Þjóðviljinn - 15.03.1967, Blaðsíða 12
/
IIHniUllÍllllMIIIIIIHinillHIIIIHHIIHIIMimiMIHMIHUIIIIIIIUIIIIimmilllllllllllllllllllHIIMHlllHIIHIIIIIIIIIUIIIIIIHIIII
Vlnlandskortið og fylgirít þess \
m
u
m
sem bókasafn Yale-háskóla í Bandaríkjunum lánar til
sýhingar í Þjóðminjasafni íslands 15.—30. marz 1967
■ Hér á eftir fer greinargerð um Vínlandskortið sem
Kristján Eldjárn þjóðminjavörður hefur tekið saman og
fréttamenn fengu afhenta í gær:
■ Vínlandskortið og fylgirit þess, sem bókasafn Yale-
háskóla í Bandaríkjunum lánar til sýningar í Þjóðminja-
safni fslands 15.—20. marz 1967
Vínlandskortið er nefnt svo,
vegna þess að það er talið eina
þekkta alheimskort frá miðöld-
um, þar sem sýndur er og nafn-
greindur nokkur hluti vesturálfu
heims, þ.e. lönd þau, sem nor-
rænir menn fundu í Ameríku á
víkingaöld. Vestur og suðvestur
af Grænlandi er sýnd aflöng ey
frá norðri til suðurs, og skipta
tveir Jangir firðir á austurströnd-
inni henni í þrjá mikla skaga.
Hægra megin við nyrzta skagann
er skrifað Vinlanda Insula, eyin
Vínland.
Vínlandskortið og bókin
Kortið er dregið með bleki á
bókfell t>g er 27,8x41 sm að stærð.
Það var upphaflega bundið sem
tvíblöðungur fremst í bók, sem í
var næst því nokkúr hluti af
Speculum Historiale eða Sögu-
spegli, sem er eins konar verald-
arsaga frá sköpun heims til 1252,
þekkt rit eftir munkinn Vincent
af Beauvais (um 1190—1264), og
þar fyrir affcan áður óþekkt rit,
svonefnd Tartarasaga, sem er
samin af munki, er tók þátt í
páfalegri sendiför Fransiskusar-
Vélstjóraprófum
nýlokið í Rvík
og á Akureyri
Prófum fyrsta stigs vélstjóra-
menhtunar er nýlokið í Reykja-
vík og á Akureyri.
Undii* prófin í Reykjavik
gengu 27 nemendur en 14 á Ak-
ureyri. 3 nemendur í Reykjavik
stóðust ekki prófið. Af þeim 41
nemanda, sem undir prófiðgengu
á béðum stöðunum hlutu 23
framhaldseinkunn og geta setzt
í fyrsta bekk Vélskólans en hin-
ir, sem stóðust prófið án fram-
haldseinkunnar geta gengið und-
ir inntökupróf í sept næstkom-
andi.
Námskeið þessi eni þau fyrstu
er Vélskóli Islands heldur sam-
kvæmt lögum frá 1. júli 1966, en
samkvæmt 5. grein þeirra laga
eru inntökuskilyrði á námskeið-
in:
a) Að umsækjandi hafi náð 17
ára aldri.
b) Að umsækjandi sé ekki
haldinn næmum sjúkdóxhi eða
hafi líkamsgalla sem geti orðið
honum til tálmunar við starf
hans.
c) Að umsækjandi kunni sund.
Umsóknareyðublöð geta menn
fengið með því að snúa sér
munnlega eða bréflega til skól-
ans.
Blaðskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
b c d e f
g h
I* wr'vz * '&éiM1 mm m
m m lll
m i inm m*
mtmtm m
HPIS i isi
ii MrnWtm
■ i !i«i is
abcdef gh
HVÍTT: TR:
Arinbjöm Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson
14. 0—0—0
munksins Jóns af Plano Carpini
á fund Mongólakeisara í nánd
við Karakorum í Mið-Asíu 1245-
47- Þessi tvö handrit og kortið
sjálft eru öll talin rituð eftir
eldri forritum af sama skrifar-
anum, og hefur kortið verið gert
til skýringar ritunum og bundið
með þeim, þótt það sé á skinni,
en ritin á pappír.
