Þjóðviljinn - 21.03.1967, Qupperneq 4
4 SÍBft — ÞJÖÐVTIiJINW — Þr$ðfu<Iagtrr 21. marz 1967.
Utgefandi: Sameínmgarflokkur alþýöu — Sósialistaflokk-
urinn.
Ri'tstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurdux Guömundsson.
Fréttaritstjóri: Siguröur V. Friðþjófsson-
Auglýsingastj.:Sigurðux T. Sigurðsson.
Framkvstj-: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingari prentsmidja Skólaivörðust. 19.
Sími 17500 (5 línur) — Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuði. —
Lausasoluverð kr. 7.00-
Umhugsunarefni
r
í ræðu sem Robert Kennedy hélt fyrir skömmu í
-*• öldungadéild Bandaríkjaþings um styrjöldina í
Víetnam komst hann m.a. svo að orði: „Atvikin...
hafa nú beint hinum furðulega mætti bandarískra
valda gegn fjarlægri og framandi þjóð. Það er tor-
velt fyrir okkur að skynja í hjörtum okkar hvern-
ig fólki í Víetnam er innanbrjósts andspænis þess-
ari styrjöld ... aðeins fáir okkar eru beinir aðilar,
en við hinir lifum lífinu eins og endra'næÞog kepp-
um að markmiðum okkar án þess að láta gný og
skelfingu stríðsins á okkur fá. En Víetnömum hlýt-
ur oft að virðast sem nú sé að rætast opinberun
heilags Jóhannesar spámanns: „Og eg sá og sjá:
Bleikur hestur; og sá er á honum sat hét Dauði,
og Helja var í för með honum, og þeim var gefið
vald yfir f jórða hluta jarðarinnar, til þess að deyða
með sverði og með hungri Qg með drepsótt“.“
JF^að þarf mikið til, að bandarískur stjórnmála-
leiðtogi líki utanríkisstefnu stjórnar sinnar við
lýsingar Opinberunarbókarinnar á dauðastríði
hinna guðlausu og glötuðu skömmu fyrir dag
dúirriSins. Og hér er raunar ekki um neinn venju-
lega.n stjórnmálaleiðtoga að ræða, heldur mann
sem stefnir að hinum æðstu völdum í landi sínu,
mann sem þekkir völundarhús stjórnmálanna út í
yztu æsar og hefur tamið sér gætni hinna þjálf-
uðu þjóðmálaleiðtoga. Samt kemst hann ekki hjá
því að tengja gagnrýni sína á-stefnu Bandaríkja-
stjórnar í Víetnam þungum siðferðilegum dómum.
'r
Tsland er éina landið á hnettinum þar sem enn er
reynt að meta hina ógnarlegu styrjöld í Víetnam
samkvæmt einfaldri forskrift kalda stríðsins, sem
átök hins vestræna frelsis við heimskommúnism-
ann. Sú kenning er boðuð að engir gagnrýni árás-
arstyrjöld Bandaríkjanna í Víetnam nema komm-
únistar og handbendi þeirra. Samt vita allir þeir
sem eitthvað fylgjast með að almenningsálitið í
gervallri Vestur-Evrópu er andsnúið Bandaríkja-
stjóm', andstaðan nær til allra flokka og stétta,
spennir frá kommúnistum til de Gaulle og Kon-
rads Adenauers. Og innan Bandaríkjanna sjálfra
blasir sama myndin við
Sjálfstæðisflokkurinn íslenzki er eini stóri borg-
araflokkurinn í víðri veröld sem reynir að gera
stuðning við innrásarstríðið í Víetnam að sameig-
inlegri stefnu og skyldu stuðningsmanna sinna.
