Þjóðviljinn - 10.02.1967, Blaðsíða 3
E
Föstudagur 1G. febrúar 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA J
Krafa sovétstjórnarinnar:
Úspektirnar við sendiráðið
i Peking verði stöðvsðar
Verði það ekki gert áskilur hún sér rétt til allra
nauðsynlegra gagnaðgerða, segir í orðsendingu
MOSKVU og PEKING 9/2 — Sovétstjórnin krafðist þess
í dag af kínverskum stjórnarvöldum að þau gerðu þegar
í stað ráðstafanir til að koma í veg fyrir þær- st.öðugu
óspektir sem verið hafa við sovézka sendiráðið. í :fPeking
í hálfan mánuð Að öðrum kosti áskilur sovétstiórnin sér
rétt til allra nauðsynlegra gagnaðgerða, segir; í orðsend-
ingu sem kínverska sendiráðinu í Moskvu var send í dag
Bandaríkjunum ber að bæta
fyrir afglöp sín í Vietnam
— í Vietnam er ekki í húfi öryggi Bandaríkjamanna,
en sæmd þeirra og virðing, segir William Fulbright
COLUMBIA, Missouri 6/2 — William Fulbright, formaður
utanríkismálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings,
sagði í ræðu hér á mánudagskvöld að Bandaríkin ættu að
viðurkenna að þau hefðu gerzt sek um afglöp í Vietnam
og leggia sie öll fram til þess að bæta fyrir þau.
Sovétstjórnin krefst þess éinn-
ig að kínversk stjórnai-völd sjái
svo um að sovézku sendimenn
irnir 'í Kína verði frjálsir ferða
sinna. I orðsendingunni, sem
Tassfréttastofan . birti ,í dag, er
ó bað bent að aðgerðir Kínverja
við sóvétsendiráðið i Peking haii
í rauninni gert starfsmönnum
þess ókleyft að gegna skyldu-
störfum sínum í Kína, eins og
þeim t.d. að sjá um að Norður-
Vietnam berist sú hemaðaraðstoð
og efnahagsaðstoð sem Sovétrík-
in veita því.
Undanfarnar vikur, hafi óþol-
andi ástand verið við sendiráð
Sovétríkjanna og aðrar sovézk-
ar stofnanir í ’ Peking, skipu-'
lagðar misþyrmingar og skefja-
lsusar . óspektir., Sovétríkin og
allir sovézkir , þegnar, einnigþeir
sem dveljast í Kína, hafi brugð-
Að okkar áliti er ekkert því
til fyrirstöðu að sambúð Bret-
lands og Sovétríkjanna og frið-
samleg samvinna þeirra grund-
vallist á breiðri og traustri
undirstöðu. sagði Kosygin.
SlíkUr samningur 'gæti orðið
mikilvægt skref tii þess að
treysta og bæta sámskipti land-
anna. Honum yrði ekki beint
gegn neinum þriðja aðila, held-
ur myndi hann þvert & móti
eiga mikinn þátt í að auka og
bæta alþjóðasamvinnu sagði
Kosygin.
Stjórn hans teldi að steína
bæri að því að leysa sundur
hernaðarblakkirnar i austri og
vestri, hefjastætti handameð því
að leggja niður Nato og Var-
sjárbandalagið.
Kosygin hélt ræðu sína, sem
stóð i 45 mínútur, i konungs-
salnum í brezka þinghúsinu.
Þetta er fyrsta ræðan sem sov-
ézkur forsætisráðherra heldur á
þeim stað. Hvert sæti var skip-
að og rúmlega það því að um
200 lávarðar og þingmenn
hlýddu á ræðuna standandi.
í kvöld snæddi Kosygin og
foruneyti hans síðdegisverð hjá
Élisabetu drottningu i Bucking-
ham-höll.
izt ■ við þessum ólótum með ein-
stakri þolinmæði og hófsemi.
Sovétstjórnin hafi hvað eftir
annað vakið athygli kínverskra
stjórnarvalda á því að þessar
ögrunaraðgerðir spilli mjög vin-
áttu milli Kína og SoVétrfkjanna
og hafi varað kínversku stjórnina
við bví sém af þeim geti leitt.