Seint á 19. öld hafa kortið og
Tartarasaga verið tekin úr upp-
haflegu bókinni og bundin aftur
saman, en Speculum er enn í
upphaflega bandinu. Ormagöt á
handritunum sýna með vissu,
hvemig þau voru bundin sam-
an í öndverðu og mynduðu eina>
heild, enda eru þau öll jafnstóf
í broti. Fyrir tilviljun komu
bindin tvö í hendur sama manns
árið 1958, og 1964 voru þau gef-
in Yale-háskóla.
Aldur Vínlandskortsins
Sérfræðingar telja, að pappír-
inn í Speculum Historiale og
Tartarasögunni geti ekki verið
búinn til síðar en 1439 eftir vatns-
merkjum að dæma. Þar sem rit-
in og kortið eiga saman bg eru
öll rituð með sömu hendi, er
þetta mikilvæg bending um ald-
ur kortsins. Enda kemur það
heim, að rithöndin er hönd æfðs
skrifai’a, sem sennilega hefur
unnið í ritstofu einhvers klaust-
urs, og er stafagerðin það af-
brigði af „kúrsíf“, sem nefnist
„Efrirínar-bastarda’’ og notuð
var i suðvestanverðu Þýzka-
landi á öðrúm fjórðungi 15. ald-
ar. Þá kemur og upphaflega
bandið vel heim við tímann um
1440-50 og getur naumast verið
öllu yngra. Þannig ber margt að
sama brunni, og má að lokum
benda á, að það er táknrænt
fyrir þann tíma þegar bókfellið
er að víkja fyrir pappímum, að
hér skiptast á skinn og pappír í
sömu bókinni.
Að öllu athuguðu er niðurstaða
fræðimanna sú, að Vínlandskort-
ið hafi verið gert nálægt 1440, í
hæsta lagi um það bil ári fyrr
eða nökkrum árum seinna. Aðal-
fyrirmynd þess hefur verið hið
kringlótta alheimskort, sem An-
drea Bianco gerði í Féneyjum ár-
ið 1436. Breytingar og viðbætur
á Vínlsndskortinu sýna, að sá
sem það hefur gert, hefur haft
sérstakan áhuga á útjöðrum hins
þekkta heims. Þannig er austur-
hluti kortsins afbrigðilegur frá
fyrirmyndum sínum að því leyti,
að þar er sýnt Tartarahaifið
mikla og eyjarnar umhverfis þáð
án þess að fræðimenn hafi enn
getað áttað sig á við hvaða heim-
ildir þetta styðst.
Á Vínlandskortinu er Græn-
land sýnt sem ey, og uppdrátt-
urinn er svo eftirtakanlega nærri
lagi, að hann hlýtur að styðjast
við raunverulega þekkingu á
landinu. Lögun Vínlands er aft-
ur á móti úr Istusu lofti gripin,
Miðvikudagur 15. marz 1967 — 32. árgangur — 62. tölublað
en skagarnir þrír munu eiga að
minna á löndin þrjú, Helluland,
Markland og Vínland- Þannig
eiga þessir uppdrættir rætur að
rekja til Norðurlanda, líklega
helzt Islands, og mættu þeir vel
vera eina dæmið, sem nú er
þekkt um nörræna ' kortagerð á
miðöldum,-
Áletrunin á kortinu
Fyrir ofan uppdráttinn af
Vínlandi er þetta skrifað á
latínu:
„Að vilja guðs, og eftir langa
ferð frá eynni Grænlandi í suð-
ur til fjarlægustu hluta vestur-
hafs, sigldu þeir félagar Bjarni
og Leifur Eiríksson til suðurátt-
ar gegnum ísa og fundu nýtt
land, ákaflega frjósamt og jafn-
vel vaxið vínviði, og nefndu það
eyna Vínland. Eiríkur, sendimað-
Ur postullegs sætis og biskup
Grænlands og grannlanda þess,
kom til þessa víðáttumikla og
auðuga lands, í nafni almáttugs
•guðs. á síðasta ári vt>rs blessaða
föður Pascals, og dvaldist þar
langa hríð bæði vefcur og sumar,
en sneri aftur norðaustur til
Grænlands og hélt síðan för
sinni áfram (til Evrópu?) í auð-,
mjúkri hlýðni við viljai yfirboð-
ara sinna“.
Hér er vikið að ferðum Bjama
(Herjólfssonar) og Leifs heppna
Eiríkssonar frá Grænlandi
skömmu fyrir eða um 1000, og
ferð Eiríks biskups (ufsa Gnúps-
sonar) til Vínlamds árið 1117 (í
íslenzkum annálum er þessi ferð
talin árið 1121).
