Þjóðviljinn - 22.01.1967, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 22.01.1967, Blaðsíða 14
SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 22. janúar 1967. 12 minn. Martin hneigði sig og gekk hljóðlega út. Trent fleygði sér niður í arm- stólinn og andvarpaði. — Martin er stórkostlegur. sagði hann. — Hann er miklu, miklu betri en persóna á leiksviði- Hann á ekki sinn lika og enginn kemur í hans stað þegar dagar hans eru taldir. Og heiðarlegur er hj^ui líka, sak- leysið einbert blessaður karlinn. Veiztu það, Murch, að það er rangt af þér að gruna þennan mann. — Ég hef ekki minnzt á það einu orði að ég grunaði hann. Fulltrúinn varð alveg hvumsa. — Þér ættuð að vita það, herra Trent, hann hefði aldrei sagt sögu sína á þennan hátt, ef harnn hefði haldið að ég grunaði hann. — Sjálfsagt heldur hann það ekki- Hann er stórkostleg mann- vera, óviðjafnanlegur listamaður, en þrátt fyrir það er hann ekki sérlega tilfinninganæmur. Hon- um flaug það aldrei í hug, að þér, Murch. gætuð grunað hann, Martin, hinn fullkomna- En ég veit það. Þér verðið að skilja það, fulltrúi að ég hef gert nákvæm- ar sálrænar athuganir á vörðum laganna. Sú fræðigrein hefur verið sorglega vamrækt. Þeir eru miklu meira spennandi en glæpa- mennimir bg mun erfiðari við- fangs. Allan timann meðan ég var að yfirheyra hann, sá ég handjárn í augunum á yður. Var- limar á yður mynduðu þögul orð: — Það er skylda mín að aðvara yður um, að allt sem þér segið Tiú verður skráð og notað gegn yður. — Framkoma yðar hefði blekkt flesta menn, en ekki mig. Herra Murch skellihló. Blaðrið í Trent hafði aldrei nein áhrif á hann. en hann tók það sem við- urkenningarvott, sem það var í rs<un og veru; og því hafði hann gaman af því. — Jaeja, herra Trent, sagði hann. — Þér hafið fullkomlega rétt fyrir yður. Það er tilgangslaust að neita því — ég hef illan bifur á honum- Ekki svo að skilja að ég hafi neitt fyrir mér í því, en þér vitið eins vel og ég hversu oft þjónar eru flæktir í mál af þessu tagi, og þessi náungi er svt> slípaður. Þér munið eftir þjóni Williams Russ- els lávarðar sem fór eins og vanalega inn í svefnherbergi húsbónda síns um morguninn til að draga gluggatjöldin frá, hljóð- lega og stillilega, nokkrum stundum eftir að hann hafði myrt hann í rúminu- Ég er bú- inn að tala við allt kvenfólkið hér í húsinu, og ég held þær séu allar meinlausar. En Martin Hárgreiðslan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó Laugav. 18. III. hæð (lyfta) Sími 24-6-16. PERMA Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SÍMI 33-968 er ekki eins fljótafgreiddur. Mér líkar ekki framkoma hans; ég held hann levni einhverju. Og ef svo er, þá skal ég komast að því. — Uss, uss! sagði Trent- — Ekki misnota hinar beizku hrak- spár. Snúum okkur aftur að staðreyndunum- Hafið þér nokk- uð sem mælir gegn sögu Martins, eins og hann sagði okkur hana? — Ekki neitt að svt> stöddu. Og hvað snertir þá tilgátu hans að Manderson hafi komið inn um gluggann þegar hann skildi við Marlowe í bílnum, þá er hún trúlega rétt. Ég spurði þjónustu- stúlkuna, sem tók til í herberg- inu næsta morgun, og hún segir mér að það hafi verið möl á gólfinu í nánd við gluggainn, á teppislausu ræmunni út við vegginn. Og það er fótspor í mjúku, nýju mölinni þama fyr- ir utan. Fulltrúinn tók tommu- stokk úr vasa sínum og benti með honum á útlínurnar. — Annar skórinn sem Manderson var í um kvöldið fellur nákvæm- lega í þetta spor. Þeir em á efstu hillunni í svefnherberginu, rétt við gluggann, einu rúskinns- skórni'r í röðinni. Stúlkan