Þjóðviljinn - 22.02.1967, Page 1
Miðvikudagur 22. febrúar 1967 — 32. árgangur — 44. tölublað.
Kömrnn á hag og stöðu ísL dagblaða
Einar Olgeirsson flytur á
Alþingi þessar fyrirspurnir
til ríkisstjórnarinnar um
könnun á hag dagblaðanna:
1. Hver hefur orðið ár-
angur þeirrar könnunar á
hag og stöðu íslenzku dag-
blaðanna, sem rikisstjórnin
ákvað að láta fram fara
fyrir ári?
2. Hyggst ríkisstjórnin
gera ráðstafanir til þess áð
koma í veg fyrir, að sú þró-
un sem víða i Evrópu hef-
ur leitt til sívaxandi blaða-
dauða og þar af leiðandi
minnkaðs prentfrelsis, gerst
cinnig hér á Iandi?
Lúðvík Jósepsson flytur á Alþingi frumvarp um nýja skipan olíumálanna:
Olíuverzlun ríkisins taki við innflutningi,
heilt/sölu og smásölu á öllum olíuvörum
Frumkvæmdit við Sundahöfnina eru uá í fullum gangi
■
□ Lúðvík Jósepsson flytur á Alþingi frum-
varp um olíuverzlun ríkisins.
□ Þar er lagt til að stofnuð verði olíuverzlun
ríkisins sem taki í sínar hendur allan innflutning
á olíum til landsins og hafi með höndum alla heild-
sölu á olíuvörum. Jafnframt er ráð fyrir því gert
að olíuverzlun ríkisins taki að mestu leyti að sér
smásölu og dreifingu á olíuvörum. Þó er ætlazt
til að olíusamlög, sem starfa samkvæmt lögum í
því skyni að selja meðlimum sínum olíur á sem
lægstu verði, geti starfað áfram.
Frumvarpið er þannig:
X. gr.
Stofna skal ólíuverzlun ríkisins.
Hún er eign ríkisins, sem ber á-
byrgð é skuldbindingum hennar.
Ríkissjóður leggur henni til nauð
synlegt stofn- og rekstrarfé, og
er heimilt að taka það að láni.
2. gr.
Hlutverk olíuverzlunarinnar er
að annast öll innkaup og ' flutn-
inga til landsins á brennsluolí-
um (gasdlíu, dieselolíu, fuelolíu,
ljósaolíu, benzini og flugvéla-
benzíni), smumingsolíum og olíu-
feiti. Hún skal sjá um flutning
olíuvaranna í birgðastöðvar i
irinflutningshöfnum. Ennfremur
skal hún leitast við að fjölga
innflutningshöfnum olíuvara frá
þvi sem nú er, í því skyni að
auðvelda dreifingu þeirra.
3. gr.
Olíuverzlunin skal semja við
eigendur olíubirgðastöðva um
leigu þeirra til þess að tryggja
nasgilegar birgðageymslur. Náist
ekký samkomulag um leigusamn-
inga, er heimilt að taka birgða-
stöðvar leigunámi. Enn frem-
ur er olíuverzluninni heimilt að
byggja nýjar birgðastöðvar, ef
nauðsyn krefur. Þá skal olíu-
verzlunin leita eftir samningum
við starfandi olíufélög um kaup
eða leigu á dreifingarkerfi þeirra
og smásöluaðstöðu. Takist ekki
samningar, sem tryggi olíuverzl-
un ríkisins sæmilega aðstöðu til
smásöluverzlunar með olíur, skal
heimilt að taka eignir olfufélag-
anna eignar- eða leigunámi.
4. gr.
Olíuverzlunin selur oliuvörur í
heildsölu til olíusamlaga, opin-
berra aðila og annarra, sem
kaupa mikið magn í einu til eig-
in nota.
Hún skal einnig annast smá-
sölu með olíuvörur og leitastvið
að skipuleggja á sem hagkvæm-
astan hátt olíudreifingarkerfi um
alflt land.
Olíuverzlun ríkisins skal skyit
að sjá um, að jafnan séu til í
landinu nægar birgðir olfuvara.
5. gr.
Olíuverzlunin skal selja olí-
Framhald á 2. síðu.
Jörg Demus einleikari á tón-
leikum Sinfóníusveiturínnaz
Austurríski píanóleikarinn
Jörg Dcmus er nú kominn til
íslands öðru sinni og ætlar að
leika með Sinfóníuhljómsveit-
inni á tónleikunum annað kvöld.
Mun hann þá leika annan píanó-
konsert Brahms, einn voldugasta
píanókonsert sem þekkist.
Ekki er ástæða til að kynna
Demus nú sérstaklega, svo eftir-
minnilega, sem hann lék hér
bæði með Sinfóníuhljómsveit-
inni og á tónleikum Tónlistar-
félagsins fyrir tveimur árum.
