Þjóðviljinn - 13.11.1966, Side 2
2 SlBA — ÞJÓBVmiNN — Sunoudagur 13. nówember 1966.
Siélfstœðismál - Utanríkismál
Saga • fslendinga er samfelld-
ur lærdómur um gildi þess
fyrir þjóðina að standa á eig-
in fótum og varðveita sjálf-
stæði sitt. Á þeim stutta tíma,
sem liðinn er frá stofnun lýð-
veldis á íslandi, hefur það
komið ótvírætt í ljós, að það
kostar ekki síður baráttu að
varðveita fengið sjálfstæði en
að afla þess.
Sjálfstæði landsins um ó-
komin ár er framar öðru bund-
ið því skilyrði, að íslendingar
varðveiti þjóðemi sitt og þjóð-
menningu. Ekki er aðeins höf-
uðnauðsyn, að þjóðin ávaxti
menningararf sirrn og varð-
veiti íslenzka tungu. Enn
brýnna er, að sjálfstæð, skap-
andi þjóðmenning fái að
blómgast í landinu við eðli-
leg skilyrði, Áhrif erlendra
menningarstrauma er nauð-
synleg og sjálfsögð. En hitt er
vísasti vegurinn til ógæfu, ef
erlend áhrif fá að berast inn
í íslenzkt þjóðlíf úr ehuii átt
og með ofurþunga. Nú um
árabil hafa stjómarvöld lands-
ins heimilað erlendu stórveldi
að reka sjónvarp í mesta þétt-
býli landsins og smeygja þann-
ig áhrifamesta áróðurstæki nú-
tímans irm í íslenzka menn-
ingarhelgi Saga sjónvarps-
málsins er hörmulegt dæmi
um þá þjóðvillu og ístöðuleysi
gagnvart erlendu valdi, sem
grafið hefur um sig meðal ís-
lenzkra ráðamanna á undan-
fömum árum, og jafnframt
ævinleg áminning til þjóðar-
innar að varðveita menningar-
legt sjálfstæði sitt og tryggja
að framvegis verði allar menn-
ingarmiðstöðvar landsmanna
undir íslenzkri stjóm.
Önnur helzta forsenda hins
■ísienzka sjálfstæðis er sú, að
þjóðin hafi full og óskoruð
umráð yfir atvinnulífi lands-
ins, auðlindum þess og efna-
hagskerfi.
Á næstu áratugum munu er-
. lendir auðhringir reyna í vax-
andi mæli að ná tökum á ís-
lenzkum auðlindum og skapa
sér aðstöðu í atvinnulífi lands-
ins. Fáar þjóðir eiga jafnmik-
ið í húfi og íslendjngar að
standa fast gegn slíkri ásælni;
áhættan er að sama skapi
margfalt meiri sem þjóðin er
margfalt fámennari en smæstu
nágrannar hennar, efnahags-
kerfi og atvinnulíf smávaxið
og einhæft. Með byggingu alú-
mínverksmiðju í Straumsvík
hefur erlent auðfyrirtæki
tryggt sér forystuhlutverk í
íslenzkum iðnaði og öðlazt rétt
til að hagnýta sér íslenzkar
úr og slcartsripix*
KORNEIIUS
JONSSON
skólavördustig
8
Sængurfatnaður
— Hvítur og mislitur —
ÆÐARDÚNSSÆNGUB
GÆSADÚNSSÆNGUR
DRALONSÆNGUB
★
SÆNGURVEB
LÖK
KODDAVEB
Skólavörðustig 21
auðlindir með margfalt betri
kjörum en innlend fyrirtæki
njóta. Þessa öfugþróun í ís-
lenzkum atvinnuvegum verð-
ur tafarlaust að stöðva. At-
vinnutæki og náttúruauðæfi á
íslandi eiga íslendingar einir
að eiga, og frá þessari megin-
reglu ber ekki að víkja nema
í sérstökum undantekningartil-
fellum og þá aðeins þegar um
litla fjármuni er að tefla.
