Þjóðviljinn - 10.02.1967, Page 10
Ragnar
Ólafur
Brottför hersins
og fltlanzhafs-
bandalagið
N.k. sunnudajr kl. 15.30
efna Æskulýðsfylkingin og
Samband ungra Framsókn-
armanna til almenns um-
ræðufundar að Hótel Borg
um brottför bandaríska her-
námsliðsins og Atlanzhafs-
bandalagið.
F rummælendur verða
Ragnar Arnalds alþingis-
maður og Ólafur Ragnar
Grímsson hagfræðingur. —
Síðan verða frjálsar um-
ræður.
Fundur þessara aðila er
haldinn að frumkv. Æsku-
lýðsfylkingarinnar en á síð-
asta hausti samþykkti þing-
SUF ályktun þess efnis að
gerð yrði fjögurra ára á-
ætlun um brottför hersins
og að íslendingar tækju
sjálfir við gæzlu mann-
virkja Nató hér á landi.
í ályktuninni var aðild ís-
lands að Nató hins vegar
talin eðlileg að óbreyttum
aðstæðum.
Allt áhugafólk um utan-
rikismál íslands er velkom-
ið á fundinn.
Oflug starfsemi Einingar á
Akureyri á síðastliðnu ári
Aðalfundur Verkalýðsfélagsins
Einingar á Akureyri var hald-
inn sunnudaginn 29. janúar og
var stjórn Björns Jónssonar ein-
róma .endurkjörin. I skýrslu for-
manns kom fram, að starfsemi
félagsins hefur verið mjög öfl-
ug á liðnu ári og framkvæmdir
hafizt í ýmsum stórmálum þess
og verklýðshreyfingarinnar á
Norðurlandi- Félögum hefur
fjölgað verulega og fjárhagur fé-
lagsins farið batnandi.
Eins og jafna*n áður hafa
kjaramálin orðið meginverkefni
félagsins á liðnu starfsári, gerðir
voru tvennir kjarasamningar og
urðu helztu breytingar með þeim
eftirfarandi:
Stytting vinnuvikunnar úr 45
í 44 klst., hækkanir kauptaxta*
um 9,1-13,6%; nætur- og helgi-
dagavinnuálag hækkaði um 10%
veikindadögum fastráðsins starfs-
fólks fjölgaði úr 14 í 28 daga:
réttindi til greiðslu fyrir frí-
daga voru aukin og stofnaður
var orlofssjóður með framlagi
frá vinnuveitendum er nemur
%% af dagvinnukaupi.
Húseign
Félaginu barst á árinu stór-
gjöf, húseignin Þingvallastræti 14
ásamt bókasafni, en gefendur
voru þau Elísabet Eiríksdóttir og
Gunnlaugur Björnsson. Þá gaf
Stefán E. Sigurðsson verkamað-
ur félaginu vandað bókasafn
Björn Jónsson.
sitt auk peningagjafar í hús-
byggingasjóð.
Hagræðingardeild á vegum
Eininga>r, Alþýðusambands Norð-
urlands og Fulltrúaráðs verka-
lýðsfélaganna tók til starfa á ár-
inu og var ívar Baldvinsson
tæknifræðingur ráðinn fram-
kvæmdastjóri hennar. Stærsta
verkefni hagræðingairdeildarinn-
ar á sl. ári var að hafa eftirlit
með og bæta bónuskerfi í hrað-
frystihúsi Útgerðarfélags Akur-
eyrar. Eru miklar vonir bundn-
ar við starfsemi hagræðingar-
deildarinnar í framtíðinni, hún
er í byrjun kostuð af ríkisfé, en
á næstu árum munu verkalýðs-
félögin taka hana að öllu á sín-
ar herðar-
Orlofsheimili
Á árinu var hafinn undirbún-
<5>-
Merk tilgáta á fundi SHÍ í gærkvöld:
Hefur Colfstraumurinn færzt
til og fiskurinn með honum?
