Þjóðviljinn - 29.11.1966, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 29.11.1966, Blaðsíða 12
I Skátar kynna sögu og með- ferð fánans Skátar víða um land muuu gangast fyrir kynningu á sögu íslenzka fánans og meðferð hans hiiut 30. nóv. n.k. Kynning þessi verður fyrir nemendur 12 ára bekkja bamaskólanna. Er þetta í annað skipti, sem skátar gang- ast fyrir kynningu sem þessari i tilefni af afmæli fánans. Um leið og kynningin verður, fflnn dreift haganlega útbúnum spjöldum með reglugerð um ís- lenzka fánann. Var reglugerð þessi samþykkt af dómsmála- xáðimeytinu á síðasta ári. Til að hvetja unglinga til nánari umhugsunar um gildi fánans, hefur Bandalag ísl. skáta ákve'ðið að efna til rit- gerðarsamkeppni meðal 12 ára baxna og er efni ritgerðarinnar: Saga íslenzka fánans og með- ferð hans. Frestur til að skila ritgerðinni verður veittur til áramóta og hafa skólar tekið að Sér að taka á móti ritgerðunum. : Höfundur beztu ritgerðarinn- ar úr hverjum skóía hlýtur á- leirað skinn eða viðurkenningu, én verðlaun í ritgerðarsam- keppninni er flugferð til Grsen- lands Verðlaun eru gefin af Flug- félagi íslands. Eldiir í Grund í gaermorgun kom upp eldur á fyrstu hæð í austurhluta Elli- heimiiisins Grundar. Voru allir slökkviliðsbílar og sjúkrabílar basjarins sendir á vettvang, svo og allir slökkviliðsmenn. Ekki reyndist þó um 'mikinn eld ah raeða, kviknað hafði í dívani í einu herberginu og var starfslið elliheimilisins langt komið með að slökkva eldinn þegar liðið bar að. ( Eldsupptökin voru þau að ó- varlega var farið með eld í herberginu. í>ar bjó ein kona og komst hún út í tæka tíð og urðu engin slys á fólki og að sögn lögreglunnar greip engin hræðsla um sig á meðal gamla fólksins. Brezkur togari tefcimi í landhelgi Á laugardagskvöldið varbrezki togarinn Hoss Renown tekinn að ólöglegum veiðum út af Dýra- firði. Varðskipið Óðinn sem tók togarann, fór með hann inn á ísafjörð, þar sem fjallað er um mál ekipstjórans. Hann neitar öllum sakargiftum, en samkv. mælingum varðskipsmanna var togarinn mest eina og hálfa mílu fyrir innan tólf mílna mörkin. Skipstjóri á Ross Renown er Alan Dennis. Hann hefur ekki áður verið viðriðinn landhelgis- brot við Islandsstrendur. I | Fullveldisfagnaður háskólastúdenta 1. desember | j Séru Þorgrímur og dr. Jakob j Benediktsson aíalræðumenn \ Að venju munu háskóla- stúdentar gangast fyrir há- tíðahöldum á fullveldisdaginn, ^ 1. desember. Hefjast þau með k guðsþjónustu í kapellu háskól- ™ ans kl. 10,30. Halldór Gunn- arsson stud. theol. prédikar, en séra Þorsteinn Björnsson þjónar fyrir altari. Kór guð- fræðinema syngur undirstjórn ! Sr. Þorgrímur Sigurðsson dr. Róberts A. Ottóssonar, Organleikarl verður Guðjón Guðjónsson stud. theol. Kl. 14 hefst hátíðafundur i hátíðasal háskólans. Sigurður Bjömsson stud. med., formað- ur hátíðanefndar, setur fund- inn. Anna Áslaug Ragnars- dóttir stud. philol. leikurein- leik á píanó, og BöðvarGuö- mundsson stud. med. 'es frumort ljóð. Þá flytur séra Þorgrímur Sigurðsson prófast- ur á Staðastað aðalræðu dags- ins, „Andlegt sjálfstæði“, og loks syngur stúdentakórinn undir stjóm Jóns Þórarins- sonar. Fullveldisfagnaður verður um kvöldið á Hótel Sögu og hefst með sameiginlegu borð- haldi kl. 19. Fyrst flytur for- maður Stúdentafélags Háskóla Islands, Aðalsteinn Eiríksson stud. theol, ávarp. Dr. phil Jakob Benediktsson flytur ræðu. Þá kemur fram kór, sem nefnir rig Coriculus baro- censis, og syngur undirstjóm Atla Heimis Sveinssonar. Óm- ar Ragnarsson stud. jur. fer með gamanþátt, og Ármann Sveinsson stud. jur. flybur minni