Sú afstaða stafar ekki af hollustu við Atlanzhafs-
bandalagið, því það bandalag er margklofið í' af-
stöðunni til styrjaldarinnar í Víetnam. Ekki lýsir
Sú afstaða heldur hollustu við Bandaríkin sjálf
eða þann flokk sem þar fer með völd, því þar er
urn hliðstæðan ágreining að ræða. Hollustan er
einvörðungu bundin við stríðsæsingamennina, boð-
bera hins óbilgjarna valdahroka. Það hlýtur að
vera sívaxandi umhugsunarefni fyrir þann mikla
fjölda sem veitt hcfur Sjálfstæðisflokknum braut-
argengi á undanförnum árum, hvort það þröng-
sýna og ofstækisfulla forustulið sem nú stjórnar
flokknum verðskuldi þann stuðning. — m.
ÞAÐ EítU KOiMIN vorjafndægur
og ljósið hefur sigrazt á myrkrinu
eins og prestarnir ætla að segja
okkur á Páskunum. Þeir geta raun-
ar byrjað fagnaðarboðskapinn strax
á Skírdag, dregið örlítið úr honum
á föstudaginn langa með dekkri
raddblæ og sorglegra yfirbragði,
notað svo laugardaginn - til að ná
sér aftur upp, og svo koma tveir
heilir, helgir dagar í dýrðlegum
fögnuði, með messur i bak og fyr-
ir. Og það mun verða fjallað um
hina voveiflegu atburði sem urðu
í Gyðingalandi í fornöld af mikl-
um lærdómi, og sigur lífsins sem
fylgdi í kjölfar þeirra af djúpum
skilningi. Sem betur fer er kirk’jan
okkar blessunarlega laus við allt
nútíma pex um vandamál líðandi
stundar, og vígslubiskupar fylgjast
ekki með alþjóðamálum, að því er
þeir segja sjálfir í sjónvarpinu.
Ekki hefur heldur heyrzt neitt um
framlag Æskulýðsráðs þjóðkirkj-
unnar til Vietnamnefndarinnar sem
stofnuð var á dögunum, enda vitið
meira að láta ekki kommúnista
plata sig út í það fen með Fram-
sókn og Krötum og einstaka villu-
ráfandi Sjálfstæðismönnum. Al-
kirkjuráðið í Genf lét þó í vetur
hafa sig í að skora á Johnson að
hætta lpftárásum á Vietnam, en
það hefur líklega verið um svip-
að leyti og minnstu munaði að
Spellmann kardínáli færi alvopn-
aður í kommúnistana, en lét sér
nægja að blessa hermenn Krists á
jólunum, — annars hefði Vietkong
líklega mátt fara að biðja fyrir sér.
En þetta eru miklir hættutímar
fyrir þá kennimenn sem ekki gæta
afskiptaleysis um vandamál líð-
andi stundar. og er séra Marteinn
Niemöller, sem einu sinnj var fínn
maður, þar ljósasta dæmið. Hann
ferðaðist nýlega um Víetnam í boft
Hanoi-stjórnar og er búinn að skrifa
um þetta grein í illræmt kommún-
istablaið, Ný'ja Tímann, sem gefið
er út í Moskvu, —• og þetta gerist
á sama tíma og Sigurður A. Magn-
ússon fær ekki að þiggja boð
Bandaríkjastjómar um samskonar
ferðalag á vegum Morgunblaðsins.
EN ÞAÐ ERU vorjafndægur og
ljósið hefur sigrazt á myrkrinu, og
á Bretlandi telja þeir sumarið op-
inberlega gengið í garð á þéssum
tímamótum. Leiðtogi þarlendra í-
haldsmanna tvistaði veturinn út á
Pressuballinu okkar á Sögu, en
fékk ekki inni með ræðu sína um
blessun Nató og hættuna af komm-
únistum í Háskólanum, og varð að
láta sér nægja Sjómannaskólann,
— og liggur við að þessi mistök
heyri undir þjóðarskömm., því Ed-
ward Heath hefur alltaf verið okk-
ar maður, og reyndi með talsverð-
um árangri að hafa vit fyrir okkur
í landhelgismálinu. En nú er hann
farinn að fagna sumri í Bandaríkj-
unum og verður þar ekki í kot vís-
að, virðulegustu háskólar vestra
standa honum opnir til fýrirlestra-
halds. Þar verður mikið um dýrðir
þegar Heath lýsir stefnu sannra
Breta í Víetnammálinu, en þó verða
ekki allir áheyrendúr sámmála
ræðumanni, því í Bandaríkjunum
eru líka í gangi ýmsir óábyrgir að-
ilar, aðallega menntamenn og ofvit-
ar, sem aldrei virðast ætla að skilja
hinn göfuga tilgang stjómar sinnar
í Vietnam, og líka einstaka villu-
ráfandi prestar sem hafa álpazt til
að fylgjast með alþjóðamálum og
alltaf eru að derra sig við Johnson, “
sendandi honum fávísleg mótmæli
í ,tfma og ótíma.
