverð kr. 7.00.
Nýrra vinnubragða þörf
¥ gær þaut í tálknum Alþýðublaðsins af vandlætinga-
semi. Þjóðviljinn hafði gerzt svo djarfur að*skýra frá
því að síldveiðisjómenn væru óánægðir með stóriækkun
á bræðslusíldarverðinu sem skellt ,var á um mánaðamót-
in. En blaðið gætir þess vel að skýra ekki frá fréttinni í
Þjóðviljanum sem truflaði skapsmunina við Hverfisgötu,
en hún var sú að skipverjar af tveimur síldveiðibátum,
„Ögra“ og „Hrafni Sveinbjamarsyni“, hefðu þegar er
kunnugt var um lækkunina sent stærsta sjómanna-
félagi landsins, Sjómannafélagi Eeykjavíkur, skeyti. Kváð-
ust sjómennirnir vonast til fastlega að stjóm Sjómanna-.
félags Reykjavíkur hefði samband við s'jómenn á síldveiði-
flotanum vegna versnandi kjara í sambandi við nýja verð-
ið og helzt hafa samband við önnur sjómannafélög. Og þeir
vonuðust til að þetta gengi fljótt. Það stóð heldur ekki
á svari, það bar^t strax daginn eftir frá stjóm Sjómanna-
félags Reykjavíkur og segir þar: „Sjómannafélag Reykja-
víkur munækki beita sér fyrir neinum aðgerðum gagnvart
nýja bræðslusíldarverðinu, þar sem var alger samstaða allra
fulltrúa sjómanna og útvegsmannasamtakanna með sam-
hljóða atkvæðum í verðlagsráði". Sjómönnum mun hafa þótt
þetta þunnar trakteringar og fundizt sem erfitt muni að
ná árangri í hagsmunabaráttunni ef ekki sé að vænta
greiðari fyrirgreiðslu stærsta sjómannafélags landsms.
Tjað skal ekki dregið í efa að fulltrúar sjómaimasamtak-
* anna og Alþýðusambandsins í verðlagsráði hafi reynt
að stuðla að því að síldarverðið yrði sem hæst, enda var
það ekki lækkað eins mikið og verksmiðjueigendur kröfð-
ust En hitt hlýtur að hafa verið álitamál hvort lækkunin
átti nokkur að verða að þessu sinni, ekki sízt vegna þeirra
raka sem sjómenn sjálfir telja fram, ofságróða verksmiðj-
anna undanfarið (sem Alþýðublaðið hefur meira að segja
viðurkennt) og vegna óvenju mikils fitumagns síldarinn-
ar í sumar. Þjóðviljinn hefur eindregið stutt þá afstöðu
sjómanna að í þetta sinn hefði síldarverðið ekki á*tt að
lækka.
t'n þetta mál bendjr til þess að íslenzk verkalýðshreyfing
verði að fara að huga vandlega að vinnubrögðum í
hagsmunabaráttunni. Það á ekki að flytja þá baráttu til,
þannig að hún gerist eingöngu í ráðum og nefndum og
stjómarstofnunum þar sem þess er vandlega gætt að trún-
aðarmenn verkalýðshreyfingarinnar séu alltaf í minnihluta.
Fólkið sjálft, vinnandi fólk á vinnustöðunum, sjómenn-
imir á skipunum, verður sjálft að finna leiðir til að berjast
sinni hagsmunabaráttu. Með skeyti síldveiðisjómannanna
á „Ögra“ og „Hrafni Sveinbjarnarsyni“ er farin rétt leið
og eðlileg. Þeir snúa sér til stéttarfélags síns og mælast til
að það hafi samband við áhafnir síldveiðibátanna svo
þeirra vilji komi fram. Og væru það í rauninni ekki sjálf-
sögð vinnubrögð í máli eins og þessu, að fulltrúar verka-
lýðsféláganna í verðlagsráði sem verið er að kreppa að
þannig að þeir telja sig tilneydda að gera samkomulag um
lækkuð sjómannakjör til að forða enn meiri lækkun, vísuðu
málinu til sjómanna á bátunum áður en ákvörðun er tek-
in; sjómannafélögin leggi málið fyrir áhöfn hvers síld-
veiðibáts og sjómennirnir fái þannig að taka sjálfir lýð-
ræðislega afstöðu, sem jafnframt yrði afstaða trúnaðar-
manna verkalýðshreyfingarinnar. Sjómenn hefðu þá sjálf-
ir sagt til hvort þeir vildu fallast á k'jaraskerðingu, sem
þeir telja rakalausa, eða bvort þeir eru þess albúnir að
beita mætti samtaka sinna/sjómannafélaganna, til að knýja
fram önnur úrslit. Þetta væru eðlilegar starfsaðferðií og
ekki einungis í þessu tilfelli. Fólkið í verkalýðsfélögunum
verður sjálft að standa í hagsmunabaráttunni en ekki varpa
henni upp á fáeina trúnaðarmenn. það verður sjálft að
taka raunverulegar ákvarðanir um mikilvægustu atriðin,
ekki einungis í því formi að gerðir samningar séu sam-
þykktir, heldur meðan tekizt er á um samningamálin.
