Þjóðviljinn - 29.11.1966, Síða 9

Þjóðviljinn - 29.11.1966, Síða 9
I Þriðjudagur 29. nóvember 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA § LUKKURIDDARINN Framhald af 7. síðu. Baldvin Halldórsson er í öllu traustur og sannur i ágætu gervi hins hugdeiga biðils, þótt hann mætti að sjálfsögðu veranokkru unglegri. Shawn Keogh erung- ur efnabóndi, guðhræddur um skör fram og bókstaf lega ) vasanum á prestinum. Dæma- lausum heigulskap hans, rag- mennsku og búraskap lýsir Baldvin með svo grátbroslegum og raunsönnum hætti að hvergi skeikar; það er engin furða þó að Pegeen fýsi lítt að gift- ast þessum ógiftusamlega ná- unga. Þá kemur frú Quin einn- ig mikið við sögu, þrítug ekkja með ærið flekkaða fortíð, manngjöm og drykkfeld, slótt- ug og ósvífin, og allt annaðen vel þokkuð af sveitungum sín- um. Helga Valtýsdóttir túlkar skapgerð hennar og innsta eðli með sönnum ágætum, svip- mikil og hæfilega vargaleg, til- svör og öll viðbrögð eldsnögg og fyndin, og átti réttilega ó- skipta hylli leikgesta. Mahon gamli er blátt áfram stórkostlegur í öruggum hönd- um Jóns Sigurbjömssonar, bæði í sjón og raun, raddsterkur, ó- frýnilegur og óárennilegur eins og hamramur berserkur aftan úr forneskju, ósvikinn frum- maður í öllu, og syngur af kunnáttu og þrótti eins og vænta má. Ævar R. Kvaran fer vel og mynduglega með hlut- verk Michaels James föður Pegeen, einkum þegar hann kemur blekfullur heim úr erf- isdrykkju og þykist heldur en ekki húsbóndi á sínu heimili; söngvinn og raddmikill í senn. Klemenz Jónsson og Valdimar Lárusson eru bændur og drykkjufélagar Miehaels, en ó- líkar manngerðir: Valdimar- gleiðgosalegur og kvensamur, Klemenz tortrygginn og þurr á mánninn. Gervi þeirra gætu verið betri, bæði leikstjóraog leikendum hefði átt að verða meira úr þessum skemmtilega írsku kotbændum. Tveir bænd- ur aðrir taka nokkum þátt í ærslunum, Ámi Tryggvason og Sverrir Guðmundsson og gera skyldu síná. Loks má ekki gleyma ungu stúlkunum, blóma- rósunum berfættu sem þyrpast utan um lukkuriddarann og virðast helzt ætla að gleypa ' hann með húð og hári. Sig- ríður Þorvaldsdóttir hefur for- ustuna, en stallsystur hennar eru Brynja Benediktsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir og Þóra Friðriksdóttir, glæsilegur og fjörmikill hópur, en bera tæpast nógu greinileg merki sveitarinnar. Allar' leika þær af lífi og sál, syngja, ærslast og dansa; framkoma þeirra hæfir söngvaleiknum hið bezta. Þjóðlögin írsku virtust öllum til ánægju, en flutning hljóm- listarinnar annast Ámi fs- leifsson ásamt tveimur hljóð- færaleikurum öðrum; Magnús Blöndal Jóhannsson raddsetti tónlistina. Fay Wemer æfði hina einföldu þjóðdansa. Leiknum var vel tekið á frumsýningu og leikendunum oftlega klappað lof í lófa. Ég þakka góða skemmtun og óska „Lukkuriddaranum" langra líf- daga. — Á. Hj. Faktúrufals Framhald af 1. síðu. fyrirtæki og flutt inn frá þvi bæði húsgögn og fleiri vörur og sagði Magnús að frá íslenzku sjónarmiði væri ýmislegt við þau viðskipti að athuga og er þar fyrst og fremst að lægri upphæðir hafa verið gefnar upp á pappírum en innflutningur hefur numið og