fósturjarðarinnar. Þriðjudagur 29. nóvember 1966 — 31. árgangur — 273. tölublað. Áskorun frá Kvenréttindafélaginu: Barnaheimilin séu opin til klukkan 6 Dr. Jakob Benediktsson Dansað verður til kl. 3 að morgni. Aðgöngumiðar að fullveldis- fagnaðinum verða seldir á Hó- tel Sögu á þriðjudag kl. 4 til 6 e.h. og á miðvikudag kl. 3 til 5 e.h., verði þá eitthvað óselt. Borðapantanir fara fram á sama stað og tíma. (Frá Stúdentafélagi H. 1.). B-listahóf / ÞjóBleikhúskjallaranum Stúdentar þeir, er stóðu að B-Jistanum við kosningamar í Stúdentafélagi Háskólans í haust efna til B-4istahófs á fullveldisdaginn, 1. desember í Þjóðleifchúskjallaranœn og stendur það frá kl. 4,30 til kl. 7 sd. Hófið hefst með þvi að Jón Oddsson stúd. júr. og Ólafur R. Grímsson hagfræðingur flytja ávörp. Þá lesa tveir hásfcólastúdentar, Hjörtur Pálsson stúd. mag, og Böðvar Guðmundsson stúd. mag. úr Ijóðum sínum. Þriðja atriðið á dagskránni er Tubbasöngpr, Glúntar og fleira. Heimir Pálsson stúd. mag. og Krist- inn Jóhannessón stúd. mag. syngja. •Undirleikari er Jón Hlöðver Áskelsson stúd. phil. Fjórði dagskrárliðurinn er frumflutningur á nýju leikriti; „Ég er afi minn“, einþáttungfur eftir Magnús Jónsson stúd. philol. Persónur og leikendur eru; Pabbi — Jón Júlíusson, mamma — Jóhanna Norð- fjörð, brói — Sigurður Karls- so-n. gömul kona — Öfctavia Stefánsdóttir, sálfræðingur — Amar Jónsson, lilli — Kjartan Ragnarsson. Skemmtiatriði annazt Þórhildur Þorleifsdótt- ir, leiktjöld og grímur gerði Sigurjón Jóliannsson. Kynnir á samkomunni er Þorleifur Hauksson stúd. mag. B-listinn hvetur stúdenta tíl að taka þátt f hátíðahöldun- um 1. des. Fyrir þá sem fara að B-listahófinu loknu á full- veldisfagnaðinn að HótelSögu verða bifreiðar til reiðu við anddyri Þjóðleikhússins. Tvö slvs í Kóna- vofji nim lielitina Á laugardaginn fór Volkswag: en-bifreið út af Hafnarfjarða?- veginum rétt við Fífuhvammsveg í Kópavogi. ökumaðurinn var einn í bílnum og féll hann út þegar bíllinn valt. Talið er að maðurinn hafi lent undir bif- reiðinni og slasaðist hann eitt- hvað. Maðurinn- var fluttur á sjukrahús í Reykjavík en- hann heitir Haraldur Þórðarson og á heima að Arnarhrauni 25. Annað slys varð í Kópavogi á sunnudaginn. I húsi Bifreiða- þjónustunnar, Auðbrekku 53, var verið að setja bíl i gang oa beyttist hann snögglega á hann sem stóð þar rétt hjá. Maðurinn Rögnvaldur Hjörleifsson, Laufási 1. Gárðahreppi. var fluttur á Slýsavarðstofuna og mun harm hafa lærbrotnað. Alfreð Gíslason læknir á Alþingi: Skipun heilbrigðismálanna í landinu er orðin úrelt Einn þingmanna Alþýðubandalagsins, Alfreð Gíslason læknir, flytur. á Alþingi tillögú til þingsályktunar um, að skipan heilbrigðismála verði endurskoðuð. Tillag- an er þannig: Alþingi ályktar að fela ríkisstjóm- inni að láta rannsaka frá grunni meðferð heilbrigðismála í landinu og endurskoða gildandi lagaákvæði um stjóm þeirra. Sérstaklega verði kannað, hvort ekki sé hagkvæmt að koma á fót sérstöku heilbrigðis- málaráðuneyti, endurskipuleggja landlæknisembættið og sameina þætti heilbrigðisþjónustunnar undir eina yfirstjóm. Athugun þessari skal hraðað, og að henni lokinni skal álitsgerð og tillögur Alþingi. lagðar fyrir í gær bárust Þjóöviljanum tvær ályktanir sem samþykktar voru á fundi Kvenréttindafélags íslands 15. þ.m. varðandi þá á- kvörðun Barnavinafélagsins Sumargjafar að loka barna- heimilunum í borginni kl. 17 á daginn. Er önnur ályktunin á- skorun til borgarstjómar Reykjavíkur um að beita áhrif- um sínum til þess að Sumar- gjöf falli frá þessari ákvörðun en í hinni er skorað á Sum- argjöf