Þjóðviljinn - 11.12.1966, Side 10
10 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagtir IL desemfoer KWfi.
LEONARD GRIBBLE
26
Ef Morrow hafði ekki verið
unnusti stúlkunnar, þá voru
sannanir Clintons gegn Morrow
strax orðnar þýðingarminni.
Hann varð að setja annan mann
í hans stað — og sá maður hafði
haft góðar og gildar ásiaeður til
að hata Doyce.
— Má ég líta á dagblaðið með
fréttinni um líkskoðunina, sagði
hann loks. Slade rétti honum
gamla eintakið af Ryechester
Crofticle. Clinton fór aftur að
lesa vitnisburð Doyces. Já, hann
hafði farið með stúlkuna á dans-
leikinn og. hann viðurkenndi að
hún hefði horfið áður en ball-
ið var búið. Hann hafði leitað
að henni en ekki getað fundið
hana. Hann hafði hringt heim
til hennar, en þar hafði enginn
svarað. Hann staðhæfði, að þeim
hefði ekki orðið sundurorða. Þau
hefðu verið góðir vinir. Hann
vissi ekki hverjum hún hafði
verið trúlofuð. Hann hafði eig-
inlega litið á þessa trúlofun sem
grín. Hann tók það mjög nærri
sér, þegar hann frétti að lík
Hennar hefði' fundizt.
Þetta var allt og sumt — ó-
sköp venjuleg yfirlýsing vitnis
undir slíkum kringumstæðum.
Engar óþarfa viðurkenningar.
Clinton rétti yfirmanni sín-
um blaðið.
— Færðu nokkuð út úr.þessu?
spurði Slade. Starfsbróðir hans
kinkaði kolli með semingi.
— Það er margt sem kemur
K®
URA- OG
SKARTGRIPAVERZL.
KORNELÍUS
JÓNSSON
SKOLAVORÐUSTÍG 8 SÍMI: tB588
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18 III hæð (lyfta)
Sími 24-6-16
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968
fram, en ég veit ekki hvort við
erum nokkru nær. Ég sé ekki
betur en Doyce hafi leikið sama
leikinn og allir hinir. Hann sagði
ekki allt sem hann vissi!
— Til að hlífa látnu stúlkunni,
stakk Slade upp á.
— Má vera, rumdi Clinton. —<
Eða til að hlífa sjálfum sér. Hann
stendur ekki allt of vel að vígi.
Hann fer með henni á dansleik
— hann notaði sér vonbrigði
hennar yfir þessari misheppnuðu
trúlofun — og kannski átti hann
sinn þátt í að uppúr slitnaði.
Við vitum, að hann var býsna
snjall að hagræða trúlofunum!
— Sagði hann ekki eitthvað
um, að hann hafi álitið þessa
trúlofun eins konar grín?
— Jú — það var klókt hjá
honum! Með því kom hann eigin-
inlega i veg fyrir frekari spurn-
ingar. Og komst úr klípunni.
— Clinton — þú ert óforbetr-
anlegur gamall gaur!
Og . þar með lauk samræðun-
um og hvor um sig hallaði sér
aftur í sætið og lét hugann
reika.
Það var farið að skyggja, þeg-
ar þeir komu til London. Þeir
óku á Yardinn og þar biðu
skilaboð eftir Slade.
Setchley hafði hringt fyrr um
daginn og beðið fyrir skilaboð
til Slades fulltrúa. Umslagið var
merkt „áríðandi“, Setchley
skýrði frá því að flaskan með
Aconitíni væri horfin úr eitur-
skáp hans í rannsóknarstofunni.
Hvorki hann né Tompkins, að-
stoðarmaður hans, víssu neitt um
það hvenær hún hefði horfið
eða hvað hefði orðið af henni.
Hann og aðstoðarmaður hans
yrðu á rannsóknarstofunni til
klukkan sjö um kvöldið, ef þörf
yrði fyrir aðstoð þeirra.
— Víð erum nýkomnir heim
frá Ryechester, sagði Slade og
virti manninn fyrir sér til að
aðgæta, hvernig hann tæki þeirri
frétt.
Setchley gerði enga tilraun til
að leyna undrun sinni. — Rye-
chester? Hvað í ósköpunum vor-
uð þið að vilja þangað? Eruð
þið að kynna ykkúr starfsemi
Saxon Rovers í gamla daga?
— Já, meðal annars. Ég ætl-
aði líka að kynna mér, hvað
komið hefði fram við líkskoðun-
ina á Mary Kindilett.
Nafn stúlkunnar hafði undar-
leg áhrif á efnafræðinginn. Hon-
um varð hverft við og hann opn-
aði munninn eins og til að segja
eitthvað, en sá’ sig um hönd.
Hann vísaði þeim inn í litla
skriístofu við endann á löngum
gangi.
— Ég veit ekki hvort þið get-
ið fundið ykkur eitthvað að sitja
á . . . Hann ýtti hlaða af /vís-
indaritum niður á gólfið, svo að
i eitt homið á skrifborði hans varð
autt. Hann benti Clinton á lág-
an skjalaskáp, setist sjálfur á
skrifborðshornið og bauð Slade
eina stólinn í herberginu.
—- Er þörf á því að róta upp
í fortíðinni? spurði hann blátt
áfram.