sem hreinsaði þá í morgun benti mér á þá. Trent laut niður og virti fyrir sér dauft sporið. — Ágætt, sagði hann. — Þér hafið sannarlega komið miklu í verk, Murch. Þetfca var glæsilegt með whiskýið; þér hittuð beint í mark- Mig langaði mest til að hrópa ,,Bravó“. Það þarf-ég -að íhuga nánar- • - i- i — Ég hélt kannski að þér vær- uð búnir að finna skýringu á því, sagði herra Murch. — Svonai, herra Trent, við emm rétt að byrja rannsóknirnar, en hvernig ILst yður á þessa kenn- ingu svona til bráðabirgða: Nokkrir menn hafa gert áætl- un um innbrot með aðstoð Martins. Þeir vita hvar silfrið er og helztu dýrgripimir í setustof- unni og annars staöar. Þeir gefa húsinu gætur, sjá Manderson fara upp til að hátta; Martin kemur inn að loka gluggunum og skilur hann eftir ókræktan, vijjandi. Þeir bíða þar til Mart- in fer í rúmið klukkam hálf- eitt, síðan ganga þeir beint inn í bókaherbergið og byrja á því að bragða á whiskýinu- En setj- um nú svo að Manderson sé ekki sofandi og setjum svo að þeir hafi gert örlítinn hávaða þegar þeir opnuðu gluggamn. Hann heyrir til þeirra, fer að hugsa um innbrot; fer hljóðlega á fæt- ur til að aðgæta hvort nokkuð sé að; kemur þeim að óvömm, þegar þeir em að búa sig undir að hefjast handa. Þeir flýja, og hlaupa; hann eltir þá niður að skúrnum og nær í einn; það verða átök, einn þeirra missir stjórn á sér og kálar honum. Jæja, herra Trent, tætið nú þessa kenningu sundur. — Gott og vel, sagði Trent, — svona rétt til að gera yður til geðs-, Murch, einkum og sér í lagi þar sem þér trúið ekki orði af þessu. I fyrsta lagi: engin merki. eftir innbrotsþjófinn yðar eða þjófana og glugginn lokað- ur að morgni sa>mkvæmt orðum Martins- Það er auðvitað engin sönnun, það viðurkcnni ég. I öðm lagi: enginn í húsinu heyr- ir þetta fótaspark gegnum bóka- stofuna né heldur nein hróp í Manderson inni eða úti. í þriðja lagi: Mamderson fer niður án þess að tala við neinn, þótt bæði Bunner og Martin séu við hönd- ina. I fjórða lagi: Hafið þér nokkurn tíma vitað til þess að húsbóndi færi niður til sð kljást við innbrotsþjófa, en klæddí slg fyrst í allt sem við á, nærfatnað, skyrtu. flibba og bindi, buxur vesti brók og skó; og fínpússaði allt saman á eftir með því að greiða sér vandlega og setja úrið sitt í vasann með festi og öllu saiman? Ég myndi segja að maðurinn væri með fatadellu. Eina skrautfjöðrin sem hann virðist hafa gleymt, em tennurnar- Fulltrúinn hallaði sér áfram, hugsi á svip og spennti tröllsleg- ar greipamair. — Nei, sagði hann loks- — Aúðvitað er ekkert hald í þessari kenningu. Ég býst við að við eigum langt í land áður en við komumst að því, hvers vegna maður fer á fætur áður en þjónustufólkið vaknar, kUeð'r sig að fullu og er síðan myrtur rétt við húshomið hjá sér, svo snemma að hann er kaldúr og stirður klukkan tíu að morgni. Trent hristi höfuðið. — Við getum ekki byggt neitt á þessu síðasta- Ég hef rætt það við marga sem vit hafa á þessu. Það kæmi mér ekki á óvart, bætti hann við, — þótt úreltar skoðan- ir um líkamshita og stirðnun eftir dauðann hafi stundum sent saklausan mann í gálgann eða langleiðina þangað- Ég býst við að Stock læknir sé uppfullur af þessum skoðunum; flestir af gamla skólanum hafa þær. Það er alveg gefið mál að Stock læknir gerir sig að fífli við Ifk- skoðunina. Ég er búinn að skoða gripinn. Hann segir að maðurinn hljóti að hafa -verið látinn svo og svo lengi vegna hitastigsins í líkamanum og rigor mort'is. Ég sé alveg fyrir mcr hvemig hann snuðrar í handbókum, sem voru orðnar úreltar um það leyti sem hann