Alþýðubandalagið er and-
vígt hvers konar aðild íslands
að Efnahagsbandalagi Evrópu.
Ef hagsmunir landsins krefj-
ast þess, eiga íslendingar að
gera viðskipta- og tollasamn-
inga við aðrar þjóðir, svo
fremi að í þeim felist engin
skerðing á sjálfsforræði þjóð-
arinnar, en að öðru leyti er
það í mestu samræmi við efna-
hagslegt öryggi þjóðarinnar að
eiga góð viðskipti við sem
flestar þjóðir.
Það er eitt af meginverkefn-
ura sjálfstæðrar þjóðar að á-
sfcunda óháða utanríkisstefnu,
marka ein og á lýðræðislegan
hátt afetöðu sína til alþjóð-
legra vandamála bverju sinni.
Þessum rétti sjálfstæðirar þjóð-
ar voru íslendingar sviptirmeð
inngöngu í Atlanzhafsbanda-
lagið 1949 og með endurnýjun
hemámsins 1951. Siðan hafa
íslenzk stjórnarvöld eftirlátið
erlendum aðilum að taka á-
kvarðanir um alla meginþætti
utanríkismála, einnig þegar
þær ákvarðanir brutu alger-
lega í bága við hagsmúni ís-
lendinga og siðgæðisvitund.
A1 þýðubandalagið leggur á
það megináherzlu, að íslend-
ingar endurheimti óskoráð fuíl-
veldi sitt á þessu sviði, óháðir
öllum hernaðarbandalögum.
. Alþýðabaftdalagið ? fagíiár
þeim umræðum, sem orðið
hafa að undanförnu um upp-
lausn hernaðarbandalaga og
afnám erlendra herstöðva í
Evrópu. Það er þegar Ijóst,
að Atlanzhafsbandalagið verð-
ur ekki framlengt í óbreyttri
mynd 1969, eftir að Frakkar
hafa dregið herstyrk sinn úr
samtökunum og ákveðið að
fjarlægja erlendar herstöðvar
af franskri grund; ríki Var-
sjárbandalagsins hafa einnig
hafið umræður um að tak-
marka stórlega verksvið þeirra
hemaðarsamtáka, og jafnframt
hafa eðlileg og vinsamleg sam-
skipti Bvröpuríkja í austri og
vestri aukizt til muna. íslend-
ingum ber að leggja fram sinn
skerf tii þess að draga úr við-
sjám í Evrópu og efla eðlileg
og friðsamleg samskipti, m.a.
með fordæmi sínu.
Alþýðubandalagið vekur at-
hygli á þeirri stórfelldu hættu,
að Bandaríkin kunni að herða
tök sín á íslandi, þegar tök
þeirra minnka annars staðar í
Vestur-Evrópu. Þegar 1945 til-
kynntu Bandaríkin í verkimeð
kröfu sinni um þrjár herstöðv-
ar til 99 ára, að þau ætluðu
sér að halda íslandi til fram-
búðar, og síðan hefur sú
stefna verið framkvæmd í á-
föngum, m.a. með því að auka
herstöðvar hér, þótt þeim sé
fækkað í nágrannalöndimum.
Herstöðvasamningar íslenzkra
stjórnarvalda eru gerðir við
Bandaríkin og gætu þvi hald-
izt jafnvel þótt Atlanzhafs-
bandalagið sundraðist gersam-
lega. Afnám allra herstöðva á
íslandi er forsenda þess, að
unnt verði að taka upp óháða
utanríkisstefnu, auk þess sem
þráseta erlendra herja í land-
inu slævir heilbrigða þjóðem-
isvitund fólks og suðlar að
varanlegri íhlutim hins erienda
stórveldis á fleiri sviðum,
Alþýðubandalagið leggur á-
'»rzlu á, að íslendingar taki
sm virkastan þátt í störfum
Sameinuðu þjóðanna, og að
stefna landsins í alþjóðasam-
tökum verði ákveðin á lýð-
ræðislegan hátt af kjörnum
fulltrúum þjóðarinnar. Nauð-
synlegt er, að íslendingar vinni
að því, að Sameinuðu þjóðirn-
ar gegni því hlutverki friðar
og sátta, sem þeim var ætlað
í upphafi, en það er borin von
meðan stærsta þjóð heims er
svipt rétti sínum innan sam-
takanna. Því aðeins mun tak-
ast að setja niður deilur og
framkvæma afvopnun — þar á
meðal með algeru banni við
öllum kjarnavopnum —, að
Sameinuðu þjóðirnar verði
• raunverulegur fulltrúi þjóða
heims.
