Þjóðviljinn - 29.11.1966, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 29.11.1966, Qupperneq 3
% Þriðjudagur 29. nóvember 1966 — ÞJÓÐVIUINN — SfBA J Samningaviðræður Krags og Samið um samsteypustjórn CDU og SPD í V-Þýzkalandi Larsens báru ekki árangur Minnihlutastjórn sósíaldemokrata situr áfram en gerðar hafa verið á henni verulegar braytingar KHÖFN 28/11 — Viðræður Jens Ottos Krags forsætis- ráðherra og Aksels Larsens, formanns Sósíalistíska al- þýðuflokksins, um helgina um ■ myndun samsteypu- stjórnar flokka þeirra báru ekki árangur og mun minni- hlutastjórn sósíaldemókrata því fara áfram með völd. Á henni hafa verið gerðar veru- legar breytingar og er sú helzt að Krag tekur nú sjálf- ur einnig við embætti utan- ríkisráðherra af Per Hækk- erup. sem verður formaður þingflokks sósíaldemókrata Krag skýrði frá því á fundi með blaðamönnum í Kaup- mahnáhöfn í dag að Hækkerup hefði sjálfur beðið um að vera leýstur úr embætti utanríkis- ráðherra, þar sem hann teldi að hann gæti orðið flokknum að meira liði sem formaður þing- flokksins, en nú sé það starf orðið enn mikilvægara en áður vegna þeirra breytinga sem orð- ið hafa á þingfyigi flokkanna. Krag mun taka við embætti utanríkisráðherra, eins og áður segir, en Hans Sölvhöj, sem var menntamálaráðherra, verður honum til aðstoðar sem ráð- herra án stjórnardeildar og mun sérstaklega fjalla um þau utanríkismál sem varða Atlanz- bandalagið, SÞ og þróunarlönd- in. .-'/rt! Ágreiningur? Orðrómur gekk um það fyrir kosningarnar í Danmörku að grunnt væri á því góðá milli þeirra Krags og Hækkerups og Talið víst að þingfiokkar þeirra muni samþykkja stjórnarmyndunina þrátt fyrir allmikla andstöðu BONN 28/11 — Samkomulag tókst um helgina milli samn- inganefnda Kristilegra demókrata (CDU/CSU) og sósíal- demókrata (SPD) í Vestur-Þýzkalandi um myndun sam- steypustjórnar flokkanna undir forystu Kurts Georgs Kiesingers og eru taldar allar líkur á að þingflokkar þeirra muni samþykkja þá stjórnarmyndun, enda þótt vart hafi orðið harðrar andstöðu gegn henni, einkum í flokki sósíal- demókrata. Samningamenn SF. Morten Lange og Aksel Larsen. Jens Otto Krag. var fullyrt að Hækkerup hefði í hyggju, ef úrslit kosninganna yrðu sósíaldemókrötum óhag- stæð, að freista þess að ná for- ystu flokksins úr höndum Krags. Menn minnast þess að slíkur rígur milli leiðtoga danskra sósíaldemókrata er ekkert einsdæmi. Á sínum tíma kaus H. C. Hansen heitinn fremur að taka við embætti ut- anríkisráðherra til viðbótar störfum forsætisráðherra en að láta Jens Otto Krag gegna því. Krag sagði annars í dag að hann myndi staðfastlega fylgja þeirri -stefnu í utanríkismálum sem Hækkerup hefði mótað. Hækkerup hefur verið mjög at- hafnasamur utanríkisráðherra og einkum verið áhugasamur um aukin samskipti ríkjanna í Vestur. og Austur-Evrópu. Bodil Koch sem verið hefpr kirkjumálaráðherra tekur við embætti menntamálaráðherra, en Orla Möller verður kirkjumála- ráðherra, Svend Horn þingmað- ur verður samgöngumálaráðherra í staðinn fyrir Kai Lindberg. Camma Larsen tekur við nýju embætti fjölskyldumálaráðherra. Viðræður við EBE Á fundi sínum með blaða- mönnum í dag sagði Krag að hann myndi beita sér fyrir því að þau Norðurlönd sem eru í Fríverzlunarþandalaginu (EFTA) hæfu viðræður við Efnahags- bandalag Evrópu um aðild að því, svo fremi sem Bretar riðu á vaðið. eins og Wilson forsæt- isráðherra þeirra hefur boðað. Um næstu helgi munu forsæt- isráðherrar EFTA-ríkjanna sjö hittast í London og kvað Krag forsætisráðherra Norðurlanda mundu koma sér saman um sam- eiginlega afstöðu þegar þeir hitt- ast á fundi Norðurlandaráðs á Marienborg við Kaupmannahöfn Gerir Wilson sér enn vonir að semja við lan Smith? LONDON 27/11 — Nú líður að því að Wilson forsætisráðherra Breta. verði að taka ákvörðun um að fara fram á það við Sam- einuðu þjóðimar að þær skuld- bindi aðildarríki tii að framfylgja refsiaðgerðum gegrí stjóm Ians Smiths í Ródesíu. Hann hafði heitið því að gera það fyrir lok nóvembermánaðar ef Smith hefði ekki fyrir þann tima gert íilslakanir sem brezkn stjórnin gæti unað við. Bowden samveldismálaréð- herra ræddi við Smith um hel i ina og gerði brezku stjórninni i dag grein fyrir þeim viðræðum. Hann sagði við fréttamenn að Smith hefði aðeins gert minni- háttar tilslakanir, en þó er taiið að Wilson hafi ekki gefið uþo plla von um að hann geti sanrð við Smith. Talið er að brezka stjórnin muni ekki taka endan- lega ákvörðun fyrr en i næstu viku og að hún muni fús til að halda áfram viðræðum viðSmith, jafnvel eftir að hún hefur sent öiyggisráði SÞ málaleitun sína um hertar refsiaðgerðir. á miðvikudag og fimmtudag í þessari viku. Ágreiningur i SF Ekki hafa borizt áreiðanlegar fréttir af því á hverju samninga- viðræður Krags og Larsens strönduðu. en heyrzt hefur að mestur ágreiningur hafi verið um þá kröfu SF að dregið yrði úr fjárveitingum til landvarna. Það er eitt meginstefnumál SF að Danir afvopnist og segi sig úr Atlanzbandalaginu. Á fyrstu fundum þeirra Krags og Larsens eftir kosningarnar munu þessi mál ekki hafa verið mikið rædd. Kauprnannahafnarblaðið „In- formation“ skýrir frá því að Larsen hafi sætt harðri gagn- rýni í stjórn SF fyrir að halda ekki fastar fram þessum stefnu- málum flokksins á fyrstu við- ræðufuudunum með Krag. Bár- ust mótmæli til flokksstjórnar- innar frá deildum flokksins víðs vegar um landið. Ekki þykir ósennilegt að sam- bandsþingið í Bonn muni þegar um miðja vikuna kjósa *Kies- inger í embætti forsætisráð- herra í stað Erhards og Kies- inger mun þá geta hafizt handa um að mynda samsteypustjórn- ina með sósíaldemókrötum. Hún mun hafa yfirgnæfandi meiri- hluta á þingi. Frjálsir demó- kratar (FDP) sem hafa 49 þing- sæti mup.u vera einir í stjórnar- andstöðu. Hörð andstaða Margar flokksdeildir sósíal- demókrata hafa þegar lýst and- stöðu sinni við stjórnarmyndun með Kri^tilegum. Flokksdeildin í Bajern varð fyrst til að láta í ljós andstöðu sína og mælti í staðinn með samsteypustjórn SPD og FDP. Flokksdeildirnar í hinum mikilvægu vesturþýzku fylkjum Norðurrín-Vestfalen og Baden-Wúrttemberg tóku undir mótmælin frá Bajern og í dag bættist flokksdeildin í Slésvík- Holstein í hópinn. Grass aðvarar Hinn þekkti vesturþýzki rit- höfundur, Gunter Grass, sem verið hefur mikill aðdáandi og stuðningsmaður Willys Brandts, borgarstjóra í Vestur-Berlín og leiðtoga sósíaldemókrata, sendi honum í dag bréf þar sem hann hvetur hann til að hugsa aftur ráð sitt. Grass segir að ákvörð- un Brandts