Demus hefur lengi staðið í
fremstu röð píanista, þó að hann
sé ekki gamall. Hann hefur num-
ið hjá nokkrum mestu píanó-
snillingum Evrópu, og hann
hefur unnið til glæsilegra verð-
launa i samkeppni. Beztu með-
mælin eru samt sú almenna
hylli sem hann nýtur í tónleika-
sölum um víða veröld og hinar
eftirsóttu hljómplötur, sem hann
hefur leikið inn á.
Togarasala
Togarinn Kaidbakur frá Akur-
ureyri eeldi í Grimsby í gær 134
tonn fyrir 11.311 sterlingspund.
Jörg Demus
Hitt verkið á efnisskrá tón-
leikanna verður „Symphonie
fantastique" eftir Berlioz. Stjórn-
andi verður Bohdan Wodiczko,
en hann mun nú hverfa frá
stjórnpalli hér um stund til að
stjórna erlendis, og kemur aft-
ur fyrir tónleikana 27. apríl.
MYNDIRNAR hér að ofan eru
teknar í gær af framkvæmd-
um við Sundahöfnina. Á efri
myndinni sést garðurinn sem
nú er kominn nm 240 metra
út frá ströndinni og er hann
kominn út undir sker nokk-
urt þar sem hann á að’ enda.
Eftir er hins vegar að breikka
hann talsvert inn á við. Þá
hefur að undanförnu .verið
unnið við boranir og spreng-
ingar neðansjávar við skerið
þar sem það mun standa út
úr garðinum.
Á HINNI MYNDINNI sést sand-
dæluprammi sem verið er að
setja upp og á hann að dæla
upp og dýpka hafnarsvæðið
og hefjast þær framkvæmdir
á næstunni.
FRAMKVÆMDIR við Sunda-
liöfnina hófust í október í
fyrrahaust og vinna nú um
30 manns við þær, að því er
hafnarstjóri sagði Þjóðviljan-
um í gær.' í aprílbyrjun er
ráðgert að byrja að reka nið-
ur stálþilið en það verður
um 400 metra Iangt.
ÁÆTLAÐ er að vinna fyrir um
40 miljónir króna við Sunda-
höfnina á þessu ári en til-
boðið í fyrsta áfanga verks-
ins, sem á að vera Iokið á
næsta ári, hljóðaði upp á 81,7
I miljónir króna. Verktaki er
fyrirtækið Skánska cement-
gjuteriet í félagi við Loftorku
og Malbik h.f.
Ótrúlegt sölumet!
Maí seldi 290 tn.
á 307.793 mörk
1 gærmorgun seldi togar-
inn Maí í Cuxhafen það sem
eftir var að landa úr skipinu
í fyrradag. Urðu lokatölumar
290 tonn og söluverðið 307.793
mörk. Er þetta hæsta sala
sem um getur hjá íslenzkum
togara fyrr og síðar þegar um
er að ræða sölu á eigin al'la.
Aflinn var að langmestu ieyti
karfi og þess ber að gæta að
lýsi er ekki meðtalið í sölu-
verðinu. Skipstjóri á Maí er
Ilalldór Halldórsson og er ó-
líklegt að þessu sölumeti hans
verði hnekkt á næstunni.
Xngimar Einarsson hjá DÍCl
gaf Þjóðviljanum upp í gær
þrjár hæstu sölur íslenzkra
tögara, bæði á Þýzkalands-
markaði og Bretlandsmarkaði,
fram að sölu Maá nú.
1 apríl 1966 seldi Víkingur
á Þýzkalandsmarkaði 233
tonn fyrir 224.135 mörk og
var það sölumetið á þýzkum
markaði fram að þessu. Næst-
ur var Júpíter er seidi 212
tonn fyrir 217.375 mörk í
septemiber 1965 og þriðji í
röðinni Maí, er seldi einnig
í september 1965 190 tonn fyr-
ir 204-273 mörk.
Þrjár hæstu sölur á Bret-
landsmarkaði eru hins vegar
þessar: 1 maí 1966 seldi Marz
240 tonn fyrir 23.856 pund og
er það metiö. Næstur kemur
Víkingur er 'seldi í maí 1965
277 tonn fyrir 22-577 pund og
þriðji er Fylkir sem seldi 219
tonn fyrir 21.017 pund í mai
1961.
Eins og sést af þessum töl-
um er Maí bæði með mesta
mesta aflamagnið og lang-
hæsta söluverðið. Hæsta með-
alverð mun hins vegar togar-
iim Sigurður tefa fengið en
Halldór Ilalldórsson
hann var þá hins vegar með
fremur lítinn afla.
Maí lagði frá Hafnarfirði i
þessa veiðiferð um síðustu
mánaðamót. Mun hann hafa
fengið þennan afla á fremur
fáum veiðidögum en hann
varð ■fyrir nokkrum töfum
bæði vegna íss og eins vegna
veðurs á útleiðinni-