Þjóðviljinn - 04.12.1966, Page 12
Óeðlileg viðskipti:
Fjöldi manns pantar allan sinn fatn-
al gegnum verðlista frá útlöndum
Sunnudagur 4. desember 1966 — 31. árgangur — 278. tölublað.
Hvað segja tolla-
og gjaldeyris-
yfirvöldin?
Fjöldi manns á íslandi
virðist mikils til hættur
að eiga skipti við fata-
og vefnaðarvöruverzlan-
ir hér á landi en kaupir
þessar vörutegundir af
stórverzlunum erlendis.
Allir kannast við ó-
hemjuleg innkaup ís-
lenzkra ferðamanna í út-
löndum, en sízt munu
minni að magni eða verð-
mæti þær vörur sem fólk
pantar beint frá stórfyr-
irtækjum erlendis með
aðstoð verðh'sta
1 Mest er keypt á þennan hátt
frá fyrirtækinu Quelle i Bajern
í Vestur-Þýzkalandi. en einnig
mikið frá bandarísku fyrirtækj-
unum Sears and Roebuck og
Montgomery Ward- Er það fólk
baeði í Reykjavík og úti um allt
land sem pantar fatnað og ann-
að frá þessum fyrirtæ'kjum og
virðist f meira lagi ósennilegt
að allt þetta fólk eigi peninga
erlendis, en sem kunnugt er. er
stranglega bannað að senda
peninga í almennu bréfi auk
þess sem bannað er að senda ís-
lenzka peninga úr landi.
Fæstir munu fá gjaldeyris-
leyfi til þessara innkaupa, en
leyfilegt hefur vérið talið að fá
sendar að utan án gjaldeyrisleyf-
is vörur sem nemá að upphæð
innan við 3000 krónur. en að
sjálfsögðu. ber að borga af bess-
um innflutningi fulla tolla og
virðist satt að segja ólíklegt að
fólk beinlfnis sparí peninga á
þessum viðskiptum.
Það sem mest er keypt er alls
konar fatnaður á börn og full-<
orðna, rúmfatnaður og hand-
klæði og hefui blaðið fregnað
að langflestir muni nota þá að-
ferð að senda peninga til greiðslu
í bréfum til fyrirtækjanna, ís-
ler.zka peninga til þess þýzka,
en dollara til Bandaríkjanna,
hvemig sem þeir svo eru fengn-
ír. Kveður svo rammt að þess-
um innkaupum sumsstaðar að t.
d. í þorpi einu á suðurnesjum
Umræðufundur
á firiðiuiia?
yæsti umræðufundur um
vandamál sósíalismans verð-
ur haldinn á þriðjudagskvöld
klukkan 8.30 í Tjamargötu 20.
Fundarefni: Efnahagsmálin
í sósíalisku ríkjunum.
Pélagar mætið stundvíslega.
Stjóm Æ- F. R-
4. spilakveld
Sósíalistafél.
★ Fjórða spiiakvöld Sósíal-
istafélag Reykjavíkur á þess-
um vetri verður í kvöld,,
sunnudag, klukkan 8-30 í
Tjamargötu 20-
■k Jón frá Pálmholti Ies kafla
ír bók sinni sem nú er í
prentun. Sýnd verðnr stutt
kvikmynd- Spilaverðlaun og
veitingar- —
Skemmtinefnd.
Er póstmannadeilan að leysast?
Seinni hluta dags i fyrradag ■ barst póstmönnum
t.ilboð um samninga frá Póst- og símamálastjóminni.
Verður tekið til við samningaumræður nú um helg-
ina og eftirvinnustöðvun póstmanna hefur verið
frestað af þessum sökum fram í næstu viku.
Um 90 félagar nú í
Félaai ísl. leikara
hefur eina fataverzlunin sem þar
var fyrir' neyðzt til að loka og
póstafgreiðslumaður á staðnum
hefur orðið að taka hluta af í-
búð sinni til geymslu og af-
greiðslu á vamingnum-
Verður að borga tolla
Þjóðviljinn hefur rætt þessi
viðskipti við nokkra aðila, ‘ m.a-
Ölaf Jónsson tollgæzlustjóra,
sem sagði aið þetta færi mest
gegnum póstinn og svt> framar-
lega sem greiddir væru allir
tollar og söluskattur væru þessi
viðskipti ekki óleyfileg frá tolla-
vfirvöldunum séð, og væri enda
mjög hart eftir þvf gengið að
bessi tollar væru borgaðir. Sagði
hanr, að í byrjun hefði fólk lát-
ið fyrirtækin senda vörumar
sem gjafir til að losna við toll-
ana, en sem kunnugt er má
fólk fá tollfrjálsar gjafir frá
vinum og ættingjum erlendis,
séu þær ekki því verðmætari.
