Þjóðviljinn - 10.02.1967, Side 1
Föstudagur 10. fabrúar 1967 — 32. árgangur — 34. tölublað.
Brecht leikþættir og Ijóð flutt á mánud.
'
Utflutningur frá Neskaupstað;
Tvöfaldaðist nær-
fellt á síðasta ári
■ Samkvæmt upplýsingum fréttaritara Þjóðviljans á
Neskaupstað jókst útflutningur frá kaupstaðnum um nær
því helming á árinu sem leið, miðað við árið næst á und-
an. Útflutningurinn varð samtals 50.774 tonn á móti 26.792,5
tonnum árið 1965. Hér fer á eftir nákvæmari sundurliðun
á útflutningnum:
Útflutningur afurða frá Nes-
kaupstað varð sem hér segir tal-
ið í lestum og tölur frá árinu
á undan í svigum á eftir: Freð-
fiskur 485,9 (480.5) tonn. freð-
síld 2337,2 (2106,6) tonn, síldar-
og fiskim.iöl 20.816 (10.386) tonn,
lýsi 19.041 (6700) tonn. saltsíld
49.646 (43.213) tunnur eða 8092
(7043) tonn.
Alls voru fluttar inn til Nes-
kaupstaðar 18.496,7 (16-291,6)
smálestir af vörum. Þar af 13.614
tonn af brennsluolíu (10.831,9
j árið 1965). 19.071 ferfét af timbri
og 42-274 tómar tunnur.
Samkvæmt upplýsingum hafn-
arstjórans í Neskaupstað voru
skipakomur til staðarins sem hér
Framhald á 7. síðu.
Verklýðsfélög í Hufnurfirði
hulda fund um atvinnumálin
Eins og áður hefur verið
skýrt frá hér í blaðinu hefst
listavaka Samtaka hernáms-
andstæðinga næstk. sunnu-
dag og verður nánar sagt fra
tilhögun hennar allri hér í
blaðinu á sunnudaginn.
Einn ’ þáttur vökunnar verð-
ur flutningur á þrem leikþátt-
um og tveimur alllöngum
kvæðum eftir Bertolt Brecht,
> Leikþættirnir eru úr verkinu
Ótti og eymd Þriðja ríkisins,
en það er safn 24 sjálfstæðra
leikþátta er fjalla um lífið
í Þýzkalandi á valdatíma
Hitlers og er ákveðnum þátt-
um þjóðlífsins lýst í hverjum
þætti fyrir sig. Samdi Brecht
þetta verk á árunum 1935 —
1938.
Þættirnir þrír sem hér
verða fluttir eru Gyðinga-
konan, Spæjarinn og Þjóðar-
atkvæði, en í upphafi og á
milli þáttanna munu Erling-
ur Gíslason og Helga Kristín
Hjörvar flytja kvæðin Lof-
gjörð um efann og Glataður
orðstír. Erlingur E. Halldórs-
son þýddi síðara kvæðið en
Sigfús Daðason það fyrra.
Leikþættina alla þýddi Þor-
steinn Þorsteinsson.
Frumsýning á verkum þess-
um verður í Lindarbæ n.k.
mánudag. Leikstjóri er Erling-
ur E. Halldórsson en leik-
myndir hefur Sigurjón Jó-
hannsson gert eftir modelbók
frá Berliner Ensemble.
Leikendur í Gyðingakon-
unni eru tveir: Konuna leik-
ur Bríet Héðinsdóttir, en
manninn Erlingur Gíslason.
1 Spæjaranum eru fjögur
hlutverk. Konan: Bríet Héð-
insdóttir. maðurinn Erlingur
Gíslason, vinnukonan: Helga
Kristín Hjörvar og drengur-
inn Jens Einarsson. Er mynd-
in hér að ofan úr Spæjar-
anum. — Myndina tók ljós-
myndari Þjóðviljans, Ari
Kárason. — í Þjóðaratkvæði
eru þrír leikendur. Erlingur
Gfslason leikur eldri verka-
manninn, Sigurður Karlsson
yngri verkamanninn og Brí-
et Héðinsdóttir konuna.
Vcrkamannal'élagið Hlíf i
j Hafnarfirði hefur haft það fyrir
venju nokkur undanfarin ár að
helga fyrsta félagsfund á ári
hverju atvinnumálum og at-
vinnuástandi í Hafnarfirði og
jafnan boðið bæjarstjórn og
bæjarstjóra til fundarins.
Nú í ár hefur það orðið að
ráði að Sjómannafélag Hafnarfj.
og Verkakvennafélagið Framtíð-
in munu einnig standa að þess-
um fundi með Hlíf og verður
hann haldinn n.k. sunnudag kl.
2 e.h. í Góðtemplarahúsinu.