Milcil ófærð á veg
• r
Talsverður snjór ó götum Reykjavíkur ígær
I gærmorgun var kominn þó nokkur snjór á götur Reykjavíkur og reyndist mörgum óvönum bíl-
stjóranum erfítt að aka um þær, þótt vafalaust myndi margur úti á landi, sem vanirr er meiri
snjó, ekki bafa kippt sér upp við þetta —■ Myndin er tekin á götu hér í borginni í gær. —
Mikil snjókoma og skafrenn-
ingur hafa víða valdið ófærð á
vegum úti. Verst hefur veðrið ver-
ið norðanlands og á Vestfjörðum
en einnig í Reykjavík urðu um-
ferðartruflanir í gærtnorgun
vegna snjóa og varð Rauðarár-
stígur ófær smábílum um tíma.
32 átekstrar höfðu orðið í
Reykjavík í gær þegar Þjóðvilj-
inn hafði samband við lögregl-
una kl. 11, io árekstrar í Hafn-
arfirði og einir 5 í Kópavogi.
Hvergi var þó um alvarlegar
skemmdir að ræða.
Vegna illviðris hafa fílugvélar
ekki flogið frá Reykjavíkur- og
Keflavíkurflugvelli og í fyrradag
voru allir flugvellir lokaðir nema
Vestmannaey j af lugvöllur.
Fært var í -gær i Borgarfjörð
en síðan tók ófærðin við. Frá
Reykjavík vár fært austur í
Þrengsli í gærmorgun og þjóð-
vegurinn hafði verið ruddur fyr-
snjoa
ir stóra bíla og jeppa austur í
Vík í Mýrdal. Þá var fært um
Skeið, Hreppa og Grímsnes. Mik-
il ófærð var í nágrenni Selfoss
þar voru allir vegir lokaðir nema
suðurleiðin, það er vegurinn til
Eyrarbakka, Stokkseyri, austur
Flóann og upp Grímsnesið.
SÞ. veita rann-
sóknastyrki í ár
Sameinuðu þjóðimar munu
■éeita á þessu ári, eins og áður,
allmarga rannsóknarstyrki á
sviði mannréttinda. Er umsóikn-
arfrestur um styrki þessa til 17.
apríl 1967. Á sfðasta ári voru
28 slíkir rannsóknarstyrkir veitt-
ir umsækjendum í 19 löndum, til
fræðilegra rannsókna á sviði
mannréttinda.
Frekari upplýsingar gefur ut-
anríkisráðuneytið.
Hlaut 2/a ára íang-
elsi fyrír fjárdrátt
Þriðjudaginn 14. marz var í
sakadómi Reykjaviþur kveðinn
upp dómur í máli, sem af ákæru-
valdsins hálfu hefur verið höfð-
að á hendur Ingólfi Jónssyni,
skrifstofumanni, Álftamýri 6,
hér í borg, fyrir fjárdrátt og
óheimila veðsetningu á annars
manns eign. Var hann fundinn
sekur uip ákæruatriðin.
f fyrsta lagi taldi dómurinn
sönnun vera fram komna fyrir
því að ákærði hafi dregið sér
kr. 1.048.379,04 af umráðafé
fasteignasölu Sverris Hermanns-
sonar og Þorvalds Lúðvíksson-
ar þegar hann var þar starfs-
maður á árinu 1964.
í öðru lagi var talið upplýst
að ákærði hafi á árunum 1960
til 1964 dregið sér samtals um
kr. 388.50Í,18 af fé, sem hann
hafði til geymslu eða innheimtu
fyrir 6 aðra aðila.
í þriðja lagi taldi dómurinn
sannað að á'kærði hafi á árun-
um 196? og 1964 sett í heimild-
arleysi banka að handveði fyrir
yfirdrætti á reikningsláni sínu
í bankanum veðskuldabréf í
eigu þriggja einstaklinga sam-
tals að eftirstöðvum krónur
520.833,33. Bréfin voru síðar
léyst úr handveði.
Atferli ákærða var talið varða
við 247. gr. og 249. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19. 1940.
Ákærði var dæmdur í tveggja
ára fangelsi, en gæzluvarðhalds-
vist hans í 2% mánuð var lát-
in koma refsingu hans til frá-
dráttar.
Ennfremur var hann dæmdur
til að greiða í fébætur samtals
kr. 1.276.234,58.