Á þrengri vettvangi er mjög
mikilvægt fyrir íslendinga að
taka þátt í norrænni samvinnu
og efla hana á sem flestum
sviðum. Því aðeins fá Norður-
landaþjóðirnar haldið sérkenn-
um sínum og menningarlegum
verðmætum norrænum, aðþær
efli hver aðra og hafi eðlilega
samvinnu í alþjóðlegum sam-
skiptum.
Alvarlegasta vandamálið í
alþjóðamálum um þessar
mundir er sívaxandi bil milli
snauðra þjóða og ríkra, að
meirihluti mannkyns býr enn
við skort, fáfræði og öryggis-
leysi. í þeim samanburði eru
íslendingar í hópi ríkra þjóða,
og ber skylda til að leggja
fram sinn skerf til þess að
jafna lífskjörin í heiminum.og
aðstoða fátækar þjóðir við að
ná stjórnarfarslegu og efeia-
hagslegu fullveldi. Alþýðu-
bandalagið telur, að íslenzk-
um stjórnarvöjdum beri að
hafa forystu fyrir aðstoð lands-
manna við vanþróuð ríki með
svo rausnarlegu árlegu fram-
lagi að til fyrirmyndar verði
öðrum og stærri þjóðum. Vax-
andi misræmi í þessu efni get-
ur leitt yfir mannkynið stór-
feildasta háska, eins og marka
má af atburðunum í Vietnam,
þar sem auðugasta ríki heims
beitir hernaðarmætti sínum í
villimannlegri árásarstyrjöíd,
til þess að brjóta á bak aftur
fátæka þjóð, sem stefnir að
þjóðlegu sjálfstæði og efna-
hagslegum framförum. Verði
áframhald á þeirri stefnu, að
auðug ríki beiti hervaldi til
þess að halda fátækum þjóð-
um í skefjum og arðræna þær
jafnframt í viðskiptum, ein^
og raunin hefur orðið í vax-
andi mæli, munu hemaðará-
tök halda áfram að magnast,
svo að af getur hlotizt alvar-
legasta styrjöld í sögu mann-
kynsins.
(gntineníal
Úfvegum eftir beiðni
flestar stærðir hjólbarða
á iarðvinnslutæki
Önnumst ísuður og
viðgerðir á flestum stærðum
Gúmmívinnustofan h.f.
Skipholti 35 — Sími 30688
og 31055
BAIAR
Hinn árlegi bazar Kvenfélags sósíalista verður
haldinn í dag, 13. nóv., n.k. í Tjarnargötu 20 og
hefst kl. 3 c.h.
Allskonar munir verða þar á boðstólum að venju
svo sem fatnaður, plastáhöfd, leikföng og jafnvel
kökur.
Nefndin.
NÝR 1967.
TÁUNUS 12M OG 15M.
Stærri vél - 63—75. hestöfl.
Samskonar stýrisgangur og
fjöðrun og í 17M,
Framhjóladrif. —
Mikið farongursrými.
Loftræsting með lokaðar rúður.
Breiðari og rúmbetri en dður.
NYR TAUNUS1
NY CORTINA 1967
Mynda- og verðlistar
fyrirliggjandi.
NÝ CORTINA 1967.
Nýjar línur.
Breiðari og rúmbetri.
Ný gerð af vél. 5 höfuðlegur.
'57.5 hestöfl.
Stýrisskipting, gólfskipting
eða sjálfskipting —
yðar er valið.
Reynsla þessara
' ótvíræð hér c
SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐtÐ LAUGAVEG105 SÍMI 22466