Þjóðviljinn - 21.03.1967, Side 10
Smásálarskapur
póstmeistara
★ Eins og kunnugt er hafa5
póstmenn þurft ad ganga
að því með hörku að fá
sanngjamar leiðréttingar
mála sinna í sambandi við
kjör sín ' eftir að kjara-
dómur úrskurðaði laun
þeirra fyrst. Hefur póst-
meistari oft sýnt mikla
stirfni í þessum málum,
svo að vakið hefur reiði
póstmanna, og- ekki eru
þeir hvað sízt reiðir hon-
um vegn^ síðasta afreks
hans í þessum efnum.
★ Svo er mál með vexti að
samkvæmt úrskurði fé-
lagsdóms áttu póstmenn í
12.—14. laúnaflokki sem
starfað hafa í 4 ár að
gangast undir sérstakt próf
nú innan skamms og laun
þeirra þá að haskka.
Hækkunin gilti frá 1. nóv.
sl, og var mismunurinn
borgaður eftir kontó-.
greiðslu. Nú gerist það
síðast í febrúar að einn
þessara póstmanna deyr,
og átti ekkja hans þá að
fá greidd iaun hans í þrjá
næstu mánuði. Þá bregð-
ur svo við að póstmeist-
ari dregur fvrrgreindan
mismun af launum til
ekkjunnar.
★ Vel má vera að póstmeist-
ari hafi til þess lagalegan
rétt að draga þennan mis-
mun frá, þar sem hinn
látni póstmaður hafði ekki
lokið fyrirhuguðu prófi,
fremur en starfsfélagar
hans, þar sem próf hafði
ekki verið haldið enn, er
hann lézt. En póstmeist-
ari hefur hér sýnt mikla
smámunasemi í launa-
greiðslu til ekkjunnar og
eru póstmenn, eins og áð- 1
ur segir, mjög sárir vegna
þessarar framkomu.
Eríndi Hermanssons
Hermansson kom fram á mörgum fundum á rnedan hann dvaldist hér. Myndin er tekin á einum
þeirra sem haldinn var í Lindarbæ. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Aljjingi grí©« fram fyrir
hertdur ó Þingvallanefnd!
'EftiríÉirandi tillaga var sam-
þykkt samhljóða á aðalfundi Fé-
lágs íslenzkra frsgða 16. marz
1967.
Aðalfundur Félags íslenzkra
fræða haldinn 16. marz 1967, á-
telur harðlega þá ráðstöfun
Þingvallanefndar að úthluta ein-
staklingum sumarbústaðalóðum
í landi þeirra jarða í Þingvalla-
sveit, sem ríkið hefur fest kaup
á til verndunar helgasta sögu-
stað þjóðarinnar, Þingvelli við
Öxará.
Þar sem Þingvallanefnd hefur
brugðizt þvi hlutverki sínu að
standa vörð um hinn fornhelga
þingstað og gerzt í þess stað
lóðaúthlutunarnefnd, skorar
fundurinn á alþingi fslendinga
að grípa fram fyrir hendur
nefndarinnar, koma í veg fyrir
frekari sumarbústaðaþyggingar
einstaklinga á Þingvallasvæðinu
og vinna að því að endurheimta
til friðunar þau sumarbústaða-
lönd, sem þegar hafa verið af-
hent einstaklingum á umræddu
svæði.
Jafnframt skorar fundurinn á
þá borgara, sem úthlutað hefur
verið lóðum á Þingvallasvæðinu
á þessum vetri, að afsala sér
lóðunum og hætta við bygging
sumarbústaða þar.
Truflnanir á rafmagni, síma
og útvarpi vegna óveðurs
Flug féll niður, en vegir sluppu furðanlega
H Miklar truflanir urðu á
rafmagni, útvarpssendingum
og síma af völdum veðurs
um helgina, en þá var óvenju
umhleypingasamt, skiptist á
ofsarok með él'jagangi, rign-
ingar og frost á Suðvestur-
landi, en snjóaði víðast ann-
arsstaðar.
■ Innanlandsflug féll alger-
lega niður og utanlandsflugi
seinkaði, vegir sunnanlands
sluppu furðanlega. en fyrir
vestan, norðan og austan er
að mestu leyti samgöngulaust
á landi.
Blaðskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
abcdeí gh
a b c d e t g h
HVÍTT: TR:
Arinbjörn Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson
16. gxf6
Rafmagnstruflanir urðu eink-
um á Súður- og Suðvesturlandi,
bæði ’ á laugardag og sunnudag.
Um kl. fimm á laugardag bilaði
aðalrofi í Elliðaárstöðinni og fór
þá rafmagn af Sogsvirkjunar-
svæðinu öllu. Tók um klukku-
stund að kippa þessar^ bilun í
lag, en á laugardagskvöld urðu
nokkrar truflanir í Árbæjar-
hverfi er háspennulínur biluðu.
