Þjóðviljinn - 07.02.1967, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 07.02.1967, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 7. febrúar 1967 — 32. árgangur — 31. tölublað. Brýn þörf nýs heildarskipulags miðbæjar Reykjavíkur Allur jarðir landsins metnar likt og lóðir í Aðalstræti! □ Ríkið hefur nýlega keypt lóðir SÍS við Kirkjustræti á um 20 miljónir. Lóðirnar í Austurstræti, tuttugu og þr'jár, ættu með sams konar viðmiðun að kosta 327 miljónir og átján lóðir Aðalstrætis ættu að vera 217 miljóna króna virði. Einn aðili á sjö lóðir í miðbænum, það ættu að vera 76 miljóna verðmæti. Allar jarðir bænda á íslandi munu hins vegar metnar á 223 miljónir, þar af í kaupstöðum á 84 miljónir. Þannig ættu allar jarðir á íslandi að vera álika að verðmæti og lóðirnar í Aðalstræti í Réykiavík! Einar Olgeirsson benti á þess- ar athyglisverðu tölur í ræðu á Alþingi í gær og ræddi áhrif þau sem slíkt braskverð á lóð- um hefði á skipulag og bygg- ingarfyrirætlanir í miðbænum í Reykjavík. Farþegaflutningar fíugfé- lagsins jukust um 22% sl. ár □ í fréttatilkynningu sem Þjóðviljanum barst í gær frá Flugfélagi íslands segir að á síðasta ári hafi farþegaflutn- ingar milli landa með flugvélum félagsins aukizt um rúm 13%, farþegaflutningar innanlands jukust um 26%. Sam- tals jukust farþegaflutningar félagsins á árinu um 22% og vöru- og póstflutningar jukust einnig mikið. Fréttatilkynning Flugfélagsins er svohljóðandi: Flutningar flugvéla Flugfélags íslands jukust verulega á síð- asta ári miðað við árið á und- an. Mest varð aukningin í far- þegaflutningum innanlands, svo og í vöruflutningum innanlands og milli landa. Nauðsyn heildarskipulags í framsöguræðu fyrir frum- varpi um heildarskipulag mið- bæjarins í Reykjavík á Alþingi í gær taldi Einar Olgeirsson hættu á að vegna hins gífur- lega lóðaverðs sem orðið væri í miðbænum kynni að verða byggt allt of þétt og of stórar bygg- ingar á þessu svæði, án tillits til gamalla bygginga, sem fyrir væru og af lítilli smekkvísi. Hann leggur til í frumvarpi sínu að skipuð verði nefnd sem vinni að heildarskipulagningu miðbæj- arins og sé bannað að reisavar- anlegar byggingar á svæðinu fyrr en nefndin hefur lokið störfum. Þjóðviljinn hefur nýlega birt frumvarp Einar^ og greinargerð. Einar leggur til að nefndin verði skipuð fjórum mönnum skipuð- um af Alþingi, einn tilnefndur frá hverjum þingflokki, 4 mönn- um tilnefndum af ríkisstjóm, 4 mönnum tilnefndum af borgar- stjóm Reykjavíkur, einn frá hverjum flokki. 4 mönnum til- nefndum af Arkitektafélagi Is- lands og auk þeirra eigi sæti í nefndinni skipulagsnefndar- menn ríkisins, borgarstjóri Rvík- ur, þjóðminjavörður og skipu- lagsstjóri rfkisins. Málinu var visað til 2. umr. og allsherjarnefndar neðri deild- ar. Síldveiðisjómenn um land allt stofna hagsmunasamtök □ Síldveiðisjómenn luku stofnun „Samtaka síldveiði- sjómanna“ á framhaldsstofn- fundi sl. sunnudag í húsi Slysavarnafél. á Granda- garði. Þetta eru