■ Hefur bolfiskurinn fært sig til í sjónum og hefur
Golfstraumurinn færzt til um 200—250 mílur? Sæta báta-
útvegsmenn afarkjörum frá hendi umboðsmanna um smíði
fiskiskipa erlendis, umboðsmanna, sem ekkert vit hafa á
sjávarútvegi? Þessum spurningum var m.a. varpað fram
á fundi Stúdentafélags Háskóla íslands um sjávarútvegs-
mál á Hótel Borg i gærkvöld.
Jón Oddsson stud. jur. setti
fundinn og stýrði honum og til-
nefndi Þorstein Skúlason fund-
arritara. Því næst tók til máls
fyrsti frummælandi, Guðmund-
ur Jörundsson útgerðarmaður í
Reykjavik. Rakti hann fyrst
sögu og upphaf togaraútgerðar
Takmarkanirnar
þýða 40% hækkuit
vciðarfæraverðs
Þjóðviljanum hefur borizt eft-
irfarandi ályktun er samþykkt
var á aðalfundi Útvegsbændafé-
lags Keflavíkur:
„Aðalfundur Útvegsbændafé-
lags Keflavikur, haldinn 4. fe-
brúar 1967, mótmælir harðlega
þeim ráðstöfunum, sem gerðar
hafa verið í þá átt að takmarka
innflutning á veiðarfærum.
Fundurinn telur, að í mörgum
tilfellum þýði þessar ráðstafanir
allt að 40 prósent hækkun á
veiðarfærum. Fundurinn vill
benda þeim, sem að þessum ráð-
stöfunum standa á, að kynna sér
vel nefndarálit það, sem fjallar
um vandamál bátaflotans og Iagt
var fram á Alþingi á s.l. hausti.
Finnig telur fundurinn, að allar
hækkanir á hendur útveginum
séu ekki í samræmi við verð-
stöðvunarstefnu ríkisstjórnarinn-
Tvö ný Kosmos-tungl
MOSKVU 9/2 — Síðustu þrjá
dágá hefur tveimur nýjum gerv*-
tunglum af Kosmos-gerð verið
skotið á loft frá Sovétrfkjunum.
á íslandi og kom síðar að þeim
orsökum, sem þessi útgerð á nú
við að etja. Hann lýsti sig mót-
fallinn þeirri hugmynd, að tog-
urunum yrði hleypt inn í land-
helgina. Einnig taldi hann ekki
rétt að aflinn hefði brugðizt upp
á síðkastið vegna ofveiði, held-
ur vegna þess að fiskurinn hefði
fært sig til í sjónum. Því til
sönnunar sagði hann frá því
að Englepdingar og aðrar þjóð-
ir væru sífellt að finna ný fiski-
mið, þar sem áður hefði verið
talið að þeirra væri ekki að
vænta. Einnig sagðist hann hafa
heyrt eftir sovézkum vísinda-
mönnum, er hann var í við-
skiptaerindum austur í Moskvu
fyrir skömmu, að Golfstraumur-
inn hefði fært sig til um 200
til 250 mílur og gæti það einnig
verið skýringin á hegðun fiskj-
arins.
Hann sagði frá reynslu sinni
af útgerð togarans Narfa, sem
hefði gefizt vel og endaði mál
sitt á þeim orðum, að tækist
okkur að vinna bug á þeim inn-
anlandserjum, sem nú þjaka
þjóðfélagið, þá gætum við verið
bjartsýnir á framtíð sjávarút-
vegsins í landinu.
Annar frummælandi, Jón Héð-
inn Ármannsson útgerðarmaður,
ræddi einkum um smíði fiski-
skipa og rekstur þeirra. Deildi
hann hart á það fyrirkomulag,
sem er haft á smíði og kaupum
á nýjum skipum og benti á, að
útgerðarmenn hefðu þurft að
greiða tugi miljóna króna til
umboðsmanna, sem margir
hverjir hefðu alls enga þekk-
ingu á þeim hlutum, sem þeir
| væru að fjalla um. Þá sagði
í hann að helzta brotalömin á
rekstri bátanna væri sú, að þeir
hafa enga tryggingu fyrir fullri
greiðslu á afla þeim, sem þeir
leggja á land. Einnig nefndi
hann að í bígerð væru breyt-
ingar á Síldarútvegsnefnd.