Á sunnudagsmorgun urðu bil-
anir víða á Suðurlandi. m.a. var
rafmagnslaust í langan tíma á
öllu svæðinu frá Hellu austur að
Vík, þá fór rafmagn af Kjósinni
um tíma og smærri truflanir
urðu annarsstaðar. Á sunnudags-
kvöld varð rafmagnslaust í
Hafnarfirði og nágrenni, m.a. á
Vatnsendahæð og féllu þá niður
sendingar útvarpsins.
Talsvert var um bilanir á
símalínum víða um land, m.a.
biluðu línurnar frá Brú að
Hólmavík, Búðardal og Patreks-
firði, línur milli Akureyrar og
Varmahlíðar, Húsavíkur og
Raufarhafnar og víðar.
Allt innanlandsflug lá niðri
um helgina vegna veðurs, en ut-
anlandsflug hélzt samkvæmt á-
ætlun, þó með talsverðum seink-
unum vegna mótvinds.
Er Þjóðviljinn spurðist fyrir
um ástand hjá Vegamálaskrif-
stofunni í gærkvöld var sagt að
vegir sunnanlands hefðu sloppið
ótrúlega vel og er ágæt færð
frá Reykjavík um Þrengslin allt
austur að Vík, en Hellisheiði er
lokuð. Frá Vík og austur yfir
Mýrdalssand er aðeins fært á
fjallabílum, en sæmileg færð er
austan sands. Þá er fært upp í
Hvalfjörð og Borgarfjörð, og
var búizt við að í dag yrði opn-
uð Brattabrekka vestur í Dali
Framhald á 8. síðu. ■
FÉLAG RÓTTÆKRA STÚD-
ENTA hélt ágætan fund í
Lídó í íyrradag, en þar flutti
C. H. Hermansson erindi um
Leið vinstri hreyfingar á
Norðurlöndum og svaraði
fyrirspurnum.
SVAVAR GESTSSON setti fund-
inn og stjórnaffi honum, en
síðan flutti Magnús Kjart-
ansson inngangsorð og vék
að þeim stórauknu umræðum
um sósíalisma sem mótað
hefðu stjórnmálaástandið í
Vesturevrópu að undánförnu.
. Síðan flutti Hermansson er-
indi sitt; hefur liann gefið
Þjóðviljanum heimild til að
birta það og verður efni þess
því ekki rakið hér; það kem-
ur í heild hér í blaðinu vænt-
anlega á fimmtudag.
AÐ ERINDINU LOKNU voru
bornar fram fjölmargar fyr-
irspurnir sem Hermansson
svaraði jafnharðan, en að
loknum þakkaði Svavar
Gestsson Hermansson kom-
una fyrir hönd Félags rót-
tækra stúdenta og fundar-
manna.
Þriðjudagur 21. marz 1967 — 32. árgangur — 67. tölublað.
slendíngaspjall
órs Laxness
H Út er komin hjá Helgafelli ný bók eftir Halldór Laxness
sem nefnist Islendingaspjall. Þar segir böfundur frá afstöðu
sinni til ýmissa þátta í íslenzkri menningu svo og frá
gömlum og nýjum viðskiptum hans við landa sína.
ÆF félagar
ÆF félagar! Dansleikur á vegum
ÆF verður haldinn á miðviku-
dagskvöldið í Félagsheimili
Kópavogs við Neðstu tröð og
hefst kl. 9. Nánar auglýst í blað-
inu á morgun.
Haldór Laxness segir í for- ^
mála að margir samlandar sín-
ir auk ýmsra skandínavískra
lesenda hafi spurt hvar ísland
sé í Skáldatíma, og hafi hann
saman skrifað þetta kver, íslend-
íngaspjall, til að ráða nokkra bót
á því! (það er) sarrianskrifað
í fyrsta lagi fyrir tilmæli minna
góðu sænsku forleggjara, Rabén
& Sjögren, sem hafa beðið mig
að gera lángan Íslandskapítula,
innskot í nýja útgáfu þeirra á
Skáldatíma. í annan stað er kver-
ið miðað við óskir íslenzkra les-
enda sem fannst ég hefði í
Skáldatíma svikið þá um þá
ánægju að fá sjálfsmynd af höf-
undinum með ísland kringum
sig og mega kynnast hug hans
eins og sakir standa til íslenzkr-
ar menningar að fornu og nýju.
Á kápusiðu er þessi bók skil-
greind sem eins konar ný
Crymogæa: leiðrétting á skoðun-
um útlendinga á íslenzkri menn-
ingu og svör við náttúrlegum
efasemdum þeirra. En með allt
að því sama rétti, stendur þar,
má segja að hún sé leiðrétting
á skoðunum íslendinga um sjálfa
sig. Þá er þar og búizt við því
að landar „kveinki sér enn við
vægðarlausri snilld hans“ þ.e.