landssamtök. hagsmunasamtök starfandi íslenzkra síldveiðisjómanna Hafa samtökin sett sér það mark að vernda og bæta k'jör síldveiðisjómanna almennt og vinna að bættum aðbún- aði þeirra og öryggi á sjón- um, og ennfremur að stuðla að tæknilegum framförum við síldveiðarnar og vinna að aukinni hagræðingu í vinnslu síldarafurðanna og dreifingu þeirra og sölu á erlendum markaði. Fundur- inn samþykkt.i einróma löe samtakanna og kaus þeim fyrstu stjórn Frá fundi síldveiðisjómanna. Frá vinstri: Halldór Þórbergsson luunanitari, Kristjáu Jónsson fund- arstjóri, Páll Guðmundsson flytur framsöguræðu. Reyðarfjarðarfundur síldveiði- sjómanna í nóvember kaus und- irbúningsnefnd til að semja lög samtakanna og undirbúa fram- haldsstofnfund. Formaður henn- ar, Jón Tímótheusson, setti fundinn á sunnudaginn og til- nefndi Kristján Jónsson form. Sjómannafélags Hafnarf jarðar fundarstjóra og Halldór Þor- bergsson vélstjóra fundarritara. Hafði Jón framsögu um lög samtakanna og voru þau sam- þykkt samhljóða. Nafn þeirra er „Samtök síldveiðisjómanna" Páll Guðmundsson, skipstjóri ★ íslenzkir handknattleiks- menn stóðu I stórræðum um helgina. 1 Laugardals- höllinni kepptu beztu leik- menn Rvíkur við úrvals- lið Kaupmannahafnar — og scgir Frimann Hclgason gerði grein fyrir starfi undir- búningsnefndarinnar og tillögum, og ítrekaði fundurinn m.a. að allar samþykktir Reyðarfjarðar- fundarins væru í fuliu gildi. ★ Fyrsta stjórn samtakanna. Samkvæmt lögum samtakanna skal kjósa sjö manna stjórn og tjóra til vara og skiptir étjórn- ir sjálf með sér verkum. I fyrstu stjóm „Samtaka síld- veiðisjómanna" voru þessir kosn- ir: Páll Guðmundsson, skipstjóri, Reykjavík. nánar frá þeim leikjum á íþróttasíðu — 2. síðu. ★ í Búdapest kepptu ís- Iandsmeistarar FH við ungversku meistarana Hon- ved. Hefur Þjóðviljinn ekki aðrar fréttir af þessum Jón Tímótheusson háseti, Rvík. Hrólfur Gunnarsson, skipstjóri, Reykjavík. Kristján Jónsson stýrimaður Hafnarfirði; Ilalldór Þorbergsson, vélstjóóri, Reyk-javfk. Jón Magnúss. skipstj. Patreks- firði. Tryggvi Gunnarsson, skipstjóri, Akureyri. 1 varastjórn voru kosnir: Guðmundur Halldórsson, stýri- maðúr, Bolungavík. Trausti .pestsson, skipstjóri, Akureyri. helgina leik en þær að þetta var hörkuleikur sem lauk með sigri Ungverja 20 mörkum gegn 13. — Á sunnudaginn munu þessi lið keppa aft- ur, og þá f Laugardalshöll- inni. Guðjón Pálsson, skipstjóri, Vest- mannaeyjum. , Halldór Brynjólfsson, skipstjóri Keflavík. í fulltrúaráði .samtakanna voru þessir kosnir: Haukur Bergmann, Keflavík; Jens Eyjólfsson, Hafnarfirði; Hannibal Einarsson, Akranesi; Tryggvi Jónsson, Ólafsvik; Há- varður Olgeirsson, Bolungarvík; Bragi Einarsson, ísafirði; Axel Schiöth, Siglufirði; Sigurður Har- aldsson, Dalvík; Kristján Helga- son, Húsavík; Víðir Friðgeirsson, Stöðvarfirði; Ingvar Gunnarsson, Eskifirði; Högni Jónasson, Nes- kaupstað; Stefán Stefánsson, Vest- mannaeyjum; Páll Guðjónsson, Vestmannaeyjum; Vilmundur Ingimarsson, Grindavík. ★ Samþykktir fundarins. Rætt var á fundinum um hið i aivarlega ástand sem skapazt hefur í sölu íslenzkra sjávaraf- urða og kaupgjaldsmál sjómanna, en kaup þeirra hefur verið skert \ allverulega undanfarið. Framhald á 3. síðu. Handknattleikurinn um Millilandaflug f áætlunarflugi milli landa fluttu flugvélar Flugfélagsins 48.604 farþega en 42.986 árið áður. Aukning er rúmlega 13%. Póstflutningar milli landa námu 148.5 lestum en 136,8 lestum árið á undan. Aukning er 8,5%. Vöruflutningar með flugvélum félagsins milli landa jukust verulega: Á s.l. ári námu þeir 613.6 lestum en 437,3 lerstum ár- ið áður og er aukning 40,3%. Innanlandsflug í áætlunarflugferðum innan- lands ' fluttu flugvélar félagsins á árinu 111.052 farþega á móti 88,064 árinu á undan, og er aukning 26%. Póstflutningar inn- anlands námu 350,8 lestum, en voru 176,9 árið áður. Aukning er 98,3%. Vöruflutningar námu 1924,7 lestum en voru 1287.7 árið áður og jukust um tæp- lega 50%. Alls fluttu flugvélar Flugfé- 'agsins því á árinu 159.656 far- bega í áætlunarferðum. Auk þess fóru flugvélar félagsins allmarg- ar leiguflugferðir og fluttu sam- tals 7904 farþega. Samanlögð farþegatala með flugvélum F.í. árið 1966 er því 167.560, sem er rúmlega 22% fleiri farþegar en árið áður. Fræðslu- og skemmtikvöld ÆFR Pétur Pálsson. N.k. fimmtudag hefjast fræðslu- og skemmtikvöld ÆFR í Tjamargötu 20 kl. 21. Dagskrá: 1. Pétur Pálsson Ies ljóð og raular Steflur úr nýútkom- inni bók sinni, Herfjötri. 2. Haukur Helgason hag- fræðingur, flytur stutt erindi um upphaf og þróun kapital- ískra framleiðsluhátta á ís- landi. ÖLLUM OPIÐ. Salurinn er opinn í kvöld — Stjórn Æ. F. R. fíugvélutjón Bandaríkjunná miklu meira en skýrt er frá WASHINGTÓN 6/2 — Haft er eftir heimildum í varnarmála- ráðuneyti Bandaríkjanna að Bandaríkjamenn tapi helmingi fleiri flugvélum í Vietnam en gefið er til kynna í opinberum skýrslum. Samkvæmt opinberum skýrsl- um hafa þeir misst 621 herflug- vél á síðustu fimm árum, en í raun og veru hafi þeir misst 1200 og ennfremur megi tvö- falda opinberar tölur um þyrlu- tap — en þar segir að 255 Konan kom fram Aðfamótt föstudagsins var konu hér í borg saknað aðheim- an og var rannsóknarlögreglan beðin aðstoðar. Var auglýst nokkrum sinnum eftir konunni í útvarpinu og korp hún síðan fram á sunnudagskvöld, heil á húfi. þyrlur hafi verið skotnar niður eða farizt með öðrum hætti. í frét.tum frá Saigon segir að bandarískar flugvélar séu nú að dreifa eiturefnum yfir frum- skóginn á hlutlausa beltinu milli Norður- og Suður-Vietnam og á þessi eyðing gróðurs að koma í veg fyrir ferðir skæruliða um svæðið. Annað banaslysið í umferðinni Á laugardag lézt af völdum umferðarslyss Xenía Jessen, ekkja M. E. Jessen fyrsta skóla- stjóra Vélskólans. Varð Xenía fyrir bifreið á Sóleyjargötu fyrra laugardag og komst aldrei til meðvitundar. Hún var 73ja ára gömul. Þetta er annað banaslysið í umferðinni á þessu ári.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.