Þjóðviljinn - 10.03.1967, Page 2
2 SfÐA — ÞJÖÐVTUTNN — Föstudagur Xfl. marz 1967.
lánssktrteini, sem er um 12% 1
meira en árið 1965. Inn komu
fyrir lánsskírteini rúmar 187
þúsund krónur.
BókabíU.
Af nýjum verkefnum, sem
fyrir liggja á því ári, sem nú
er hafið, ber að nefnai hér kaup
á bðkajbíl. Athugun fer nú
fram um slík kaup, sbr. heim-
ild frá borgarráði 2. nóvember
sl. Ekki liggja þó enn fyrir.
fullnaðar niðurstöður af þeim
athugunum. Vonir standa til,
að bókabíll geti tekið hér til
starfa síðast á árinu 1967.
Mundi hann baeta mjög aðstöðu
þeirra, sem búa fjarri safninu
eða útibúum þess, til útvegun-
ar á bókum- Mun bíllinn ganga
einu sinni til tvisvar í vi'ku út
í hvert borgarhverfi, sem ekki
hefur bókasafn, og standa við
einn til tvo tíma á hverjum
stað, en skammt verður milli
biðstöðva.
Húsnæðismál.
Eékaeigit Borgarbókasafns
komin yfir 100 |>ijs. bindi
P Á síðasta ári voru
keyptar um 13.700 bækur
til Borgarbókasafns Jteykja-
víkur og komst þá bóka-
eign safnsins nokkuð yfir
hundrað þúsund bindi. Lán-
uð voru út á árinu 290.187
bindiyog er þar um 8,8%
aukningu að ræða
Stairfsemi Borgarbókasafns
Reykjavíkur fór eftir líkum
leiðum og árin á undan. Deild-
ir safnsins voru hinar sömu
og áður og einni bætt við,
hjnn 15. nóvember. Er það
útlánadeild fyrir böm í Laug-
arnesskólanum. Var þar áður
lesstofa fyrir nemendur skól-
ans, sams konar og í þremur
öðrum skólum bórgarinnar —
Miðbæjarskóla, Austurbæjar-
skóla og Melaskóla. Þessa nýju
útlánsdeild nota einkum nem-
endur úr Laugarnesskóla og
Laugalækjarskóla.
Hinn 30. júní lét Snorri
Hjairtarson af störfum við safn-
ið sem borgarbókavörður, en
við tók Eiríkur Hreinn Finn-
bogason. Aðrir starfsmenn við
safnið voru til 15. nóvember 20,
en eftir það 21- í ársbyrjun
höfðu 13' þessara starfsmanna
fullt 6tarf, þ«. 38 stundir í
viku.
Bókakaup.
— Innan sviga eru ssmsvar-
andi tölur fyrir árið 1965. —
Bókaeign safnsiiis var í árslok
100.852 (92.840þ bindi.
Árið 1966 '^voru keyptar í
bókasafnið 13.699 (8.793) bækur
fyrir kr. 1-840.094 (1.218.413.11).
Af þessum bókum voru 9-652
(6.691) skáldrit, en 4.047 (2.102)
bækur um fræðileg efni. Með-
alverð keyptra bóka í safnið á
árinu var kr. 134.00 (139.00)
Meðalverð hefur því lækkað,
þótt verð íslenzkra bóka hafi
hækkað allmikið og er sú lækk-
un vegna hagkvæmra kaupa á
eldri íslenzkum bókum og einn-
ið hefur verið keypt allmikið
af erlendum bókum í vasa-/^
brotsútgáfum, sem verða' æ al-
gengari víða um lönd og um
leið vandaðri án þess að verðið
hækki.
títlán.
Bókaútlán safnsins voru sam-
tals á árinu 290.187 bindi (266.
187). Otlánaaukning frá fyrra
ári er því samtals 23.289 bindi
sem er um 8,8 af hundraði. Á
árinu voru lánuð 128 (117)
skipasöfn fil 31 (28) skipa. Lán-
aðar voru\út 12-927 bækur á er-
lendum málum (9.719) bindi —
þar af 4.885 á dönsku og 4.467
á ensku.
