Þjóðviljinn - 11.12.1966, Page 2
I
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 11. desember 1966.
AUGLÝSING
um takmörkun á umferð í Reykja-
vík 12. til 24. desember 1966
Ákveðið hefur verið að gera eftirfarandi ráðstaf-
anir vegna mikillar umferðar á tímabilinu 12.
til 24. desember n.k.: .
I. Einstefnuakstur: "
1) Á Vatnsstíg frá Laugavegi til norðurs.
2) Á Frakkastíg frá Hverfisgötu að Lindargötu.
3) í Naustunum frá Hafnarstraeti að Tryggvagötu.
4) í Pósthússtræti frá Tryggvagötu til suðurs.
n. Hægri beygja. bönnuð:
1) Úr Tryggvagötu í Kalkofnsveg,
2) Úr Snorrabraut í Laugaveg.
3) Úr Snorrabraut í Njálsgötu.
IH. Bifreiðastöðubann:
1) Á Skólavörðustíg, norðan megin götunnar,
frá Týsgötu að Njarðargötu.
2) Á Týsgötu, austan megin götunnar, frá Skóla-
vörðustíg að Þórsgötu.
IV. Bifreiðastöður takmarkaðar við Vz klst.:
1) Á eyjunum í Snorrabraut frá Hverfisgötu
að Njálsgötu.
2) Á Frakkastíg milli Lindargötu og Njálsgötu.
3) Á Klapparstíg frá Lindargötu að Hverfis-
götu og frá Grettisgötu að Njálsgötu.
4) Á Garðastræti, norðan Túngötu.
Þessi takmörkun'gildir á almennum verzlunar-
j n nr~ tíma frá mánudeginum 12. desember til hádegis
laugardaginn 24. desember n.k. Frekari takmark-
anir en hér eru ákveðnar verða settar um bif-
reiðastöður á Njálsgötu, Laugavegi, Banka-
stræti, Aðalstræti og Austurstræti ef þörf krefur.
y.
Ökukennsla í miðborginni er bönnuð milli
'Snorrabrautar og Garðastrætis á framangreindu
tímabili. ’
VI.
Bifreiðaumferð er bönnuð um Austurstræti, Að-
alstræti og Hafnarstræti, laugardaginn 17. des-
ember, kl. 20,00 til 23,00, og föstudaginn 23. des-
ember, kl. 20,00 til 24,00. Ennfremur verður sams-
konar umferðartakmörkun á Laugavegi frá
Snorrabraut og í Bankastræti á sama tíma, ef
ástæður þykja til.
VII. .
Athygli skal vakin á takmörkun á umferð vöru-
bifreiða, sem eru yfir 1 smálest að. burðarmagni,
og fólksbifreiða, 10 farþega og þar yfir, annarra
en strætisvagna, um Laugaveg, Bankastræti,
Austurstræti og Aðalstræti. Sú takmörkun gild- |
ir frá kl. 13,00 þar til almennum verzlunartíma ;
lýkur alla virka daga, neipa föstudaginn 23. og
, laugardaginn 24. desember, en þá gildir bannið
frá kl, 10,00. Ennfremur er ferming og afferm-
ing bönnuð á sömu götum á sama tíma.
Þeim tilmælum er beint til ökumanna, að þeir
forðist óþarfa akstur, þar sem þrengsli eru, og að
þeir leggi bifreiðum sínum vel og gæti vandlega
að trufla ekki eða tefja umferð. Þeim tilmælum
er beipt til gangandi vegfarenda, að þeir gæti
varúðar í umferðinni, fylgi settum reglum og
stuðli með því að öruggri og skipulegri umferð.
Lögreglustjórinn í ReykjaVík, 10. des. 1966
Sigurjón Sigurðsson.
Halldór Pétursson:
Skæruliðar og
Það er langt síðan ég ætl-
aði að skrifa grein um þessar
tvær tegundir þjóðfélagsþegna.
Þessar tegundir verða þó vart
sundurgreindar, en hér á ég
við barnsfeður sém ekki greiða
meðlag með börnum sínum eða
hirða um þau á nokkurn
hátt og þá menn sem ekki erú
barnsfeður en rása um landið
og greiða hvorki skattá né
skyldur eins og aðrir þjóðfé-
lagsþegnar sem gjaldskyldir
eru.
Þetta er ekki skrifað vegna
ástar á sköttum, en þeir eru
staðreynd sem ekki verður
framhjá gengið þó deilt sé um
upphæð þeirra. Ég tel hvorki
vit né sanngirni í því að stór
hluti manna sleppi alveg við
þá og hæli sér af, en þessu sé
svo bætt yfir á þá sem eru að
pína sig við að standa í skilum.
Þetta er bara aðferð gauksins
sém verpir í annarra fugla
hreiður og gauksunginn spark-
ar svo hinum réttu aðilum út
_úr hreiðrinu.