Þriðji frummælandi var Árni
Benediktsson frá Ólafsvík og
var hann nýbyrjaður ræðu sína
þegar blaðið fór í prentun og
verður nánari frásögn af fund-
inum að bíða betri tíma.
ingur að byggingu orlofsheimil-
is að Illugastöðum í Fnjóska-
dal og hefur Alþýðusamband
Norðurlands forgöngu um það
mál. Standa vonir til að fyrsta
áfanga framkvæmdanna verði
lokið á þessu ári og mun A.N-
standa fyrir sameiginlegum
framkvæmdum, en einstök
verkalýðsfélög kosta og eiga
byggingar sjálfra orlofshúsanna,
sem ráðgert er að verði 12-16
í fyrsta áfanganum.
Barnaheimili Einingar var rek-
ið með líkum hætti og áður að
Laugalandi á Þelamörk og dvöld-
ust þar 46 börn í 2 mánuði, en
forstöðukona var Vilborg Guð-
jónsdóttir. Orlofsferð til útlanda
var farin á vegum Einingar og
annarra verkalýðsfélaga á Akur-
eyri og var vel heppnuð.
Sameining
Að frumkvæði verkalýðsfélag-
anna í Hrísey og á Dalvík er
nú í athugun hvort mögulegt og
heppilegt væri að sameina al-
mennu verkalýðsfélögin við
Eyjafjö 1 í eitt félag með deilda-
skiptingu, þannig, að félagssvæði
Einingar næði þá auk Akureyr-
ar og Glæsibæjarhrepps eins og
nú er, yfir Eyjafjarðarsýslu a*lla
og Þingeyjarsýslur vestan Vaðla-
heiðar.
Fimm félagsmenn voru kosnir
heiðursfélagar á aðalfundinum,
þeir Gunnlaugur Björnsson, Stef-
án E. Sigurðsson, Árni Þorgríms-
son, Haraldur Þorvaldsson og
Sigurjón Jóhannsson.
Stjómarkjör
Stjórn félagsins og trúnaðar-
mannaráð vpru einróma kjörin
og skipa stjórnina Björn Jóns-
son formaður, Jón Ásgeir.sson
varaformaður, Rósberg G. Snæ-
dal ritari, Vilborg Guðjónsdóttir
gjaldkeri, Björgvin Einarsson,
Marta Jóhansdóttir og Ingólfur
Árnason meðstjórnendur. 1 vara-
stjóm eru Gunnar Sigtryggsson,
Freyja Eiríksdóttir, Björn Gunn-
arsson, Björn Hermannsson og
Sigurpálína Jóhannesdóttir,
Trúnaðarmannaráð félagsins
skipa Árni Jónsson, Loftur Mél-
dai, Björn Hermannsson, Gunn-
ar Sigtryggson, Freyja Eiríks-
dóttir, Geir ívarsson, Gústaf
Jónsson, Auður Sigurpálsdóttir,
Jóhann Pálsson, Margrét Magn-
úsdóttir, Ruth Björnsdóttir og
Adolf Davíðsson.
Vöruskiptajöfnuðurinn 1966
óhagstæður um 805,7 mi/j.
Föstudagar lð, febrúar 1967 — 32. árgangur — 34. tölublað.
Rausnarleg g jöf til
Barnamúsikskóla
Barnamúsíkskólinn í Reykjavik
hefur fengið rausnarlega gjöf
frá Vestur-Þýzkalandi, bækur,
hljómplötusafn og samstæðu Orff
ásláttarhljóðfæra, sem eru mjög
mikilvæg við tónlistarkennslu
barna. Það er vestur-þýzka
sendiráðið hér scm haft hefur
milligöngu um þcssa gjöf, en gef-
andinn er menningarsjóður ut-
anríkisráðuneytisins þýzka.