var að læra- Heyrið mig, Murch, ég ska'l segja yöur sitt af hverju scm veröur yður til mikils trafala í starfi. Það er ó- tal margt sem kann að fiýta fyr- ir eða tefja kólnun fíkamans. Þetta lík lá í háu, döggvotu grasi skuggamegin við múrinn. Hvað stirðnunina snertir, þá er hugs- anlegt, ef Manderson hefur látið lífið í átökum eða í snöggri geðshræringu, að líkami hans hafi stirðnað næstum samstundis; þéss era öt'arl dæmi. Á hinn bóg- ipn,,er. ekki víst að stirðnunin hafi byrjað fýrr en átta eöa tíu stundum eftir andlátið. Það er ekki hægt að hengja neinn út á rigor mortis nú til dags, fulltrúi, hversu illa sem yöur líkar þess- ar takmarkanir. Nei, við getum aðeins sagt þetta- Ef hann hefði verið skotinn eftir fótsiferðar- tíma, þá heföi skotiö heyrzt og aöfarirnar trúlega sézt líka. Við veröum meira aö segja að ganga út frá því, að hann hafi ekki verið skotinn á þeim tíma sem fólk er á ferli; þoð er ekki gert á þessum slóðum.^Segjum aö sá tími upphefjist um hálfojöleytið. Manderson fór upp til sín um ellefuleytiö og Martin var á fót- um til klukkan hálfeilt. Ef hann hefur farið að sofa strax og hann gekk til náða, höfum við svo sem sex stundir upp á aö hlaupa, og það er drjúg stund. En hve- nær svo sem moröiö var framið, þá vildi ég að þér gæluö bent mér á ástæöu til þe&s að Mand- erson, scm virðist hafa veriö morgunsvæfur, var kominn á fætur og alklæddur fyrir ldukk- an hálfsjö aö morgni; og hvers vegna hvorki Martin, sem á bágt mcð svefn, né Bunner, né konan hans heyröu til hans á ferli eða þegar hr.nn fór út úr húsinu. I-Iann hlýlur aö hafa gengiö mjög hljóölega um. Hann hlýtur aö hafa læözt eins og köttur. Finnst yöur ekki, Murch, eins og mér, að þetta sé allt mjög kyn- legt og anna'rlcgt? — Þaö lítur út fyrir það, sam- sinnti fulltrúinn. — Ég nú, sagöi Trent og reis á fætur. — Nú læt ég yöur ein- an mcð íhugunum yöar ogskrepp aö líta á svefnhcrbergin. Kannski opinbcrast yður skýringin á öllu saman mcöan ég er aö snuðra þarna uppi. En, sagöi Trent loks og geröi rödd sína örvílnaða þar sem hann stóð í gættinni, — ef þér getiö sagt mér hvernig í ó- sköpunum þaö má vera, að mað- ur sem fór í öll þessi föt, gleymdi að setja upp í sig tenn- urnar, þá megið þér sparka mér beinai leið héðan og á næsta geð- veikrahæli og skrá mig sem brjálæðing. V. KAFLI. Það eru stundir í lífi okkar, mætti halda, þegar það sem býr hið innra með Okkur og fæst við , leynistarfsemi, sleppir upp í | meðvitundina einhverju hugboði um væntanlegt happ. Hver kann- ! ast ekki við þá óútskýranlegu kennd, að hann eigi eitthvaö gott í vændum? — ekki blint j traust manna sem era í hættu staddir né ósigrandi táimynd bjartsýnismannsins, heldur nota- lega kennd sem sprcttur upp í huganum óforvarandis og gefur til kynna velgengni í einhverju, smáu eða stóru. Hershöfðinginn veit allt £ einu að morgni, að þessi da-gur mun færa honum sigur og maðurinn á golfvellin- úm veit óvænt að nú tekst hon- um höggið sem hann hefur verið að giíma við. Þegar Trent gekk upp stigann framan við bókastof- una, var eins og hann væri á leið upp í einhverjar sigurhæðir. Hersing af ágizkunum og til- gátum leið um huga hans, í einni bendu að því er virtist; stöku athuganir sem hann hafði gert bg vissi að skiptu máli, þótt þær virtust enn alls ótengdar glæpn- um; en á leiðinni upp var eins og hann vissi örugglega að þetta myndi bráðlega skýrast allt sam- ao- Svefnherbergin vora sitt hvor- um megin við breiðan, teppa- lagðan gang og við endann á honum var hár gluggi. Hann lá eftir endilöngu húsinu og beygði