að ganga til sam- vinnu við Kristilega demókrata muni gefa nýnazistum í NDP byr í seglin. Aðalskrifstofa sós- íaldemókrata í- Bonn birti bréf Grass í dag. Brandt hefur svarað bréfinu og segist hann hafa þaulkannað allar aðstæður og komizt að þeirri niðurstöðu að sósíaldemó- kratar eigi engan betri kost en að mynda stjórn meó Kristileg- um. Sósíáldemókratiskir sútdentar í háskólabænum Göttingen dreifðu í dag flugriti þar sem mótmælt er fyrirhugaðri sam- vinnu SPD og CDU/CSU. Svip- aðar mótmælaaðgerðir hafa ver- ið undirbúnar í Hannover, Ham- borg, Vestur-Berlín og Múnchen. Embættaskipting Þrátt fyrir þessi mótmæli þykir ósennilegt að meirihluti þingflokks sósíaldemókrata muni ganga í berhuögg við leið- toga flokksins sem staðið hafa að samningunum við Kristilega, Knrt Georg Kiesinger Flokksþing hafið í Búdapest Kadar deilir á Kína, hiynntur heimsþingi BÚDAPEST 28/11 — Janos Kadar, formaður Sósíalistíska verklýðsflokksins ungverska, deildi í sqtningarræðu sinni á þingi flokksins í Búdapest í dag á leiðtoga kínverskra kommúnista fyrir sundrungarstarfsemi og lýsti fylgi sínu við að kvatt yrði saman þing kommúnista- og verklýðs- flokka til að fjalla um afstöðu til Kínverja. þá Brandt og Herbert Wehner, sem lengi hefur stefnt að því að mynda „stóra samsteýpustjórn" með CDU/CSU. Kiesinger sagði í dag að enn hefði ekki verið rætt um hvern- ig skipað ýrði í embætti í hinni nýju samsteypustjórn, en menn þykjast vita hvernig embætta- skipanin verði í meginatriðum. Búizt er við að Brandt verði varaforsætis- og utanríkisráð- V' herra, en Wehner ráðherra fyrir alþýzk málefni. Hann hefur ný- lega lagt til að tekin verði upp aukin samskipti milli þýzku ríkjanna. Talið er að Gerhard Schröder. sem verið hefur utan- ríkisráðherra muni taka við embætti landvarnaráðherra af Kai-Uwe von Hassel sem sætt hefur harðri gagnrýni. Það er þó einnig talið koma til greina að sósíaldemókratinn Helmut Schmidt verði landvarnaráð- herra, en Schröder verði for- maður þingflokks CDU/CSU 1 stað Rainers Barzéls. Nær víst er talið að Franz-Josef Strauss, leiðtogi flokksdeildar Kristi- legra í Bajem (CSU), muni fá embætti í stjórninni, enda þótt sósíaldemókratar muni eiga einna erfiðast með að kingja þeim bita. Talið er að honum verði falið embætti fjármála- ráðherra. Varar við Strauss Brandtsagði i viðtalisem birt var í dag að varazt yrði að fela Strauss aðalhlutverk á stjóra- málasviðinu í Vestur-Þýzka- landi. Hann kvaðst ekki vita hvort Strauss fengi sæti í hinni nýju stjórn. Strauss er talinn keppa að því að taka við for- ystu CDU/CSU eftir kosning- arnar 1969. Hann hefur lengi verið fylgjandi stjórnarsam- vinnu Kristilegra og sósíaldemó- krata. Fortíð Kiesingers Brandt sagði einnig í viðtal- inu að hann gerði sér fulla grein fyrir þeim alvarlegu á- sökunum sem bornar hafa ver- ið á Kiesinger, einkum erlendis, vegna fortíðar hans, en hann var félagi í nazistaflokknum 1933—1945. Brandt sagði þó að þær ásakanir -hefðu margar hverjar verið ýkjukenndar. Hið kunna svissneska viku- blað „Die Weltwoche“ ber á móti þeirri afsökun Kiesingers fyrir vist sinni í nazistaflokkn- um að hann hafi verið óbreytt- ur flokksmaður sern aldrei hafi gegnt neinum trúnaðarstörfum. Blaðið segir að hann