Hljóðfærin eru þegar komin til
landsins og byrjað að nota þau
við kennslu í Barnamúsíkskólan-
um, en notkun slíkra ásláttar-
hljóðfæra myndar kjamann í
hópkennslunni, að því er Stefán
Edelstein skólastjóri sagði blaða-
mönnum í gær. Orff ásláttar-
hljóðfærin eru mjög dýr oghef-
ur skólinn ekki haft bolmagn
til að kaupa nema lítið af þeim.
Með þessari gjöf hefur skólinn
nú eignazt fullkomna samstæðu
þessara hljóðfæra, en það sem
hann fékk nú voru sex málm-
spil og tréspil með mismunandi
tónhæðum og þrjár nýtízkulegar
pákur.
í fyrra fékk skólinn að gjöf
frá sömu aðilum mjög vandað
hljómplötusafn, sérstaklega sniðið
fyrir unga hlustendur og 200
binda bókasafn um tónlistar- og
uppeldisfræði, sem ætlað er
kennurum skólans.
Kvað Stefán forráðamenn
Barnamúsikskólans mjög þakk-
láta fyrir þessar gjafir ogflutti
Framhald á 7. síðu.
Byrjuðu á að stela skóm til
að nota við seinna innbrot
Rétt fyrir kl. 4 í fyrrinótt
náði lögreglan í tvo 15 ára gamla
pilta sem voru að brjótast inn
um glugga á þaki veitingahúss-
ins Glaumbæjar við Fríkirkju-
Þjóðviiljanum hefur borizt
bráðabirgðayfirlit frá Hagstofu
íslands um vöruskiptajöfnuðinn
á sl- ári, en samkvæmt því varð
hann í heild óhagstæður um
805,7 miljónir króna (342,1 milj.
kr. árið 1965). Inn voru fluttar
vörur á árinu fyrir 6852,6 milj.
kr. (5901,0) en út vörur fyrir
6046,9 milj. kr. (5558,9).
Á árinu 1966 voru flutt inn
fiskiskip fyrir 180,4 milj krón-
ur (119,0) og önnur skip fyrir
83,4 milj kr. (196,5). Þá voru
fluttar inn á árinu flugvélar
fyrir 291,0 milj- kr. (268,2) og
bifreiðir fyrir 458,0 milj. kr.
(285,9). Tala innfluttra bifreiðai
á sl. ári var samtals 5558 á móti
3991 árið 1965. Er þetta algert
met í bifreiðainnflutningi til
landsins.
Var í kaffi meðan
ha ns var leitað
í eldinum
Slökkviliðið var í gær
hvatt til að slökkva eld að
Sigtúni 7, en í því húsi býr
Jóhannes Kjarval Iistmálari
og hefur þar einnig vinnu-
stofu. Húsið er tveggja hæða
steinhús og lagði mikinn reyk
úr gluggum er að var komið.
Nokkrir menn voru staddir
fyrir utan og sögðu slökkvi-
liðsmönnum að Kjarval væri
í vinnustofunni á efri hæð
hússins.
Lögðu slökkviliðsmenn af
stað upp stigann með grímur
og háþrýstiúðara, og reistu
einnig upp stiga við hlið húss-
ins, brutu rúðu á efri hæð-
inni og leituðu listamannsins,
en hann fannst hvergi. Kom
síðar í Ijós að hann hafði
brugðið sér í kaffi niður í
bæ.
Þiljur og málaratrönur á
stigapalli hússins brunnu og
allt fylltist af reyk, en fljót-
lega tókst að slökkva eldinn
og tjón varð ekki tiltakanlegt.
Sluppu öll málverk Kjarvals
sem þama voru undan eld-
inum og skemmdust hvorki af
reyk né vatni.
veg. Kom í ljós við yfir-
heyrslur í gær að þetta er engan
veginn í fyrsta sinn sem þeir
bera niður á þessum stað. Hafði
annar þeirra brotizt þarna inn
nóttina áður ásamt öðrum jafn-
aldra sínum og þeir þá náð í sjö ,
flöskur af áfengi, en báðir höfðu
þeir tekið þátt í ihnbrotí i
Glaumbæ aðfaranótt 30. ja*núar
með þrem kunningjum sínum og
stolið 12 flöskum í það skipti-
Líklega hefur verið nokkuð
erfitt að komast upp á þakið í
tvö fyrri skiptin, a.m.k. voru
piltarnir svo fbrsjálir í fyrri-
nótt að þeir brutust fyrst inn í
skóbúðina Rímu í Austurstræti
og stálu þar tveim pörum af
skóm með gúmmísólum, sem
þeir klæddust áður en þeir
reyndu við Glaumbæ.