Þessir menn hæla sér af þVi
að þeir séu að „plata“ bæ og
ríki, en þetta er bara afstæður
sannleikur. Bæir og ríki leggja
á fyrir öllum sínum greiðslum,
en það sem tapast af þessu í
innheimtunni verða þeir að
greiða í ofanálag sem áður
hafa greitt sitt, því nefndir að-
ilar þurfa að standa við sinar
skuldbindingar. Þar sem ég
fæst dálítið við þessi mál sem
snerta þessar tvær mannteg-
undir, renni ég ekki alveg blint
í sjóinn.
Á þessu ári afskrjfaði Kópa-
vogsbær útsvör frá 1963 og
eldri að upphæð kr. 549 þús.
og að sjálfsögðu er ekki af-
skrifað það sem nokkur von
er í.
Stærsti hiutinn af þessu er
hjá þeim flokki sem ég nefni
skæruliða. en það er i allt.
annarri merkingu en þegar bar-
izt er fyrir frelsi og sjálfstæði.
Þessir menn hafa þann hátt
á að þeir afla sér heimilisfestu
hér eitt ár. Sökum þess að
þetta eru nýir skattgreiðend-
ur er mjög erfitt að ná af
þeim svonefndri fyrirfram-
greiðslu en þegar útsvör koma
eru þeir horfnir og náttúrlega
með útsvarið sem visitölu.
Þegar svo farið er að rekja
slóðirta þá er sama skuldasag-
an þar. Þetta eru þó oftast
menn á bezta aldri og vel vinn-
andi. Þeir æða svona um land-
ið og skrifa sig ár og ár í
stað, sumir hvergi. Aðrir skrifa
sig ’í heimildarleysi. Komið hef-
úr fyrir, að menn hafa skrifað
sig á húsgrunna, sem byrjað
er að steypa og einn skrifaði
sig hér á leiðinni á letigarð-
inn.
Sumum húsráðendum finnst
það ekki nema greiði að lofa
mönnum að skrifa heimili sitt
hjá sér, þó að þeir viti lítið eða
engin deili á þeim. Það þyrfti
að setja lög um að þeir á-
byrgðust greiðslur þeirra.
Vinnu sinni haga þessir menn
þannig að þeir vinna sem allra
stytzt á sama stað, helzt ekki
lengur en viki> til mánuð, þá
eru þeir horfnir. Atvinnurek-
endur trassa yfirleitt að til-
kynna fyrir svona stuttan tíma
og þó lengri sé. Og það und-
arlega er að atvinnurekendur
hlifa helzt svona mönnum við
því að draga af kaupi, þó að
þeir taki af öðrum. Þetta er að
minnsta kosti ■ mín reynsla.
Náttúrlega er hægt að lækna
atvinnurekendúr áf þessu með
þyí að fara í skattaskrárnar
árið eftir og láta þá greiða
skatta þess fólks sem ekki hef-
ur verið gefið upp.
Sem sagt, þessir menn rása
svona um landið, rífa upp pen-
inga óg lifa eins og greifar,
meðan aðrir sjá fyrir þeim. Ég
komst fyrir' nokkru yfir einn
slíkan fugl sem hafði unnið á
sama stað heilt sumar, sem er
óvanalegt. Þegar ég talaði við
atvinnurekandann kom hann
eins og álfur úr hól og hafði
ekkert tekið, af manninum.
Þetta skiptir ekki svo miklu
máli, sagði ég, þér verður send-
ur reikningur upp á útsvar,
rúm ,30 þúsund. Þegar ég fór
að kanna þetta í gjaldheimt-
unni kom í ljós að þessi maður
hafði skilið þar eftir um 100
þús. kr. skuld og ekki er ólík-
legt að slóðin liggi lengra.
Þá er ég kottiinn að hinum
svonefndu barnsfeðrum. í árs-
lok 1965 átti Kópavogsbær úti-
standandi ógreidd barnsmeðlög
að^upphæð 1 milj. og 920 þús.
og svoná mun það vera um all-
ar jarðir. Ég minnist ekki á
þetta af siðgæðisástæðum. Mér
eða öðrum kemur ekkert við
þó að fólk eigi börn utan hjóna-
bands, ef það sér fyrir þeim
og kemur fram við þau eins og
foreldrar almennt gera. Fólk
hefur frá upphafi haft gaman
af að glingra við þessa hluti
og mUn ég engan dóm þar á
leggja. Aftur á móti undrast
ég með alla þá tækni sem nú-
tíminn hefur á boðstólum að
fólk skuli ekki geta glingrað
við þetta án barneigna, því
, sannleikurinn mun vera sá að
þetta fólk langar alls ekki til
að eignast börn, eins og þessir
barnsfeður sanna sem ekkert
hirða um börn sín, rétta þeim
ekki einu sinni kertisstúf á
jólum.