Aðalmál fundarins verður eins
ög áður atvinnumál og atvinnu-
ástand í bænum og bæjarstjóra
og bæjarstjóm er boðið á fund-
inn. Frummælandi verður Her-
mann Guðmundsson formaður
Hlífar.
Bétt fyrir klukkan 20 í gær-
kvöld féll maður á milli skips'
og bryggju í Vestmannaeyjum.
Hafnarstjóranum og fleiri nær-:
stöddum tókst að ná honum heil-1
um á háfi á land aftur. Iillt'
var í sjó og lágt í þegar óhappið
varð.
Enn rætt um raforkumál Austurlands á Alþingi í gær
Bygging stórra orkuvera og dreif
ing orkunnar er hlutverk ríkisins
□ Þingmenn Austurlands og Austfirðingar al-
mennt eru einhuga um nauðsyn þess að þegar
verði hafizt handa um virkjun Lagarfoss til lausn-
ar á raforkuþörf landsfjórðungsins. Hins vegar
eru sveitar- og bæjarstjórnir eystra andvígar
þeirri stefnubreytingu að taka raforkumálin úr
höndum Rafmagnsveitna ríkisins á þann hátt sem
lagt er til í frumvarpi eina Sjálfstæðisflokksþing-
mannsins af Austurlandi, Jómasar Péturssonar,
um Austurlandsvirkjun — enda frumvarpið flutt
án samráðs við þær.
Þetta kom fram í ræðum
þeirra Eysteins Jónssonar og
Lúðvíks Jósepssonar í neðri
deild Alþingis í gær, en þá var
fram haldið 1. umræðu um frum-
varp Jónasar um Austurlands-
virkjun.
Lúðvík Jósepsson sýndi fram
á í ræðu sinni að með frum-
varpinu væri stefnt að því að
gerbreytt yrði um stefnu í raf-.
orkumálum Austurlands. Hingað
til hefði verið stefnt að því að
Rafmagnsveitur ríkisins eignuð-
ust orkuverin og reistu og rækju
þau. 1 frumvarpi Jónasar væri
lagt til að byggðalögin eystra
tækju raforkumál Austurlands í
sínar hendur, myndi félag sem
yfirtæki þær rafmagnsveitur sem
fyrir eru og ráðist sameiginlega
í nýjar . raforkuframkvæmdir,
vi.rkjun Lagarfoss, og hafi rekst-
ur hennar.með höndum. Þetta
gengur þvert á yfirlýsta stefnu
iim þróun raforkumála í land-
inu eins og hún kemur fram í
raforkulögunum.
Versta veður suð vestunlands
★ Eftir hádegið í gær var kominn sunan gtormur og sumsstaðar
rok og rigning á vestanverðu landinu. Olli því djúp lægð, sem
á sínum tima, eða fyrir 3 sólarhringum olli snjókomunni miklu
í New York riki. Sunnanáttinni fylgdu hlýindi og var mestur
hitinn í Reykjavík, 8 stig. Úrfelli var mikið á sunnan- og vest-
anverðu landinu. í nótt var búist við suðvestanátt, hvassviðri,
eða stormi og éljagangi, síðan vestanátt í dag, rokhvassri og
ofsaveðri á köflum.
~k Klukkan 6 í gær var veðrið harðast á eftirtöldum stöðum: 11
vindstig í Vestmannaeyjum, 10 vinstig á Akureyri, 10 á Kjör-
vogi, 11 í Hvallátrum og 10 á Galtarvita.
★ Þessi lægð, sem um er að ræða, hefur verið óvenjulega hrað-
fara. Hún er tæplega 950 millibör.
+■ Varhugaverð stefnubreyting
Lúðvík lýsti því yfir að hann
Væri andvígur þeirri stefnubreyt-
ingu, en fylgdi stefnunni sem
mótuð hafi verið með setningu
raforkulaganna. Samkv. þeirri
stefnu væri eðlilegt að stefnt
yrði að því að tengja saman
orkusvæði Austurlands og Norð-
urlands og svo Norðurlandssvæð-
ið við Suðvesturlandið, svo fært
yrði að byggja orkuverin þar
sem hagkvæmast væri. Þetta
yrði vart gert nema einn eigandi
Væri að orkuverunum og veitun-
um, rikið sjálft. Rafveitur ríkis-
ins hefðu gengið allhart eftir
því að eignast rafmagnsveitur
einstakra staða á Austurlandi og
yrði það mjög umhendis aðfara
nú að taka við þeim aftur.