á ýmsan hátt ekki farið rétt með tölur í þessu sambandi. Er þama um talsvert mikil viðskipti að ræða ogmunu upphæðihnar á þeim ólöglega hagnaði sem fyrirtækin hafa dregið sér með þessum tollsvik- um nema hundruðum þúsunda ef ekki miljónum. Magnús gerði ráð fyrir að rannsókn málsins lyki síðari hluta þessarar viku og er þá að vænta nánari fregna af þessu stórfellda svikamáli. Ofviðri nofðan- og anstanlsnús Framhald af 1- síðu. Þá urðu smávegis skemmdir á þökum tveggja íbúðarhúsa. Járnplötur og allskonar drasl var á ferð og flugi um allar göt- ur meðan veðrið var sem verst. Bílar fuku til á götunum, þar sem, þeir stóðu. Mörg skip liggja nú í vari inni á Seyðisfirði. Fjarðarheiði er al- ófær, en sæmilega greiðfært er um bæinn, eins og áður er getið. Eftir hádegi í gær var veðrið mikið farið að skána. Togari á land Á sunnudaginn breytti snögg- lega um veður á Akureyri og gerði beljandi norðan stórhríð með miklu roki. Geisaði veðrið allan daginn og langt fram eftir kvöldi með ofanhríð og skafrenn- ingi svo ekki sást út úr augunum. Umferð stöðvaðist um göturnar og samkomuhald féll niður. Tog- arinn Hrímbakur, sem lá við festar fram undan Krossanesi, slitnaði upp i veðrinu og rak á land. Kom hann upp í svonefnda Sandgerðisbót. sem er rétt við , Glerárósana. Snýr skipið þar stefni að landi, en ekki er vitað um skemmdir. Grunur leikur þó á að einhverjar séu, því að skip- ð rak yfir sker á leið sinni til lands og heyrðist hátrt urg í landi, þegar það steytti á því. í gær var unnið að því að gera götur færar, en vegir frá bænum eru ill- eða ófærir. Flugvöllurinn var hins vegar ruddur í gær og var umferð um hann með eðli- legum hætti. Rafmagnstruflanir urðu víða í Eyjafirði í Veðrinu. Á Húsavík var mikið veður á sunnudaginn. Snjó festi (ekki á götum bæjarins vegna roksins, en þrir trillubátar urðu fyrir á- föllum í höfninni. Einn rak á land, en tveir sukku á legunni. Eftir er að kanna skemmdir á bótunum. f gær var komiS bjart og gott veður nyrðra. Frost um allt land Samkvæmt upplýsingum Veð- urstofunnar var 7 stiga frost í Reykjavík og á Akureyri kl. 14 í gær. Þá voru 13 stig á Hvera- völlum og 11 í Síðumúla. Norð- anáttin var gengin niður, orðið bjart fyrir norðan en byrjað að sáldra niður snjó á vestanverðu landinu. Færð á vegum Vegir á Suðurlandi voru yfir- leitt færir, nema við Eldvatn, þar sem skemmdir urðu á brú í vatnavöxtum. Ekki er vitað hvenær vegurinn kemst í sam- band aftur. Vesturlandsvegur var fær um Hvalfjörð, Borgar- fjörð um Bröttubrekku í Dali og vestur í Reykhólasveit. Góð færð var á Snæfellsnesi, en ekki var vitað um ástandið á Vestfjörð- um. Norðurlandsvegur var fær í Skagafjörð, en Öxnadalsheiði ó- fær. Vafalítið er að vegir á Norð- austurlandi og Austurlandi hafi lokazt í veðurhamnum, en ekki hafði gefizt tóm til að rannsaka bá fyrripartinn i eær NahfkSingar Stofnfundur hafnfirzkra verktaka verður haldinn i Félagsheimili iðnaðarmanna mið- vikudaginn 30. nóv. kl. 8,30 s.d. Hér með eru boðaðir á fundinn allir þeir meistar- ar, sveinar og fyrirsvarsmenn fyrirtækja í bygg- ingar- og járniðnpði. sem hug hafa á að gerast stofnendur