Þjóðviljinn - 30.12.1966, Blaðsíða 10
.•íx i-v'
oíí?
m .
ÍXffáíM
i:é: ^ - ■ ••
- .. *
HáskölahverfiS gð mesfu reisf fyrir happdrœttisfé
Enn bíða stór verkefni úrlausnar í
húsnæiismálum Háskóla fslands
■ Forráðamenn Happdrættis Háskóla íslands buðu frétta-
mönnum blaða, útvarps og sjónvarps til kvöldverðar í
fyrrakvöld og ræddi Ármann Snævarr hásk^laxektor og
formaður stjómar happdrættisins þar um rekstur happ-
drættisins og byggingamál Háskólans en segja má að
háskólahverfið hafi verið reist fyrir happdrættisfé að mest-
um hluta og enn bíða stór verkefni úrlausnar því húsnæð-
iskreppa hamlar mjög, allri starfsemi Háskólans, bæði
kennslu og þó einkum rannsóknarstarfsemi, sagði rektor.
Er næsta verkefnið sem happdrættisfénu verður varið til
bygging húss sem Háskólinn og Handritastofnunin standa
að sameiginlega og byrjað vepður að reisa í vor.
Samkvæmt bráðabirgðaupp-
gjöri fyrir árið 1966 voru seld-
ir hlutamiðar í Happdrætti Há-
skóla íslands fyrir um 110 milj-
ónir króna og voru miðar í
happdrættinu nær uppseldir, á
árinu og raðir með öllu ófáan-
legar. Greiðir happdrættið 70%
af veltunni í vinninga sem er
hærra hlutfall en hjá nokkru
öðru happdrætti hér á landi. Á
það að sjálfsögðu sinn þátt í
vinsældum happdræ'ttisins ásamt
því að allir vinningar þess eru
greiddir t peningum. Þá færist
það og mjög í vöxt að menn
stofni til félagsskapar um kaup
á miðum í happdrættinu, t.d.
54 áramótabrennur haldnar í Reykjavik
Áramótabrennur í Reykjavík
verða að þessu sinni alls 54 eða
talsvert fleiri en í fyrra en bá
voru þær tæplega 40. Stærst
verður borgarbrennan svokallaða
á Miklatúni og verður kvcikt í
henni kl. 11,15 um kvöldið. Um
hinar brennumar sjá strákar,
hverjir i sínu hverfi, og hefur
verið talsverð keppni milli hóp-
anna um hverjum tækist að
hlaða stærsta bálköstinn.
Myndimar hér að ofan tók
Ijósmyndari Þjóðviljans Ari
Kárason í gær og er sú efri af
bálkesti og eigendum hans i
vinnufélagar, ýmsir smáklúbb-
ar og fleiri hópar.
Á næsta ári verður verð miða
óbreytt frá því sem var í áb og
upphæðir vinninga sömuleiðis.
Vinningar eru alls 30 þúsund að
tölu og heildarfjárhæð þeirra 90
miljónir 720 þúsund krónur. Eru
hæstu vinningarnir tveir miljón
krónur hvor. Endurnýjun miða
fyrir 1. flokk 1967 þarf að vera
lokið fyrir 7. janúar n.k.
f ræðu sinni benti rektor á
nauðsyn þess að þjóðin efldi Há-
skólann og um leið alla vísinda-
starfsemi sem mest á næstu ár-
um, annars hlyti hún að dragast
aftur úr öðrum þjóðum. Sagði
hann að árangurinn af starfi
Happdrættis Háskóla íslands sæ-
ist ekki aðeins í byggingum Há-
skólans heldur rynni sífellt meira
og meira af happdrættisfénu til
kaupa á kennslu- og rannsókna-
tækjum handa hinum ýmsu
stofnunum Háskólans, þær væru
naumast hálfgerðar þótt bygging-
ar þeirra risu af grunni því gíf-
urlegt fé þyrfti til öflunar nauð-
synlegra tækja og annars bún-
aðar til starfsemi þeirra.
Síðasta stórframkvæmd á veg-
um Háskóla íslands er bygging
Raunvísindastofnunar Háskóla
Framhald , á 7. síðu.
Föstudagur 30. desember 1966 — 31. árgangur — 298. tolubLað.
Mikið um slys
í hálkunni
Mjög mikið var um slys £ gær
og flest hálkunni að kenna.
Kona datt á hálku við Breiða-
gerðisskóla og vildi þá svo illa
til að drengur kom þar brun-
andi á sleða og ók á höfuð kon-
unnar. Var hún flutt á Slysa-
varðstofuna og þaðan g Landa-
kotsspítalann.
Níu ára drengur, Gunnlaugur
Kristjánsson féll á Laugavegin-
um og kvartaði um þrautir í
höfði. Hann var fluttur á Slysa-
varðstofuna.
Kona féll i námunda við
Kópavogshælið. Hún var flutt á
Slysavarðstofuna, en meiðsli ó-
kunn.
: Maður féll á hálkunni við
Barmahlíð 49 og var fluttur á
Slysavarðstofuna. Loks féll, mað-
ur úr Jandgangi varðskips o>g wir
fluttur á Slysavarðstofuna. Einn-
ig þar voru meiðsli ókunn.
1 fyrfinótt, laUst eftir mið-
nætti, varð Sigurður Guðmann
Sigurðsson Karlagötu 16 fyrirbíl
á merktri gangbraut á mótum
Hverfisgötu og Rauðarárstigs.
