Þjóðviljinn - 22.01.1967, Blaðsíða 1
Sunnudagur 22. janúar 1967 — 32. árgangur — 18. tölublað
Borgar-
sjúkrahúsið
enn á dagskrá
borgarstjórnar
Enn gefur Geir yfirlýsingar,
ailt í óvissu um framkvæmdir
\
* Á borgarstjórnar-
fundinum sl. fimmtu-
dag gaf Geir Hall-
grímsson borgarstjóri
rétt eina yfirlýsinguna
um borgarsjúkrahús-
ið: Hinar ýmsu deildir
spítalans munu taka
til starfa, sagði hann,
4—10 mánuðum eftir
að framkvæmdir hefj-
ast að nýju við bygg-
inguna svo fremi
samningar takist við
ríkísstjórnina um að
ríkissjóður standi skil
á ógreiddum lögboðn-
um framlögum sínum
til byggingarinnar
(milli 35 og 40 milj.
króna).
* Ekkert hefur nú verið
unnið við smíði borgar-
sjúkrahússins síðan í septem-
bermánuði í haust, er aðal-
verktakinn, Byggingarfélagið
Brú, komst í greiðsluþrot.
Hefur enn ekki verið gengið
frá fullnaðaruppgjöri við
byggingarfélag þetta og
samningar heldur ekki gerðir
við nýja verktaka, þannig að
með öllu er óvíst hve-
nær byggingarframkvæmd-
irnar geta hafizt í Fossvogi
að nýju.
* Borgarsjúkrahúsið kom ti!
umræðu í borgarstjórninni á
fimmtudaginn vegna fyrir-
spurna Páls Sigurðssonar
tryggingayfirlæknis, fulltrúa
Alþýðuflokksins. Svaraði
borgarstjóri fyrirspurnum
þessum og gaf þá yfirlýsingu
sem að framan var getið.
* Guðmundur Vigfússon
borgarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins minnti á fyrri yfir-
lýsingar og loforð borgar-
stjóra í sambandi við smíði
borgarsjúkrahússins og efnd-
ir þeirra; gat m.a. margitrek-
aðra yfirlýsinga fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar á sl.
vori um að hver sjúkradeild-
in af annarri myndi opnuð
eftir að röntgendeildin tækj
til starfa. Röntgendeildin var
opnuð með viðhöfn skömmv
fyrir kosningar — en síða’’
ekki söguna meir.
* í framhaldi af þessu ífutt;
Guðmundur tillögu frá borg-
arfulltrúum Alþýðubanda-
lagsins, þar sem gert var ráð
fyrir að ráðstafanir væru nú
þegar gerðar til að vinna
gæti hafizt aff nýju við smíði
sjúkrahússins, jafnframt því
scm skorað var á ríkis-
stjórnina að standa skil á
þcim 35—40 milj. kr. sem
ríkissjóður skuldar af lög-
boðnu framlagi til spítala-
byggingarinnar.
* Geir borgarstjóri sagði að
,,markvisst“(!!) væri unnið
að þeim atriðum sem í til-
lögu Alþýðubandalagsins
greindi og þess vegna engin
ástæða til að samþykkja
hana! Lagði -hann , til að til-
lögunni væri vísaff til borg-
arráðs og samþykktu íhalds-
fulltrúarnir átta þá málsmeð-
ferð gegn atkvæðum minni-
hlutafulltrúanna 7. íhalds-
fulltrúarnir sem ■ greiddu
þannig atkvæði í borgarsjúkra-
liússmálinu voru: Auður Auð-
uns, Geir Hallgrímsson, Úlfar
Þórðarson, Bragi Hannesson.
Bir.gir Isl. Gunnarsson,
Styrmir Gunnarsson, Gunnar
(frá Hlíðarenda) Helgason.
Gísli Halldórsson.
Arshátíð Alþýðii-
bandalagsins var
mjög
★ Föstudagskvöldið var haldin
í samkomuhúsinu Lídó fyrsta
árshátið Alþýðubandalagsins í
Reykjavík. Var hátíðin fjöl-
sótt og vel til dagskrárinnar
vandað.