Allt sem þeir leggja til íyrir
utan?efnið í barnið er að láta
sveitir og bæi leggja með þeim.
Mæðurnar taka samkvæmt lög-
um með þessum börnum úr
Tryggingarstoínun ríkisins en
síðan greiða viðkomandi bæir
eða sveitarfélög. Tryggingar-
stofnunin úrskurðar hvar fað-
irinn eigi framfærslusveit, en
oft gengur það seint því það,
er eins og engin kannist við
þessa menn og líkast því að
guð hafi ekki skapað þá. Menn
sem ég hef talað við og hafa
kynnt sér þessi lög halda því
fram að það sé skylda Trygg-
ingarstofnunarinnar að gera
allt sem hægt er til að inn-
heimta þessi meðlög, en hennar
þáttur kvað vera sá að senda
feðrunum bréf með 5 kr., fri-
merki, um að þeim beri að
greiða. Svo gengur hún bara
þegjandi og hljóðalaust að bæj-
ar- og sveitarfélögunum rtieð
þessar skuldir.
Það þykir sjálfsagt gróf-
lega mælt en ég hef stundum
efazt um rétt sumra kvenna til
að fjölga mannkyninu gegn því
að ausa úr Try%gingunum. Ekki
þar fyrir, að þjóðfélagið eyðir
í margt verra en að ala upp
börn. En það er önnur hlið á
málinu en sú er höfðar til
peninga. Fjöldi af þessum
börnum fær ekki það sem kaH-
ast uppeldi. Mörg eru að kalla
með mæðrum sínum en þær
þurfa að vinna úti sem eðlí-
legt er.
Sé ekki hægt að skrúfa börtt-
in niður hjá afa og ömmu þá
eru þau á barnaheimilum ein-
hvern tíma dagsins eða annars
staðar, Þegar þær koma heim,
taka við húsverk og útré.ttingar
og ekki er óeðlilegt að þær
þurfi líka út á kvöldin annað
veifið. Sem sagt, það er aHt-
af verið_ að koma börnunum
fyrir, þau finna aldrei að þau
eigi heimili, verða á allan hátt
útundan og utangátta. Þegar
þeim svo vex fiskur um hrygg
þá tekur ,,gatan“ oft við þeim
og sagan endurtekur sig.
Hlutur feðranna er þó, enn
verri en mæðranna því mér
finnst það hámark vesal-
mennsku og mannhrakseðlis að
hirða ekkert um sín eigin börn,
vera verri en' dýrin sem leggj a
lífið í sölurnar fyrir afkváemi
sín.
Þessir hreysikettir hafa sömu
vinnutilhögun og skæruliðarn-
ir sem ég hef áður nefnt, enda
allt sama tóbakið. Endirinn
verður oftast sá að þeir raun-
verulega byggja sér út úr þjóð-
félaginu. Ég þekki til manna
sem alveg hætta að vinna þeg-
ar þessar skuldir eru vaxnar
þeim yfir höfuð. Þá er óttinn
orðinn svo mikill um að þeir
verði „nappaðir" og allt tek-
ið af þeim. Margir fara þá að
láta kvenfólk vinna fyTÍr sér,
því kvenþyUi skortir þessa
menn aldrei, en þá er ræfildóm-
urinn alger.
Hér þarf rapnverulega við-
reisn, bæði vegna mannanna
sjálfra og þjóðfélagsins. En
hér dugar enginn hégómi, eins
og prestur á Austurlanfli sagði
þegar hann var beðinn að taka
drykkjumann til bæna af stóln-
um.
Við þuríum sérstaka löggjöf
í þessum málum sem tryggir
það að menn þessir greiði
barnsmeðlög sín reglulega svo
þau safnist ekki fyrir og geri
Framhald á 6. sfðu.
\
JONAS ÞORBERGSSON:
BRÉF TIL
SONAR MÍNS
ÆVIMINNINGAR.
Jónas Þorbergsson, fyrrum ritstjóri og útvarpsstjóri, ritor
í formi sendibréfa til sonar síns, frósagnir af hinni við-
burðaríku œvi sinni. Hann lýsir bernsku sinni og uppvaxt-
arórum og rekur smalaslóðir sínar í Þingeyjarsýslu. Hann
lýsir þar bœjum og bújörðum, húsbcendum og samtíma-
fólki, — sumarvist á Svalbarðseyri og nórrisórum á Akur-
eyri, — sex óra dvöl í Ameríku og heimkomunni til íslands,
sem varð all sögurík.
BRÉF TIL SONAR MÍNS er sagp mikillar baráttu og örðugra tíma í þjóðlífi Islendinga
og skráð af hinni alkunnu ritsnilld, sem Jónas er þekktur fyrir frá ritstjórnarárum sín-
um við Dag á Akureyri og Tímann í Reykjavík.
SKIISGSJÁ
\
I