Fvrir þessa misnotkun hefur
hefur algerlega verið tekið, sagði
Ólafur. Hann sagði jafnframt að
tollverðimir hefðu ekki aðstæður
til að fylgjast með hvemig fólk
hagaði greiðslum, en þegar sama
fólkið færi að panta aftur ög
aftur gætu þeir gert gjaldeyris-
eftirliti bankanna viðvart og það
gæti aftur krafizt þess að fólk
gerði grein fyrir þessu.
Lögbrot án. gjaldeyrisleyfis
Sigurður Jóhannesson for-
stöðumaður gjaldeyriseftirlits
Seðlabankans sagði Þjóðviljaín-
Þannig lítur verðlisti Quelle út.
um að innflutningur af þessu
tagi væri tvímælalaust lögbrot
hefðu viðkomandi aðilar ekki
fengið gjaldejrrisleyfi. Að senda
íslenzka peninga úr landi væri
bannað með lögum og einnig
varðaði það við lög að senda
peninga í almennu bréfi, þá
yrði að senda í sérstökurri pen-
ingabréfum, en þau væri sem-
sagt baunað að senda til út-
landa- Hann sagði að engir
mættu fara með íslenzka peninga
úr landi nema ferðamenn, og
væri þá miðið við upphæðina
2500 krónur; farmenn, flugmenn
og aiðrir sem atvinnu sinnar
vegna fara oft til útlanda, hefðu
ekki leyfi til að taka með sér
íslenzka peninga.
— Fái fólkið þetta á löglegan
máta gegnum toll, sagði Sigurð-
ur að lokum, hlýtur það líkai að
að hafa fengið peninga gegn-
um bankana-
Við verðum því miður að ef-
ast um að þessi fullyrðing hans
sé rétt.
Kaupmenn argir
Þjóðviljkm hafði að lokum tal
af Jakbbi Tryggvasyni formanni
Félags vefnaðarvörukaupmanna
og spurði um álit hans á þess-
um viðskiptum- Sagði Jakob
kaupmenn mjög arga út í öll
þessi innkaup fólks erlendis og
sagði að verzlunin væri meira
og minna að færaist úr landi.
Kaupmenn ættu í vök að verj-
ast, þeir reyndu að flytja inn
ódýra og góða vöru, en tollar
væru svo háir að fólki fyndist
hagkvæmara -að verzla erlendis
en kaupa vöruna hér á þvi verði
sem hún væri eftir að Iögð hefði
verið á hana frakt, tollar, heild-
sölu- og smásöluálagning. Sagði
hann að tollar á veöiaðarvöru
væru nú 90-125%.
Deleríum bubonis frum-
sýndur í Borgurnesi
I fyrrakvöld var gamanleikur-
inn Delerium biibonis eftir þá
bræður Jónas og Jón Múla Ama-
syni, frumsýndur í Borgarnesi og
þótti sýningin takast mjög vcl.
Jónas Árnason var leikstjóri
og lék jafnframt eitt af að-
alhlutverkunum. Æfingar voru
ákveðnar og strangar, enda um
Iangan veg að sækja fyrir leik-
stjórann, sem er kennari £ Reyk-
holti.
Leikendur eru Hilmir Jóhanns-
son (Ægir Ó Ægis), Freyja
Bjamfreðsdóttir (frú Pálina Æg-
is), Jónas Ámason (jafnvægis-
málaráðherralhn), Þórhildúr
Loftsdóttir (dóttirin Guðrún Æg-
is), Geir K. Bjömsson (Leifur
Róberts), Sigifðrr Héðínsdóttir
(Sigga vinnukona), Friðjón Svein-
bjömssoh (Unndór atómskáld),
Jón Kr. Guðmundsson (Einar f
Einiberjarunni) og Þórður Magn-
ússon (Grímur leigubílstjóri, sem
áður hét Gunnar Hámundarson,
en nafninu hefur verið breytt til
samræmis við sýningarstaðinn).