Reynist sjómönnum það svo, að stéttarfélög þeirra séu
þeim lokuð til slíkrar þátttöku í mikilvægum hagsmuna-
ákvörðunum, hljóta þeir að leita nýrra leiða til þess að
geta sjálfir, starfandi sjómenn á skipunum, barizt um kjör
sín og tekið um þau ákvarðanir. — t.
HJÁLPIÐ
BÖRNUNUM
í VIETNAM
Eftirfarandi grein er skrifuð
af frönskn blaðakonunni Guill-
etta Ascoli, en hún fór til
Vietnam á sJL vetri í sendi-
nefnd á vegum Alþjóðasam-
bands iýðræðissinnaðra
kvenna. Sendinefnd þessi var
skipuð konum frá 8 löndum,
af ólíkum trúmála- og stjórn-
máiaskoðunum og mismunandi
stéttum þjóðfélagsins. Frú Gu-
illetta ávarpar bömin í beima-
landi sínu á þessa leið, þegar
hún kemur heim:
Kæru börn, við skuhim
bregða okkur snöggvast til
Norður-Vietnam. Það er fallegt
land, þar skiptast á hrísakrar
og frumskógar og þar vaxa
kókoshnetupólmar og banana-
tré. Þar er heimkynni buffaló-
anna, og vissuð þið kannske
að þeir eru beztu vinir barn-
anna? Þau riða á þeim, synda.
með þeim í ánum og hanga í
hölum þeirra.
Ef til vill spila einhver ykk-
ar á hljóðfæri. Börnin í Viet-
sprengjum og sært þau eða
drepið.
Kæru bömin mín. Það sem
ég ætla nú að segja ykkur er
dapurlegt, en þið verðið að
vita hvað daglega hendir þessa
litlu bræður og systur í Norð-
ur-Vietnam, svo að einnig þið
getið skrifað amerískum stjórn-
arvöldum og krafizt þess að
þau láti af loftárásum og
manndrápum. Raddir ykkar
munu sameinast í eitt allsherj.
ar ákall gegn ranglætinu, gegn
þjáningum bamanna í Viet-
nam.
Á sjúkrahúsimi K 71 í Than
Hoa drap sprengja tvö lítil
böm. í litla þorpinu Quam
Tang missti tveggja ára gömul
stúlka foreldra sína, bróður
sinn og afa sinn og ömmu í
loftárás og stóð þannig ein
uppi þangað til góðviljuð
bóndakona tók hana að sér.
Cai litli, tólf ára drengur,
hljóp út úr loftvarnarskýli,
þar sem hann faldi sig, til að
^ ■ S b' \
r . >
im.
i
i
11
:> r ■ ' , '■% ,
Teikning eftir bam í Norður-Vietna-m, sem talaö er nm í grein-
inni. Vfir húsinn sjást flugvélar varpa sprengjum til jaröar og
særöir menn og dýr liggja á jðröinni.
nam spila á flautu, og þegar
við mætum þeim á götum
Hanoi, höfuðborgar landsins,
þá klappa þau saman lófunum
og brosa til okkar. Nöfnin
þeirra eru skrýtin, úr einu
evirópisku nafni verða gjarnan
þrjú í Vietnam. Lítil stúlka,
sem í Frakklandi héti t.d.
Marianna, væri í Vietnam e.t.
v. kölluð Ma, Ri, eða jafnvel
Anh.
Þessi litlu börn leika sér
elns og þið, þau hafa gaman
af dýrum, og áreiðanlega eru'S*
þau líka dugleg að læra lexi-
urnar sínar.
í Hanoi eru dásamlega fagr-
ir lystigarðar, sem. á dögum
frönsku nýlendustjórnarinnar
voru harðkestir, en stjórn lýð-
veldieins hefur opnað þá fyrir
almenning. í dag hiaupa börn-
in um þessa garða, og við
kynntumst þar m.a. börnum
sem skarað höfðu fram úr við
nám eða skyldustörf.
Börnin í Vietnaim þekkja þó
einnig aðra hluti, sem eru frá-
brugðnir lífi ykkar. Það er
stríðið, loftárásir og sprengjur.