að breyta opnunartíma baraaheimilanna í fyrra hdrf. Fara áskoraniraar hér á eftir. Áskorun send borgarstjórn Reykjavíkur: Fundur Kvenréttindafélags ís- lands, haldinn 15. nóvember 1966, beinir þeim tilmælum til borgarstjórnar Reykjavíkur, að hún hlutist til um það, að Barnavinafélagið Sumargjöf leggi tafarlaust niður þá ný- breytni að loka barnaheimilun- um kl. 17, en hafi þau a.m.k. opin frá kl. 8—18. Fundurinn telur, að með þess- ari ráðstöfun félagsins sé þjón- usta þess við einstæðar mæður og aðra foreldra og forráða- menn barna skert að verulegu leyti. Fundurinn vill benda á, að það torveldi atvinnumöguleika kvenna, ef þær þurfa að hverfa af vinnustað kl. 16.30. Fundurinn telur, að eðlilegra væri, að barnaheimili borgár- innar færðu út starfsemi .sína, svo að hún kæmi sem flestum að gagni. Áskorun send stjórn Barna- vinafélagsins Sumargjafar: Fundur Kvenréttindafélags íslands, haldinn 15. nóvember 1966, átelur þá ráðstöfun Barna- vinafélagsins Sumargjafar að loka barnaheimilunum kl. 17. Fundurinn telur, að með þess- ari ráðstöfun félagsins sé þjón- usta þess við einstæðar mæður og aðra foreldra og forráða- menn barna skert að verulegu leyti. Fundurinn beinir þeirri ein- dregnu áskorun til stjórnar Sumargjafar, að lokunartíma barnaheimilanna verði hið altía fyrsta breytt þannig, að opið verði framvegis frá kl. 8—18. Myndirnar tilbúnar fimmtún sek. eítir að þær eru teknar í greinargerð segir flutningsmaður m.a.: . „Tillaga þessi er borin fram í þeim til- gangi fyrst og fremst að beina athygli að yfirstjóm og meðferð heilbrigðismála í landinu. Að baki liggur sannfæringin um, að skipan þeirra mála sé úrelt og gegni því ekki hlutverki sínu lengur, en slíkt er þjóðinni að sjálfsögðu mikil skaðsemd. v Margt má nefna til sannindamerkis um, að stjóm heilbrigðismála hérlendis. sé í molum og heildarstjómin svo til engin í reynd. Þegar við bætist þekkingarleysi á stöðu þessara mála í nútímaþjóðfélagi og andóf ráðandi manna gegn tímabærum breytingum, er sízt við góðu að búast. Af- leiðingin verður bein afturför". Greinargerðin er ýtarlegur rökstuðningr ur þess sem hér er^haldið fram og verður hún birt í heild einhvern næstu daga. Þeir halda á ihismunandi gerðum Polaroid myndavéla. — Til vinstri er Ragnar Tómasson og til hægri Poul Petersen forstöðu- menn Mynda h.f., en í miðið M. Evangelos sem sérstaklega hef- ur lært og mun sjá um viðgerðir rfg viðhald vélanna. Og mynd- in er að sjálfsögðu tekin á Polaroid filmu og var tilbúin á 15 sek., það var Guðm. Erlendsson í Stúdió Guðm. sem smellti af. Komin er á markaðinn ný gerð myndavéla, Polaroid, sem framkallar myndirnar sjálf nokkrum augnablikum eftir að þær eru teknar. Það er fyrir- tækið Myndir hf., sem flytur vélar þessar inn og hefur um- boð fyrir þær hérlendis, og verða þær fyrst um sinn tilsöiu hjá verzlununum Hans Pederscn og Sportval. Polaroid-vélarnar eru af ýms- um gerðum, allt frá ódýrri vél, Swinger, sem kostar kr. 1825 og tekur svart/hvítar myndir í stærðinni 5V2x7 cm, upp i mjög dýrar og vandaðar vélar fyrir atvinnuljósmyndara á kr. 11.475. Þá má fá vélar sem taka bæði svart/hvítar myndir og litmyndir í stærð 8%xl0 cm frá kr. 4.825. Allar framkalla vélarnar svart- hvítar myndir á 15 sek. og lit- myndir á 60 sek. og stilling er sjálfvirk. Fullkomnasta Polaroid-vélin er model 100, sem getur tekið svart/hvitar myndir án ,,flash“ við mjög litla birtu,, en rafauga reiknar út rétta samstillingu ljóss og hraða og er hægt að Framhatd á 9. síðu. Muniö Happdrætti Þjóöviljans 1966

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.