Loks var ákærða gert að
greiða allan kostnað sakarinnar,
þar með talin saksóknaralaun
kr. 35.000,00 og réttargæzlu- og
málsvarnarlaun skipaðs verj-
anda síns, Sveins Snorrasonar,
hæstaréttarlögm. kr. 45.000,00.
Þórður Björnsson yfirsaka-
dómari kvað upp dóm þennan.
ísland fullgildir sáttmálann
m.
um afnám kynþáttamisréttis
Síðasta allsherjarþing Samein-
uðu þjóðanna gerði ályktun þess
Tveir umræðufundir Háskólastúdenta:
Rætt um varnir Islands og Vietnam
Síðastliðið haust voru geröar
þær skipulagsbreytingar á sam-
tökum Háskólastúdenta, að stúd-
entaráð var gert að hreinum
hagsmunasamtökúm stúdenta, en
Stúdentafélag Háskólans sér um
öll félagsmál. Síðan hefur mik-
ið líf færst í stúdentafélagið og í
vetur hefur félagið gengizt fyr-
ir sjö umræðufundum, ýmist fyr-
ir stúdenta eina eða allan al-
menning.
Síöasti almenni umræðufund-
urinn var haldinn sl. ménudags-
kvöld og var þar rætt um fjár-
málaspillingu, félagslega upp-
lausn og réttvísina á íslandi.
Næsti umræðufundur verður svo
í Sigtúni annað kvöld, og fjállar
hann um heilbrigðismál —
stjórnsýslu, framkvæmdir ogþró-
un. Framsögumenn verða: Árni
Björnsson, læknir, Ásmundur
Brekkan, læknir og Jóhann Haf-
stein, heilbrigðismálaráðherra.
Fundur þessi er haldinn í sam-
vinnu við Stúdentafélag Rvíkur,
en Stúdentafélag Háskólans
hafði fyrir tveim mánuðum á-
kveðið að efna til umræðufund-
ar um þetta efni og hafði samið
við Árna Bjömsson, form. Lækna-
félags Reykjavíkur, um að hafa
•framsögu á fundinum. Skyldi
fundurinn haldinn 30. marz, en
«
síðan urðu þessi mál mjög um-
r^edd vegna banns ráðherra á
þættinum Þjóðlíf þar sem þessi
mál voru tekin til umræðu.
Vaknaði Stúdentafélag Rvík-
ur þá til lífsins og ákvað að
taka þessi mál til umræðu, áður
en fundur Stúdentafélags Há-
skólans yrði haldinn og leitaði til
sömu aðila um framsögu í mál-
inu. Var þá samið vm að félög-
in héldu fundinn sameiginlega.
Stúdentafélag Háskólans ráð-
gerir að halda a.m.k. tvo al-
menna umræðufundi enn á þess-
um vetri. Síðar í þessum mán-
uði verður fundur um varnir Is-
lands og Atlantshafsbandalagið.
Frummælendur verða þeir Ás-
geir Pétursson sýslumaður og
Stefán Jónsson, fréttamaður.
Einnig er ákveðið að halda fund
um Viet Nam, og verður Jónas
Árnason annar frummælandinn
en ekki er endanlega ákveðið
hver verður hinn frummæland-
mn.
efnis, að þann 21. marz. 1967
skuli baráttu Sameinuðu þjóð-
anna fyrir afnámi kynþáttamis-
réttis minnzt í öllum aðildar-
ríkjum samtakanna.
Sameinuðu þjóðimar hafa á
undanfömum árum- mjög látið
kynþáttamálin til sín taka og
nægir þar að minnast á aðgerð-
ir þeirra í máli Suður-Rhodesiu
og Suð-Vestur Afríku og sam-
þykkta samtakanna um Apart-
heid-stefnu Suður-Afríku stjórn-
ar.
í desember 1965 samþykkti
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna alþjóðasáttmála um afnám
all? kynþáttamisréttis. Samning-
ur þessi var undirritaður af fs-
lands hálfu í aðalstöðvum Sam-
einuðu þjóðanna þann 14; nóv-
ember 1966 og fullgiltur nú f fe-
brúarmánuði. Var ísland meðal
þeirra ríkja sem fyrst fullgiltu
samning þennan, en alls hafa
átta ríki fullgilt samninginn til
þessa. Hann tekur gildi er ?7
ríki hafa fullgilt hann og verður
það væntanlega sfðar á þessu ári,
/