Hann var fluttur á Slysavarð-
stofuna.
-----:------7--------1-----
Eldur í vinnu-
skúr
Sogamýrinni, skammt frá Iðn-
görðum, en hin er af mæðginum
að flytja rusl í tunnu til að láta
brenna í borgarbrennunni á
Miklatúni.
Skrá yfir áramótabrenpurnar i
borginni eru á 2. síðu blaðsins
í dag.
■yr K *
ii.
Sleðaferðir í bollanum
Þó að ýmsum þyki nóg um vetrarhörkuna og snjóinn þetta árið
eru þó aðrir sem vel kunna að meta þetta veðurfar. T.d. gerum
við ekki ráð fyrir því að þessir kátu krakkar hér á myndinni
bölvi snjónum eða hálkunni, en hún var tekin í gærl i bollanum
á Miklatúninu, sem virðist ekki síður fallinn til sleðaferða á vetr-
um en sóldýrkunar á sumrin. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Fékk stóra vinninginn en:
Miljónin breytti
ekki áætlun hans
■ Eins og áður hefur komið fram i fréttum var ungur
bóndi í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu svo lánsam-
ur að hljóta 1 miljón króna í vinning í Happdrætti Há-
skóla íslands nú í desember.
■ í fyrrakvöld gafst fréttamönnum kostur á að ræða stutt-
lega við þennan lánsama unga mann, Jón Helga Jóhanns-
son, Víðiholti í Reykjahverfi, og kærustu hans, Unni Kára-
dóttur frá Húsavík
1 gærkvöld, laust fyrir klukk-
an 8 var slökkviliðið kallað að
vinnuskúr við Sólarlagsbraut í
Reykjavík. Þar var laus eldur
og mestur við rafmagnsinntak f
skúrinn.
Greiðlega gekk að ráða niður-
lögum hans, en skemmdir urðu
allnokkrar á skúmum og inni-
haldi hans. sem var mest timbur.
Hjón meiðast
í árekstri
Um kl. hálf tvö í gærdag varð
árekstur á Álfhólsveginum f
Kópavogi. Fólksbíll ók austur
Álfhólsveginn, en jeppabifreið
vestur veginn og beygði þvert
yfir inn í heimkeyrsluna. Fólks-
bfllinn ók á jeppabifreiðina með
þeim afleiðingum að hjón sem
í honum voru meiddust eitthvað
og voru flutt á Slysavarðstof-
una. Ekki ér vitað hve alvarleg
meiðsli þeirra voru.
Jón kvað mjólkurbílstjórann í
sveitinni hafa orðið fyrstan til
þess að segja sér fréttina um
vinninginn og hefði hann lítinn
trúnað lagt á þessa frétt. Daginn
eftir var svo hringt til hans frá
happdrættinu og þá var ekki
lengur hægt að efast.
Jón er eins og áður segit
bóndi í Víðiholti, sem er nýbýli,
og hefur hann búið þar ásamt
föður sínum. Sagði hann að
vinningurinn myndi í engu breyta
fyrirætlunum sínum. Hann hefði
ætlað að ráðast í byggingu i-
búðarhúss á jörðinni næsta vor
og kæmi þetta fé þar í góðar
þarfir. Jón er 22ja ára að aldri
og hefur unnið við búskapinn
að undanskildum þremur síðustu
vetrum sem hann hefur starfað
hjá Jarðborunum ríkisins en nú
Hrakfarir Lars-
ens í Stokkhólm:
STOKKHÓLMl 29/12. — Eftir
þrjár umferðir er Svíinn Martin
Johansson enn efstur á afmælis-
móti sænska skáksambandsins.
Sigraði hann Bent Larsen stór-
meistara í gærkvöld, og hefur
Larsen þá tapað öllum skákum
sínum á mótinu. Svein Johann-
esen frá Noregi hefur heldur ekki
hlotið vinning enn.
Næstur Johansson er nú Paul
Keres frá Sovétríkjunum með
21/? vinning, næstur honum kem-
ur Stálberg frá Svíþjóð
er hanft ráðinn í að helga sig
einvörðungu búskapnum. Kær-
asta Jóns er hins vegar 19 ára
að aldri. Hafa þau verið trúlof-
uð í eitt ár en ekki vildu bau
gefa fréttamönnum upp hvenær
brúðkauþið ætti að standa
Jón keypti miðann sem vinn-
ingurinn kom á hjá umboðinu á
Húsavík og hevir hann átthann
{ þrjú ár ásamt tveimur hálf-
miðum og aldrei fengið neinn
vinning fyrr, en það munaði líka
um það þegar vinningurinn loks
kom.
Fylkincjin
Áramóta-
fagnaður
Aramótafagnaður Æsku-
lýðsfylkingarinnar verður
haldinn i Lindarbæ á gaml-
árskvöld. Reynt verður að
vanda til skemmtunarinnar
eftir föngum en því fleiri sem
koma þeim mun meira verður
fjörið.
Fylkingarfélagar! Fjölmenn-
ið og* takið með ykkur gesti.
Nauðsynlegt er að miðar séu
sóttir fyrir gamlárskvöld á
skrifstofu ÆF i Tjarnargötu
20. Verða þeir afhentir bar
líka á kvöldin.
Salurinn er opinn í kvöld.