í útlárium verður hlutur
skáldrita á íslenzku langsam-
lega mestur eða 232.767 bindi.
Næst ganga bækur um sagn-
fræði — 21.424 bindi.
Á árinu voru seld 18.753
Húsnæðisskortur háir nú
mjög allri þróun í starfsemi
Borgarbókasafnsins. Svo þröngt
er orðið um aðalsáfnið við
Þingholtsstræti, að þar verður
engin starfsemi aukin frá því
sem nú er, og er allmiklum
erfiðleikum bundin sú starf-
semi, sem þar fer fram. Eru
bæði bókageymslur allt of
þröngar sem og útlánasalur og
þó ekki sízt það húsnæði, þar
sem öll innri vinrjan í safninu
fer fram, þ.e. flokkun og skrá-
setning bóka, bókbandsvinna
og skrifstofuvinnu. En allt það
starf hefur aukizt mjög síðustu
ár bæði vegna aukinna bóka-
kaupa, útlána og bókbands-
vinnunnar, sem í rauninni er
ný f safninu, en krefst mikils
húsrýmis, ef vel á að ganga.
Því er brýn nauðsyn, að safnið
fái sem fyrst nýtt bókasafns-
hús. Er gert ráð fyrir, að það
verði reist f nýja miðbænum í
Kringlumýri.
(Skv. skýrslu borgarbóka-
varðar).
Theodór B. Líndaí
í mannréttinde-
nefnd Evrópu
Tilkynnt hefur verið í Stras-
bourg, að ráðherranefnd Evrópu-
ráðsins hafi kjörið Theodór B.
Líndal prófessor til að takasæti
f mannréttindanefnd Evrópu.
Nefndin starfarsamkvæmtmann-
réttindasáttmála, Evrópu og fjall-
ar um kærur vegna brota á 4-
kvæðum hans. Sigurgeir Sigur-
jónsson, hæstaréttarlögmaður,
sem átt hefur sæti í mannrétt-
indanefndinni, hefur nýlega beð-
izt lausnar frá starfinu.
Meira
af svo góðu!
Upp er komið eitthvert al-
varlegasta fjárdráttarmál sem
um getur í sögu þjóðarinnar,
einstæð misnotkun Framsókn-
arflokksins á opinberu fé. Það
er' nú sannað mál að Ólafur
Ragnar Grimsson, einn af
yngstu leiðtogum Framsókn-
arflokksins, lét ríkisútvarpið
greiða fyrir sig hálft flugfar-
gjald til Vestmannaeyja, en
þar safnaði hann efni í út-
varpsþátt og flutti jafnframt
ræðu á fundi Félags ungra
Framsóknarmanna. Hefur
Morgunblaðið ljóstrað upp
um þetta einstæða hneyksli
og skrifað margar greinar af
þessu tilefni, logandi af sið-
ferðilegri vandlætingu; sgin-
ast í gær segir blaðið í for-
ustugrein: „Hér er um mjög
alvarlega misnötkun að ræða,
sem vafalaust er einsdæmi i
sögu útvarpsins og sýnir
næsta ótrúlega ósvifni af
hálfu starfsmanns Framsókn-
arflokksins að misnota á
þennan hátt það traust, sem
honum var sýnt með því að
fela honum stjórn útvarps-
þáttar“.
Skýrt hefur verið frá því
að hin alvarlega misnotkun,
einsdæmið og ósvífnin hafi í
krónum talið numið hvorki
meira né minna en tæpum
500 kr. — segi og skrifa fimm
hundruð krónum — og má
af því marka hvílíkt keppi-
kefli það hlýtur að hafa ver-
ið Framsóknarflokknum að
klófesta þvílíkan feng og
hvert skakkafall þetta mál er
fyrir sjóði ríkisútvarpsins.
Þarf að gera gangskör að því
áð endurheimta þessa fjár-
muni alla hjá Framsóknar-
flokknum, og ætti honum að
takast að standa skil á þeim,
til að mynda með því að
efna til almennra samskota.