síðan hornrétt yfir í þrengri gang sem herbergi þjónustufólksins lágu að- Herbergi Martins var þó undantekning: það vissi að litlum stigapalli, miðja vegu upp á efri hæðina. Þegar Trent gekk framhjá því leit hann þangað inn. Lítið, ferhyrnt herbergi, hreint og hversdagslegt. Á leið- inni upp stigann forðaðist hann allan hávaða, steig hægt niður fótum, en þó heyrðist greinilegl; marr í þrepunum. Hann vissi að herbergi Mand- ersons var hið fyrsta á vinstri hönd þegar upp kom, og hann fór undir eins inn í það- Hann reyndi læsinguna og athugaði skrána, sem virtist í góðu lagi. Síðan svipxaðist hann um í her- berginu- Herbergið var lítið bg furðu- lega eyðilegt. Snyrtivörur auð- kýfingsins voru fábreytilegar. Allt var með ummerkjum. eins og komið hafði verið að þvf morguninn sem hinn ömurlegi fundur átti sér stað utanhúss. Rúmfölin lágu í vöðli í mjóu trérúminu og sólin skein glatt á þau gegnum gluggann. Hún glóði líka í gullpörtum vandaðra smíð- isgripanna, sem lágu í vatni í grunnu tannglasi á litlu nátt- borði við höfðagaflinn- Á þessu borði st<>ð Hka kertastjaki úr smíðajárni. Eitthvað af fötum lá á öðrum tágastólnum. Ýmsir hlutir lágu ofaná kommóðu, sem notuö var sem snyrtiborð, lágu í óreiðu eins og eigandi þeirra hefði verið að flýta sér. Trent virti þá íyrir sér með athygli. Hann tók líka eftir því að her- bergiseigandinn hafði hvorki þvegið sér né rakað sig. Með fingrinum velti hann við gervi- tönnunum í glasinu Og gretti sig enn yfir þeim undram að þær skyldu vera þarna eftir. Tómleikinn og óreiðan £ litla* herberginu, fylltu Trent ein- hverri ömurleikakennd. Imyndun hans manaði fram mynd af manni f uppnámi sem klæddi sig þögull og natinn f fyrstu dag- skímunni, leit í sífellu að dyrun- um sem kona hans svaf á bakvið, og það vottaði fyrir eins konar skelfingu í augum hans. Það fór hrollur um Trent og til þess að bægja þessu frá sér opnaöi hann tvo stóru vegg- skápana sitt hvorum megin við rúmiö. I þcim vora föt, mik- iö úrval af þeim eina munaði sem moöurinn scm þarna hafði sofiö, virtist hafa leyft sér. Hvað skó snerti hafði Mander- son líka látiö eftir sér ríflegar birgðir af þeim. Mikill fjöidi af skóm, mcð skótrjám og vel hirt- ur, stóö f tveim, löngum hillum við vegginn. Þar voru engin stfg- vél- Trent haföi sjálfur vel vit á skóm og nú sneri hann sér nð skótauinu. Það leyndi sér ekki að Manderson hafði haft fremur nettan og vel lagaðan fót og verið hreykinn af. Skórnir vora & 'IM Ætli það sé satt að það fylgi ókeypis bílfar á næsta spítala, .. með þessum stóra ís? Skolastjórar og kennarar Laugarásbíó hefur ákveðið að bjóða skólanemend- um í Reykjavík og nágrenni á sýningu á stór- myndinni Sigurður Fáfnisbani (Völlsungasaga, fyrri hluti), gegn vægu verði. Upplýsingar í aðgöngumiðasölunni frá kl. 3 e.h. Símar 32075 og 38150. Laugarásbíó. A ðalbókarastaðá Stórt fyrirtæki óskar eftir að ráða aðalbókara sem fyrst. Umsækjendur leggi inn nafn ásamt upplýs- ingum um fyrri störf og kaupkröfur merkt „Aðal- bókari“ fyrir 4. febrúar n.k. Algerri þagmælsku heitið. Breyttur viðtalstimi Viðtalstími minn á Klapparstíg 27 verður frá og með 23. þ.m. á mánudögum frá kl. 13—15, þriðju- dögum kl. 16—18, miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum kl. 10.30—12. Laugardögum kl. 10.30 til 11.30. Símaviðtalstími í síma 20425, klukkustund fyrir og hálfri stund eftir stofutíma. Vitjanabeiðnir til kl. 13 í síma 20425 eða 52142. Ragnar Arinbjarnar læknir rf===JBi£AlEfGAN RAUDARÁRSTÍG 31 SÍMl 22Q22 t

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.