OG ÞA© ERU líka voijafndægur i
Bandaríkj unum, en forseti þeirra
herra Lyndon B. Johnson má því
miður ekki vera að þvi að taka á
móti Edward Heath í þetta sinn,
— hann er að fagna sUmri með enn
virðulegri leiðtoga, Ky flugmar-
skálki frá Vietnam, suður á Guam'.
Á þeim fundi hinna göfugu frelsis-
unnenda verður reiknað út af mik-
illi snilld hversu gengið hefur bar-
áttan gegn makt myrkranna á liðn-
um mánuðum, og hvaða ráð dugi
nú bezt til að ljósið fái sem skjót-
ast sigrazt á myrkrinu í hinu
hræðilega landi flugmarskálksins.
Kannski fáum við góðar fréttir af
tilvonandi sigrum frelsisins áður
en Páskahátíðin gengur í garð, en
vísast blandnar frásögnum af
hermdarverkum ofbeldisaflanna, —s
en þessu getum við öllu gleymt
þegar prestar þjóðkirkjunnar byrja
að fjalla um upprisuna í messum
sínum árla morguns á sunnudaginn
kemur, og halda áfram að hugleiða
hina merku atburði í Gyðingalandi
í fornöld, fram á mánudagskvöld,
en sleppa sem betur fer öllu pexi
um vandamál líðandi stundar. Von-
andi falla ekki alltof margir af her-
mönnum Krists í Víetnam rétt á
meðan, — það skiptir þá minna
máli með kommúnistana og þeirra
hyski.
KOLBEINN SVARTI.
Frá Reyáarfirðí
Tvö útköll slökkviliðs.
Sl. laugardag var slökkvi-
lið Reyðarfjarðar tvisvar kvatt
út. f fyrra sinnið hafði kvikn-
að í reykháfi og var slökkt í
honum, áður en skemmdir höfðu
af hlotizt. Er kulnað var í reyk-
háfnum fór slökkviliðið beint i
Félagslund, þar hafði kviknað
í filmu í sýningarklefa. Þar
urðu nokkrar skemmdir, en þó
minni en haldið var í fyrstu.
Sýningarklefinn og nágrenni
hans sviðnaði bæði af eldi c.g
geysilegum hita. Skemmdir
urðu einnig einhverjar á sýn-
ingarvélum. Tveir menn voru í
sýningarklefanum, þegar kvikn-
aði í, og sluppu þeir ómeiddir
Viðgerð á þessum skemmdurn
mun verða allkóstnaðarsöm.
Aðalfundur Leikfélags Reyð-
arfjarðar.
Leikfélag /Reyðarfjarðar héit
aðalfund sinn um síðustu helgi.
Var félaginu þar kosin alveg ný
stjóm, þar sem fráfarandi
stjórn gaf ekki kost á sér til
endurkjörs. Stjórnina skipa nú:
Björn Jónssori, formaður, Alf-
heiður Hjaltadóttir, ritari og
Þórir Gíslason, gjaldkeri.
Félagið hyggstsýna eitt leik-
rit í vetur, en ekki er unnt áð
segja frá því frekar að sinni.
Tvö Framsóknarfélög
Einhugur Framsóknarmanna á
Reyðarfirði hefur lengí verið
með þeim endemum, að þeir
hafa ekki getað unnið saman í
einum flokki. Þannig nafape..
boðið fram í tvennu lagi við
hreppsnefndarkosningar. Af
Framsóknarfélagi staðarins heí-
ur þvi sífellt verið að ganga.