— Já, ég er hræddur um það-
Þér verðið að skilja, að ég hef
engan áhuga að gera þessa rann-
sókn óþægilega fyrir neinn,
Setchley. ín morð er nú einu
sinni morð.
Efnafræðingurinn horfði dap-
urlega á tímaritin á gólfinu. Já,
ég skil það vel. En. sjáið þér
til, við allir sem þekktum Kind-
ilett í gamla daga — já, það
varð þegjandi samkomulag okkar
á milli að hlífa tilfinningum
hans- Þér skiljið það, er ekki
svo? Mary var augasteinninn
hans- Hún var indæl stúlka, kát
og fjörug, og öllum þótti vænt
um hana.
— Hún var vinsæl?
— Já, með afbrigðum vinsæl-
Ég held að allir í liðireu. hafi
verið ástfangnir af henni. Þegar
lík hennar fannst eftir þennan
dansleik, tókum við það mjög
nærri okkur, En Kindilett —
hann var alveg niðurbrotinn
maður, þangað tíl hann byrjaði
á nýjan leik á því að byggja
Trójuliðið upp. Það var þess
vegna sem hann mætti svo mikl-
um skilningi hjá öllum þeim sem
höfðu þekkt hann áður. Hann
hafði orðið fyrir miklu áfalli og
%kkur fannst ekkert sjálfsagðara
Setchley var í þann veginn að
fara, þegar Slade og Clinton
komu til rannsóknarstofunnar í
Great West Road. Eins og svo
márgar rannsóknarstofur aðrar
var þessi til húsa í yfirlætis-
lausri og heldur hrörlegri bygg-
ingu. Hún var hálffalin milli
tveggja stórra verksmiðja með
steinsteyptum göflum. — Ég var
fgrinn að halda að þér kæmuð
ekki, sagði rauðhærði efnafræð-
ingurinn.
en reyna að ljá honum lið- Það
er ekki af neinni tilfinningasemi,
— en við erum ekki tilfinninga-
lausir heldur, sizt þegar þessi
maður á í hlut, sem við þekkjum
að öllu góðu-
Það vottaði fyrir ögrun eða
einhverju þvílíku í rödd hans
eins t>g hann i ætti von á þvi
að vera misskilinn. Hann var
vísindamaður og ekki mikið fyrir
að láta tilfinningar sínar í ljós
— hann virtist hálfvandræða-
legur yfir þessari játningu-
— Þetta á sem sagt við um
yður, Morrow og Doyce, sagði1
Slade.
— Ekki Doyce. Hann kom ekki
fyrr en miklu seinna. Ég er ekk-
ert viss um að Kindilett hafi
verið sérlega sólginn í að taka
hann inn í félagið, þótt hann
vissi vel hversu duglegur leik-
maður hann var. En hann kom
ekki með neinar mótbárur. Það
var Morrow sem mælti gegn
því — mjög kröftuglega meira
að segja- Ég bar alla ábyrgðina
á því að Doyce var tekinn í
klúbbinn. Hann var fyrsta flokks
knattspymuleikari, og það skipti
mestu máli fyrir mig- Ég gat
ekki séð að einkalíf hans kæmi
neinum öðrum við en honum
sjálfum. Ekki kom það mér við
að minnsta kosti.
— Þér eigið þá við, að þér og
Morrow hafi stutt Kindilett, þeg-
ar hann var að koma Tróju-
klúbbnum á fót?
— Já — en við megum ekki
gleyma Raille. Án hans hefði
þetta aldrei orðið neitt lið. Hann
vann með Kindilett frá upphafi-
— En Raille lék ekki með
Saxon Rovers á dögum Kindil-
etts?
— Nei, en hann lék með Saxon
Amateurs- Það var eins ko*ar
angi af i hinu liðinu, þar sem
bjálfaðar voru alls konar leik-
niannasírur. Þar kynntist Ra-
ille knattspyrnu og kynntist
kenningum Kindiletts-
— Getur hugsazt að Railie hafi
hekkt Mary Kindilett?
— Já, á því er enginn vafi.
Allir í báðum liðunum þekktu
hana. En Raille er varla sólgnari
í að tala um þetta en við hinir.
Hann er tryggur samherji Kind-
iletts-og hefur sömu hugsjónir og
hann í sambandi við Tróju.
Hann á mikinn þátt í að gera
liðið að einni heild- Hann vikur
aldrei frá Kindilett, þegar starfs-
bræður koma í heimsókn og að-
stoðar við að útskýra smáatriðin.
Raille gengur mjög upp í starfi
sínu og dregur ekki af sér. 1
SKOTTA
Ég htíiui íicio pimihu ei eirianædiKennarinn hefði ekki dregið
svona mikið at£ mér fyrir aö sprengja rannsókarstofuna!
@ntinental
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, meS okkar full-
komnu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó' og
hálku.
Nú er allra veSra von. — BíSiS
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTAL' hjólbarðá; -meS
eða án nágla, uijdir bílinn nú
þegar. -w-r-
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
Jólasaga barnanna
1. Mjallhvít er önnum kafin við jóla- 2. — Hver getur verið að hringja? Það 3
undirbúninginn þegar töfraspegillinn er jólasveinninn!
hennar hrmgir.
Auglýsið i ÞjáðvHjanum
Sími 17500