★ Hófst hún með ávarpi Magn-
úsar Torfa Ölafssonar. for-
manns Alþýðubandalagsins í
Reykjavík. Því næst var flutt-
ur einþáttungur eftir Geir
Kristjánsson, Herskráning og
fór Erlingur Gíslason með að-
alhlutverkið. Þá las Ingimar
Erlendur Sigurðsson, rithöf-
undur nýtt frumsamið ævin-
týr og þrír ungir menn sungu
mótmælasöngva, þeir Aro-
mundur Bachmann, Einar
Gústafsson og Friðrik Þór-
leifsson. Var gerður góður
í’ómur að söng þeirra og þeir
sungu nokkur aukalög.
★ Dagskránni lauk með því að
Karl Einarsson hermdi eftir
nokkrum þjóðfrægum mönn-
um og siðan var stiginn dans
til kl. 2. Hljómsveit Ólafs
Gauks lék fyrir dansi ogsöng-
kona var Svanhildur Jakobs-
dóttir. Kynnir dagskráratriða
var Bryndís Schram.
FLOKKURINN
Deildarfundir (aðalfundir) í
Tjarnargötu 20. 14. deild mánu-
dagskvöld 23. þ.m. kl. 8,30. 10. og
11. deild þriðjudagskvöld 24. þm.
kl. 8,30.
Afmælissýning LR
Sýning sú, sem Leikfélag R-
víkur efndi til í Unúhúsi í
tilefni 70 ára afmælisfélagsins
hefur nú verið opin í viku og
aðsókn verið sæmileg. Sýningin
verður opin fram á miðviku-
dag; sýningartíminn kl. 14 ttl
18 og 20 — 22 daglega.
Námskeið í
fundarstörfum
og ræðumennsku
Námskeiðið heldur áfram n.k.
þriðjudag kl. 21,00 í Tjarnargötu
20. Jón Böðvarsson kennir fund-
arsköp og fundarreglur.
Siðar á námskeiðinu leiðbeina
þeir Arnar Jónsson, leikari og
Ragnar Arnalds, alþingismaður,
við framsögn og ræðumennsku.
Stjórn ÆFR.
98% kvenna fæSa börn sín í
sjúkrabásum, tæp 2% heima
□ Um eða yfir 98% kvenna í Reykjavík og ná-
grenni fæða börn sín í sjúkrahúsum, en innan
við 2% f heimahúsum.
Þetta hlutíall milli barns-
fasðmga í spítölum ogheimahús-
um mun vera svipað og í Svi-
Margt dylst
í hraðanam
í dag kl. 15,20 verður útvarp-
að erindi Axels Thorsteinssonar,
blaðamanns, Margt dylst í hrað-
anum og fjallar það um einn
þátt nútíma vandamála. Axel
flutti erindi þetta upphaflega
s.I. haust en vegna áskorana
verður það nú ílutt aftur í þætt-
inum Endurtekið efni.
Innbrot í verzlana-
hús við Grensásv.
t fyrrinótt var framið inn-
brot í verzlanahús á Grensás-
vegi 50 og farið þar inn í 3
verzlanir: söluturn, tómstunda-
búð og skóbúð. Or skóbúðinni
var stolið 100 kr. í skiptimynt,
en í hinum tveim verzlununum
mun engu hafa verið stolið.
þjóð, þar sem heimafæðingar
eru mjög fátíðar. Hinsvegar eru
þær miklum mun algengari víða
um lönd, t.d. i Danmörku og
Englandi, þar sem allt að 25 ul
30% kvenna fæða böm sín f
heimahúsum.
Bíður B-dcildar Borgarsjúkra-
Uússins í Fossvogi.