Við fórum í íerðalag og heim-
sóttum tvö þorp 170 km suður
af Hanoi. Þorpin heita Than
Hoa og Nam Ðinh. Vitið þið
að börnin í þessum þorpum
fara í skólann á nóttunni? Það
gera þau af því að á daginh
væri það hættulegt, amerískar
sprengjuflugvélar gætu komið
allt í einu, kastað niður
bjarga tveim litlum börnum,
hann var drepinn. Annar lítill
drengur fékk sprengju í bak-
ið, hann getur aldrei framar
gengið en verður alla ævi að
vera í hjólastól. Lítil, falleg
stúlka hafði svart hár, sem
allt brann af henni, nú hefur
hún ekkert hár og í andliti er
hún eins og gömul kona.
'j •
Börnin í Norður Vietnam
eru verðugir synir og dætur
stoltrar og hugrakkrar þjóðar.
Fimm bama móöir í Nam Dinh, Tran Thi Ty að nafni, ásamt
tveimur bömum sínnm og formanni kvennanefndarinnar sem rætt
er iim í greinini, Julietu Campusano- Maöur frú Ty var drepinn
i sprengjuárás á verksmiðjuna þar sem hann vann.
Þið vitið sjálfsagt, að þessi
þjóð rak japönsku fasistana og
frönsku yfirdrottnarana af
höndum sér. Frelsisstríð þeirra
varði frá árinu 1939—1954.
Börnin eru dugleg og hugrökk
og taka þétt, í hverskonar
störfum til hjálpar landi sínu
og þjóð.
Minnstu börnin hafa verið
flutt burtu úr borgunum, en
þar er mjög hættulegt að búa
vegna loftárása. Það er auð-
vitað ósköp sorglegt að yfir-
gefa pabba og mömmu, sem
verða að vera eftir í borgun-
um og stunda þar vinnu sína,
en allt fullvaxið fólk er önn-
um kafið við hverskonar störf
og baráttu fyrir frelsi og sjálf-
stæði landsins. Og það er von.
Hugsið ykkur að einhver
skemmdarvargur hefði komizt
inn í herbergið ykkar, þar sem
þið geymið fullegustu leik-
föngin ykkar, hjólið ykkar og
bækurnar. Hugsið ykkur svo
að þessi skemmdarvargur færi
að brjóta allt og eyðileggja
fyrir ykkur. Þá yrðuð þið reið
og reynduð að reka hann út,
haldið þið það ekki? Foreldrar
litlu barnanna í Vietnam, sem
sjá húsin sín, kirkjurnar og
skólana brennd og brotin nið-
ur og hrísakranai eyðilagða,
þeir verða að veita viðnám og
berjast. Og þeim líður betur ef
þau vita börnin sín í öryggi
úti á landsbyggðinni.
Við heimsóttum skóla fyrir
þessi brottfluttu borgarböm 60
km. frá Hanoi. Þar höfðu 100
böm fundið samastað í litlu
þorpi. Og ef þið gætuð hugsað
ykkur hve vel þau sungulþeim
var raðað upp í tvær raðir,
drengimir stóðu aftan við
stúlkurnar, söngstjórinn var
lítill drengur. Minnstu bömin
— tveggja og þriggja ára —
sýndu okkur leikfimi og gáfu
bkkur teikningar. Á teikning-
unni sem ég fékk er lítið hús
og fallegir, grænir kákospálm.
ar. Yfir því sveima flugvélar
sem varpa niður sprengjum. Á
jörðinni liggja líkamsleifar lít-
illa, dáinna manna og nokkur
mjög lítil hænsn; einnig dauð.
Það var það sem snerti mig
mest. Ég á nefnilega böm. En
þeirra teikningar sýna ekki
' dáið fólk; heimur þeirra er
heimur friðarins, þar standa
blóm, tré og hús undir heiðum
himni. Hversvegna geturheim-
ur barnanna í Vietnam ekki
einnig verið þannig? Til þess
að svo megi verða verð-
ur allur heimurinn að samein-
ast um þá kröfu að réttur
Vietnam þjóðarinnar verði
virtur.
Islenzk böm, sem lesið þessa
grein, vitið þið um hið hræði-
lega stríð, sem nú er háð í
Vietnam og um börn sem
verða fórnarlömb þess? Eftir
lestur þessarar greinar hugsið
fciið kannski stundum til
barnanna sem verða að fara
í skólann á nóttunni, þegar þið
eruð sjálf að leggja af stað
með skólatöskurnar ykkar á
sólbjörtum haustmorgni. Ykk-
ur verður e.t.v. líka hugsað til
þess, þegar þið kaupið gott
fyrir vasapeningana ykkar, að
Framhald á 7. síðu.
Nýtt haustverð
Kr. 300,00 daggjald
og 2,50 á ekinn km.
LEIK
m-—BÍLALEI
rALUR
BÍLALELBAN
H
Rauðarárstíg 31
sími 22-0-22
t