Jafnframt er þess að vænta
að Morgunblaðið gangi nú á
lagið, greini frá dæmum um
aðra menn sem sótt hafa fé
í opinberá sjóði til ferðalaga
en sinnt jafnframt pólitískum
áhugamálum sínum. ’ Þyrfti
flatarmál þeirra greina að
standa í réttu hlutfalli við
upphæðir þær sem um er að
ræða, þótt Morgunblaðið yrði
þá að vísu að gerast stærsta
blað í heimi.
Ráðizt á
dómsmálaráðherra
Enn heldur Marshallpressa
Morgunblaðsins áfram að
endurprenta gamlar dylgjur
um prentvélakaup Þjóðvilj-
ans. Reynir blaðið i gær að
gera það tortryggilegt að
prentsmiðja Þjóðviljans hafi
á sínum tíma keypt tvær
prentvélar. Það er rétt að
fyrst var keypt gömul prent-
vél af íhaldsblaðinu Natio-
nal-Tidende í Danmörku, en
hún var svo stór að yfir
hana hefði orðið að reisa sér-
stakt hús. Því var það ráð
tekið af fátæktar sökum að
selja þá vél, þegar kostur var
é prentvél í Gautaborg sem
unnt var að koma fyrir í
húsnæðinu við Skólavörðustíg.
Útborganir til þessara kaupa
voru yfirfærðar á venjuleg-
an hátt af íslenzkum yfir-
völdum, og lán í því skyni
veittu þrír ríkisbankar. Al-
gangurinn var eins og marg-
sinnis hefur verið skýrt frá
greiddur með láni sem sænsk-
ur banki veitti gegn tryggingu
frá Útvegsbanka fslands, en
Jóhann Hafstein, þáverandi
bankastjóri, veitti Þjóðviljan-
um hina beztu fyrirgreiðslu
við að koma þeim viðskiptum
í krirfg.
Dylgjur Morgunblaðsins um
þetta efni eru því fyrst og
fremst árásir á Jóhann Haf-
stein; komi rúblur við þessa
sögu hlýtur Jóhann að vera
meðalgöngumaður. Er þess að
vænta að núverandi dóms-
málaráðherra uni ekki jafn
blygðunarlausum árásum öllu
lengnr, svo uppnæmur sem
hann hefur reynzt fyrir ‘ann-
arskonar gagnrýni að undan-
fömu. — Austri.
Staða aðstoðar/æknis
við lyflæknisdeild Borgarspdtalans, er laus til
umsóknar. Staðan veitist frá 15. júní n.k. til eins
árs í senn. Laun samkvæmt samningi Reykjavíkur-
borgar og Læknafélags Reykjavíkur.
Upplýsingar varðandi stöðuna veitir yfirlæknir
deildarinnar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um
námsferil og fyrri störf sendist Sjúkrahúsnefnd
Reykjavíkur, Heilsuvemdarstöðinni, fyrir 1. maí.
Reykjavík. 8 marz. 1967
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Vélrítunarstúlka
getur fengið starf við ritsímastöðina í
Reykjavík (vaktavinna) frá 1. aríl n.k.
Umsóknir, þar sem getið er aldurs og
menntunar, sendist mér fyrir 20. þ.m.
RITSÍM AST J ÓRINN.
SKYNDISALAN
heldur áfram í dag. — Notið tækifærið!
TÖSKUBÚÐIN
Laugavegi 73.
-----------------------I
ATHUGID
Getum bætt við okkur klaaðningum og við-
gerðum á bólstruðum húsgögnum.
Góðir og vanir fagmenn.
Húsgagnav. Þorsteins Sigurðss.
Grettisgötu 13. — Sími 14-0-99.
í
BLAÐADRílFING
Blaðburðarböm óskast í eftirtalin hverfí:
Laufásveg — Skipholt — Hverfisgötu II.
Tjamargötu — Vesturgötu — Höfðahverfi.
Auglýsingasími Þjóðviljans 17 500