Þessar upplýsingar komu fram
á fundi borgarstjórnar Reykja-
víkur sl. fimmtudag, er til um-
ræðu kom fyrii’spurn Sigríðar
Thorlacius um byggingu fæðing-
arstofnunar. Fyrirspurn frúar-
■nnar var svohljóðandi:
„Bandalag kvenna í Reykja-
vík sendi borgarstjórn í nóv. sl.
svohljóðandi áskorun: „Fundur-
inn skorar á borgarstjórn Rvíkur
og heilbrígðisyfirvöld landsins
að flýta fyrir byggingu fæðing-
arstofnunar í borginni. Nú þegar
er skortur á sjúkrarými fyrir
fæðandi konur og því fyrirsjá-
anlegt, að með auknum íbúa-
fjölda mun skapast mikill vandi
innan skamms, ef byggingfæð-
ingarstofnunar dregst á langinn“.
Nú er spurt: Hvaða ráðstafan-
ir hyggst borgarstjórn gera of
sinni hálfu til að leysa þennan
vanda?“
Borgarstjóri svaraði því til, að
gert væri ráð fyrir kvensjúk-
dóma- og fæðingardeild í B-álmu
Borgarsjúkrahússins í Fossvogi,
samkvæmt áætlun sjúkrahús-
nefndar (hvenær sú álma kemst
upp veit engin). Játaði hann uð
nauðsynlegt væri að gera ein-
hverjar þær ráðstafanir, sem
brúuöu bilið sem yrði þar til
B-deildin kemst upp.
Sigríður Thorlacius hafði það
eftir forstöðumönnum fæðingar-
deildar Landspítalans og fæðing-
arheimilis Reykjavíkur, að það
ríkti neyðarástand hér varðandi
þær konur, sem liggja þurfa á
spítala um meðgöngutímann.
Borgarstjóri gaf þær upplýs-
ingar á fundinum, að á árinu
1965 hefðu 969 konur fætt börn
sín á fæðingat’heimili Reykjo-
víkur, þar af 161 utanhéraðskorr.,
og 1330 í fæóingardeild Lan-'-
spítalans, þar af 433 utanhérað—
konur. Við þessar tölur má svo
bæta þeim konum, sem fætt haia
börn í fæðingarheimili Kópavogs,
á Sólvangi í Hafnarfirði, í fæð-1
ingarstofu Guðrúnar Halldórs-
dóttur og í heimahúsum. Heima-
fæðingar árið 1965 munu hafa
verið 35 . talsins.
Wí.:.
Ógnir Bandaríkjamanna í Viet-
nam vekja viðbjóð manna og
mótmæli um allan heim.
Morðæði Bandaríkjamanna í Vietnam:
Mótmælaaðgerðir æskufólks
við bandariska sendiráðið
■ Þjóðviljinn hafði fregnir af því í gærmorgun, að æskufólk hér
í borginni hyggðist efna til mótmælaaðgerða gegn striðinu í Viet-
nam, fyrir framan bandaríska sendiráðið við Laufásveg.
■ Hér er á ferðinni sama íólkið • og skipulagði aðgerðirnar við
sendiráðið á þjóðhátiðardag Bandaríkjanna 4. júlí í sumar og
einnig við hersýninguna á Keflavíkurflugvelli.
■ Aðgerðirnar áttu að hefjast kl. 2 eftir hádegi og standa til
klukkan 3, eða í eina klukkustund. Æskufólkið stóð undir
spjöldum, sem á eru letruð mótmæli gegn gereyðingarherferð
Bandaríkjanna í S-Vietnam.
■ Þar eð Þjóðviljinn fór í prentun um kl. 3 síðdegis í gær verða
frekari fréttir af þessum mótmælaaðgerðum að bíða þriðjudags-
blaðsins.
Þorrafagnaður í dag kf. 3
■ Muniff aff Þorrafaguaður Sósíalistafélags Reykjavikur fyrir
börn félagsmanna er í dag kl. 3 síðdegis í Tjarnargötu 20.
■ Til skemmtunar verður söngur, hljóðfæraleikur og dans, fóstrur
stjórna Ieikjum, Vilborg Dagbjartsdóttir segir sögur, sýnd verður
kvikmynd og að lokum kemur Þorri karl í heimsókn og færir
börnunum góðgæti.
Graham Greene segir frá kynnum
sínum af Fidel Castro - á síðu 0
í