Undirleik og æfingar söngvanna
annaðist frú Oddný Þorkelsdótt-
ir.
★
Sýningar verða frekar fáar
fyrir jól, en síðan verður ;leik-
urinn sýndur nokkrum sinnum í
japúarmánuði. Næsta sýning á
leiknum er annað kvöld, mánu-
dag og er uppsett á hana, en
síðan verður hann sýndmr á
þriðjudagskvöldið.
Körfuknattleikur-
inn í kvöld
Reykjavíkurmeistaramótinu í
körfuknattleik verður haldið á-
fram í íþróttahúsinu f Laiugar-
dal í kvöld, sannudag, klulckan
20.00. Þá leika í meistaraflokki
karla ÍS og KFR — einnig IR
og Ármann-
Staðan í meistaraflokki er nú
þessi: KR 3 3 0 6 295-167
ÍR 2 2 0 4 138-64
Árm- 2 1 1 2 106-135
KFR 2 0 2 0 94-172
Is 3 03 3 0 114-209
Aðalfundur lélags íslenzkra
Icikara var haldinn sl- mánudag.
Tíu Ieikarar og söngvarar gerð-
ust félagar á þessum aðalfundi-
Nú eru félagsmenn allt um 90
og hafa aldrei áður verið iafr>
margir í félnrír.n
/Auk venjulegra aðalfundar-
starfa voru umræður um ýms
kjara- og haigsmunamál leikara
og söngvara. Á árinu var minnzt
25 ára afmælis félagsins og var
af því tilefni boðið þangað full-
trúum frá leikarasamböndum á
Norðurlöndum.
Formaður F- I .L. sótti fund
Leikararáðs Norðurlanda í Finn-
landi og var honum einnig boð-
ið tfl Finnlands í tilefni af 100
ára afmæli Sænska leikhússins
í Helsingfors.
1 tilefni af 25 ára afmæli
F- 1- L. var fyrsti tormaður fé-
lagsins, Þorsteinn ö. Stephensen,
sæmdur gullmerki félagsins, svo
og Valur Gíslason, sem lengst
allra hefur gegnt formannsstörf-
um í félaginu.
Ennfremur hlutu tveir aldurs-
forsetar leikara, Arndís Bjöms-
dóttir og Haraldur Bjömsson,
gullmerki F. í L- Vom þau
einnig á þessum sama fundi kjör-
in heiðursfélagar Félags • ís-
lenzkra leikara.
Ýmsar merkar og ágætar gjaf-
ir bárust félaginu í tilefni af 25
ára afmælinu og m.a. má geta
bess að frú Anna Guðmunds-
dóttir gaf F. 1. L. öll íslenzk
leikrit í mjög smekklegu og
vönduðu bandi- Segja má að sú
gjöf sé félaiginu mjög kærlcom-
in, þvi að margt af þessum leik-
ritum mun nú ófáanlegt. Enn-
fremur gaf Vilhelm Norðfjörð og
kona hans veglega fjárhæð í hús-
bvggingarsjóð F. I. L. Frú Anna
os Vilhelm voru bæði sæmd
silfurmerkjum félagsins.
Skólasundmót
annað kvöld
oí fimmtudag
Hið fyrsta sundmót skólanna
i Reykjavík og nágrenni fer
fram í Sundhöll Reykjavfkur
annað kvöld, mánudaginn 5. des-
og fimmtudaginn 8. desember og
hefst bæði kvöldin klukkan
20.00- Fyrri dagrnn keppa yngri
nemendur.
Tvö innbrot
í fyrrinótt voru framin
tvö innbrot, annað i' veitingac
stofuna Brauðbæ við Óðinstorg,
og hitt í mjólkurbúð á Hrísateig-
I Brauðbæ var stolið 60—70 kr.
í peningum, en i mjólkurbúðinni
rúmlega 700 krónum og allmiklu
magni af sælgæti. Þar höfðu
þjófarnir gengið illa um.
Kuldaskór
FYRIR KARLMENN '
Háir og lágir — Ný sending
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100
Kuldaskófatnaöur
FYRIR BÖRN OG UNGLINGA
Fjölbreytt úrval tekið upp í fvrramálið
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100