U ndirbúningsstjórn. Ljssmpdavél Framhald af 12. síðu. fá mikið úrval fylgitækja með þessari gerð. Swinger-vélin hefur orðið mjög vinsæl, enda bæði ódýr og einföld í meðförum. Hún er með innbyggt flash og ljósmæli af .nýrri gerð, þannig að aðeins þarf að snúa hnappi á vélinni þar til orðið „Yes“ birtist á skermi, en þá er Ijósopið rétt stillt. Forstöðumenn Mynda hf. buðu blaðamönnum að skoða þessar’ nýju gerðir myndavéla í gærog tóku nokkrar myndir sem allar voru framkallaðar á svipstundu og virðast þessar vélar mjög gagnlégar þeim sem mikill hag- ur er að þvi að fá myndirstrax, j svo sem lögreglu, blaðamönnum,, tryggingafél. og fleirum, auk þess gamans, sem • flestir hafa sjálfsagt af þvi að geta fengtð augnabliksmyndir þegar í stað. SKIPAUTGCRÐ KIKISINS M/S HERJOLFUR fer til Vestmannaeyja og Horna- fjarðar á miðvikudag. Vörumót- taka til Hornafjarðar á þriðju- dag. M/S BAJLDUR fer til Snæfellsness- og Breiða- fjárðarhafna á fimmtudag. Vöru- móttaka á þriðjudag og mið- vikudag. B I L A LÖKK Grunnur FyUir Sparsl Þynnir Bón. EINKAUMBOÐ ASGEIR OLAFSSON neUdv Vonarstræti 12. Simi 11075. Sængurfatnaður — Hvítur oe mislitur — ÆÐARDUNSSÆNGUR GÆSADIÍNSSÆNGUR DRALONSÆNGUR 'Íf SÆNGURVER LÖK KODDAVER búðin Skólavörðustíg 21 Auglýsið í Þjóðviljanum Smurt brauð Snittur við Oðinstorg. Sími 20-4-90. Kostakaup Háteigsvegi 52' (þeint á móti Sjómanna- skólanum). Frakkar Kr. 1000,09 Herra- og drengjaföt frá — 1000,00 Buxur — 575,00 Skyrtur — 150,00 AN GLIA-skyrtur — 400,00 Herrasokkar — 25,00 DÖMU -ny lonsokkar — 20,00 Handklæði — 36,00 Flónelsskyrtur 3 í pakka — 300,00 Kaki-skyrtur ^3 í pakka — 300,00 Úlpur, unglinga frá — 200.00 Úlpur á herra frá — 600,00 Komið og skoðið ó- dýra fatnaðinn og gerið jólainnkaupin hjá KOSTAKAUP Háteigsvegi 52 (beint á móti Sjómanna- skólanum). B/að- dreifíng Blaðburðarböm óskast í eftirtalin hverfi. Langholt Skipasund Sólheima Tjamargötu Laufásveg- Leifsgötu Lönguhlíð. Sími 17-500 KÓPAVOGUR Blaðburðarböm óskast í vestur- bæinn. Simi 40-753! ÞJÓÐVILJINN ASKUR BÝÐUR YÐUR SMURT BRATJÐ & SNITTUR ASKUK suðurlandsbraut 14 sími 38550 FRAMLEIÐUM ÁKLÆÐI á allar tegundir bfla OTUR Hringbraut 121. Sími 10659. BRlÐGESTONE HJÓLBARÐAR Síaukin sala sannargæðín. ftRIDGESTONE veitir aukið öryggi í akstri. BRI DGESTONE ávallt fyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTÁ Verzlun og viðgerðir Gúmmbarðinn h.f. Brautarholti 8 Sími 17-9-84 Viðgerðir á skinn- og rúskinnsfatnaði. Góð þiónusta Leðurverkstæði Úlfars Atlasonar. Brötugötu 3 B. , Sími 24-6-78. Vélritun Símar; 20880 og 34757. SlMASTÓLL Fallegur - vandaður Verð kr 4.300,00. Húsgagnaverzlun AXELS EYJÓLFSSONAR Sklpholti 7. Sími 10117 TRIUMPH undirfatnaður í fjölbreyttu úrvali. ELFUR Laugavegi 38. Snorrabraut 38. BRAUÐHUSH) SMACK BAB Laugavegi 126. SMURT BRAUÐ SNITTUR BRAUÐTERTUR * Sími: 24631 SÆNGUR Endumýjum gömlu sæng- urnar. eigum dún- og öð- urheld ver. æðardúns- og gæsadúnssængur og kodda af vmsnm etærðum Oún- og fiðurhreinsun Vatnsstig 3. Siml 18740 • (örfá skref frá Laugavegi) VQ lk 'Váx-nuj'&r />ezt 5 KHmq

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.