Vísitala framfærslukostnaðarins og kaup-
greiðsluvísitalan eru óbreyttar í febrúar
Kauplagsnefnd hefur reiknaó
út vísitölu framfærslukostnaðar
í febrúarbyrjun og reyndist
hún vera 195 stig eða hin sama
og í janúarbyrjun.
Á einstökum liðum vísitöl-
unnar urðu þær breytingar að
matvörur' lækkuðu um tvöstig
eða úr 247 stigum 1. janúar sl.
í 245 stig 1. febrúar. Stafar
þessi lækkun af lækkun kartöflu-
verðs en verð á innfluttum
kartöflum sem komu á markað
um miðjan janúar var lægraen
a innlendum kartöflum er gengu
til þurrðar um líkt leyti. Liður-
inn fatnaður og álnavara hækk-
aði hins vegar um eitt stig eða
úr 184 stigum í 185 stig.
Sama verðlagsuppbót.
Kauplagsnefnd hefur einmg
reiknað út kaupgreiðsluvísitölu
eftir vísitölu framfærslukostnað-
ar í febrúarbyrjun 1967, í sám-
ræmi við ákvæði fyrri málsgr. 2.
gr. laga nr. 63/1964, og reynd-
ist hún vera 188 stig, eða óbreytt
frá því, sem var við síðasta út-
reikning, þ.e. eftir vísitölu
framfærslukostnaðar 1. nóvem-
ber 1966.
Samkvæmt þessu skal á tíma-
bilinu 1. marz til 31. maí 1967
greiða sömu verðlagsuppbót, 15,25
prósent, og greidd er á tímabil-
inu 1. desember 1966 til 28. fe-
bníar 1967.
Verðlagsuppbót á vikulaun og
, mánaðarlaun skal, samkvæmt á-
kvæðum nefndarlaga reiknuð í
heilum krónum, þannig að sleppt
j sé broti úr krónu, sem ekki nær
I hálfri krónu, en annars hækkað
' í heila krónu.
SÍS-nefnd fylg-
ist með viðræðum
við stjórnina
Dagana 7. og 8. febrúar s.I.,
hafa staðið yfir fundir fram-
kvæmdastjóra frystihúsa á veg-
um SlS til að ræða störf nefndar
þeirrar er skipuð var í janúar-
mánuði af ríkisstjórninni og
frystihúsacigendum til að rann-
saka rekstrargrundvöll frystihús-
anna og gera tillögur um úr-
bætur.
Fjallaði fyrri fundurinn um til-
lögur fulltrúa ríkisstjómarinnar
í ofangreindri nefnd en þærvoru
stofnun verðjöfnunarsjóðs sjáv-
arútvegsins og um endurskipu-
lagningu hraðfrystiiðnaðarins.
Voru tillögurnar ræddar fram
og aftur á fundinum og töldu
fundarmenn þær allsendis ó-
fullnægjandi sem lausn á vanda-
málunum.
Kusu fundarmenn tvo fulltrúa
til að ganga á fund forsætisráð-
herra ásamt fulltrúum Sölumið-
stöðvar Hraðfrystihúsanna dag-
inn eftir, þann 8. febrúar, og
frestuðu fundi þar til að þeim
umræðum loknum.
Var fundi síðan haldið áfram
8. febrúar og kom þá í ljós, að
lítill árangur hafði orðið af við-
ræðunum við forsætisráðherra
nema sá, að áfram yrði starfað
að lausn vandamálanna.
Skipaði fundurinn þá fimm
manna nefnd til að fylgjast með
málunum af sinni hálfu.