Lúðvík kvaðst ekki efast um
að Jónas Pétursson væri ásama
máli og aðrir eystra um nauð-
syn þess að tafarlaust væri lagt
i stóra vatnsaflsvirkjun á Aust-
urlandi, virkjun Lagarfoss. Ein-
mitt vegna hinnar brýnu þarfar
væri óeðlilegt að gerbreyta nú
um stefnu í raforkumálum Aust-
urlands, og gæti það orðið til
þess að skjóta framkvæmdum á
frest. Það tæki áreiðanlega all-
lsngan tíma að sveitarfélögin
austanlands mynduðu félag til
slíks, aðstaða beirra væri líka
mjög misjöfn. Félagi þeirraværi
ætlað að yfirtaka mannvirki sem
að verðmæti væru áreiðanlega
nokkuð á annað hundrað miljón-
ir króna, og ráðast samtímis í
stofnframkvæmd sem kostaði á-
líka mikið. Slfkt hlyti að leiða
ti) tafa á framikvæmdum og tjóns
fyrir alla hlutaðeigendur.
4r Verkefni þjóðarhcildarinnar
Það væri heldur ekki auðvelt
fyrir nýtt fyrirtæki að taka að
sér rekstur rafveitnanna á Aust-
urlandi. Mikill hluti þeirra hafa
díselstöðvar, og hafa verið rekn-
ar með 16 miljóna króna halla
árlega. Svo óhagkvæmar eru þær
að hallinn vex næstum að sama
skapi og rafmagnsnotkunin eykst!
Hætt er við að sveitarfélögin
austanlands hugsi sig um áður
en þau yfirtaka þann rekstur.
Lúðvfk sagðist álíta að hér
væri um venkefni að ræða sem
yrði að leysast af þjóðarheild-
inni en ekki einstökum byggð-
ariögum. Hins vegar ætti auð-
veldlega að vera hægt að koma
því þannig fyrir einnig með nú-
verandi skipulagi að fulltrúar
sveitarfélaganna hefðu meiri
hönd í bagga með rekstrinum og
yfirleitt með rafmagnsmálum
landsfjórðungsins. Rafmagns-
veitur ríkisins á Austurlandi
gætu sem bezt haft sérstaka
rekstrarstjórn og fulltrúa sveit-
Framhald á 7. síðu.
Vietnam-fundur
á briðiudaginn
★ N.k. þriðjudagskvöld, 14.
febrúar, efnir Sósíalista-
félag Reykjavíkur til al-
menns fundar um Viet-
nammálið í samkomuhús-
inu Lidó.
•ár Kristinn E. Andrésson
magister flytur ræðu á
fundunum. — Allir eru
velkomnir á fundinn.
í
6 og 10 síður
NÚ er illt í efni. I fyrsta lagi
er pappírssendingin til blaðs-
ins enn ókomin til landsins
og ekki væntanleg fyrr en i
kvöld með Dettifossi. I annan
stað eru gömlu pappírsbirgð-
irnar alveg á þrotum og eng-
an pappír að fá, hæfilegan að
stærð fyrir prentvél Þjóðvilj-
ans fyrr en rúllurnar fástupp
úr Dettifossi, væntanlega á
mánudaginn.
AF þcssum sökum verður óhjá-
kvæmilegt að grípa til neyð-
- arúrræða nú um helgina, þ.e.
gefa út 6 — sex síðna blað á
morgun, laugardag, og þá rétt
endast Ieifar pappírsbirgðanna
gömlu í 10 síðna sunnudags-
blað. Þriðjudagsblað Þjóðvilj-
ans kemur svo því aðeins út
að takist að ná nýju pappírs-
sendingunni úr Dettifossi I
tíma á mánudaginn — og er
ekki ástæða til annars en vona
að’ svo verði.
Þjófurinn hirfi
aðeins lifið af
verðmætinu
í fyrrinótt var brotizt inn í
skartgripaverzlunina á Amt-
mannsstíg 2 og stolið þaðan níu
hringjum og hálsmeni, samtals
13 — 14 þús. kr. virði. Virðist
styggð hafa komið að þjófun-
um því þarna var margt annað
verðmæti sem hann hefði getað
tekið líka, en skildi eftir þó.
Fyrirspurnir áAlþingi um
eituráhrif og öryggis-
bánað alámínverksmiðju
Alfreð Gíslason flytur á Alþingi þessar
fyrirspurnir til iðnaðarmálaráðherra um eit-
uráhrif og öryggisútbúnað fyrirhugaðrar ál-
veksmiðju í Straumsvík’
a. Telja sérfræðingar íslenzku heilbrigðis-
þjónustunnar nokkra hættu á flúoreitr-
un frá álverksmiðjunni í Straumsvík?
b. Hvers konar bræðsluker verða þar not-
uð?
c. Verður þess krafizt, að reykeyðingar-
tækjum verði komið fyrir 1 verksmiðj-
unni og þau hagnýtt frá byrjun?
&
i