Svo gerist það fyrir u.þ.b. viku,
að annað Framsóknarfélag var
stofnað. Var það nógu snemma
til að það félag gæti tekiðþáit
í aukakjördæmisþinginu á dög-
unum, þar sem framboð þeirra
Framsóknarmanna var ákveðið.
Formaður þessa nýja Fram-
sóknarfélags er Guðjón Þórar-
insson, en aðrir í stjóm munu
vera Bjöm EysteinssonogBald-
ur Jónsson á Sléttu.
fmislegt.
Fjölmörg íbúðarhús em hér
í smíðum og er unnið við inn-
réttingar sem óðast. Þá er í
smíðum nýtt verzlunarhús, sem
Kristinn Magnússon reisir. Einn-
ig er unnið við innréttingu þess.
Fjárhagsáætlun Reyðarfjarð-
arhrepps hefur verið lögðfram
til fyrri umræðu. Talið er, að
hún muni þurfa að taka all-
miklum stakkaskiptum, áðuren
hún er samþykkt.
Egill Jónsson, verkstjóri Vega-
gerðar ríkisins, varð sextugur
sl. laugardag. Var mannmargt
á heimili hans þann dag.
Frá Hornafirði
Grænkar i görðum
Hér hefur tíð verið ákaflega
umhleypingasöm frá áramót-
um, einkum í febrúar. Þíðviðri
hafa þó verið mikil og farið
var að grænka með húsveggj-
um og í görðum. Snjólaust hef-
ur verið með öllu þangað til
nú síðustu daga, að svolítið
snjóaði. Brugðið hefurtil norð-
anáttar og kólnað, en veður
um leið stillt.
Gæftir stirðar.
Gæftir hafa verið mjögstirð-
ar, það sem af er árinu, en
gefið hefur sfðustu daga. Fimm
bátar róa með línu, en afli er
lítill, þar sérn ' sjaldan hefur
gefið. Netavertíð fer trúlega að
byrja h.iá bessum bátum.
Gistihúsið-
Unnið er stöðugt við bygg-
ingu nýja. gistihússins, og st
innréttingin vel á veg komin.
Búizt er við, að hægt verði að
taká gistihúsnæðið í notkun •
maflok. Veitingasalan í þessu
nýja húsi var hins vegar opnuð
'á sIj hausti.
Með tilkomu þessa veglega
hótels verður gerbreyting á að-
stöðunni hér til að taka við
ferðafólki, en ferðamanna-
straumurinn hingað’hefur auk-
1 izt mikið og á vonandi eftir að
aukast enn að mun. Eigendur
hótelsins eru Ámi Stefánsson
og Þórhallur Dan.
Hvenær verður bflfært
suiman jökla?
Eins og kunnugt er var hat-
in smíði á brú yfir Jökulsá á
Breiðamerkursandi á sl. sumri.
Verður unnið áfram við það
mannvirki í sumar og á að
ljúka því í sumar eða haust.
Er þetta hin þýðingarmesta
samgöngubót fyrir sveitir Homa-
fjarðar og öræfin.
Tvær ár eru þó óbrúaðar á
Breiðamerkursandi,' Fellsá aust-
ast á honum og Hrútá vestar-
lega, nálægt Kvískerjum. Geta
þær verið miklir farartálmar
a.m.k. minni þílum, sérstaklega
Hrútá. Ráðgert mun hafa ver-
ið að þær yrðu þrúaðar sumar-
ið 1968, nauðsyn má telja, að
þrýr komi á þessar ár strax í
sumar. Ekki er okkur kunnugt,
hvort unnið hefur verið að því,
á þann hátt, að svo geti orðið.
Nú mæna menn orðið augum
til Skeiðarársands í spum. Hve-
nær verður vatnasvæði hans
brúað og þá bflfært úr Horna-
‘firði til Suðurlands. sunnan
iökla?
„Austurland" 3. marz.
BLAÐADREIFim
Blaðburðarböm óskast í eftirtalin hverfi:
Hverfisgötu II. — Tjarnargötu — Vestur-
götu Höfðakverfi.