Þjóðviljinn - 04.12.1966, Side 2
2 SlÐA — ÞJÖÐVTLJINN — Sunnudagur 4. desember 1966.
Bótagreiöslur
almannatrygginganna í Reykjavík
Bótagreiðslur hefjast í desember sem hér segir:
Ellilífeyrir þriðjudaginn 6. desember.
Aðrar bætur, þó ekki fjölskyldubætur, fimmtudaginn 8. desember.
Fjölskyldubætur greiðast þannig:.
Þriðjudaginn 13. desember hefjast greiðslur með 3 bömum og fleiri
í fjölskyldu.
Föstudaginn 16. desember hefjast greiðslur með 1 og 2 bömum í
fjölskyldu.
Sérstök athygli skal vakin á því, að á mánudögum er afgreiðslan
opin til kl. 4 síðdegis og auk þess verða greiddar allar tegundir bóta
til kl. 5 síðdegis föstudaginn 16. desember og laugardaginn 17. des.
TRYGQrlNGASTOFNUN RÍKISINS.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Yfirvinnugreiðsla
í desember
Sapikvæmt kjarasamningi Verzlunarmannafélags Reykjavíkur við vinnuveitend-
ur ber að greiða alla vinnu sem fer fram yfir dagvinnutímann með eftir-, næt-
ur- og helgidagakaupi.
Hjá afgreiðslufólki greiðist eftirvinna frá kl. 18,00 til 20,00 nema föstudaga frá
kl. 19,00 til 20,00. Næturvinna greiðist frá kl. 20.00. Helgidagavinna greiðist
frá kl. 12,00 á hádegi alla laugardaga.
Sérstök athygli skal vakin á því, að nú ber að greiða alla „aukamnnu" í desember
sérstáklega samkvœmt ofangreindu þannig:
1, Helgidagakaup alla laugardaga frá kl. 12,00 á hádegi.
2. Þorláksmessu: Eftirvinnukaup fri kl. 19,00 — 20,00 og neeturvinnukaup
eftir klukkan 20,00.
Ef vinna hefst fyrr en kl. 9,00 að morgni, hefst yfirvinna þeim mun fyrr.
Geymið auglýsinguna.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
HAPPDRÆTTI
Kandknattleik-
urinn í dag
Reykjavíkurmótinu í hand-
knattleik verður haldið áfram í
dag, sunnudaginn 4- des.. í Laug-
ardalshöllinni og leikið í meist-
araflokki karla.
Héfjast leikimir klukkan 15.00-
Þessir leikir fara fram:
KR — Fram, IR — Ármann,
Þróttur — Víkingur.
Staðatn í meistaraflokki karla
er nú þessi:
Félög
Fram
Valur
K- R.
f. R.
Áimann
Víkingur
Þróttur
1 u j t s Mörk
4 4 0 0 8 74-43
54018 80-61
4 3 0 1 6 61-52
4 2 0 2 4 66-67
41123 45-60
4 0 1 3 1 46-58
5 0 0 5 0 48-79
Ylfíngadagur
Á þessu ári eru liðin 50 ár
frá því að Baden Powell hóf
starf ylfinga fyrir- þá drengi,
sem ekki voru nógu gamlir til
að gerast skátar. Ylfingastarf
þetta byggir á bók R. Kíplings,
Dýrheimum.
Til að minnast afmælisins
hérlendis var sunnud- 20. nóv.
haldinn ylfingadagur í Njarðvík
fyrir alla ylfinga á Suð-Vest-
urlandi, sem höfðu aðstöðu til
að koma. Þar komu saman 215
ylfingar og nálægt 30 foringjar
frá Akranesi. Reykjavík, Hafn-
arfirði, Keflavfk. Njarðvík og
Keflavíkurflugvelli.
Dagskráin var bæði á íþróttaf-
vellinum og einnig inni í fé-
lagsheimilinu Stapa.
Á þe&sum degi minntist
skátahöfðingi, Jónas B- Jóns-
sotn Henriks W- Ágústssonar,
sem er nýlátinn, en hann var
einn fyTsti ylfingaforinginn hér-
lendis.
Bræðrafélag Hallgrímskirkju
heldur fund í Iðnskólamum
mánudaginn 5. des- kl- 8,30
(gengið inn frá Vitastíg). Cand.
rriag, Ámi Bjömsson flytur er-
indi: Hvenær voru jól haldin til
foma? — Séra Jón Guðnason
flybur aðventuhugleiðingu- Nýir
meðlimir velkomnir á fundinn.
Stjómin.
Vörubílstjórafélagið
Þróttur
FUNDUR
verður haldinn í húsi félagsins í dag kl. 2 e.h.
FUNDAREFNI:
1. Húsbygging (Tekin afstaða til kaup-
tilboða)
2. Önnur mál.
STYRKIÐOSS
ISTARFI!
HAPPDRfflTTI
KRARBAMEINSFELAGSINS
POLARPANE
e'nan9^S^lí
so&nsfc
9^QdovQfQ
EINKAUMBOD
IVIARS TRADRIMG OO
LAUGAVEG 103 SiMI 17373
ÞJOÐVILJANS
\
'Ar Styrkið Þjóðviljann, málgagn íslenzkrar alþýðu
•jg Kaupið og seljið miða í happdrættinu
'jrfk Gerið skil fyrir heimsenda miða
jg Aðalvinningar 2 Moskwitschbifreiðir árgerð 1967
'k Verð miða kr. 100 — Dregið 23. des. n.k.
★ Tekið er við skilum á afgreiðslu Þjóðviljans
Skólavörðustíg 19 og í Tjarnargötu 20
GERIÐ SKIL
STRAX
I