hafi verið aðstoðarforstjóri útvarpsáróð- ursdeildar utanríkisráðuneytis nazista og tengiliður milli þess og áróðursráðuneytis Göbbels. í því embætti sínu hafi hapn fengið að fylgjast með ýmsum leyniplöggum sem „smánazist- um“ voru ekki sýnd. Hann var trúnaðarmaður glæpamannanna, segir „Die Weltwoche" og bætir við: — Læknir sem brýtur af sér í starfi sínu missir læknis- réttindin. Sama máli ætti að gegna um stjórnmálamenn. Miss Worid" vöruðvið Vietnamsferð LONDON 28/11 — Indverska stúlkan Reita Faria sem fyrir nokkrum dögum var kjörin „Miss World“ er komin í klípu vegna þess að hún undirritaði samning um að fara í sýningarferð um- hverfis jörðina. Hún hafði ekki gætt að því að samningurinn gerir ráð fyrir að hún sýni sig bandarískum hermönnum í Suð- ur-Vietnam. Sendiherra Indlands í Brtelandi hefur varað hana við því að fara í þessa ferð ef leið- in liggur um Suður-Vietnam. Kadar sagði að leiðtogar kínverskra kommúnista hefðu með fjandskap sínum í garð Sov- étríkjanna reynt að sundra hinni alþjóðlegu verkalýðshreyfingu og væri eðlilegt að verklýðsflokk- arnir héldu alþjóðlegt þing «1 að fjalla um hvernig bregðast skyldi við. Hann tók fram að engin þörf væri á að slíkt þing lýsti kínverska kommúnista í bann. Það væri ekki hægt að telja afstöðu Kínverja þeirra einkamál. Þeir héldu því sjálfir fram að „menningarbyltingin“ væri öðr- um þjóðum til fyrirmyndar. — Allt varðár þetta oikkur. Við höfnum þessum hugmyndumsem brjóta í bága við kenningar Marx og Leníns, sagði Kadar. Það er að verða tímabært að halda þing kommúnistaflokkanna. Ungverski flokkurinn styður hugmyndina um slikt þinghald í því skyni að efla einingtma og treysta samstöðuna. A þinginu í Búdapest eru um 1100 fulltrúar, auk gesta frá kommúnistaflokkum og verka- lýðsflokkum í 31 landi. Þar eru engir gestir frá flokkunum í Kína og Albaníu, hins vegar frá Norður-Vietnam og N-Kóreu. Tveir andstæðir leiðarar í „N. Y. Times " um vopnahlé NEW YORK 28/11 — Bandariska ■ dagskvöld. en byrja aftur slátr- stórblaðið „New York Times' jnina á annan í jólum. Þeim bii;ti í dag harðorða forystugrein i myndi heimilt að slátra, sprengja, um fyrirhugað vopnahlé i Viet- nam um jólin, en svo brá við að í næstu útgáfu blaðsins vat þessi grein horfin, en önnur kom in í staðinn um sama efni. en með mun hógværara orðalagi. Heimild til slátrunar. Einn af ritstjórum blaðsins. John Oakes, sagði að fyrri for- ystugreinin hefði verið dregin til baka, af því að talið hefði verið að í henni hefði verið tekið of djúpt í árinni. í greininni var sagt að í vopnahléinu fælist í rauninni hvatning til hermann- anna um að drepa eins margt fólk og þeir gætu fyrir aðfanga- brenna, eyða gróðri og brjóta hús frá nýári og fram til næstu jóla. i hinni forystugreininni var iagnað hugmyndinni um vopna- hlé um iólin og sagt að stutt vopnahlé væri a.m.k. skárra en látlaust stríð. Þ j óðf relsisf y lkingin í Suður- Vietnam hefur boðizt til að gera hlé á bardögum tvo daga um jólin og aðra tvo um nýárið. Bandaríkjastjórn hefur enn ekki fallizt á að gera slíkt hið sama og í Washington er sagt að hún muni ófús að láta undan. tilmæl- um sem búast megi við um að hún lengi vopnahléið. ^

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.