Þeim aðvörunum hefur í engu
vei-ið sinnt, heldur hafa kínversk
stjórnax-völd þvert á móti fært
sig upp á skaftið. segir í orð-
sendingunni. .. * '
Þegar svo er komið lýsir utan-
ríkisráðuneyti Sovétríkjanna' af
hálfu, sovétstjórnarinnar því -ýfir,
að þær ráðstafánir sem' 'kínversk
stjórnarvöld hafa'geft stafaann-
■aðhvort af vísvitanxji.. áformum
um að spilla sambúð, .Kína - og
Sovétríkjanna eða því áð bess-
um stjórnarvöldum er um megn
spor i rétta átt. Stjórn Vestur-
Þýzkalands sem látið hefur í
ljós óánægju með slíkt samkomu-
lag myndi ekki haldast uppi að
neita að undirrita það. Sovét-
ríkin munu alls ekki sætta sig
við að Vestur-Þýzkaland fái
nokkurn aðgang að kjarnavopn-
um. sagði Kosygin,
Um sambúð Kina og Sovét-
ríkjanna sagði hann að Sovét-
ríkin myndu aldrei gera neitt
til þess að stjórnmálasamband
milli þeirra rofnaði. Það væri
alveg undir Kínverjum komið
hvernig færi. Hann vísaði á bug
spurningu um líkur á hernað-
arátökum milli Kína og Sovét-
ríkjanna og sagðj að þau kæmu
varla til greina.
Um Vietnam sagði Kosygin að
nýleg yfirlýsing Nguyens Duy
Trinh. utanríkisráðherra Norður-
Vietnams, gæti verið mjög gagn-
leg. Hann hefði sagt að samn-
ingaviðræður gætu hafizt ef
Bandaríkin hættu skilyrðislaust
lofthernaði sínum gegn Norðux--
Vietnam. — Bandarikin ættu
tvímælalaust að notfæra sér
þessa tillögu sem gæti bjargað
þeim úr ógöngunum. sagði Kosy-
gin.
að tryggja sendimönnum Sovét-
ríkjanna frumstæðustu lífs- og
starfsskilyrði, segir í orðsend-
ingunni að lokum.
Flutningar stöðvaðir?
„Isvestía". málgagn sovét-
stjórnax'innar, sakaði aftur í dag
Kínverja um að nota sér af legu
lands síns til að gera allt sem í
þeirra valdi stæði til að torvelda
Sovétríkjunum að aðstoða Norð-
ur-Vietnam. Blaðið gaf í skyn.
segir NTB. að aðstoð Sovétríkj-
anna við Vietnam væri meginor-
sök þess að enn eru sovézkir
sendimenn í Peking. Fréttamaður
NTB segir að ráða megi af oi’ða-
lagi greinarinnar í „Isvestia" að
Kínverjar hafi nú alveg stöðvað
flutninga frá Sovétríkjunum til
Norður-Vietnams um Kína.
Fúkyrði í „All>ýðudaBblaðinu“
„Alþýðudagblaðið“ í Peking
sagði í dag að leiðtogar Sovét-
ríkjanna væru „alræmdir svik-
arar við byltinguna og knékrjúp-
andi leppar heimsvaldasinna'*.
Blaðið réðst sérstaklega á Kosy-
gin forsætisráðherra fyrir ferð
hans til Bretlands. Sem dæmi
um ,,svikin“ nefndi blaðiðsamn-
inga þá sem Sovétríkin og Banda-
ríkin hafa undii'ritað um friðun
geimsins og fiskveiðar og í sömu
andrá var minnzt á „árásina" á
kínverska sendiráðið í Moskvu.
Allt þetta sagði blaðið að sann-
aði réttmseti þeirrar lýsingar á
sovézku leiðtogunum sem áður
var rakin
Ekkert lát vai' ó óspektunum
við sendiráðið í Peking í dag.
Sendiráðsmenn eru lokaðir inni
í byggingunni og hafa aðeins
stopult símasamband við Moskvu.
1 sumum verzlunum og veitinga-
húsum í Peking hafa verið fest
upp skilti með orðunum „Hund-
um og Rússum bannaður aðgang-
ur“
Atök enn í Sjanghaj
Útvarpið í Peking sagði í dag
að andstæðingar Mao Tsetungs
væru að reyna að brjótast til
valda í Sjanghaj. Voru borgar-
búar hvattir til að ganga á milli
bols og höfuðs á andstæðingum
Maos.
Framhald á 7. siðu.
Vopnahlé en
barizt samt
SAIGON i)/2 - Allmargir á-
rekstrar hafa orðið í Suður-Viet-
nam þrátt fyrir vopnahléið og
munu nokkrir þeirra hafa kost-
að mannslíf. Tekið er þó fram
í Saigon að bandaríska her-
stjórnin telji ekki að ,,vietcong“
hafi rofið vopnahléið Þessar við-
ureignir kunni að vera öðrum
að kenna.
í Saigon er sagt að til greina
komi að Bandaríkjamenn og Sai-
gonstjórnin framlengi vopnahléið
um þrjá daga. Þjóðfrelsisfylk-
ingin hefur boðað sjö daga
vopnahlé. en Bandaríkjamenn
hafa enn aðeins tilkynnt um
vopnahlé í fjóra daga.