Halldórs Laxness. — Bókin er
129 bls.
i
VaraþingmaSur
lætur að sér
Þormóður
goði seldi vel
Þormóður goði seldi í gær-
morgun í Bremerhaven 245 tonn
fyrir 262:200 mörk. í morgun
áttu Úranus og Karlsefni að
selja i Þýzkalandi og Kaldbakur
í Englandi.
★ Önnur umræða ,>bjargráð-
anna“ í neðrideild Alþing-
is virtist ætla að verða
stutt eins og oft er með
mál sem mikið er búið
að ræða rétt fyrir þing-
hlé. Framsögumenn nefnd-
arhluta, Birgir Finnsson
(meirihluti) og Luðvík
Jósepsson og Jón Skafta-
son (minnihlutar í sjávar-
útvegsnefnd) tölnðu allir
stutt mál. Ráðherrarnir
tveir sem mest eiga hltít
að máli, Eggert G. Þor-
steinsson sjávarútvegs-
málaráðherra og Magnús
Jónsson fjármálaráðherra
þökkuðu góða afgreiðslu.
★ Þá skauzt upp í ræðustól
varaþingmaðurinn Sverrir
Hermannsson og tók að
flytja langa skrifaða ræðu
unf dýrð núverandi rikis-
stjórnar í sjávarútvegs-
málum og vonzku vinstri
stjórnarinnar í þeim sömu
málum!
★ Lúðvík Jósepsson tókfyrir
mestu fjarstæðurnar í
ræðu varaþingmannsins og
var heldur lítið eftir af
fullyrðingum Sverris að
því loknu. Halldór E. Sig-
urðsson og Einar Agústs-
son tóku einnig til máls
um þessa sérkennilegu
ræðu. En að lokinni ræðu
! Lúðviks á síðdegisfundi
kvaddi enginn sér hljóðs
og lauk svo 2. umr., en
: atkvæðagreiðslu var frest-
i að.
Pólyfónkórinn færíst mikið í fang
Eins og áður heíur verið
sagt frá hér í blaðinu hefur
Pólýfónkórinn undir stjórn
Kathaleen Joyce
Ingólfs Guðbrandssonar ráð-
izt í þaS stórvirki að flytja
Jóhannesarpassíuna eftir J. S.
Bach nú um páskana. Flytur
kórinn passíuna tvisvar, i
fyrra skipti í kvöld í Krists-
kirkju og í síðara skiptið í
stærsta samkomuliúsi lands-
ins, íþróttahöllinni í Laugar-
dal, á skírdag kl. 4 síðdegis.
Jóhannesarpassían er eitt
af hinum fjórum stóru kór-
verkum Bachs og hefur hún
aðeins einu sinni áður verið
flutt hér á landi. Ættu tón-
listarunnendur ekki að láta
fram hjá sér fara þetta ein-
staka tækifæri til þess að
hlýða á hana í flutningi ís-
'enzkra tónlistarmanna.
Með kórnum, en í honum
eru nú nær 70 manns, flytja
fimm einsöngvarar verkið.
Eru þag Sigurður' Björnsson
óperusöngvari sem fékk leyfi
frá óperunni f Stuttgart, sem
hann er fastráðinn söngvari
við, til þess að fara með hlut-
verk guðspjallamannsins. Þá
fer Kristinn Hallsson með
hlutverk Pílatusar og Péturs,
Halldór Vilhelmsson með
hlutverk Krists og Guðrún
Tómasdótir með sópranhlut-
verkið í verkinu.
Þá er ótalið althlutverkið
sem fræg brezk söngkona,
Kathleen Joyce, mun fara
með. Kom. hún hingað til
landsins í síðustu viku og
gafst fréttamönnum kostur á
í gær að hitta hana að máli
og hlýða á hana flytja tvö
lög. Er þetta mikil söngkona
sem á glæsilegan feril að baki
og komið hefur fram á tón-
leikum og í útvarpi víða um
lönd. Mun hún einnig halda
sjálfstæða tóníeika hér á
landi og verður nánar frá því
skýrt í blaðinu á morgun.
Það er að sjálfsögðu í mik-
ið ráðizt hjá Pólyfónkórnura
að fá íþróttahöllina til tón-
leikahalds og kostar undir-
búningur allur fyrir tónleik-
ana mikið fé. Ættu tónlistar-
unnendur að sýna í verki að
Sigurður Björnsson
þeir kunni að meta þennan
stórhug kórsins með því að
f j ölmenna á tónleikana.
Nægilegt er plássið í íþrótta-
höllinni, því hægt er að setja
í hana sæti fyrir allt að 1600
manns og auk þess eru stæði
fyrir nokkur hundruð.