Fulbright sem deildi hart á
stefnu Bandaríkjanna í Vietnam
sagði að það sem í rauninni væri
í húfi í Vietnam væri ekki ör-
yggi Bandaríkjanna. heldur
sæmd þeirra og virðing. Sæmd
auðugasta og voldugasta ríkis
veraldar réttlætir ekki að stríð-
inu sé haldið áfram og það stöð-
ugt fært út, sagði hann.
Æ fleiri Bandaríkjamenn er
farið að gruna að það sem
Bandaríkin berjast fyrir í Viet-
nam samræmist ekki grundvall-
arreglum bandarískrar lýðræðis-
hefðar. bætti Fulbright öldunga-
deildarmaður við.
Hann benti á að Bandaríkin
myndu á þessu ári verja 20 milj-
örðum dollara (nærri einni bilj-
ón króna) til stríðsins í Vietnam,
en aðeins tveimur miljörðum
dollara til aðstoðar við þróunar-
löndin.
— Dettur okkur í hug að halda
að stjórn Vietcongs myndi leiða
af sér tíu sinnum meiri mannleg-
ar þjáningar en allir sjúkdómar.
allt hungrið og eymdin í Asíu.
Afríku og rómönsku Ameriku?
spurði hann.
Hann lagði á það höfuðáherzlu
i röksemdum sínum fyrir þvi að
BOGOTA 9/2 — Jarðskjálfti sem
stóð í 40 mínútur olli miklu tjóni
í Kólumbíu í dag. Jarðskjálft-
ans varð vart í mestum hluta
landsins og einnig í Venezúela,
en einna mest mun tjónið hafa
orðið í höfuðborginni, Bogota,
þar sem mörg hús hrundu.
Bándaríkm væru a rangri braut
í Vietnam. að jafnvel nánustu
bandamenn þeirra. Bretland og
Vestur-Þýzkaland, hefðu ekki
einu sinni viljað senda nokkra
hermenn til Vietnams til að sýna
þannig í verki stuðning sinn við
stefnu Bandaríkjanna þar.
Kúbönsk flugrvél ferst
MEXlKÓBORG 9/2 — Farþega-
flugvél frá flugfélagi Kúbu hrap-
aði í dag til jarðar skammt fyrir
norðan Mexíkóborg.
A.m.k. átta manns létu lífið í
Bogota, en fregnir hafa borizt
af því að 24 hafi farizt í Huila-
fylki og tveir í Tolima. Hins
vegar er alveg sambandslaust við
Narina-fylki við landamæri Ekva-
dors, og er óttazt að þar hafi
orðið mikið tjón.
Búnaöarfélög,
Fóöurbirgöafélög
HÖFUM NÚ FYRIRLIGGJANDI EFTIRTALDAk
FÓÐURVÖRUR FRÁ HNU HEIMSÞEKKTA FYRIRTÆKI
B. O. C. M. í BRETLANDI.
BÆNDUR
ATHUGIÐ
að beztu vörurnar
gefa mestan afrakstur.
Gætið þess að vöru-
merkið sé B. O. C. M.
Ungkálfafóður.
Kálfaeldisfóður.
Fóðurblöndur fyrir mjólkurkýr, hvort
sem er kögglað eða í mjölformi.
Sauðfjárblanda, köggluð.
Hestablanda, köggluð.
Varpfóður, kögglað.
Grísafóður.
Gyltufóður.
FÚBURBLANDANHF.
Grandavegi 42 — Simi 21414
Kosygin á brezka þinginu
Bauð Bretum gríða-
og vínáttusáttmála
Nato og Varsjárbandalagið verði lögð niður
— þingmenn beggja deilda fögnuðu máli hans
LONDON 9/2 — Um 700 þingmenn úr báðum deildum
brezka þingsins klöppuðu Kosygin, forsætisráðherra Sov-
étríkjanna, lof í lófa þegar hann lagði til í ræðu sem hann
hélt í dag á þinginu að Bretland og Sovétríkin gerðu með
sér vináttu- og griðasáttmála.
Harður jarðskjálfti varð /
Kólumbíu, oHi miklu tjóni
Blaðamaniiafundur
Fyrr í dag hafði Kosygin rætt
við blaðamenn og bar þar margt
á góma. Hann lagði höfxxðáherzlxx
á þá miklu nauðsyn sem öllu
mannkyninu væri á því að
kjarnorkuvopn yrðu algerlega
bönnuð. Samningurinn um bann
við frekari útbreiðslu kjarna-
vopna sem hann taldi horfur á
að nú yrði samkomulag um væri
Kjötbúö Suöurvers tilkynnfr:
Tökum að okkur veizlur, kalt borð, smurt brauð, KJÖTBUÐ SUÐURVERS, horni Stigahliðar og
snittur, kokteilsnittur og brauðtertur. Hamrahlíðar. - Sími 35645 - Geymið auglýsinguna.
4